Morgunblaðið - 07.02.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.02.1979, Blaðsíða 32
Tillitssemi kostar ekkert MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979 Verzlið t sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki Skipholti 19. _ BUOIN sími Spár um hækkun olíuvara hérlendis: Bensínió í 246 krónur - í 92 kr. ÁÆTLAÐ er að bensínlítrinn hækki í 246 krónur í vor, gasolíu- lftrinn til bfla hækki f 110 krónur og hver lftri gasolfu til fiskiskipa og húshitunar hækki í nær 92 krónur lftrinn, samkvæmt upplýs- ingum, sem Mbl. hefur aflað. Stórfelldar hækkanir hafa orðið á olíu á heimsmarkaði undanfarnar vikur og mánuði og má sem dæmi nefna að skráð verð í Rotterdam á bensíni og gasolíu er nú um 94% hærra en meðalinnkaupsverð á olíu og bensíni, sem selt var á íslandi í fyrra. Hækkunin frá í haust er nær 50% og hækkun á gasolíu var 15% í janúarmánuði einum á markaðnum í Rotterdam, eins og fram kom í Mbl. í gær. Innkaupsverð olíu frá Sovét- ríkjunum er miöað við markaðsverð í Rotterdam Jiverju sinni. Olía verður næst lestuð í Sovét- ríkjunum síðar í þessum mánuði og Gasolía lítrinn verður hún væntanlega á hinu nýja verði. Þessi olía kemur að öllum líkindum til sölu í apríl n.k. Ef bensínið þá verður selt á kostnaðar- verði og miðað er við skráningu eins og hún ej: í dag þarf bensínlítrinn að hækka úr 181 krónu í 232 krónur. Ef 14 krónu vegagjaldshækkun er reiknuð með, en hún hefur verið boðuð í fjárlögum fer bensínlítrinn í 246 krónur. Hækkunin er um 36%. Gasolía með söluskatti þarf að hækka úr 69 krónum í 110 krónur og gasolía án söluskatts, þ.e. til fiski- skipa og til húshitunar þarf að hækka úr 57,50 í 92 krónur eða sem næst 59%. Svartolía þarf að hækka minnst eða um nær 5 þúsund krónur tonnið, úr 39 þúsundum í tæp 44 þúsund eða um 12%. Sjá „Nýjustu skráningar í Rotterdam...“ á bls. 18. V estmannaey jar: Fyrrverandi bæj- arstjóri sýknaður Mun hærra verð fyrir saltfisk til Spánar í ár en var í fyrra SAMIÐ hefur verið um sölu á 7 þúsund tonnum af saltfiski til Spánar og verð það, sem fæst fyrir vöruna er verulega hærra en fékkst á síðasta ári. Þeir Tómas Þorvaldsson og Friðrik Pálsson hjá Sölu- sambandi fiskframleiðenda voru fyrir nokkru á ferð um helztu markaðslönd saltfisksframleiðenda og er nú verið að vinna að samningum um sölu á salt- fiski til annarra landa í S-Evrópu. Svo virðist, sem mun meiri eftirspurn og þá um leið hærra verð fáist fyrir salt- fisk á Spáni en var í fyrra. Þá nam heildarafskipun á salt- fiski til Spánar 7500 tonnum allt árið. Ekkert frumvarp fyrr en eftir midstjómarfund Framsóknarflokksins SIGFINNUR Sigurðsson fyrrver- andi bæjarstjóri í Vestmanna- eyjum var í gær sýknaður af ákæru um misferli í starfi. Dóm- urinn var kveðinn upp í sakadómi Reykjavíkur af Haraldi Henrýs- syni sakadómara. Sigfinnur var kærður af nokkr- um bæjarfulltrúum í Vestmanna- eyjum eftir skamma setu í starfi, en hann tók við bæjarstjórastarf- inu í ágúst 1975. Ríkissaksóknari gaf síðan út ákæru vegna tveggja atriða í kæru bæjarfulltrúanna. Fjallaði annað atriðið um launa- greiðslur en hitt um flugferðir milli Vestmannaeyja og Selfoss. í fyrra tilfellinu hafði dregist hjá Sigfinni í nokkra daga að endur- greiða ofgreidd laun en í síðara tilfellinu var hann ákærður fyrir að hafa tekið flugvél á leigu á kostnað bæjarsjóðs Vestmanna- eyja til að reka einkaerindi. Hins vegar kvaðst Sigfinnur hafa leigt vélina til að reka erindi í þágu bæjarsjóðs. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu að í fyrra tilfellinu þætti ekki sannað að Sigfinnur hefði sýnt þá háttsemi að fælist í sá tilgangur að auðgast á kostnað bæjarsjóðs og í síðara tilfellinu var álit dómsins að ákæruvaldið hefði ekki hnekkt þeirri fullyrð- ingu Sigfinns, að hann hefði farið í umræddar flugferðir í erindum bæjarsjóðs. LJÓST er nú að Ólafur Jóhannes- son, forsætisráðherra mun ekki leggja fram í þessari viku frum- varp um aðgerðir í efnahagsmál- um, sem unnið er upp úr niður- stöðum ráðherranefndarinnar, sem fyrir hann voru lagðar fyrir skömmu. Aukafundur mið- stjórnar Framsóknarflokksins hefur verið kallaður saman á föstudag og stendur hann laugar- dag og sunnudag og verður aðal- mál hans efnahagsmáiin og stað- an innan . ríkisstjórnarinnar. Óiafur Jóhannesson staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að frumvarpið myndi ekki koma fram fyrr en eftir miðstjórnarfundinn. Samkvæmt heimildum, sem Morgunblaðið fékk í gær úr Alþýðu- flokknum er verið að vinna á hans vegum frumvarp, sem byggt er á niðurstöðum ráðherranefndarinnar. Þetta verk hófu alþýðuflokksmenn, vegna þess að þeim hefur fundizt seint ganga vinnslan á frumvarpinu í forsætisráðuneytinu. Frumvarpið er byggt á því samkomulagi eða samstöðu, sem tókst milli Kjartans Jóhannssonar og Steingríms Hermannssonar í ráðherranefnd- inni um alla meginpunkta frum- varpsins. Þá verður haldinn um htlgina fundur í verkalýðsmálanefnd Alþýðubandalagsins og munu niðurstöður ráðherranefndarinnar þar einnig verða til umræðu. Flokksstjórn Alþýðuflokksins kom saman til fundar í fyrradag, þar sem ákveðið var að bíða enn átekta í nokkra daga. í eyru Morgunblaðsins í gær var fullyrt úr herbúðum Alþýðuflokksins að ekki ætti að taka nema 1 til 2 daga að smíða frumvarp upp úr niðurstöðum nefndarinnar og verði óhóflegur dráttur á því að frumvarpið komi fram frá forsætisráðherra eru uppi vangaveltur innan Alþýðuflokks, hvort leggja eigi þeirra frumvarp fram eða birta það. Alþýðuflokknum urðu það mikil vonbrigði, er niðurstöður ráðherra- nefndarinnar komu ekki fram í frumvarpsformi og eins og alþýðu- flokksmaður orðaði það í gær, „hvern dag, sem dregst að leggja frumvarpið fram er Alþýðuflokkur- inn dreginn á asnaeyrunum". Á sama tíma sagði hann, eykst tor- tryggni í garð Olafs Jóhannessonar. Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélagsins hf.: 99 Olíusala stöðvast” ef verðlagning olíuvara verður ekki létt nú þegar „VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur fyrirskipað að olíumál skuli ekki tekin fyrir á fundi verðlagsnefndar á morgun (miðvikudag) og þar af leiðandi er sýnilegt að það á að halda þessum leik áfram. Þetta hlýtur að leiða til stöðvunar fyrr en síðar en spurningin er bara sú hvort olíufélögin sjálf verða að stöðva starfsemi sína og enga olíu verði að fá hér innanlands eða þau geti ekki lengur keypt olíu inn,“ sagði Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins hf. í samtali við Morgunblaðið í gær. Eins og fram kom í Mbl. hafa orðið stórfelldar hækkanir á olíuvörum á heimsmarkaði að undanförnu en olíufélögin hafa ekki fengið að hækka olíuvörur jafn mikið og þau telja nauðsyn- legt. Morgunblaðið spurði Vilhjálm Jónsson hvaða áhrif þetta hefði á rekstur olíufélag- anna. Vilhjálmur sagði að olía og bensín væri selt undir kostn- aðarverði, sem næmi nú um 14 milljónum dag hvern að meðal- tali. Þetta fé rynni útaf svoköll- uðum innkaupajöfnunarreikn- ingi og væri reikningurinn orðinn skuldugur við olíufélögin þrjú sem næmi 7—800 milljón- um króna. Þennan halla yrðu olíufélögin að jafna með lán- tökum í viðskiptabönkum sínum Vilhjálmur Jónsson. og borga refsivexti fyrir eða 36% ársvexti, en hins vegar fengju þau enga vexti af því fé sem rennur til innkaupajöfn- unarreiknings. „Við höfum hvað eftir annað gengið á fund viðskiptaráðherra og lagt fyrir hann staðreyndir málsins. Við höfum fengið þar þokkalegt viðmót og eftir hvern fund vonað að rétt útsöluverð yrði ákveðið þannig að útsölu- verðið bæri uppi innkaups- verðið. Ekkert hefur svo gerst og nú sýnist manni að það sé meira en lítil alvara í því að koma af stað vandræðum fyrst ráðherrann hefur ákveðið að taka olíumálin ekki fyrir í þessari viku eins og við höfðum talið víst,“ sagði Vilhjálmur að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.