Morgunblaðið - 07.02.1979, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979
4
Innilegt þakklaeti vil ég faera
vinum og vandamönnum, sem
glöddu mig á einn eða annan
hátt á 95 ára afmæli mínu 23.
janúar sl.
Guð blessi ykkur öll.
Siguröur Þorvaldsson,
Sleitustöðum,
Skagafirði.
SÍKfí
Hitamælar
SBQytrtiaiMgjtUF
<§t <ö@
Vesturgötu 16.
simi 1 3280.
Útvarp í dag kl. 11.00:
Horft til höfuðátta
Erindaflokkur sr. Helga
Tryggvasonar heitir „Horft til
höfuðátta" og hefst þriðja er-
indi í útvarpi í dag kl. 11.00
— Þetta nafn bendir á, að
hann er að seilast eftir því að
varpa ljósi á aðalatriði, sem
honum finnst oft vilja svífa í
lausu lofti í hugum fólks, en
tilheyri hvorki himni né jörð,
eins og Helgi orðar það, — og þá
finnst honum vöntunin vera til-
finnanleg. Hvað eigum við að
segja um 4ra ára strákinn í New
Sr. Helgi Tryggvason.
York nú alveg nýlega, sem vissi
allt betur en kerlingin móðir
hans, og fleygði sér ofan úr
háhýsi, til þess að fljúga eins og
Súperman?
Sr. Helgi telur gálaust og
fráleitt að halda því svo einhliða
fram eins og oft er gert nú á
dögum, að börnin skuli taka sem
fæst trúanlegt fyrr en þau hafa
rannsakað það sjálf. Það getur
orðið dýrt spaug í umhverfi
barnsins, sem fullt er af hættu-
legum hlutum. Hann kveðst
reyna að blása á óttann við bein
fyrirmæli, boð og bönn og benda
í því sambandi á daglegt líf, svo
sem umferðarreglurnar, sem
segja einarðlega og upphátt: Þú
skalt... og þú skalt ekki...
Hann vísar líka til boðorðanna
tíu sem eru undirstöður sið-
menningarinnar og umferðar-
reglur daglegs lífs á flestum
sviðum. Þau tryggja gagnkvæm-
an rétt beggja aðila.
„Börnin þurfa alltaf að finna
ást og umhyggju, góðan félags-
skap hinna fullorðnu, næman
skilning, en hiklausa einurð,
þegar það á við,“ sagði Helgi að
lokum.
Sjónvarp í kvöld kl. 21.50:
Þróun fjölmiðlunar
Franskur fræðslumyndaflokk-
ur í þremur þáttum hefst í
sjónvarpi 1 kvöld kl. 21.50 og
nefnist Þróun fjölmiðlunar.
í þessum fyrsta þætti verður
sagt frá sjónvarpi, útvarpi, dag-
blöðum og vikuritum, og hvernig
starfsemi í þessum fjölmiðlum er
háttað. Tekið er fyrir hvernig
dagblað er unnið og einnig sagt
frá frönsku fréttastofunni, AFP,
og tölvuvinnslu, sem notuð er við
starfið.
Þá er lýst fréttaflutningi og
vinnslu og hvers vegna blöðin eru
að birta fréttir, sem ef til vill eru
þegar komnar í útvarpi og sjón-
varpi, og fjallað um kosti hvers
miðils fyrir sig.
Tim Curry í hlutverki William Shakespeares í myndaflokknum
um skáldið, sem hefst í sjónvarpi í kvöld kl. 21.00. í þessum fyrsta
þætti af sex, segir frá Shakespeare í Lundúnum um 1590. Skrifar
hann fjölskyldu sinni í Stratford, að hann sé mikils metinn leikari,
en annað kemur á daginn. Hann kynnist í leikhúsinu, þar sem hann
er sísnuðrandi, Christopher Marlow, alkunnu leikritaskáldi og fer
að aðstoða hann við samningu leikrits, sem Marlow er að skrifa
fyrir leikflokkinn.
Ilermann Bauman,
einn bezti hornleikari,
sem nú er uppi. Hann
leikur með Sinfóniu-
hljómsveit íslands í Há-
skólabíói annað kvöld,
en í þættinum Úr tónlist-
arlifinu, sem hefst í út-
varpi f kvöld kl. 22.50
verður fjallað um þessa
tónleika, og spiluð brot
úr verkum þeim, sem
þar eru á dagskrá með
öðrum hljómsveitum.
Auk þess verður fjallað
um nýtt fslenzkt tón-
verk, „Helgistef", eftir
dr. Hallgrím Helgason
sem frumflutt verður
annað kvöld en hljóm-
sveitarstjóri er Walter
Gillesen.
KULDA-
JAKKAR
Okkar vinsælu
dönsku kuldajakkar
komnir aftur.
Útvarp Reykjavík
yfilDMIKUDIkGUR
7. febrúar
MORGUNNINN__________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Um-
sjónarmenn: Páll Heiðar
Jönsson og Sigmar B.
Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
gr. dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis
lög að eigin vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Geirlaug Þorvaldsdóttir
heldur áfram að lesa
„Skápalinga44, sögu eftir
Michael Bond (12).
9.20 Leikfimi.
9.30Tilkynningar.. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir
ýmis lög frh.
11.00 Horft til höfuðátta. Séra
Helgi Tryggvason flytur
þriðja erindi sitt um upp-
eldismál og þjóðmál frá sjón-
armiði kristins siðar.
11.25 Kirkjutónlist: Aka-
demíukórinn og Þjóðaróper-
an í Vín flytja Messu nr. 5 í
C-dúr (Klfi7) eftir Mozart;
Ferdinand Grossman stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SIÐDEGIÐ_________________
13.20 Litli barnatíminn. Sig-
ríður Eyþórsdóttir stjórnar.
13.40 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Húsið
og hafið“ eftir Johan Bojer.
Jóhannes Guðmundsson ís-
lenzkaði. Gísli Ágúst Gunn-
laugsson les (12).
15.00 Miðdegistónleikar:
Stadium Concert sinfóníu-
hljómsveitin í New York
leikur Sinfóníu í C-dúr nr. 2
op. 61 eftir Robert Schu-
mann; Leonard Bernstein
stj.
15.40 íslenzkt mál. Endurt.
þáttur Jón Aðalsteins Jóns-
sonar frá 3. þ.m.
lfi.OO Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn: Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Saga úr Sandhólabyggð-
inni“ eftir H.C. Andersen.
Steingrímur Thorsteinsson
þýddi. Axel Thorsteinsson
les (4).
17.40 Á hvítum reitum og
svörtum. Jón Þ. Þór flytur
skákþátt.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Píanóleikur í útvarpssal:
Ragnar Björnsson leikur
Sónötu í b-moll op. 35 eftir
Frederic Chopin.
20.00 Úr skólalífinu. Kristján
E. Guðmundsson stjórnar
þættinum, sem fjallar um
nám og félagslíí í Stýri-
mannaskólanum.
20.30 Útvarpssagan: „Eyr-
byggja saga“. Þorvarður
Júlíusson les (2).
21.00 Illjómskálamúsík. Guð-
mundur Gilsson kynnir.
21.30 Ljóð eftir Rósberg G.
Snædal. Höfundur les.
21.45 íþróttir. Ilermann Gunn-
arsson segir frá.
22.10 Loft og láð. Pétur
Einarsson ræðir við Skúla
Jón Sigurðarson fulltrúa um
bóklcga og verklega flug-
kennslu.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Úr tónlistarlífinu. Knút-
ur R. Magnússon sér um
þáttinn.
23.05 Djassþáttur í umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
7. febrúar.
18.00 Rauður og blár. ítalskir
leirkarlar.
18.05 Börnin teikna. Bréf og
teikningar frá börnum til
Sjónvarpsins. Kynnir Sigríð-
ur Ragna Sigurðardóttir.
18.15 Gullgrafararnir. Áttundi
þáttur. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.40 Heimur dýranna.
Fræðslumyndaflokkur um
dýralíí víða um heim. Þýð-
andi og þulur Gylfi Pálsson.
19.05 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Nýjasta tækni og vfsindi.
Langtímaveðurspár. Bif-
reiðanýjungar. Kvikmyndun
dýralífs. Nýting jarðhita.
Umsjónarmaður Sigurður
II. Richter.
21.00 WillShakespeare.Bre.sk-
ur myndaflokkur í sex þátt-
um. byggður á viðburðum úr
ævi Shakespeares
(1564 — 1616). Handrit John
Mortimer. Aðalhlutverk Tim
Curry, Nicholas Clay, Meg
Wynn Owen, Ian McShane,
Keith Baxter og John
McEnery. Sagan hefst árið
1590. Shakespeare freistar
gæfunnar í Lundúnum. en
kona hans og börn eru
heima í Stratford. Hann
skrifar þeim. að hann sé
orðinn mikils metinn leik-
ari, en vinur hans, Hamnet
Sadler. kemst að raun um
annað. þegar hann kemur til
höfuðborgarinnar. Þýðandi
Kristmann Eiðsson. Athygli
skal vakin á þvf. að mynda-
flokkurinn Rætur. sem verið
hefur á miðvikudögum. fær-
ist á sunnudagskvöld. og
sjötti þáttur verður sýndur
sunnudaginn 11. febrúar.
21.50 Þróun fjölmiðlunar.
Franskur fræðslumynda-
flokkur í þremur þáttum.
Fyrsti þáttur. Frá handriti
til prentaðs máls. Lýst er
upphafi ritlistar og bóka-
gerð fyrir daga prentunar.
Þýðandi og þulur Friðrik
Páll Jónsson.
22.45 Dagskrárlok.