Morgunblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979 29
| smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Kaupi bækur
gamlar og nýlegar, heil söfn og
einstakar bækur.
Bragi Kristjónsson, Skólavöröu-
stíg 20, Reykjavík. Sími 29720.
Til sölu góö efri hæö ásamt
óinnréttuðu risi. íbúöin er í
toppstandi. Stór bílskúr.
Hef fjársterkan kaupanda aö
góöu einbýlishúsi.
Eigna- og veröbréfasalan,
Hringbraut 90, Keflavik, sími
92-3222.
! Húsbíll (Motorhome)
j Dodge Red Dale sem nýr er í
New York. Upplagt fyrir þá sem
vilja feröast í U.S.A. Má borgast
í íslenskum kr. eöa skipti mögu-
leg. Uppl. í síma 85372.
5V2 meters langur
árabátur
í færeysku lagi er til sölu. Uppl.
gefur Eggert Gunnarsson, sími
1179, Vestmannaeyjum eftir kl.
7 á kvöldin.
St.:St.: 5979387 — VII — 8.
□ HELGAFELL 597903087 IV.
Mynda- og kaffikvöld
Göngu-Víkinga veröur haldiö í
félagsheimili Vikings viö Hæöar-
garö fimmtud. 8. mars kl. 20.30.
Sýndar veröa myndir úr ferðum
síðasta árs m.a. Arnarfell, Lóns-
öræfi, Emstrur, Fimmvörðuháls
og sunnudagsferöir. Allir
velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Upplestur. Mikitl söngur.
Major Lilly Lunde talar. Allir
hjartanlega velkomnir.
AD KFUM
Fundur veröur haldinn í húsi
félaganna aö Amtmannsstíg 2 B
kl. 20.30. Séra Guömundur
Óskar Ólafsson talar um efniö:
Bænalíf. Allir karlmenn hjartan-
lega velkomnir.
Fíladelfía
Hafnarfirði
Almenn samkoma í Gúttó í
kvöld kl. 20.30. Ræöumenn
Siguröur Vium og Óli Ágústs-
son. Jórdan leikur. Allir hjartan-
lega velkomnir.
! Fíladelfía
Reykjavík
i Almenn æskulýössamkoma í
| kvöld kl. 20.30. Ungt fólk talar
og syngur. Samkomustjóri
Guöni Einarsson.
Náttúrulækninga-
félag Reykjavíkur
Framhaldsaöalfundur félagsins
veröur í Austurbæjarbíói næst-
komandi sunnudag kl. 14. Nán-
ar auglýst á laugardag.
Stjórnin.
Nýttlíf
Almenn samkoma kl. 20.30 aö
Hamraborg 11. Beöið fyrir sjúk-
um. Allir velkomnir.
Grensáskirkja
Almenn samkoma veröur i
safnaöarheimilinu í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Halldór S. Gröndal.
Frá Sálarrannsóknar-
félaginu Hafnarfirði
Fundur veröur í lönaöarmanna-
húsinu fimmtudaginn 8. marz er
hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Raeöur: Séra Siguröur Haukur
Guöjónsson og Ófeigur J.
Ófeigsson læknir.
Tvísöngur: Guöríöur Linnet og
Ingveldur Ólafsdóttir viö undir-
leik Páls Kr. Pálssonar orgel-
leikara.
Stjórnin.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Sjálfstæðiskonur
Akureyri og nágrenni
Fyrirhugaö er aö halda námskeiö í fundarsköpum og ræðumennsku
á skrifstofu flokksins Kaupvangsstræti 4. Námskeiöiö hefst n.k.
fimmtudag kl. 20.30.
Leiðbeinandl veröur Björn Arnviöarson.
Upplýsingar í síma 24316 fyrir hádegi og á kvöldin.
Sjálfstæðiskvennafélagið Vörn.
Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík
vekur athygli á því, aö nú stendur yfir innritun í:
stjórnmálaskóla
Sjálfstæðisflokksins
Skólinn hefst mánudaginn 12. marz n.k. og verður aö þessu sinni
kvöld- og helgarskóli. Þetta er tilraun til aö mæta óskum, þeirra er
hafa viljaö sækja skólann, en ekki getaö komið því viö aö vera í
dagskóla.
Félagsstjórn hvetur félagsmenn sína eindregið til aö notfæra sér
þetta tækifæri.
Nánari uppl. um skólann í síma 82900.
Mýrarsýsla
Aðalfundur Sjálfstæö-
isfélags Mýrarsýslu
veröur aö Borgarbraut
4, Borgarnesi sunnu-
daginn 11. marz kl. 3.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundar-
störf.
Þingmennirnir Friöjón
Þórðarson og Jósef
Þorgeirsson mæta á
fundinn.
Sjálfstæöisfólk fiölmenniö.
Ráðstefna
Sjálfstæðisflokksins:
„Hvað er framundan í
íslenzkum landbúnaði“?
Til þess aö leita svars viö þessari spurningu hefur veriö ákveöið aö
efna til tveggja daga ráöstefnu um landbúnaöarmál. Ráöstefnan fer
fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, Reykjavík 10—11. marz n.k., hefst kl.
10 f.h. n.k. laugardag.
Þar sem á ráðstefnunni gefst einstakt tækifæri tyrir áhugafólk um
landbúnað og neytendamál til umræöna og virkrar þátttöku í
stefnumótun í þessum mikilvæga málaflokki, vill Sjálfstæöisflokkur-
inn hvetja til þátttöku í störfum ráðstefnunnar.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Fiskiskip
Höfum til sölu m.a. 58 rúml. eikarbát,
smíöaöann 1959 meö 350 hp. Caterpillarvél
1971. Vel tækjaður og vel hirtur bátur.
Áhvílandi lán ca. 1,5 millj. kr.
SKIPASALA-SKIPALEIGA,
JÓNAS HARALDSSON, LÖGFR. SIML 29500
Kristlaugur Bjarnason
Grund — 75 ára afmæli
Þeir sem lesið hafa Kristnihald
undir Jökli gleyma vart sögu-
manni síra Jóni Prímus. Segir
höfundur að hann sé samsetning
úr minnst átta mönnum, enda heið
erindreki biskups þolinmóður þess
að ná fundi prests þótt það tæki
hann marga daga. Fyrir ekki
alllöngu var annar erindreki á ferð
á Snæfellsnesi og hafði nokkra
dvöl á fjölbýlustu stöðum meðal
annars í Grundarfirði, og ræddi
þar við fólk af báðum kynjum um
uppbyggingu og þróun staðarins.
Þessi erindreki orðsins fjölmiðils
gekk þó framhjá garði Kristlaugs,
einmitt þess manns sem virkastan
þátt hafði þó átt í margþættri
uppbyggingu staðarins. Við Láugi
eins og hann var kallaður vorum
nábúar og fermdumst saman hjá
síra Jens á Setbergi og þó að ég
teldi mig kannski standa jafnfætis
honum í Helgakverinu þá var
hann mér þó strax ofjarl í smíði og
tækni því hann var þá þegar
orðinn eftirsóttur hnakkasmiður,
þótt hann hefði enga tilsögn fengið
við þá smíði. Það lá því við að
maður öfundaði hann af þessum
hagleiks hnökkum, en ekki varð
það nú samt að vinslitum og árin
liðu. Ég fór í burtu að heiman og
fundum okkar fækkaði í biii.
Maður hafði þó fréttir úr sveit-
inni, t.d. að nú sé hann farinn að
leggja fyrir sig húsasmíðar. Hann
sér um byggingu á nýtúsku íbúðar-
húsi fyrir Pál á Hömrum, og ferst
það vel úr hendi, þótt hann hefði
ekki lært smíðar. Þá er hann við
byggingu á bátabryggjunni í
Grafarnesi og síðan er hann farinn
að taka í verkun saltfisk af stórum
línuveiðara úr Reykjavík, þetta
var á mestu kreppuárunum. Þó fór
þetta allt vel úr hendi hjá honum
og gaf mörgum nokkurt fé í vasa,
sérstaklega munu þeir unglingar
er komust í þessa vinnu hafa verið
ánægðir.
Það mun svo hafa verið um 1938
að Kristlaugur er á ferð í Reykja-
vík að kaupa sér vörubíl, bíllinn
var nú orðinn 10 ára gamall og
þótti mörgum það fásinna að fara
með svo gamlan bil í næstum
algjörar vegleysur eins og þá var
þar fyrir vestan. Þó mun þessi
fyrsta bílferð í Eyrarsveit hafa
gengið áfallalaust, að vísu varð
hann víst að þræða ýmist upp um
holt og hæðir eða þá fjörur. En
heim komst hann á bílnum
óskemmdum.
Og braut þannig nýja braut í
sögu umferðarmála í Éyrarsveit.
Ekki hafþi bíll sá verið lengi í
sveitinni er sveitungarnir gefa
honum nafn og kölluðu hann
„Skruggúblesa". Hefur það eflaust
komið af því að nú var kyrrðin
rofnuð þar á vegi og svo var
tilvalið að tengja þetta við hest,
enda varð raunin sú að Skruggu-
bles^ varð sá mesti og besti
burðarklár er þar hafði ko.mið. Og
vinsældir hafa þeir félagar orðið,
ekki síst hjá veikara kyninu, því
brátt var það orðið Laugi kærasti
á sínurn Skruggublesa. Að vísu
kom fyrir að Blesi bilaði svo sem
títt er, ekki síst með svo gamlan
bíl, en þá settist Laugi bara niður
og gerði við, og þegar hann hafði
kannski þurft að rífa hann
næstum stykki fyrir stykki, þá var
öllu stillt rétt upp aftur og Blesi
skreið af stað. Þegar svo fleiri
bílar bættust í sveitina og fóru að
bila þá var leitað til Kristlaugs
með viðgerðir. Þó hafði hann ekki
fengið neina kennslu í þessum
málum. Það var eins og véla-
kramið væri innstillt í hausinn á
honum.
Það er svo 1941 að leiðir okkar
liggja saman aftur, þá í sambandi
við byggingu á Hraðfrystihúsi í
Grundarfirði. Vorum við sammála
um að áður enn nokkrar
framkvæmdir yrðu hafnar við þá
byggingu skyldum við fyrst ganga
á fund skipulagsstjóra ríkisins
Harðar Bjarnasonar og leita upp-
lýsinga hjá honum um skipulags-
mál, hann tók okkur mjög vel.
Sagði að fyrst yrði að koma beiðni
frá hreppsnefnd eða oddvita. Við
höfum þá samband við Bárð odd-
vita út af þessu og hann brá skjótt
við og sendi Herði staðfest sím-
skeyti þar sem beðið var um
skipulagningu á Grafarnesi.
Skipulagsstjórn fór svo strax i aö
vinna að þessum málum. Þannig
varð Grafarnes skipulagt frá
grunni og er því fyrsta kauptún á
Islandi sem þannig er staðið að
uppbyggingu á. Kristlaugur tók
svo að sér byggingu á Hraðfrysti-
húsinu og tveggja hæða húsi fyrir
mig, og voru þetta fyrstu
byggingarnar sem þar voru
byggðar samkvæmt skipulagi
ríkisins. Nú varð það hlutverk
„Skruggublesa“ að bera allt
byggingarefni, möl og sand, í þessi
tvö hús, og nú er þetta orðið sex
hundruð manna kauptún. Þegar
svo Grundarfjörður komst inná
hafnalög og byrjað var á hafskipa-
bryggju í Grafarnesi sumarið 1942
var Kristlaugur fyrsti verkstjóri
við þær framkvæmdir. Og þar kom
Skruggublesi einnig við sögu þvi
að á honum var fyrsta efnið í
bygginguna flutt. Það orkar því
vart tvímælis að enginn einn
niaður hefur meira af mörkum
lagt en Kristlaugur við uppbygg-
ingu þessa staðar. Og ekki hefur
Laugi látið deigan síga þótt árin
færðust yfir. Síðustu árin hefur
hann snúið sér að búskapnum og
hefur með bróður sínum b.vggt
mjög myndarlegt bæði íbúðarhús
og öll peningshús á gamla höfuð-
bólinu Grund í Grundarfirði, og
auk þess bylt flóum og mýrum í
græna töðuakra. Þegar maður nú
rennir huganum yfir það dagsverk
er Laugi skilur eftir sé ég að hann
hefur meðtekið fullkomlega átt-
undina í Kristnihaldinu hjá síra
Jens og ávaxtað það vel fyrir sína
heimabyggð. Við hjónin og synir
okkar sendum honum svo okkar
bestu kveðjur á þessum tíma-
mótum og þökkum gömul og góð
kynni og biðjum að hann megi vel
njóta kvöldsólarinnar á Grundar-
hlaðinu.
Oddur Kristjánsson.