Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979 15 Skæruliðar komnir inn í Phnom Penh? Bankok, Thailandi, 1. febrúar. _Reuter SKÆRULIÐAR^ sem hliðhollir eru Pol Pot fyrrverandi lcið- toga Kambódíu og átt hafa f útistöðum við innrásarheri Vfetnama að undanförnu, sögðu í dag að þeir hefðu ráðist inn í Phnom Penh bæði nótt sem dag að undanförnu. Teng Hsiao-ping varaforsætis- ráðherra Kína hefur að sögn AP gefið í skyn að Kínverjar kynnu að láta til skarar skríða gegn Víetnömum. Teng sagði, að sögn AP, á fundi með bandarískum öldungadeildarmönnum að Kín- verjar væru að íhuga leiðir og aðgerðir til að styrkja stöðu Pol Pots, og „við kynnum að vera Veður víða um heim Akureyri -12 Amsterdam 4 Apena 17 Barcelona 12 Berlfn 4 BrUssel 7 Chicago -6 Frankfurt Qenf -1 Helsinki -4 Jerúsalem 17 Jóhannesarborg Kaupmannahöfn -2 Lissabon Londan Los Angeles Madríd Malaga Mallorca Miami Moskva Ósló París Reykjavík Rio De Jan. Rómaborg Stokkhólmur Tel Aviv Tókýó Vancouver Vínarborg 12 9 14 10 14 13 25 2 -7 7 -6 26 5 -6 19 18 -16 4 alskýjað rigning heiöskírt alskýjaö skýjað skýjað snjókoma vantar skýjað skýjað heiðskírt vantar skýjað heiðskírt rígning rigning rigning alskýjað alskýjað heiðskírt skýjað snjókoma skýjað alskýjað skýjað skýjað skýjað heiðskírt skýjað skýjað skýjað neyddir til að grípa til aðgerða sem okkur eru ekki að skapi," er Teng sagður hafa sagt. Þá staðfesti Teng það á fundi með fréttamönnum í Washing- ton að Kínverjar hefðu sent hersveitum Pol Pots hergögn að undanförnu, og hygðust halda Þetta geróist því áfram „svo lengi sem þörf krefði". Samkvæmt áreiðanlegum heimildum úr leyniþjónustu Bandaríkjanna í Washington, eru Kínverjar um þessar mundir með um 10 til 20 herdeildir á landamærum Kína og Víetnams. 2. febrúar 1972 — Múgur brennir brezka sendiráðið í Dyflinni. 1970 — Loftbardagar ísraels- manna og Egypta og skriðdreka- bardagar ísraelsmanna og Sýr- lendinga. 1961 — 600 farþegar „Santa Maria“, sem var rænt, ganga á land í Recife í Brazilíu. 1924 — Embætti tyrkneska kalífsins lagt niður. 1920 — Eistlendingar semja frið við Rússa og lýsa yfir sjálfstæði. 1878 — Grikkir segja Tyrkjum stríð á hendur. 1848 — Stríði Bandaríkjanna og Mexíkó lýkur með friðnum í Guadeloupe Hidalgo og Banda- ríkin fá Texas, Nýju Mexíkó, Arizona og Kaliforníu fyrir 15 milljón doilara. 1808 — Frakkar taka Róm. 1797 — Mantua, Ítalíu, gefst upp fyrir Frökkum. 1635 — Hollendingar innlima Nýju Amsterdam (New York). 1535 — Buenos Aires stofnsett. 1534 — Schwaben-bandalagið leyst upp. Afmæli: Nell Gwyn, ensk leik- kona (1651-1687)= Fritz Kreisler, austurískur fiðlu- leikari (1875—1962)= James Joyce, írskur rithöfundur (1882—1941)= Jussi Björling, sænskur tenór (1911 — 1960)= Jascha Heifetz, rússnesk- ættaður fiðluleikari (1901—). Andlát: Giovanni di Palestrina, tónskáld, 1594. Innlent: Útför Herra Sveins Björnssonar 1952= Hótel ísland brennur 1944= Heitdagur Norð- lendinga 1365= d. Jón Halidórs- son biskup 1339= Gísli Konráðs- son 1877= Landsnefndin síðari skipuð 1785= f. Jón Sveinbjörns- son konungsritari 1876= Tveir komast til byggða eftir 15 sólar- hringa hrakninga í öræfum 1883= Frumvarp um Fram- kvæmdabanka samþykkt 1953= Alþjóðadómstóllinn úrskurðar sér lögsögu í landhelgismálinu 1973= d. Olafur Lárusson' 1961= f. Ólafur Björnsson 1912. Orð dagsins: Við höfum 40 milljón ástæður fyrir mistökum, en ekki eina einustu afsökun — Rudyard Kipling, enskur rit- höfundur (1865-1936) Andre Previn og Mia Farrow. Myndin var tekin á Listahátíð í Laugardalshöllinni 1974. Farrow sœkir um skilnað frá Previn London, 1. febrúar, AP. LEIKKONAN Mia Farrow hef- ur sótt um skilnað frá manni sínum, hljómsveitarstjóranum Andre Previn, að því er blaðið Daily Mirror skýrði frá í dag. Farrow hefur sótt um skilnað í Dóminíkanska lýðveldinu, en þar ganga slík mál mjög fljótt fyrir sig. Farrow fór í júní síðastliðnum til Kyrrahafssvæðisins þar sem hún hefur unnið að kvikmynda- gerð. Tók hún þá með sér þrjú börn þeirra hjóna og þrjú víet- nömsk börn sem þau ættleiddu. Previn og Farrow gengu í hjónaband í september 1970, en þau hafa búið skammt fyrir utan London í níu ár. Áður var Farrow gift leikaranum Frank Sinatra, en frá honum fékk hún skilnað „með hraði" í Mexíkó 1969 eftir þriggja ára hjóna- band. Samkvæmt lögum í Dóminíkanska lýðveldinu tekur hjónaskilnaðarmál ekki nema vikutíma, jafnvel þótt annar makinn sé víðs fjarri. Velheppnaðri ferð páfa lokið Rómaborg, Vatikaninu, 1. febrúar, Reuter — AP. JÓHANNES Páll páfi annar kom í dag til Rómaborgar úr vel heppnuðu vikulöngu ferðalagi sínu um Mexíkó, Dómínikanska lýðveldið og Bahama-eyjar, og fögnuðu þúsundir manns honum þegar hann ók inn á Péturstorgið í Vatikaninu. Mannfjöldinn hróp- aði „lifi páfinn, lifi páfinn“ f sífellu og margir héldu á borðum mcð áletruninni „velkominn heim, boðberi friðar“. Þúsundir barna dreifðu hvítum og rauðum garðnellikum í slóð páfa um Péturstorgið. Jóhannes Páll sagði við heim- komuna að ferðalag sitt um lat- nesku Ameríku hefði í alla staði verið mjög ánægjulegt. „Kirkjan er í mjög nánu sambandi við mexíkönsku þjóðina. Þjóðin sýndi Guði einlægni og tryggð sem erfitt er að lýsa í fáum orðum," sagði páfi. Þegar páfi gekk undir klukkna- bogann við kirkju heilags Péturs inn í Vatikanið heilsaði honum níu manna svissneskur heiðursvörður með heiðurskveðju og í höll postu- lanna héldu kardinálar móttöku- athöfn. Undir klukknaboganum staðnæmdist páfi þó rétt sem snöggvast og þakkáði með handa- bandi lögregluþjónum sem fylgdu honum á mótorhjólum frá flug- vellinum að Vatikaninu. öórkosMeg nljomplötuutsala VERÐ A LP PLÖTUM FRÁ 1.950.00—3.500.00 iar °9 Gl^Sibse Ótrúlega mikill afsláttur. HLJOMDEILD KSgSXKARNABÆR r Laugavegi 66, s. 28155, Glæsibæ, s. 81915, Austurstræti 22, s. 28155.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.