Morgunblaðið - 07.02.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979
5
Sinfóníuhljómsveitin:
Frumflytur verk eftir
dr. Hallgrím Helgason
Tónverk eítir dr. Hallgrím
Helgason verður írumflutt á
næstu tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands n.k. fimmtudag.
Nefnist verkið Helgistef og er
tilbrigði og fúga um gamalt
íslenzkt stef. Einnig verða flutt
verk eftir Strauss, Haydn og
Mozart.
Hljómsveitarstjóri verður
Walter Gillessen, en hann stund-
aði tónlistarnám sitt við Tón-
listarháskólann í Köln og vann
árið 1965 fyrstu verðlaun í
alþjóðlegri keppni hljómsveitar-
stjóra í Stresa. Hann var í tvö ár
stjórnandi við Borgarleikhúsið í
Bonn og hefur verið aðstoðar-
hljómsveitarstjóri Herberts von
Karajan í Berlín og Salzburg.
Síðan 1976 hefur hann verið
tónlistarstjóri í Kiel.
Hermann Baumann hornleikari
leikur einleik og hlaut hann tón-
listarmenntun sína í Hamborg.
Hann vann fyrstu verðlaun árið 1964
í keppni útvarpsstöðva í Þýzkalandi
og er talinn eiga stóran þátt í að
endurvekja hornið sem einleiks-
hljóðfæri. Frá 1967 hefur hann verið
prófessor við Folkwang-háskólann í
Essen í Þýzkalandi.
Helgistef, verk dr. Hallgríms
Helgasonar, var samið árið 1976 að
tilstuðlan Tónmenntasjóðs Ríkisút-
varpsins og segir höfundur m.a. svo
um verkið:
í níu tilbrigðum er varpað frá
ýmsum hliðum ljósi á þetta vinsæla
lag er endurspeglar þá rósemi og
festu ásamt óbrotinni en sterkri
lagferð sem sameiginleg er mörgum
íslenzkum söngvum miðalda. En með
henni býr innileg, oft þó hálfdulin
gleði sem lætur ekkert næmt eyra
ósnortið. ipiig^nguj þessa verks er að
opna innsýn í kjarna þessa tóntaks,
sem er líftaug allra miðaldasöngva,
þó án allrar fornmenntadýrkunar.
Hér skiptast á þættir alvöru og
gamansemi, íhygli og gáska.
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
gær til Georgs Ólafssonar
verðlagsstjóra og leitaði álits á
þeim viðbrögðum, sem hafa
komið fram vegna skýrslu hans
um innflutningsverzlunina.
Verðlagsstjóri sagði:
„Ég var erlendis í síðustu viku og
hef því aðeins lauslega getað kynnt
mér þær viðtökur, sem skýrslan fékk
hjá innflytjendum. Það kemur mér
ekki á óvart þó að þeir hafi á ýmsan
hátt reynt að gera skýrsluna tor-
Verk eftir dr. Hallgrím Helgason
verður frumflutt á næstu tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitarinnar.
tryggilega en hins vegar hafði ég
vænzt þess að þeir myndu ræða hana
meira málefnalega og yrðu tilbúnir
til samstarfs um að finna lausn á
þeim vanda, sem þeir þó viðurkenna
að er fyrir hendi. Ég mun ekki elta
ólar við útleggingar einstakra inn-
flytjenda og fulltrúa þeirra á
skýrslunni því að athugunin fór
fram að beiðni viðskiptaráðherra og
það er fyrst og fremst hans að meta
niðurstöður hennar og taka
ákvörðun um áframhaldandi
meðferð málsins.“
aðalfundur
V erðlagsst jóri:
„Hefði vænzt mál-
efnalegri umræðu”
Flugmannaverkfallið:
Flugmannafélögin eru
tveir stríðandi aðilar
— segir Örn Ó. Johnson
— EIN AF ástæðum þess að við
töldum miðlunartillögu sátta-
nefndar óaðgengilega var sú, að
hugmyndir hennar um launajöfn-
un gengu lengra en við gátum
samþykkt út frá rekstrar- og
grundvallarsjónarmiðum, sagði
Órn 0. Johnson forstjóri Flug-
leiða um miðlunartillögu sátta-
nefndar í verkfalli flugmanna
F.Í.A.
— Innaíilandsflugið er rekið undir
erfiðum verðlagsákvörðunum og þar
sem við höfum ekki fengið nauðsyn-
legar hækkanir er halli mikill og ber
ekki miklar launahækkanir, sagði
Örn ennfremur. Hugmyndir um
leiðaskiptingu milli flugmannafélag-
anna gátum við heldur ekki sam-
þykkt þar sem félagið yrði vart
rekstrarhæft. Kröfur flugmanna
F.Í.A. um leiðaskiptingu er útilokað
fyrir okkur að samþykkja þar sem
félagið yrði ekki rekstrarhæft og
virðist sáttanefnd vera á sömu
skoðun því hún kom með miðlunar-
tillögu þar sem er gert ráð fyrir
sameiningu starfsaldurslista flug-
mannafélaganna. Eru þær tillögur í
öllum atriðum hliðstæðar tillögum
Flugleiða, en við gátum ekki sam-
þykkt þær þar sem Félag Loftleiða-
flugmanna hefur þegar samþykkt
tillögur Flugleiða.
Aðalvandamálið er að flugmanr.a-
félögin eru tvö, tveir stríðandi hópar
og því gagnslítið að ná samkomulagi
við annan þeirra því reynslan sýnir
að það eykur kröfugerð frá hinum.
Ef friður á að nást verður að finna
einhverja leið sem felur í sér sam-
komulag við báða þessa hópa, sagði 1
Örn Ó. Johnson að lokum.
Adalfundur
Stjórnunar-
félags íslands
AÐALFUNDUR Stjórnunar-
félags íslands verður haldinn að
Hótel Sögu (Bláa salnum) á
morgun, fimmtudaginn 8.
febrúar og hefst kl. 12.15.
Að loknum venjulegum aðal-
fundarstörfum mun Tómas Árnason
fjármálaráðherra flytja erindi um
„Áhrif efnahagsráðstafana ríkis-
stjórnar á stjórnun opinberra fyrir-
tækja og einkafyrirtækja". Að loknu
erindinu verða frjálsar umræður um
efnið. ___
©
INNLENT
Ft Austurstræti 22
2. hæö
ÖrviQ9'e9a
stórKost\e
1 útsa\a sei
| ha\d\o
I vretor ver
rygg
ir á
fær staðist
TIZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
Austurstræti 22. simi fra skiptibordi 28155 -
taugaveg 66 Austurslræti 22 Glæsibæ Simi 28155
Laugaveg
frá
Simi
skiptiboröi
28155
ÍS5
im
l