Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 Portúgalsolían hingað í vikunni í VIKUNNI var væntan- legt til landsins olíuskip með 25 þúsund tonn af gasolíu frá Porúgal. Þessi olíufarmur var lestaður 26. marz s.l. Sem kunnugt er varð nokkur töf á því að Portú- galir gætu afhent olíuna vegna skemmda, sem urðu í olíuhöfn þeirra en töfin varð ekki eins mikil og fyrst var óttast og munu engin vandræði af hljótast hér innanlands af þessum sök- um. Olían var keypt á 254.25 dollará hvert tonn, fob-verð, eða á allmiklu hærra verði en sú gasolía, sem nú er seld. Verða þá til í landinu gasolíubirgðir til 3 — 4 mánaða, sem keyptar eru á háa verðinu. óskar eftir blaðburðarfólki AUSTURBÆR: □ Laugavegur 1—33 □ Ingólfsstræti □ Kjartansgata. VESTURBÆR: □ Miöbær □ Túngata )JJi / _ / UPPL. I SIMA 35408 Tónleikar á Kjarvalsstöðum TÓNLEIKAR verða að Kjar- valsstöðum sunnudaginn 8. apríl og hefjast þeir klukkan 20.30. Flytjendur eru Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, píanó, Einar Jóhannesson, klarínett, og Haf- steinn Guðmundsson, fagott. A efnisskránni eru fjögur verk og er eitt þeirra frumflutt, „Verses and Cadenzas" eftir John Speight, en verkið samdi hann sérstaklega fyrir tríóið, sem nú frumflytur verkið. Önn- ur verk á efnisskránni eru eftir Beethoven, Poulenc og Glinka. Myndin er af flytjendum á æfingu. Háskólatónleikar á morgun: Manuela Wiesler og Julian Dawson- Lyell flytja verk fyrir flautu og píanó Sjöttu Iláskólatónleikar starfsársins verða laugardag- inn 7. apríl kl. 17 í Félagsstofn- un stúdenta við Hringbraut. Manuela Wiesler og Julian Dawson-Lyell flytja verk fyrir flautu og píanó. A efnisskránni eru tónverk eftir Phiilippe Gaubert, Bela Bartok, Bohuslav Martinu, Ferrucio Busoni og Georges Enesco. Öll verkin voru samin á árunum 1S19—1929. Manuela Wiesler. Manuela Wiesler er löngu orð- in landsfræg fyrir flautuleik sinn og hefur á síðustu árum skipað sér í allra fremstu röð hljóðfæraleikara hér á landi. Hún hefur ævinlega hlotið ein- róma lof gagnrýnenda bæði hér- lendis og erlendis. Julian Dawson-Lyell kom fram með Manuelu á tónleikum á Listahá- tíð síðasta vor, og hlutu þau frábærar undirtektir. (Fréttatilkynning). AMALAÐAR STRAMMAMYNDIR EFTIR FRÆGUM LISTAVERKUM. fjaimgrðattrrzÍMriti Erla Snorrabraut 44 Kannar stöðu verzlunarinnar VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur skipað nefnd til þess að kanna stöðu einstakra verslunargreina, endur- skoða hlutföll verslunarálagningar og skiptingu vörugreina í álagningarflokka. Nefndin skal og fjalla um málefni dreifbýlisverslun- arinnar sérstaklega. í nefndinni eiga sæti: Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, formaður, Ásmundur Stefánsson, lektor, Björn Arnórsson, hag- fræðingur BSRB, Magnús Finnsson, framkvæmdarstjóri Kaupmanna- samtaka íslands, Tryggvi Eiríksson, hagfræðingur, og Sigurður Gils Björgvinsson, aðstoðarfram- kvæmdarstjóri innflutningsdeildar SÍS. Risabazar S.S.I. 7. apríl kl. 13.00 í Ármannsheimilinu. Nú styrkjum viö landsliö íslands í sundi sem keppir viö Norömenn, Svía, og Finna eftir páska í Kalott sundkeppninni. T/7 // //• Allskonar fatnaöur í þúsundatali. Gómsætar kökur og tertur. Ávextir og dósamatur í hundraöatali. Kl. 13.00 Komiö í Ármannsheimiliö viö Sigtún og styrkiö meö því S.S.Í. sem enn á í vök aö verjast. Bazarnefndin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.