Morgunblaðið - 07.02.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979
Jarðstöðinni seinkar um 2—3 mánuði:
400 milljónir kr.
teknar af fram-
kvæmdafé ársins
FRAMKVÆMDUM að upp-
hæð 400 milljónir króna,
sem átti að vinna fyrir í ár
Andstaða í
Blaðprenti
gegn nýja
vikublaðinu?
Á FUNDI í stjórn Blaóaprents í
dag verður meðal annars rætt um
málefni Alþýðublaðsins. Morgun-
blaðið hefur fregnað að innan
stjórnar fyrirtækisins sé and-
staða gegn því að hið nýja viku-
blað. sem væntanlega hefur út-
(íáfu sína undir vorið í tenK-slum
við Alþýðublaðið. verði prentað í
Blaðaprenti.
Þessi frétt var borin undir
Kristin Finnbogason framkvæmda-
stjóra Tímans ígær og sagði hann
það rétt að málefni Alþýðublaðsins
yrðu rædd á fundi í Blaðaprenti í
dag. — Alþýðublaðið er yfirleitt
ekki nema 4 síður að stærð og
prentun þess og útgáfa er orðin
Blaðaprenti óhagkvæm, sagði
Kristinn.
— Það mál verður m.a. rætt, en
þetta nýja helgarblað er ekki á
dagskrá, enda hefur ekki komið
nein beiðni um, að það verði unnið í
Blaðaprenti. Ég hef því ekki mynd-
að mér skoðun á því hvort slíkt
verður gert, en þess má geta, að
gerðardómur kvað á um það á
sínum tíma varðandi Dagblaðið, að
önnur blöð en þau, sem voru stofn-
aðilar að Blaðaprenti ætti ekki að
prenta í Blaðaprenti á kostnaðar-
verði, sagði Kristinn Finnbogason.
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Bjarna P. Magnússon hjá
Alþýðublaðinu í gær og spurðist
fyrir um þetta mál. Bjarni sagði að
ræða ætti um málefni Alþýðublaðs-
ins á fundi miðvikudag, en sagðist
ekki vita til þess að samstarfsaðilar
Alþýðublaðsins í Blaðaprenti ætlu-
ðu að setja hinu nýja blaði stólinn
fyrir dyrnar.
við hina nýju jarðstöð, hef-
ur verið frestað þar til í
ársbyrjun 1980. Að sögn
Jóns Skúlasonar póst- og
símamálastjóra er þessi
upphæð um fimmti hluti
áætlaðst kostnaðar við
byggingu jarðstöðvarinn-
ar. Vegne þessara ráðstaf-
ana má reikna með að það
tefjist um 2—3 mánuði að
stöðin taki til starfa.
Ragnar Arnalds ráðherra síma-
mála sagði í gær að ástæðan fyrir
því að 400 milljónir hefðu verið
teknar af framkvæmdafé við jarð-
stöðina í ár væri sú að ríkisstjórn-
in hefði talið brýnt að almennar
fjárfestingar Póst og síma víðs
vegar um land liðu ekki fyrir
framkvæmdir vegna jarðstöðvar-
innar. Með því að fresta fram-
kvæmdum til 1980 hefði verið
hægt að auka framkvæmdafé til
annarra verkefna en jarðstöðvar-
innár upp í 2380 milljónir á árinu.
Ragnar sagði að seinkun á því að
jarðstöðin tæki til starfa yrði í
mesta lagi 2—3 mánuðir og töfin
yrði jafnvel ekki svo mikil. Það
sem í rauninni frestaðist væru
greiðslur sem inna ætti af hendi
síðari hluta ársins, en yrðu í
staðinn greiddar í byrjun árs 1980.
Iðnaðarmenn önnum kafnir við vinnu sína við hús jarðstöðvarinnar í gær.
(Ljósm. Emilia).
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ:
Á medan þetta fiskverð
gildir, gildir olíuverðið
Utvegurinn getur illa borið núverandi oliuverð
UTVEGSMENN gerðu
grein fyrir því við síðustu
fiskverðsákvörðun að fisk-
veiðiflotinn gæti ekki
greitt hærra olíuverð en nú
er í gildi og illa það. Við
ákvörðun fiskverðsins var
bókað af oddamanni, að
Atvinnufyrirtæki á Suóurnesjum:
/
i
ár
Auknar álögur
5—600 milljónir kr.
Innan við 150 milljónum varið til hagræðingar
Árekstur á
Andakílsárbrú
HARÐUR árekstur varð á brúnni
yfir Andakflsá um hádegisbilið í
gær. Vöruflutningabifreið og fólks-
bifreið rákust saman og slösuðust
allir sem í fólksbflnum voru. Var
fólkið flutt á sjúkrahúsið á Akrane-
si og þaðan voru piltur og stúlka
flutt með flugvél til Reykjavíkur.
Þau voru lögð inn á Borgarsjúkra-
húsið. Hin tvö, sem sátu í framsæti
bflsins, fengu að fara af sjúkrahús-
inu á Akranesi í gær. Ekki er nánar
vitað um tildrög slyssins, en mikil
hálka var.
NÝIR skattar og auknar álög-
ur á atvinnufyrirtæki á Suður-
nesjum nema trúlega 5—600
milljónum króna í ár, en fé
sem þegar hefur verið varið til
hagræðingar hjá fiskvinnslu-
fyrirtækjum á Suðurnesjum
munu vera innan við 150
milljónir króna í tíð núver-
andi ríkisstjórnar.
Þessar upplýsingar komu
fram hjá Matthíasi A. Mathie-
sen alþingismanni í sjónvarps-
þætti um skattamál í gær-
kvöldi. Einnig gat hann þess að
auknar skatttekjur m.a. vegna
nýrra skatta ríkisstjórnarinn-
ar myndu nema 20—25
milljörðum króna á árinu. Að
auki væru nýir skattar hjá
vinstri meirihlutanum í
Reykjavík tæplega 2 milljarð-
ar.
— Fyrir kosningar í sumar
töluðu þeir, sem nú standa að
ríkisstjórn, að hjálpa þyrfti
fyrirtækjum á Suðurnesjum,
sagði Matthías í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. —
Lausn þessara manna er síðan
gegndarlaus skattpíning, sagði
hann.
Bæjarstjórinn 1 Garða-
bæ lætur af störfum
eftir kosningarnar sl. vor og
myndi hann e.t.v. láta af
starfi hinn 1. júní. Hefði
hann verið lengur í starfinu
en hann ætlaði sér í fyrst-
unni og nú eftir 7 ára starf
hygðist hann breyta til.
Ekki kvaðst hann hafa
ákveðið hvað tæki við að
bæjarstjórastarfinu loknu.
BÆJARSTJÓRINN i
Garðabæ, Garðar Sigur-
geirsson, hyggst láta af
starfi sínu á næstunni að
því er hann tjáði Mbl. í
gær.
Garðar Sigurgeirsson
sagðist ekki hafa ráðið sig
nema til óákveðins tíma
V ióskiptar áðherr a:
Bann við nafnlausum bankabók-
um og handhaf askuldabréf um
— 7900 nafnlausar bankabækur með 2800 m.kr. innstæðum
SVAVAR Gestsson viðskiptaráðherra upplýsti í svari við
fyrirspurn frá Stefáni Jónssyni (Abl) í sameinuðu þingi í
gær, að hann stefndi að því, annað tveggja með löggjöf
eða reglugerðarbreytingu, að koma á banni við nafnlaus-
um bankabókum. Jafnframt hefði hann farið fram á það
við Seðlahanka íslands að hann tilefndi fulltrúa í nefnd,
er semdi drög að lögum um skuldabréf, er legði bann við
nafnlausum handhafaskuldabréfum.
milljónir króna. Heildarinnstæða í
sparisjóðsbókum hjá bönkum og
sparisjóðum væri 63.594 milljónir
króna, pr. 30. nóv. sl., og í innláns-
deildum samvinnufélaga 3.124
m.kr., pr. 30. sept. sl. Hlutfall
I svari ráðherra kom ennfremur
fram að lausleg könnun hefði leitt
í ljós, að nú væru til staðar í
innlánsstofnunum hér á landi 7917
nafnlausar bankabækur með inni-
stæðum að fjárhæð samtals 2.799
ónafnskráðra innstæðna af þessari
fjárhæð er 4,2%. Ef hins vegar er
miðað við heildarinnstæður, velti-
og spariinnlán, þ.m.t. vaxtaauk-
innlán og innlendir gjaldeyris-
reikningar, sem voru 130.715
milljónir króna, er hlutfall ónafn-
skráðra innstæðna 2,1%.
Það kom fram í máli Jóns G.
Sólnes, að sparifjármyndun færi
síminnkandi í hlutfalli af þjóðar-
tekjum. Sparifjárinnlegg í banka-
kerfið væri ódýrasta rekstrarfé í
þjóðarbúskapnum og atvinnu-
greinum hans. Þeir, sem léðu
þjóðarbúskapnum þann veg spari-
fé sitt, á lægstu vöxtum, í verð-
bólgu eins og hér hefði ríkt og
ríkti, hefðu í raun þegar greitt
þjóðfélaginu það sem því bæri.
Vafasamt væ'ri að grípa til ráð-
stafana, sem enn spyrntu gegn
innstreymi sparifjár í bankakerf-
ið, eða stuðluðu að fjárflótta
þaðan. Ráðherra taldi hins vegar
að hann stefndi að aukinni örygg-
isgæzlu varðandi eftirlit með
raunverulegum innstæðum, og
réttargæzlu, gagnvart skattkerf-
inu. Nokkrar umræður urðu um
málið.
fiskverðsákvörðunin væri
miðuð við núverandi olíu-
verð, sagði Kristján Ragn-
arsson, formaður Lands-
sambands íslenzkra út-
vegsmanna, í samtali við
Mbl. í gær. „Þetta skildum
við á þann veg, að á meðan
þetta fiskverð gilti, þá gilti
þetta olíuverð,“ sagði
Kristján.
Kristján sagði að sér væri ekki
ljóst, á hvern hátt þessum vanda
yrði mætt. Hins vegar kvaðst
Kristján Ragnarsson ekki skilja
hvernig kaupum á olíu fyrir Is-
lendinga er háttað. Útvegsmenn
gætu keypt olíu í smásölu fyrir 43
krónur lítrann á sama tíma og
olíufélögin kaupa olíu af Rússum
fyrir allt landið á 50 krónur
lítrann. „Þetta finnst okkur vera
einkennileg verzlun og einkenni-
lega að málum staðið," sagði
Kristján.
Kristján sagði að hér fyrr á
árum hefði við olíukaup verið farið
eftir skráningu í Curacao í Vene-
zuela. Síðan vegna bensínverðs
hafi verið farið út í að miða við
hálfa skráningu í Curacao og hálfa
skráningu í Rotterdam og nú er
eingöngu miðað við Rotterdam-
skráningu, sem hann kvað hlaupa
eftir veðurfari og markaðsaðstæð-
um í Evrópu. ______
Ekki veiðiveð-
ur i gærkvöldi
EKKERT veiðiveður var á
loðnumiðunum úti af Aust-
fjörðum í gærkvöldi.
Aðfararnótt þriðjudagsins
var ágæt veiði framan af,
en veðrið versnaði eftir því
sem leið á nóttina. Síðan á
mánudagskvöld hafa eftir-
talin skip tilkynnt loðnu-
nefnd um afla:
Mánudagskvöld: Stapavík 30,
Örfi 480, Seley 120, Jón Finnsson
500, Helga Guðmundsdóttir 650,
Súlan 450, Harpa 250, Grind-
víkingur 700, Skírnir 370, Fífill
40°.
Þriðjudagur: Pétur Jónsson
400, Vonin 80, Kap II 60, Hrafn
350, Arnarnes 400, Sæberg 80,
Gullberg 420, Loftur Baldvinsson
530, Hafrún 350, Hákon 500,
Börkur 300, Þórður Jónasson 400,
Eldborg 550, Bergur II 250, Árni
Sigurður 150, Huginn 230, Rauðs-
ey 250, Gjafar 50.