Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 81. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Pol Pot flúinn til Thailands? Bangkok, 5. apríl. AP. POL POT fyrrum þjóðarleiðtogi í Kambódíu og nokkrir nánustu samstarfsmenn hans flýðu yfir landamærin til Thailands í síðustu •viku, eftir að hersveitir núverandi ráðamanna í landinu náðu á sitt vald bækistöðvum þeirra. að því er víetnamska fréttastofan skýrði frá t' dag. Ekki hefur fengizt staðfest af yfirvöldum í Thailandi að Pol Pot sé þangað kominn, en staðfest er að harðir bardagar hafa geisað innan Kambódíu undanfarið skammt frá landamærum Thai- lands. I fréttum víetnömsku frétta- stofunnar segir að síðustu dagana í marz hafi her Kambódíustjórnar „drepið, sært eða handsamað eitt þijsund af hermönnum óvinarins og náð á sitt vald geysimiklu af hergögnum." Útvarpsstöð stuðningsmanna Pol Pots, sem talið er að sendi út frá Suður-Kína, hélt því fram í dag að tæplega tvö hundruð her- menn Víetnama hefðu fallið í bardögum við sveitir hliðhollar Pol Pot undanfarið. Vinstri sinnar sigra á Grænlandi Káupmannahöfn, 5. aprfl. Reuter. SIUMUT-FLOKKURINN á Grænlandi, sem talinn er heldur vinstri sinnaður, bar sigur úr býtum f fyrstu þingkosningum þar í landi. Flokkurinn fékk 12 þingsæti af 21 í þinginu, en Atassut flokkurinn. sem er íhaldssamari, fékk 9 sæti. Alls greiddu sjötíu af hundraði hinna 29 þúsund kjósenda í landinu atkvæði og fékk Siumut-flokkurinn 45% greiddra atkvæða en Atassut fékk 43%. Tveir smáflokkar skiptu öðrum atkvæðum á milli sín, en hvorugur þeirra kom manni að. Siumut-flokkurinn er andvígur aðild Grænlands að Efnahags- bandalagi Evrópu og vill að sjálf- stjórn Grænlendinga verði víð- tækari en gert er ráð fyrir að verði samkvæmt lögunum um heima- stjórn Grænlendinga, sem gildi taka 1. maí nk. Vill flokkurinn að Grænlendingar hafi meiri áhrif á hagnýtingu auðlinda sinna en gert er ráð fyrir. Flokkurinn er líka fylgjandi algeru áfengisbanni, en ofdrykkja áfengis hefur verið mjög alvarlegt vandamál á Græn- landi lengi. Leiðtogi Siumut-flokksins er fertugur prestur, Jónatan Motzfeldt, og verður hann oddviti hinnar nýju heimastjórnar. Með honum í stjórninni verða þrír flokksbræður hans. Blóðugar mót- mælaaðgerðir í PAKISTAN Rawalpindi, 5. apríl. AP. Reuter. BLÓÐUGAR mótmælaaðgerðir urðu í dag í nokkrum borgum Pakistans í kjölfar minningarathafna um Ali Bhutto fyrrum forsætisráðherra, sem ii'flátinn var í gær. Barðist Iögregla við fólk, sem fordæmdi aftökuna og hrópaði vígorð gegn Zia-ul-Haq sem nú fer með völdin í iandinu. Voru nokkur hundruð mótmælendur handteknir eftir að grjóthríð hófst á strætisvagna og stjórnarbyggingar. Beitti iögreglan víða táragasi til að hafa hemil á mótmælendum. Aftaka Ali Bhuttos hefur sætt mikilli gagnrýni víða um heim og í páfagarði var lýst yfir harmi vegna hennar og skýrt frá því að Jóhannes Páll páfi II. hefði beðið Bhutto lífs. Sænsku blöðin Dagens Nyheter og Svenska Dagbiadet fordæma aftökuna harðlega í leið- urum sínum í dag og hið fyrr- nefnda segir leiðtoga Pakistans nú sekan um morð og muni hann héðan í frá aldrei getað sameinað þjóð sína. Málgagn pólsku stjórn- arinnar sagði í dag að henging Bhuttos varpaði blóðugum skugga á sögu Pakistans. Stuðningsmenn AIi Bhuttos biðjast fyrir eftir að forsætisráðherrann fyrrverandi hafði verið liflátinn. Myndin er tekin í almenningsgarði í miðborg Rawalpindi í Pakistan. Á grasinu fyrir framan fólkið liggur hinn þríliti fáni flokks Bhuttos. (Símamynd ap> Amin enn í Kampala? Óljóst ástand í Úganda Naíróbí, 5. aprfl. AP. Reuter. MJÖG mótsagnakenndar íréttir bárust um þróun mála í Úganda í dag. Úgandaút- varpiö skýrði frá því í dag, að Amin forseti hefði skotið upp kollinum f Kampala til að stappa stálinu í þá liðs- menn sína, sem enn eru í borginni. Hefur útvarpið eftir Amin að hann sé bæði hress og hraUstur og segir hermenn hans reiðubúna til að berjast til sfðasta manns. Segir útvarpið að uppreisn- armenn og innrásarliðið frá Tanzanfu sé nú umkringt og flutningar birgða til þess hafi verið stöðvaðir. Á hinn bóginn telja heim- ildarmenn í Naíróbí, sem glöggt hafa fylgst með þróun mála í Úganda undanfarið, að Amin sé með þessum fréttum að reyna að blekkja umheim- inn eina ferðina enn. Upplýs- ingar frá stjórnarerindrekum og íbúum í Kampala ber saman um að her landsins sé í upplausn og líbýskir herflokk- ar, sem aðstoða her Amíns, hafi hörfað til borgarinnar Jinja í austurhluta landsins. Andstæðingar Amins virð- „Munum hefna hryðju verka þúsundfalt” • /^4 -■ . . ■■ i a i • _a. m_e_i.:_ — segir Sadat Egyptalandsforseti verður afhent borgin að loknu 12 ára hernámi ísraelsmanna. Sadat Egyptalandsforseti sagði í Washington, Jerúsalem, Kaíró, Níkósíu, 5. aprfl. AP. Reuter. TILKYNNT var í Washington í dag, að Cyrus Vance utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna færi til borgarinnar El-Arish á Sínaí- skaga 27. maí nk. og yrði við- staddur ásamt leiðtogum Egypta- lands og ísraels, þegar Egyptum dag í þingræðu, að hann myndi grípa til harkalegra gagnaðgerða gegn allri hryðjuverkastarfsemi Palestínumanna eða annarra gegn Egyptum. „Við munum svara hundrað- eða þúsundfalt í sömu mynt,“ sagði forsetinn, þegar hann hóf umræðu í egypzka þinginu um staðfestingu samkomulagsins við Israelsmenn. Sprengja sprakk í gamla borgar- hlutanum í Jerúsalem í dag með þeim afleiðingum að 13 manns særðust. Sprengjur sprungu einnig í Níkósíu á Kýpur við sendiráð ísraels og skrifstofur egypzka flugfélagsins, en engan sakaði. Sovézkur andófs- maður dæmdur Moskvu, 5. apríl. Reuter SOVÉZKUR dómstóll dæmdi í dag úkranískan andófsmann tii þriggja ára þrælkunar- vinnu fyrir að dreifa and- sovézkum áróðri, að því er heimildir í röðum andófs- manna greindu frá í dag. Maðurinn, sem dæmdur var, Zisels að nafni, er 32 ára gamall útvarpstæknimaður og er búsettur í borginni Chernovtsy. Honum var gefið að sök að hafa dreift bókum eftir sovézku höfundana Andrei Amalrik og Alexander Solzhenitsyn, en þeir dveljast báðir í útlegð frá heimalandi sínu. Jafnframt var hann sakaður um að hafa dreift bréfum frá andófsmönnunum Shcharansky, Orlov og fleirum, sem nú dveljast í fangelsi. Zisels var ekki heimilað að halda uppi vörnum í máli sínu, að því er heimildir herma, og vinum hans var meinað að vera viðstaddir réttarhöldin, þótt kona hans fengi að vera viðstödd. ast hafa náð Entebbe flugvelli á sitt vald, en völlurinn mun mikið skemmdur af völdum sprengjuárása. Diplómatar, sem haft hefur verið samband við í Kampala, segja að borgin hljóti einnig að falla í hendur uppreisnarmannanna innan skamms, enda sé borgin lítt sem ekki varin. Óljóst er hvers vegna Tanzaníumenn hafa ekki þegar tekið Kampala, en hugsanlegt er talið að þeir séu annað hvort að gefa síðustu líbýsku hermönnunum færi á að komast burt eða að þeir séu að bíða eftir að pólitískir leiðtogar hinna innlendu upp- reisnarmanna komist á vett- vang. Franskur togari tekinn við Færeyjar Þórshöfn 5. aprfl. Frá Jogvan Arge fréttaritara Mbl. FÆREYSKA landhelgisgæzlan stóð í nótt franskan togara að veiðum með ólögleg veiðarfæri innan færeysku fiskveiðilögsög- unnar og var skipið fært til hafnar í Þórshöfn. Taka skipsins átti sér stað á sama tíma og viðræður fara fram í Þórshöfn milli færeyskra yfir- valda og fulltrúa Efnahagsbanda- lagsríkjanna um reglur um veiðar- færabúnað þeirra skipa EBE-land- anna sem heimildir hafa til veiða innan færeysku lögsögunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.