Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
11
Könnun
áút-
breiðslu
fjöl-
miðlanna
„I ÞEIM umræðum, sem
fram hafa farið um nauðsyn
upplagseftirlits, hefur meðal
annars komið í ljós nauð-
synin á reglubundnum fjöl-
miðlakönnunum, ekki aðeins
hvað varðar upplag og
dreifingu, heldur einnig
önnur atriði varðandi það,
hvernig fjölmiðlarnir eru
notaðir, og hverjir nota þá.
Þessi fjölmiðlakönnun er
frumraun á þessu sviði en
viðræður gefa góðar vonir
um reglubundnar fjölmiðla-
kannanir, sem ekki aðeins
auglýsingastofur stæðu að
heldur og fjölmiðlar
almennt“, sagði Ólafur
Stephensen formaður
Sambands fslenzkra aug-
lýsingastofa er hann ásamt
forráðamönnum Hagvangs
hf. kynnti í gær framkvæmd
f jölmiðlakönnunar, sem Hag-
vangur hf. hefur unnið á
vegum S.Í.A.
Sigurður Helgason fram-
kvæmdastjóri Hagvangs hf.
kynnti síðan framkvæmd könnun-
arinnar. Hann sagði að í upphafi
hefði verið ráðgert að fjölmiðlar
yrðu þátttakendur að henni með
auglýsingastofunum, en þegar til
kom náðist ekki samstaða fjöl-
miðlanna þar um, né heldur óskaði
neinn einn þeirra eftir þátttöku.
Það varð því úr að könnunin var
gerð á vegum SÍ A eins og beindist
því að fjölmiðlanotkuninni fyrst
og fremst, þ.e. hvernig menn nota
fjölmiðla, en ekki til dæmis hvað
þeir lesa í blöðum eða tímaritum,
eða um önnur áhugamál varðandi
efni fjölmiðlanna.
Spurningaeyðublöð voru send út
í miðjum október og var aldur
svarenda ákveðinn á bilinu 16—67
ára. Reiknistofnun háskólans valdi
úrtakið eftir fæðingarskrám og
var fjöldi einstaklinga alls 2621.
Alls bárust 1465 svör og fjöldi
endursendra spurningablaða var
97. Hlutfallstala innsendra svara
var því:
Heildarúrtak 2621
+ Endursend 97
„Nettóúrtak" 2524
Ekki svarað 1059
Innsend svör 1465
Af nettóúrtaki 58.04%
Aðilar að SÍA eru nú sjö auglýs-
ingastofur og auk þeirra keypti
auglýsingadeild Sambandsins, sem
ekki er í SIA, niðurstöður könnun-
arinnar svo og Morgunblaðið, Dag-
blaðið og Vísir. Greiddi hver aðili
400 þúsund krónur fyrir niðurstöð-
urnar.
Þeim sem tóku þátt í könnun-
inni var boðið til happdrættis og
hlutu eftirtaldir vinninga:
Kanarieyjaferð fyrir einn: Sig-
ríður Vagnsdóttir, Fremri Bakka,
Nauteyrarhreppi, Norður-ísa-
fjarðarsýslu. Hljómplötu að eigin
vali: Herdís Eyjólfsdóttir, Rjúpu-
felli 21, Reykjavík. Þorvaldur S.
Hermannsson, Faxastíg 3, Vest-
mannaeyjum. Guðríður Erna Ósk-
arsdóttir, Hávallagötu 3, Reykja-
vík. Guðmundur Ingólfsson, Lækj-
argötu lOb, Hafnarfirði. ísólfur
Guðmundsson, ísólfsskála,
Grindavík. Ólína Halldórsdóttir,
Laugalæk 28, Reykjavík. Val-
gerður Jónsdóttir, Núpabakka 5,
Reykjavík. Iris Karlsdóttir,
Barmahlíð 2, Reykjavík. Pétur
Georgsson, Búlandi 2, Reykjavík.
Ómar Traustason, Fjarðarstræti
2, ísafirði.
Runebergs-
vaka Suomi-
félagsins
HIN árlega Runebergsvaka
Suomifélagsins verður að
þessu sinni haldin í Norræna
húsinu sunnudaginn 4. febrúar
kl. 20.30.
Ávarp flytur formaður
félagsins Barbro Þórðarson.
Ræðumaður verður séra Ólafur
Skúlason dómprófastur. Ein
þekktasta söngkona Finna Taru
Valjakka syngur við undirleik
Agnesar Löve.
Valjakka söng hér á Iista-
hátíð fyrir tæpum 7 árum og
hefur hún sungið víða um lönd
bæði í vestur- og norðurálfu.
Þá flytur Einar Bragi skáld
þýðingar sínar á finnskum ljóð-
Gamah
fólk gengur m hcegar
Vinstri flokkarnir í Eyjum:
Samþykktu 25% álag
á f ast eignagj öldin
Á SÍÐASTA hæjarstjórnarfundi Vestmannaeyja lá fyrir að ákveða stefnu í
tekjuöflunarleiðum bæjarsjóðs. Meirihluti bæjarstjórnar. vinstri flokkarnir,
lagði til að fasteignaskattur yrði innheimtur með 25% álagi eða 0,625% af
fasteignamati.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fluttu um það tillögu að álaginu yrði
sleppt. þ.c. rciknað með 0.5% af fasteignamati.
Finnska söngkonan Taru Val-
jakka mun skemmta á Rune-
bergsvökunni.
um en hann hefur verið styrk-
þegi Finnsk-íslenska menning-
arsjóðsins. Loks verða boðnar
fram Runebergskökur með kaff-
inu í kaffistofu hússins.
Öllum er heimil þátttaka í
vökunni og er aðgangur ókeypis.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn fyrir vökuna og hefst
hann kl. 20.
Rökin fyrir þeirri tillögu eru eink-
um þau, að milli ára hækkar stofninn
um 40% þannig að eftir sem áður er
um hækkun að ræða, þótt áiaginu sé
sleppt.
Á þessu ári og þeim næstu munu
leggjast á fasteignaeigendur þungir
skattar varðandi gatnagerðargjöld og
inntak hitaveitu. Gjöld sem ekki hafa
áður verið lögð á í svo ríkum mæli.
Einnig er skattheimta hins opinbera
orðin svo óheyrileg að eðlilegt er að
bæjaryfirvöld komi nokkuð til móts
við fasteignaeigendur og lækki sín
gjöld nokkuð.
Það er stefna sjálfstæðismanna að
reynt verði að draga úr þeirri óhóf-
legu skattab.vrði sem nú er hjá ríki og
bæ.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisfl. bentu
á að þeir myndu koma með tillögur
um niðurskurð á móti þessum tekju-
missi þ.e. um 30 milljónir. Meirihluti
vinstri manna felldi tillögu sjálfstæð-
ismanna um lækkun með 5 atkvæðum
gegn 4.
Lítum aðeins á tvö dæmi. Hús sem
var í fyrra metið á 10 milljónir
borgaði þá 62.500 kr. í fasteignaskatt.
Nú hækkar þetta sama hús í 14
milljónir og þarf að borga samkv.
tillögu vinstri manna 87.500 krónur.
Samkv. tillögu sjálfstæðismanna
hefði sami húseigandi þurft að borga
70 þúsund krónur. Annað dæmi: Hús
sem var í mati á 15 milljónir í fyrra
borgaði 93.700 krónur. Matið hækkar
í 21 milljón á þessu ári. Samkv.
tillögu meirihluta vinstri manna
borgar þessi húseigandi 131.200 kr.
Hefði tillaga sjálfstæðismanna verið
samþ. hefði sami aðili þurft að borga
105.000 krónur.
tilböð
í viku
325.000 kr.
sambyggt
stereosett á
214.900
60%
afgang á 2 mánuðum
vaxtalaust
Hvernig
MEÐ ÞVÍ AÐ:
1 Gera sérsamning viö verksmiöjuna.
2 Forðast alla milliliöi.
3 Panta verulegt magn meö árs fyrirvara.
4 Flytja vöruna beint frá Japan meö
Síberíu-lestinni frægu til Þýzkalands
sjóleiöina til íslands.
Lang hagkvæmasta flutningaleiðin.
-H':
ALLT I EINU TÆKI tf
FRÁ CROWN
Pantið
strax
ídag
50% út á 4 mánuðum
Staðgreiðsluafsláttur
BUÐIN
*—»— /
Skipholt 19
Sími 29800