Morgunblaðið - 02.02.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
3
28 skip með
9030 lestir
28 SKIP tilkynntu Loðnu-
nefnd um afla í gær, sam-
tals 9030 lestir. Loðnuskip-
in héldu á miðin í fyrradag
eftir brælu og gátu þau
athafnað sig á miðunum til
um klukkan 4 í fyrrinótt,
en þá var komin bræla á ný
og reyndar var aldrei veru-
lega gott veiðiveður um
nóttina. Skipin lönduðu
flest afla sínum á Eskifirði,
Neskaupstað og Seyðis-
firði, en þau voru þessi:
Hrafn 630, Harpa 450, Magnús
510, Gísli Árni 100, Stapavík 300,
Kap II 460, Bergur II100, Náttfari
200, Víkurberg 150, Jón Finnsson
520, Sæbjörg 150, Gígja 330, ísleif-
ur 250, Óskar Halldórsson 320,
Pétur Jónsson 150, Helga II 250,
Seley 420, Keflvíkingur 350,'Grind-
víkingur 400, Siguröur 200, Jón
Kjartansson 340, Hilmir 220,
Bjarni Ólafsson 560, Skarðsvík
320, Loftur Baldvinsson 250, Al-
bert 350, Örn 430.
Minnkandi atvinna múrara:
Skora á sveitarfélög að
jafna lóðaúthlutunum
Um 30 múrarar í
Múrarafélagi Reykjavíkur
hafa misst atvinnu sína
vegna stórfellds samdrátt-
ar í lóðaúthlutunum í
Reykjavík og atvinnuleysis
af þeim sökum og er þar
um að ræða 12% félags-
manna, segir í ályktun
félagsfundar
Múrarafélagsins.
„Ástand sem þetta er óviðun-
andi og er það krafa félagsins til
að koma í veg fyrir hið ótrygga
ástand að sérstök áherzla verði
iögð á að úthlutun lóða verði sem
jöfnust milli ára og þess jafnframt
gætt að byggingarsvæði séu
byggingarhæf strax að vori,“ segir
í ályktuninni og jafnframt er
skorað á borgar- og sveitarstjórnir
að breyta nú þegar stefnu sinni í
úthlutun lóða til samræmis við
árlegar þarfir íbúa höfuðborgar-
svæðisins. Þá skorar fundurinn á
ríkisstjórn að gera ráðstafanir tii
að tryggja Húsnæðismálastofnun
ríkisins nægjanlegt fjármagn svo
að fullgera megi þær byggingar
sem nú eru í smíðum og staðið
verði við fyrirheit um úthlutun
frumlána. Einnig hvetur fundur-
inn til að nýbyggingargjald verði
fellt niður.
Ráðning Þóru
stadfest í
borgarstjórn
Á FUNDI borgarstjórnar Reykja-
víkur í gær var samþykkt með
öllum atkvæðum nema 5 atkvæð-
um borgarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins að ráða Þóru Kristjáns-
dóttur, listfræðing, sem listráðu-
naut Kjarvaisstaða. Fulltrúar
Alþýðubandalagsins sátu allir
hjá við afgreiðslu málsins.
Alþingi í gær:
Forseti leiðbein-
ir um fundarsköp
í UMRÆÐU í Sameinuðu þingi
í gær. er Matthías Bjarnason,
fv. sjávarútvegsráðherra, var
að mæla með samþykkt gagn-
kvæmra veiðiheimilda íslend-
inga og Færeyinga, greip Ólaf-
ur Ragnar Grímsson (Abl)
nokkrum sinnum fram í fyrir
honum. Matthías bað þá Ólaf
að láta sig vita þegar hann
hefði lokið sér af og gerði hlé á
máli sínu.
Forseti Sameinaðs þings,
Friðjón Þórðarson, vakti þá
athygli framítaka á því, að ef
hann hefði eitthvað til mála að
leggja í umræðunni, yrði hann
að kveða sér hljóðs með form-
legum hætti. Hélt síðan fyrrv.
sjávarútvegsráðherra áfram
máli sínu óáreittur.
V erd ák veðid á
f ry stri loðnu og
loðnuhrognum
Á fundi Verðlagsráðs
sjávarútvegsins í gær varð
samkomulag um eftirfarandi
lágmarksverð á loðnu og
loðnuhrognum til frystingar
á vetrarloðnuvertíð 1979.
Fersk loðna til frystingar,
hvert kg. kr. 70.00.
Verð þetta tekur gildi þeg-
ar hrognainnihald loðnunnar
hefur náð 12% og fellur þá
jafnframt úr gildi það lág-
marksverð, sem tilkynnt var í
tilkynningu ráðsins nr.
3/1979.
Loðnuhrogn til frystingar,
hvert kg. kr. 240.
Fersk loðna til beitu og
frystingar sem beitu og fersk
loðna til skepnufóðurs, hvert
kg. kr. 25.00.
Afhendingarskilmálar eru
óbreyttir.
Reykjavík, 1. febrúar 1979.
Verðlagsráð
sjávarútvegsins.
TORGSINS
lönadarmannahúsinu
Næstsíðasti dagur
:v ,*■/*■"
á' * 11 # * / 'i $ $ f % 111
Sportbuxur kr. 4.900.-
Gallabuxur frá kr. 2.900-
Ullarpeysur og jakkar.
Opið til kl. 7
í kvöld
Iðnaðarhúsinu
Hallveigarstíg