Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 7 Úttekt á stjórnar- flokkum Þaö vakti verðskuldaða athygli að Kjartan Ólafs- son, einn af róttœkari Þingmönnum AIÞýöu- bandalagsins, veittist harkalega að samstarfs- flokkum Þess, AlÞýöu- flokki og Framsóknar- flokki, í umræöu um efnahagsfrumvarp for- sætisróöherra í fyrradag. Taldi hann AlÞýðuflokk- inn „kaupskeröingar- flokk“, enda hefði flokkurinn lagt til, í upphaflegum frumvarps- drögum sínum, að lög- bann yrði sett á launa- hækkanir umtram 4% ársfjórðungslega 1979, Þ.e. um 17% hækkun á árinu öllu, hvað sem liði verðlagsÞróun. Fram- sóknarflokkurinn hefði verið að skömminni til skárri, viljað miða við 5% ársfjórðungshækkun, en að verðbætur á laun um- fram Þá tölu geymdust í 9 mánuði, áður en til góða kæmu launÞegum. Þessarar kaup- skerðingaráráttu gætti enn í frumvarpi forsætis- ráðherra, Þrátt fyrir allar breytingar. Kjartan tíndi til „rangan" grundvöll við- skiptakjaraviðmiðunar, sem Þýddi 3% kaup- máttarskerðingu í stað 0,3% skerðingar, sem verið hefði, ef miðað hefði verið við 3 síðustu mánuði 1978 að viðbætt- um 3 fyrstu mánuðum Þessa árs, en ekki árið 1978 í heild. Þá deildi hann á, hvern veg áfengi og tóbak kæmi við vísitölu, skv. frv., sem fæli í sér „allnokkra kjaraskeröingu“, ónógar greiðslur til að mæta húshitunarkostnaði með olíu og síðast en ekki sízt, að láglaunabótum væri tjaldað til einnar nætur, yröi kippt burt síðar á árinu. Taldi hann að launpegar í landinu Þyrftu að sýna Þessari ríkisstjórn, sem öðrum, nauðsynlegt aðhald. Þessi gagnrýni er að sjálfsögðu ekki síður gagnrýni á „ráðherra AlÞýðubandalagsins“ en samstarfsflokka og sýnir Ijóslega, að „kærleiks- heimilið“, eins og stjórnarráöið er nú kallað, er síður en svo komið í friðarhöfn. Þar loga eldar ófriðar, gagn- kvæmra óheilinda og sundrungar glaðar en nokkru sinni fyrr. Óttinn við kosningar hefur hins vegar rekið stjórnar- flokkana til málamynda- sáttar um efnahagsfrum- varp, sem hefur verið teygt svo í allar áttir til samkomuiags, að enginn mergur er eftir í Því. Kjartan ólafsson. Aö leika tveimur skjöldum Það sem af er Þessu stjórnar„samstarfi“ hefur AlÞýöuflokkurinn leikið hlutverk „stjórnarand- stöðu" innan stjórnar- samstarfsins til Þess aö geta höfðað í senn til Þeirra, sem sætta sig viö gjörðir stjórnarinnar, og hinna, sem eygja von- brigðin ein. AlÞýöu- bandalagið hefur allar götur frá Því að stjórnin var mynduð dauðöfundað AlÞýðuflokkinn af Þessari tvískinnungsstöðu, sem hann skákaöi sér í. Nú hafa mál snúizt við, a.m.k. fyrst um sinn. Ólafur Jóhannesson fékk AlÞýöuflokkinn á færið með Því að beita nokkr- um atriðum úr efnahags- tillögum hans á frum- varpskrók sinn. AlÞýöu- flokkurinn kokgleypti og var í snarheitum dreginn upp í Framsóknarskút- una. Þar er hann nú flattur og frágenginn og öll hans fyrirheit söltuð til frambúðar. Þetta skapaði Alpýðubandalaginu, sem illa kunni við sig í hlutverki hins „ábyrga samstarfsflokks“, tækifæri til aö komast í Þá stöðu, sem Það hafði öfundað AlÞýðuflokkinn svo lengi af, að geta leik- ið tveimur skjöldum. Ræöa Kjartans Ólafs- sonar, sem hér að framan var vitnað til, sýnir Ijós- lega, að AlÞýðubanda- lagið hyggst skáskjóta sér í fyrra hlutverk AlÞýóuflokksins, að vera „stjórnarandstaöa" innan stjórnarsamstarfsins. Þess vegna hefur Kjartan allt á hornum sér og höfðar til hinna „óánægðu" með gagn- rýni út í öll horn á kærleiksheimilinu, meðan „ráðherraarmur AlÞýðuflokksins" sekkur ofan í plussstóla valds- ins, við hliðina á fram- sóknardömunni. Ein höndin sampykkir, hin skýzt á loft í neitun. Þar með er Alpýðubanda- lagið búið aö næla í. tviskinnungssvuntuna frá AlÞýöuflokknum. Oheilindi í starfi eru aldrei lofsverð. En löngunin til að vera í „stjórnarandstöðu" innan stjórnar sem Þessarar eru út af fyrir sig skiljan- leg. En Þessi sterka „stjórnarandstöðu- kennd“ innan stjórnar- innar sjálfrar opinberar betur en allt annað, hvers konar lánleysisstjórn situr hér á valdasessi. Sumir versla dýrt — aðrir versla hjá okkur Okkar verð eru ekki tilboð heldur árangur af hagstæðum innkaupum Ferskt og glænýtt grænmeti beint frá New York með flugi: Steinselja Blaðsalat Radísur Hvítlaukur Rauðlaukur Hvítkál Gulrætur Gulrófur Jarðarber Aspargus Kiwi Broccoli Blómkál Selleríkál Sellerírót Maísstönglar Eggaldin lcebergsalat Belgbaunir Sveppir Paprika Tómagar Agúrkur Scwas Og ávextir: Cantelobe melónur Honydue melónur Ananas Vínber græn Vínber blá Opið á laugardag STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 17 xK5 Fermingarskór á stelpur. Margar gerðir og litir. Verð frá 10.160.- Póstsendum 5KOSEL, Laugavegi 60. Sími 21270. BANKASTRÆTI 7. SiMI 29122. AÐALSTRÆTI 4. SiM115005. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AUGLYSINGA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.