Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRIL 1979 37 slíka prófraun t.d. í eitt ár þá er mikið unnið og munu þá margir trúa á forskriftarkenninguna. í framhaldi af þessu má endurfor- skrifa flesta Islendinga t.d. fyrir kosningar og ekki síst kveða niður verðbólgudrauginn, lífsþæginda- græðgina og fjármálamisferli. Að lokum þetta: Forskriftarmenn, hefjist handa, það er mikið verk fyrir höndum, látið ekki deigan síga, farmiða fyrir alla til Fiíipseyja ofdrykkjunnar. 7877-2298 Sigurður Jónasson • Lélegur þáttur „Mig langar til þess að lýsa megnri óánægju minni með þátt þann sem sjónvarpið sýndi s.l. Íaugardag, „Þau koma að norðan". Mér fannst í fyrsta lagi nafnið óviðeigandi þar sem hljómsveitin sem kom að norðan „lék ekki aðalhlutverkið" í þættinum en var þó það eina sem eitthvað kvað að. Annað sem upp á var boðið var það sem maður segir vera bara „píp“. Þátturinn sem sjónvarpið sýndi vikuna á undan, með Ragnari Bjarnasyni og hljómsveit, var hins vegar mjög góður og því lofaði „norðan“-þátturinn góðu og ef- laust hafa margir sest við sjón- varpið s.l. laugardag í skjóli fyrri þáttar. En sem oftar brást sjón- varpið vonum margra. Samt sem áður hefur það sýnt og sannað að það getur gert góða hluti en það er ekki sama hvernig með hlutina er farið. Það er allur vandinn." Ahorfandi • „Sjaldséðir hvítir hrafnar“ Skammt er síðan kvikmyndin „Rætur“ rann sitt skeið á skján- um. Ovanaleg og merkileg mynd fyrir margra hluta sakir, þótt ófögur væri víða, enda fjallað þar um einn svartasta kaflann í sögu hvíta mannsins í Ameríku, tímabil mannránsferðanna miklu til svörtu Afríku, þrælasölunnar og þrælahaldsins alræmda. Því er ekki að undra, þótt fyrir bregði þar margri litsterkri og hrollvekj- andi sviðsmynd. Þó verður þessi mynd í heild mér ekki eingöngu minnisstæð vegna ljótleikans. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á heimsmeistaramóti unglinga í Graz í Austurríki í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Jusupovs, Sovétríkjunum, þáv. unglinga- heimsmeistara, sem hafði hvítt og frakkans Santo Romans. mannlegrar heimsku og grimmd- ar, heldur engu síður vegna fegurðarinnar. sem svo oftlega kom fram í lífi svarta fólksins, þrælanna sjálfra, þessara fátæku, rótlausu náttúrubarna, — kom fram í ástúð þeirra, umhyggju og kærleika hvers til annars: foreldra og barna, ættingja og vina, — já, allra, sem tekið gátu á móti ástúð þeirra og einlægni. Því miður er sjaldgæft að fyrir sjónir manns sé brugðið upp myndum af jafn ástúðlegu fjöl- skyldulífi og þarna var gert. Og ef það hendir tilheyrir tíminn liðnum kynslóðum. Hins vegar virðist í flestum „listrænum" nútíma menningarmyndum kærleiki, ástúð og umhyggja næstum eins sjaldséðir hlutir og hvítir hrafnar, en gráðug og lausbeizluð ástríðan og grálynd afbrýðin leika í þess stað lausum hala. I.Þ. • Skemmtikraftar og auglýsingar Númerin 7988-8885 og 1029-1828 spyrja í Velvakanda 27. mars s.l. hvað fólk eins og ég hafi á móti Hljómplötuútgáfunni h.f. Þau grunar, að því er þau segja, að skrifin um ríkisreknar sjónvarps- auglýsingar þessa fyrirtækis séu vegna tómrar afbrýðissemi! Eg hef ekki neitt á móti Hljóm- plötuútgáfunni sem slíkri. Hins vegar finnst mér allt of langt gengið þegar þeir fáu íslensku „skemmtikraftar", sem> sjónvarpið hefur upp á að bjóða, eru að mestu byggðir upp á auglýsingum fyrir Hijómplötuútgáfuna. Það er víst meira en nóg að sjá þær í hverjum barnatímanum á fætur öðrum, fræðsluþáttum o.s.frv.. Rétt er að taka fram, að ég er ekki í tengslum við hljómplötuframleiðslu né tón- list að neinu leyti, þannig að tal um afbrýðissemi er alveg út í hött. Hitt er svo, að mér finnst fram- leiðsla Hljómplötuútgáfunnar vera í lágmarki hvað gæði viðkem- ur, og bókstaflega mannskemm- andi sé tillit tekið til t.d. tónlistar- þroska, kveðskaps og íslenskrar tungu. Eg hef lítið horft á þessa þætti vegna áhugaleysis en hjá því verður ekki komist að lesa um þá og heyra um þá. Og eftir að þetta ríkisrekna hneyksli lá ljóst fyrir, hef ég fylgst náið með því. Ég skora á aðra að taka hneyksli þetta til athugunar líka. 8006 - 1188 HÖGNI HREKKVÍSI ÞMM ..! 52? SIGGA WöGA t VLVtWto Reyfarakaup NYJU Verð frá kr. PRAKTICA- 74.695. næstum Greiðsluskilmálar uppseldar! Nú einnig PRAKTICA LINSUR Opiö á laugardögum kl 10—12 Verslið hjá ^ _ fagmanninum LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F. LAUGAVEGI f78 REYKJAVIK SiMI 85811 ry Flelri ren einn ieinu Tími ferðalaga og sumarleyfa fer í hönd, þá er endurnýjun miða fyrir fleiri en einn mánuð í einu góður varnagli. Komið tímanlega til umboðsmanns- ins. Við drögum 10. apríl. s 4. flokkur 18 @ 1.000.000- 18.000.000- 36 — 500.000- 18.000.000,- 207 — 100.000- 20.700.000,- 630 — 50.000- 31.500.000,- 8.100 — 25.000- 202.500.000,- 8.991 290.700 000- 36 — 75.000- 2.700.000- 9.027 293.400.000,- HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Menntun í þágu atvinnuveganna EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU 22. Bxg6+ - Kh8 (Eftir 22. .. .Kxg6, 23. Dd3+ verður svarti kóngurinn fljótlega mát úti á miðju borði). 23. Hxb2 — Dxb2, 24. Bc2! - Bxe5, 25. Dd3 og svartur gafst upp. Sergei Dolma- tov frá Moskvu varð efstur á mótinu, hann hlaut 10 Vá v. af 13 mögulegum. Fast á hæla hans kom síðan Jusupov með 10 v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.