Morgunblaðið - 07.02.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.02.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979 Ingi R. Helgason: Hr. ritstjóri Ég get ekki orða bundist eftir ræðu Gunnars Thoroddsen utan dagskrár í Sameinuðu alþingi miðvikudaginn 31. janúar s.l. sem birt var orðrétt í Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag. Með því að ég hef nú ekki verið að íþyngja ritstjórn eða lesendum Morgunblaðsins um dagana með tilskrifum þá leyfi ég mér að vænta þess, að eftirfarandi athugasemdir, af þessu tilefni, verði birtar í blaði yðar. Þær upplýsingar, að Elkem Spigerverket hefur samningsbund- ið neitunarvald varðandi öll atriði rafmagnssamningsins milli Járn- blendifélagsins og Landsvirkjun- ar, hafa að vonum vakið verð- skuldaða athygli. Ekki síst vekur þetta furðu, þegar það upplýsist jafnframt, að í fyrsta skipti, sem reynir á þetta neitunarvald, er því beitt af hálfu Elkem Spigerverket. Sú spurning er æði áleitin, hvort neitunarvaldið fari ekki í bág við heimildarlögin um Járnblendi- félagið og þá hvort iðnaðar- ráðherra, Gunnar Thoroddsen, hafi ekki á sínum tíma farið út fyrir valdsvið sitt er hann gaf hinum norsku viðsemjendum sín- um þetta neitunarvald. Ég læt liggja milli hluta af hvaða tilefni neitunarvaldinu var beitt nú (frestun gangsetningar á ofni 2 um 6—9 mánuði) en bendi á, að neitunarvaldið gildir í 20 ár gagnvart öllum atriðum raf- magnssamningsins, og er þá sjálft rafmagnsverðið meðtalið. Til að varpa skýrara ljósi á málið en kom fram í ræðu þing- mannsins, er örstutt söguleg upp- rifjun nauðsynleg. Á dögum viðreisnarstjórnarinn- ar sálugu, eða í mars 1971, knúðu fulltrúar Union Carbide hér dyra og áttu viðræður við íslenzk stjórnvöld um hugsanleg kaup á raforku og byggingu stóriðjufyrir- tækja í samvinnu við íslendinga. Um það leyti, sem vinstri stjórn- in undir forustu Magnúsar Kjartanssonar haustið 1971 tók ákvörðun um að virkja Sigöldu á grundvelli heimildarlaga, skipaði Magnús sérstaka starfsnefnd ráðuneytis síns til að hafa með höndum viðræður við erlenda aðila, sem vildu ræða um sam- vinnu við Islendinga um hugsan- legan orkufrekan iðnað. Auk Jóhannesar Nordal, var nefndin skipuð mönnum úr þáverandi stjórnarflokkum og var ég einn nefndarmanna. Ræddi nefndin við fjölmarga aðila. I október og nóvember 1971 fóru fram viðræður nefndarmanna við Union Carbide, sem vildi reisa hér járnblendiverksmiðju í samvinnu við Islendinga á þeim grundvelli, að Union Carbide hefði meiri- hluta í félagi um verksmiðjuna og að verksmiðjan fengi rafmagn á föstu verði til langs tíma eins og Alusuisse. Magnús Kjartansson hafnaði þessum samningsgrundvelli alfar- ið og kvað ekki koma til mála annað en að íslendingar ættu meirihluta í eignarfélagi um járn- blendiverksmiðju, ef stofnað yrði með erlendri þátttöku. Lagði hann ríka áherslu á, að slíkt félag væri sem hvert annað fslenskt félag, háð íslenskum lögum í einu og öllu og lyti meirihlutastjórn íslensku ríkisstjórnarinnar. A augabragði slitnaði upp úr öllum viðræðum við Union Carbide, þegar nefndin tjáði full- trúum fyrirtækisins þessa afstöðu. Löngu seinna, eða 18. janúar 1973, komu fulltrúar Union Carbide aftur og tilkynntu við- ræðunefndinni, að þeir vildu, að athuguðu máli, ganga að skilyrð- um Magnúsar og hefja samninga að nýju um málið. Hinn 29. júlí 1973 var undirritað samkomulag um að hefja samningsviðræður á þeim grundvelli, að eignaraðild G'rirtækisins yrði 65% í höndum Islendinga og 35% í höndum Union Carbide. Þær samninga- viðræður tóku nokkurn tíma en að þeim loknum lágu fyrir drög að heimildarlögum, aðalsamningi og Síðan gerðist það haustið 1975 vegna „aðstæðna á lánamörkuðum og í markaðsmálum fyrir járn- blendi" að frestað var hönnun og byggingu verksmiðjunnar meðan gagnger endurskoðun fjárhags- áætlana færi fram. Þegar niður- stöður þessarar endurskoðunar lágu fyrir vorið 1976, óskaði Union Carbide að draga sig út úr fyrir- tækinu. Var á það fallist gegn greiðslu skaðabóta og meðal ann- ars fékk Landsvirkjun 1.9 milljón bandaríkjadollara í bætur. Jafn- hliða úrgöngu Union Carbide hóf- ust samningar við Elkem Spiger- verket um að koma í staðinn. Skopleg var afstaða Gunnars til hinnar margumræddu viðræðu- nefndar, sem nú er aflögð. Hann breytingar á því tímabili, sem samningurinn spannaði yfir. Hinn ágæti lögmaður Hjörtur Torfason hrl. átti mikinn þátt í samnings- gerðinni. Þessi samningur var, eins og samningar eru jafnan, gerður milli tveggja aðila, sem hvor um sig er bær til að gera samninga. Hér voru það tvö islenzk fyrirtæki íslenzka Járnblendifélagið h.f. og Landsvirkjun, sem bæði starfa samkvæmt sérstökum lögum og hafa sínar lögheimildir. Hvergi í samningnum er ákvæði, sem skerðir sjálfræði aðilanna eða skilorðsbindur samningsheimildir þeirra. Ég man ekki eftir að hafa heyrt því fleygt innan viðræðu- nefndarinnar í þann tíma, að „eðlilegt" væri og „sanngjarnt" að Skrattinn úr sauðarleggnum rafmagnssamningi og fleiri samningum í byrjun árs 1974. Þegar hér var komið sögu, var olíukreppan skollin á og ný viðhorf höfðu skapast í orkumálum Islend- inga. Brýnt var að beina orku- neyslu landsmanna yfir á innlenda orkugjafa og draga úr innflutningi á olíu. Magnús lét þá fara fram mjög ítarlega sérfræðilega rann- sókn á því, með hverjum hætti á sem skemmstum tíma væri hægt að stórauka notkun raforku og jarðhita til upphitunar húsa og breyta annarri orkuneyslu úr olíu- notkun í rafmagnsnotkun. Nauð- synlegt var að skoða samnings- drögin um járnblendiverk- smiðjuna í ljósi hinna nýju aðstæðna, ekki síst með tilliti til fjármögnunar- og framkvæmda- atriða þeirra stórverkefna, sem blöstu við í orkubúskap þjóðarinn- ar. Magnús Kjartansson lagði því aldrei fyrir Alþingi frumvarpið að heimildarlögum fyrir járnblendi- félagið vorið 1974. Kosningar riðu svo yfir, ný ríkisstjórn tók við völdum og Gunnars þáttur Thor- oddsen hófst í iðnaðar- og orku- málum íslendinga. Gunnar hóf strax viðræður við Union Carbide að nýju. Þótt hann væri alveg mótfallinn stefnumörk- um Magnúsar Kjartanssonar um my'ndugt íslenzkt hlutafélag, er lyti öruggu meirihlutavaldi ís- lenska ríkisins, treysti hann sér ekki að snúa alveg við blaðinu. Hann lækkaði meirihlutann úr 65% niður í 51% en þorði ekki yfir strikið í þeirri lotunni. Þannig voru fyrri heimildarlögin nr. 10/1975 um járnblendiverksmiðj- una samþykkt á Alþingi hinn 26. apríl 1975. Þeim lögum fylgdi rafmagnssamningur milli verk- smiðjunnar og Landsvirkjunar, sem viðræðunefndin hafði unnið að og sá samningur var síðan undirritaður í fullu samræmi við heimildarlögin 28. dag maímánað- ar 1975. lagði nefndina ekki formlega niður- heldur setti hana af á þann meist- aralega hátt, sem honum einum er lagið: með því að fjölga í henni og láta hana hætta að taka þátt í viðræðum! Þannig tók ég aldrei þátt í viðræðum eftir að Gunnar kom til skjalanna, hvorki við Alusuisse, Union Carbide né Elkem Spigerverket og fjallaði því sem nefndarmaður aldrei um samningana við Elkem Spiger- verket og þá að sjálfsögðu ekki um viðaukann við rafmagnssamning- inn, þar sem meirihlutavald ís- lenska ríkisins innan Járnblendi- félagsins er að engu gert með því að veita Elkem Spigerverket neitunarvald. Rafmagnssamningurinn frá 28. maí 1975, þ.e. grundvallarsamn- ingurinn varð til í viðræðunum við Union Carbide. Landsvirkjunar- menn lögðu fram mestan efnivið- inn í þann samning en viðræðu- nefndin ræddi einkum grundvall- aratriðin og rafmagnsverðið og Union Carbide hefði neitunarvald um allar breytingar á samningn- um í þau 20 ár, sem hann átti að gilda. Af þeim ástæðum, sem ég nú hef rakið, voru eftirfarandi ákvæði sett í samninginn um það, hvernig honum yrði breytt: „23. grein. Breytingar. Breytingar á samningi þessum skulu einungis gerðar með skrif- legum og löglega undirrituðum viðbótarsamningi milli Lands- virkjunar og kaupanda og með skriflegri tilkynningu til ríkis- stjórnarinnar og Union Carbide.“ I þessu ákvæði samningsins er framangreindu grundvallaratriði um samningslegt sjálfræði aðil- anna slegið föstu á svo ljósan hátt sem mest má vera. Enginn, sem að þessari samn- ingsgerð vann, gekk þess hins vegar dulinn, að samningur þessi var hluti af stærri „pakka“ þ.e. fleiri samningum um það ætlunar- verk að stofnsetja og starfrækja járnblendiverksmiðju á Islandi í samvinnu við erlendan aðila. Samningar þessir voru að sjálf- sögðu mjög tengdir hver öðrum. Það haggaði þó ekki þeirri grundvallarforsendu allra samn- inganna, að íslenzka ríkið átti að hafa meirihlutavald í Járnblendi- félaginu. Sjálfsagt þótti hins vegar, að tilkynna formlega Union Carbide breytingar á samningnum, ef gerð- ar yrðu, eins og samningsgreinin gerir ráð fyrir. Union Carbide varð þá að meta mikilvægi breyting- anna, t.d. hvort forsendur fyrir áframhaldandi samstarfi var brostið eða ekki. Þegar Union Carbide fór út úr myndinni og Elkem Spigerverket var komið í staðinn sem samnings- aðili, höfðu allar tímaáætlanir um uppbyggingu verksmiðjunnar far- ið út um þúfur. Sérstaka þýðingu hafði tímasetningin á afhendingu rafmagns, sem hafði breyzt til muna og var því nauðsynlegt að breyta rafmagnssamningnum með tilliti til þess. Landsvirkjun og Járnblendifélagið urðu sammála um nauðsyn slíkra breytinga' og fyrsti viðaukinn við rafmagns- samninginn var gerður 31. des. 1976. En um leið og þessar óhjákvæmilegu breytingar eru gerðar á rafmagnssamningnum er í þessum fyrsta viðauka marg- nefndu grundvallaratriði breytt og samningslegt sjálfræði Járn- blendifélagsins gagnvart Lands- virkjun tekið af því og þar með meirihlutavald íslenzka ríkisins innan Járnblendifélagsins í þess- um efnum að engu gert. Breytingarákvæði viðaukans (5. gr. 6. tl.) er svohljóðandi: „Breytingar á samningi þessum skulu einungis gerðar með skrif- legum og löglega undirrituðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.