Morgunblaðið - 02.02.1979, Side 32
Sátta-
fundurog
frekari
verkföll
SÁTTANEFNDIN í flug-
mannadeilunni hélt í gær
samningafund með full-
trúum Félags ísl. atvinnu-
flugmanna og fulltrúum
Flugleiða út af deilu þeirri
sem stendur milli þessara
aðila og hefur leitt til verk-
fallsaðgerða flugmanna
sem flugu hjá Flugfélagi
íslands áður en samein-
ingin var algjör.
„Björgunin
kraftaverk”
„ÞESSI björgun er kraíta-
verk,“ var algeitgasta svarið í
gær eftir að tveimur systrum,
Hrönn og Katrínu Jónsdætr-
um, fjögurra og eins og hálfs
árs, hafði verið bjargað úr
Range Rover-bifreið foreldra
þeirra eftir að bifreiðin hafði
hafnað í sjónum milli brúnna í
Kópavoginum.
Hrönn var í ísköldum sjónum
í nokkurn tíma en Katrín, sú
minni, var föst í barnastól og
var hún í kafi í nokkrar mínút-
ur. Lífi hennar var bjargað
með blástursaðferðinni. Syst-
urnar voru taldar úr lífshættu 1
gærkvöldi og telja kunnugir
það kraftaverk miðað við að-
stæður
Sjá nánar á bls. 16 og 17.
Benedikt Gröndal í norska sjónvarpinu:
Norðmenn eiga rétt á 200
mílum við Jan Mayen
Mismunandi skilningur á ummælum um miðlinu
Þessum samningafundi lauk
um kl. 6 í gaer, og sagði
Hallgrímur Dalberg, ráðuneytis-
stjóri og einn sáttanefndar-
manna, er í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að sáttanefndin
hefði talað við deiluaðila hvorn í
sínu lagi og hreyft þar ýmsum
hugmyndum en engin niðurstaða
hefði þó orðið.
Nýr sáttafundur hefur verið
boðaður á laugardag.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
blaðafulltrúa Flugleiða barst
stjórn Flugleiða í gær bréf frá
FIA þar sem boðaðar eru frekari
verkfallsaðgerðir í næstu viku,
þannig að ekki verður flogið til
Vestfjarða og Hornafjarðar 7.
febrúar og ekki til Norðfjarðar,
Egilsstaða og Vestmannaeyja
daginn eftir. Þá er einnig fellt
niður allt flug á Boeing 727-vél-
um félagsins fimmtudag og
föstudag í næstu viku.
f NORSKA sjónvarpinu í fyrra-
kvöld sagði Benedikt Gröndal að
hann væri þeirrar skoðunar, að
Norðmenn ættu rétt á því að færa
efnahagslögsögu við Jan Mayen
út í 200 mílur. Rökstuddi ráð-
herrann þessa skoðun sína með
því að uppkast að nýjum hafrétt-
arsáttmála, sem hafréttarráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna fjall-
aði um um þessar mundir, fæli f
sér ákvæði sem hafréttarsérfræð-
ingar útlegðu þannig að slfk
lögsaga við Jan Mayen ætti rétt á
sér.
Fréttaritari Morgunblaðsins í Ósló
telur að Benedikt Gröndal hafi
svarað játandi spurningu um það
hvort miðlína mundi j*ilda milli
Islands og Jan Mayen. I viðtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi sagði
Benedikt Gröndal hins vegar, að
hann hefði alveg neitað að tala
ákveðið um það hvernig skiptingin
yrði.
Morgunblaðið hefur undir höndum
orðaskipti spyrjenda og ráðherra.
Spyrjandi sagði: „Fáum við mið-
línu?“ Ráðherrann svaraði: „Já, texti
Sameinuðu þjóðanna eins og hann er
í dag kveður á um að það skuli vera
miðlína eða að taka skuli tillit til
aðstæðna. Við teljum að þetta
verðum við að íhuga á þessu svæði og
við þessar aðstæður. Við höfum
þegar fært út okkar mörk í 200
rnílur." Spyrjandi: „En framfylgið
bara að miðlínu?" Benedikt Gröndal:
„Við framfylgjum bara að miðlínu
vegna óvissu um framtíðina."
Vegna þessara ummæla sneri
Morgunblaðið sér til utanríkisráð-
herra í gærkvöldi og spurði hvort
það væri skoðun hans að Norðmenn
hefðu rétt til að færa út í 200 mílur
við Jan Mayen.
„Svarið er þetta," sagði Benedikt
Gröndal, „að standi sá texti sem nú
liggur fyrir hafréttarráðstefnunni
óbreyttur, þótt hann geti auðvitað
hugsanlega breytzt, þá er það þeirra
skoðun að Jan Mayen muni eiga rétt
á efnahagslögsögu." Benedikt
Gröndal kvaðst ekki vilja svara á
þessu stigi hver afstaða íslenzka
utanríkisráðherrans til málsins væri
með öðru en því að vísa til skoðana
sérfræðinga.
„Ég held þessu auðvitað opnu fyrir
íslands hönd eins lengi og hægt er,
en svara því sem ég veit sannast og
réttast núna, að samkvæmt síðasta
texta þá er það álit þeirra lögfræð-
inga, sem ég hef haft samband við
um þessi mál, að Jan Mayen muni
eiga þennan rétt,“ sagði utanríkis-
ráðherra. Þá var hann spurður hvort
málið hefði verið rætt innan íslenzku
ríkisstjórnarinnar og svaraði hann
því neitandi.
Um hugmyndir, sem uppi hafa
verið í Noregi um að Norðmenn og
íslendingar hefðu sameiginlega
efnahagslögsögu við Jan Mayen,
sagði Benedikt Gröndal, að eins og
fram hefði komið hefði verið stöðugt
diplómatískt samband. „Ég hef auð-
vitað lagt á það ríka áherzlu við
Norðmenn að þeir geri þarna ekkert
án þess að hafa talað vel við okkur
áður. Það hefur verið mitt megin-
sjónarmið."
Skot hljóp
í ungan pilt
ÞAÐ SLYS varð á Blönduósi í
fyrradag þegar tvítugur piltur þar
í þorpinu var að hreinsa riffil að
skot hljóp úr byssunni og í piltinn.
Kúlan fór þó ekki inn í brjóstbolið
heldur í brjóstvöðva og upp í öxl
piltsins, svo að meiðsli hans eru
ekki talin lífshættuleg. Hann var
þó fluttur í sjúkrahús í Reykjavík,
Niðurstaða fjölmiðlakönnunar:
Morgunblaðið keypt á 92%
heimila á höfuðborearsvæði
70% yfir landið í heild
Fleiri lesa Morgunblaðið en horfa á sjónvarp
MORGUNBLAÐIÐ er keypt á 92% heimila á höfuðborgarsvæðinu
að því er fram kemur í fjölmiðlakönnun, sem Ilagvangur hf. hefur
framkva‘mt fyrir Samband íslenzkra auglýsingastofa. Á 78%
heimila á þessu svæði er Morgunblaðið keypt í áskrift og á 14%
heimila er það keypt í lausasölu. í könnun þessari kemur
ennframur fram, að á virkum dögum er Morgunblaðið lesið af
85% þeirra, sem spurðir voru en á sunnudögum af 88%.
Á höfuðborgarsvæðinu eru fleiri sem lesa Morgunblaðið en
horfa á sjónvarp en þá er miðað við sjónvarpið yfir landið í heild.
Þegar könnunin fór fram horfðu 68—72% á fréttir sjónvarps en
78% horfðu á þáttinn Gæfa eða gjörvileiki. Á þessu svaKÍi lesa
einnig fleiri Morgunblaðið en hlusta á hljóðvarp og er þá einnig
miðað við hlustun á hljóðvarp yfir landið í heild. Samkvæmt
könnuninni hlustuðu 62% á hljóðvarp milli kl. 19 og 20.
Samkvæmt könnuninni er
Morgunblaðið keypt á 70%
heimila á Iandinu öllu, 59% í
áskrift og 11% í lausasölu.
Dagblaðið gengur næst Morg-
unblaðinu að útbreiðslu skv.
fjölmiðlakönnun Hagvangs.
Dagblaðið er keypt í áskrift á
29% heimila á þessu svæði og í
lausasölu á 29% heimila eða
samtals á 58% heimila á höfuð-
borgarsvæðinu. Dagblaðið er
lesið virka daga af 64% þeirra,
sem spurðir voru á höfuðborgar-
svæðinu.
Vísir er keyptur á 42% beim-
ila á þessu svæði skv. könnun-
inni þar af í áskrift á 19%
heimila en í lausasölu á 23%.
Virka daga er Vísir lesinn af
54% þeirra, sem spurðir voru.
Dagblaðið er keypt á 53%
heimila á landinu skv. könnun
þessari, þar af á 30% í áskrift og
23% í lausasölu. Vísir er keypt-
ur á 38% heimila á landinu öllu
og skiptist það jafnt milli
áskriftar og lausasölu.
Á höfuðborgarsvæðinu er
Þjóðviljinn keyptur á 18%
heimila, 16% í áskrift og 2% í
lausasölu. Hins vegar er Þjóð-
viljinn skv. þessari könnun les-
inn af 29% á höfuðborgarsvæð-
inu virka daga og 32% á sunnu-
dögum. Á landinu í heild er
Þjóðviljinn keyptur á 16%
heimila, 14% í áskrift og 2% í
lausasölu.
Tíminn er keyptur á 16%
heimila á höfuðborgarsvæðinu,
12% í áskrift og 4% í lausasölu.
Virka daga er Tíminn hins
vegar lesinn af 31% á þessu
svæði og sunnudaga af 38%.
Miðað við landið í heild er
Tíminn keyptur á 26% heimila,
22% í áskrift og 4% í lausasölu.
Alþýðublaðið er keypt á 4%
heimila á höfuðborgarsvæðinu,
3% í áskrift og 1% í lausasölu.
Á þessu svæði er Alþýðublaðið
hins vegar lesið af 10% þeirra,
sem spurðir eru á virkum dög-
um. Á landinu í heild er Alþýðu-
blaðið einnig keypt á 4% heim-
ila, 3% í áskrift og 1% í
lausasölu.
Sjá frekar um niðurstöðu
fjölmiðlakönnunar á bls. 10.