Morgunblaðið - 02.02.1979, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979
Gunnar Thoroddsen
kvaddi sér hljóðs utan dag-
skrár á fundi Sameinaðs
þings í gær í tilefni af
fréttatilkynningu iðnaðar-
ráðherra um Járnblendi-
verksmiðjuna. —• Fer ræða
hans hér á eftir:
Fréttatilkynning
kallar á leiðréttingu
Þaö er fréttatilkynning hæst-
virts iðnaðarráðherra um Járn-
blendiverksmiðjuna, sem gefur
mér tilefni til þess að óska eftir
því að taka hér til máls utan
dagskrár. Sú mynd af málinu sem
þar er dregin og sá málflutningur
sem flokksblað hæstvirts ráðherra
hefur uppi, kalla á leiðréttingu og
það sérstaklega hér í þingsölum,
vegna þess, hve mjög málið varðar
Alþingi.
Alþingi samþykkti vorið 1977
lög um stofnun og starfsemi hluta-
félags, þar sem íslenzka ríkið ætti
55% og norska fyrirtækið Elkem
Spigerverket 45%, í þeim tilgangi
að reisa verksmiðju, er framleiði
kísiljárn. Aðalsamningur aðilanna
var prentaður með stjórnarfrum-
varpinu ásamt ýtarlegri greinar-
gerð um alla meginþætti málsins.
Iðnaðarnefndir beggja deilda
fengu í hendur alla aðra samninga,
svo sem rafmagnssamning, tækni-
samning, sölusamning.
Öll spil voru
lögð á borðið
Frumvarpinu var útbýtt á Al-
þingi um miðjan desember 1976 og
afgreitt sem lög í maí 1977. Al-
þingismenn og iðnaðarnefndir
höfðu því meira en 4 mánuði til
þess að kynna sér málið. Allar
upplýsingar, sem um var beðið,
voru látnar í té. Nefndirnar köll-
uðu fjölda fróðra manna á sinn
fund. Plnginn hafði tilhneigingu til
að leyna einu eða öðru, öll spil
voru lögð á borðið.
Meðal annars lágu fyrir áætlan-
ir um byggingarkostnað, sam-
komulag um söluverð á raforku frá
Landsvirkjun til verksmiðjunnar,
hvert það skyldi vera í upphafi,
hvernig það skyldi hækka og
hvenær krefjast mætti endur-
skoðunar á orkuverðinu. Ennfrem-
ur tímaáætlanir um framkvæmd
verksins, hvenær fyrri bræðslu-
ofninn skyldi tekinn í notkun og
hvenær hinn síðari, en 2 ofnar eru
forsenda verksmiðjunnar. Þá lá
einnig fyrir í meginatriðum,
hvernig fjármagna skyldi stofn-
kostnað verksmiðjunnar, meðal
annars með láni frá hinum
nýstofnaða fjárfestingarbanka
Norðurlanda.
Áætlanir
standast vel
Þegar lögin höfðu verið sam-
þykkt var hafizt handa um undir-
búning framkvæmda. Er þar
skemmst frá að segja, að allar
þessar stórfelldu framkvæmdir
hafa gengið samkvæmt áætlun.
Byggingarkostnaður er í heild
jafnvel heldur lægri en áætlað var
og tímaáætlun hefur staðizt vel.
Hún gerði ráð fyrir, að fyrri ofn
verksmiðjúnnar gæti farið í gang
og hafið framleiðslu á fyrri hluta
ársins 1979. Verksmiðjan mun
hefja framleiðslu um mánaða-
mótin marz—apríl.
Undirbúningur er hafinn að
smíði og uppsetningu seinni ofns-
ins og að því er stefnt að hann
verði tilbúinn haustið 1980, eins og
framkvæmda- og tímaáætlun
gerði ráð fyrir.
Verð á kísil-
járni hækkar
Verðlag var óhagstætt á kísil-
járni, þegar Alþingi afgreiddi
lögin vorið 1977 og fram eftir ári
1978. En það hefur rætzt fyllilega,
sem forráðamenn hins norska
aðila spáðu, að verðið myndi fær-
ast upp úr þessum öldudal og
komast í eðlilegt horf um þær
mundir sem verksmiðjan á
Grundartanga tæki til starfa.
Frestun
á 2. ofni
Nú gerðist það 20. des. 1978, að
hæstvirtur iðnaðarráðherra ritar
bréf til stjórnar Járnblendifélags-
ins, en hún er skipuð fjórum
fulltrúum íslands og þrem Norð-
mönnum. Leggur iðnaðarráðherra,
með heimild ríkisstjórnarinnar,
fyrir stjórn Islenzka járnblendi-
félagsins h.f., „að athuga að bygg-
ingarhraða og gangsetningu 2.
áfanga verksmiðjunnar verði
breytt á þann veg, að sá áfangi
komi í gagnið 6—9 mánuðum síðar
en áður var áformað."
Tvær ástæður lágu til þessa
erindis. Önnur ástæðan er við-
leitni til þess að draga úr þenslu
vegna mikilla framkvæmda í land-
inu, og því ekki óeðlilegt að fá
kannað, hverju sé unnt að fresta af
framkvæmdum í ár. Þetta sjónar-
mið hefur vafalaust verið í huga
ráðherra Framsóknarflokksins og
Alþýðuflokks, sem verið hafa
stuðningsmenn Járnblendiverk-
smiöjunnar. Hin ástæðan kemur
frá andstæðingum Járnblendi-
verksmiðjunnar, sem vilja stöðva
eða trufla byggingu hennar og
starfsemi.
raunsæju mati og spám forráða-
manna Járnblendifélagsins varð-
andi byggingarkostnað, fram-
kvæmda- og tímaáætlun, þróun
verðlags á kísiljárni og markaðs-
horfur, tel ég fulla ástæðu til að
gefa röksemdum þeirra og út-
reikningum gaum. Að einróma
mati félagsstjórnar og fram-
kvæmdastjórnar mundi frestun í 9
mánuði á gangsetningu seinni ofns
meðal annars hafa þessar afleið-
ingar:
1) Framleiðsla seinni ofnsins á
kísiljárni myndi á þessum 9
mánuðum skila greiðsluafgangi
að upphæð frá 360 milljónum til
1050 milljóna íslenzkra króna,
eftir því hvort miðað er við sölu-
verð (skilaverð) 3200 eða 3800
norskar krónur fyrir hvert tonn af
kísiljárni. Þetta fé mundi tapast
við frestun.
2) Landvirkjun yrði fyrir miklu
tekjutapi. Áætlanir um upphæð
þessa velta mjög á þvi, hvort
ofninn mundi nota hámark giga-
wattsstunda samkvæmt raf-
magnssamningi eða eitthvað
minna. En Landsvirkjun telur að
tekjutap hennar geti numið allt að
450 milljónum króna, sem sam-
svarar um 10% hækkun gjaldskrar
Gunnar Thoroddsen.
atriði, sem samið er um og ekki
hægt að breyta nema með sam-
komulagi hluthafa, en meirihluti í
félaginu getur ekki breytt einhliða
að sinni vild síðar. í hlutafélögum
er t.d. gerður stofnsamningur með
ýmsum atriðum, sem ekki er unnt
að breyta án samþykkis allra.
Við stofnun Járnblendifélagsins
voru undangengnar ýtarlegar
samningaviðræður, þar sem báðir
aðilar settu fram sín skilyrði, og
forsendur fyrir samstarfinu. Þeg-
ar tekizt hafði að sætta sjónarmið-
in og niðurstaða hafði náðst, var
málið lagt fyrir Alþingi.
Atriði, sem ekki
er hægt að
breyta einhliða
Meðal þeirra meginatriða, sem
samið var um og sem annar aðil-
inn getur ekki breytt einhliða, eru
þessi:
Eignarhlutfall, íslendingar
55%, Norðmenn 45%.
Tilgangur og markmið félagsins.
Staðarval fyrir verksmiðjuna.
Stærð verksmiðjunnar og fram-
leiðslugeta.
Að Landsvirkjun léti í té raf-
orku.
Járnblendiverksmiðjan
tekur til starfa í vor
Byggingarkostnaður undir áætlun
Seinni bræðsluofninn mundi skila
hagnaöi á 9 mán. 360 til 1000 milljónum
Sú ástæða hefur sýnilega verið
efst í huga Alþýðubandalagsins.
Stjórn járnblendi-
félagsins mót-
mælir frestun,
íslenzku fulltrú-
arnir ekki síður
en þeir norsku
19. janúar 1979 svarar stjórn
Járnblendifélagsins og segist ekki
geta mælt með því að gangsetn-
ingu verði frestað fram yfir 1.
september 1980, sem áður hafði
verið ákveðið í samræmi við
samninga og þær forsendur og
upplýsingar, sem lágu fyrir Al-
þingi, er lögin voru til meðferðar.
í skýrslu félagsins er kveðið
þannig að orði:
„Að áliti stjórnar Járnblendi-
félagsins er ljóst, að frestunin yrði
að teljast andstæð hagsmunum
félagsins."
„Telja stjórn og framkvæmda-
stjórn félagsins sér engan veginn
fært að mæla með frestun. Þvert á
móti hefur sýnt sig, að flýting
framleiðslu á ofni 2 væri mjög
hagstæð.“
Hér eru það ekki fulltrúar
norska aðilans sem tala, heldur öll
stjórnin og framkvæmdastjórnin.
Aðalefni í málaleitan hæstvirts
iðanðarráðherra var þannig
hafnað af félagsstjórninni ein-
róma, ekki síður af íslenzku full-
trúunum en þeim norsku.
Hins vegar taldi félagsstjórnin
unnt að flytja framkvæmdir fyrir
1 ‘/z milljarð frá árinu 1979 til 1980,
án þess að það haggi gangsetningu
seinni vélar, til þess að mæta
óskum ríkisstjórnarinnar um sam-
drátt í heildarfjárfestingu í land-
inu, og hefur ríkisstjórnin sam-
þykkt þessa breytingu.
Stórfellt tjón
af frestun
Félagsstjórnin sendi ráðherra
17 síðna skýrslu með rækilegum
rökstuðningi. Með hliðsjón af
þeirri reynslu, sem fengin er af
til alme.iningsveitna á ársgrund-
velli frá núverandi verði.
3) Kostnaðarauki framkvæmda
vegna verðlagsbreytinga á
frestunartímabilinu er varlega
áætlaður um 270 milljónir kr.
Gjaldeyristap á
annan milljarð
4) Tapaðar gjaldeyristekjur
þjóðarinnar nettó eru metnar á
1260 til 1840 milljónir króna.
5) Tekjutap hafnarsjóðs,
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, Skil-
mannahrepps og fleiri aðila gæti
orðið um 88 milljónir króna.
6) Kaup á kisiljárni.
í samræmi við skuldbindingu
Elkem-Spigerverket um sölu á
afurðum Járnblendiverksmiðjunn-
ar hefur norska fyrirtækið undir-
búið markaðssetningu kísiljárns
frá íslandi og hagað sinni eigin
framleiðslu á þeim grundvelli, að
ofn 2 verði tekinn í notkun á
tilsettum tíma. Væri ofni 2 frest-
að, yrði að tryggja samsvarandi
magn kísiljárns frá öðrum fram-
leiðendum, ef til vill með því að fá
gangsetta ofna, sem nú eru ekki í
notkun. Ýmis markaðsvandkvæði
myndu af þessu leiða. Kostnaðar-
auki af þessum ástæðum er met-
inn allt að 590 millj. ísl. kr.
Marga aðra þætti rekur félags-
stjórn, þar sem verulegt tjón yrði
af frestun.
Þegar þessi skýrsla var komin,
studd svo sterkum rökum, hefði
málið átt að liggja ljóst fyrir og
úrslitin ekki þurft að vefjast fyrir
neinum. Sú varð líka niðurstaðan
í hæstvirtri ríkisstjórn, að fengn-
um þessum upplýsingum, að smíði
annars ofns skyldi áfram haldið og
stefnt að gangsetningu á hinum
ákveðna og umsamda tíma, í sep-
tember 1980, en jafnframt skyldi,
samkvæmt tillögu félagsins flytja
til næsta árs fjárfestingu sem
næmi um IV2 milljarði.
Reiði í Alþýðu-
bandalaginu
En fyrir Alþýðubandalagið var
málið ekki svo einfalt, að unnt
væri, að viðurkenna að forráða-
menn Járnblendifélagsins hefðu
rétt fyrir sér. I röðum Alþýðu-
bandalagsins var reiði ríkjandi
yfir þeim málalokum, að ráðherra
þess skyldi ekki takast það, sem
ætlast var til af honum, að tefja og
trufla byggingu og rekstur verk-
smiðjunnar. Og þeim mun meira
er ergelsið í þeim herbúðum sem
vaxandi horfur eru á því, að
verksmiðjan muni bera sig og skila
arði og hrakspárnar verði að engu,
um að allt færi örugglega á haus-
inn við fyrstu spor.
Huggunarsúpa
Það þurfti því að matreiða þessa
dapurlegu niðurstöðu þannig, að
úr yrði sæmilega lostæt huggunar-
súpa handa reiðum bandalags-
mönnum, og matargerðinni var
hagað á þessa leið:
Iðnaðarráðherra semur frétta-
tilkynningu og skal henni fylgt
eftir í Þjóðviljanum í aukinni og
endurbættri útgáfu. Aðaláherzla
skal lögð á, að frestunin á ofni 2
stafi fyrst og fremst af neitun
norska aðilans og sá neitunarrétt-
ur byggist á breytingu, sem fyrr-
verandi iðnaðarráðherra hafi lætt
inn í sérstakan viðauka við raf-
magnssamninginn, leynt honum
fyrir Alþingi, en notað þessa
breytingu sem agn til að lokka
Elkem inn í samstarfið.
í Þjóðviljanum birtist líka dag-
inn eftir heilsíðugrein undir nafni
annars ritstjórans með mynd af
honum og verksmiðjunni, en efnið
hafa þeir sýnilega lagt til, hæst-
virtur iðnaðarráðherra og sérlegur
lögfræðilegur ráðunautur hans og
Alþýðubandalagsins. I feitri fyrir-
sögn segir: „Norski auðhringur-
inn er einráður.“ Þessi er nú
boðskapurinn frá bandalaginu.
Skal ég nú skýra nokkuð þetta
mál.
Forsendur við
stofnun félaga
Þegar hlutafélag er stofnað til
atvinnureksturs, eru alltaf ein-
hverjar forsendur og grundvallar-
Hvert verðið á rafmagninu skuli
vera og hvernig það skuli breytast.
Að bræðsluófnar skyldu vera
tveir.
Að þeir skyldu komnir í notkun
fyrir ákveðin tímamörk.
Að því er snertir hina tvo ofna
verksmiðjunnar, þá hefur tvennt
jafnan legið ljóst fyrir: Annað, að
það er forsenda fyrir öllu fyrir-
tækinu, að ofnar séu tveir, afköst
þeirra samtals 50 þús. tonn á ári.
Hitt að ofnarnir skuli komnir í
gang fyrir tiltekin tímamörk.
í greinargerð með stjórnarfrum-
varpinu um Járnblendiverksmiðj-
una segir svo: (Alþt. 1976—7, 129.
mál, þingskjal 187, bls. 12).
„Er nú miðað við (orðið nú er
notað vegna þess, að tímasetningin
er þarna að sjálfsögðu önnur en í
fyrri samningnum við Union Car-
bide) að fyrri bræðsluofninn geti
tekið við rafmagni í árslok 1978
eða ársbyrjun 1979. Síðari ofninn
verði síðan tilbúinn á tímabilinu
júlí 1979 — sept. 1980, samkvæmt
nánari ákvörðun síðar."
Hér er því lokatímamark sept.
1980, og var innan þessa ramma
ákveðið 1. sept. 1980.
Áhrif
meirihlutans
En þótt eigandi meiri hluta hafi
þannig í upphafi samið um tiltekn-
ar forsendur, sem aðeins verður
breytt með samþykki beggja að-
ilja, er það misskilningur, að
meirihlutaaðstaðan sé einskis
virði, að ekki sé nú minnzt á þá
fjarstæðu, að minni hlutinn ráði
einn öllu. Sem dæmi þess, að meiri
hlutinn í Járnblendifélaginu getur
ráðið, ef ágreiningur verður má
nefna:
Ákvörðun um hvaða tilboðum
skuli tekið þegar um útboð er að
ræða.
Ákvörðun um val og kaup á
hráefnum.
Ráðning starfsmanna.
Samningar við verkalýðsfélög
um kaup og kjör.
Ákvarðanir um aðbúnað á
vinnustað.
Breytingin á
23. grein rafmagns-
samnings ekki
efnisbreyting
En víkjum nú að 23. grein í
rafmagnssamningnum sem gerð
hefur verið að sérstöku árásarefni.