Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Kópavogur Almennan félagsfund heldur Baldur, málfundarfélag sjálfstæölslaun- þega fðstudaglnn 6. apríl kl. 20.30 aö Hamraborg 1, (Sjálfstæölshús- Inu). Dagskrá: 1. Kosiö á landsfund. 2. Kosiö á aöalfund verkalýösráös Sjálfstæöisflokksins. 3. Ræddar breytingar á lögum verkalýösráös. 4. Önnur mál. Stjómln. Hverfafélög Sjálfstæöiamanna, Breiöholti Fundur Almennur félagsfundur veröur haldinn laugardaginn 7. apríl n.k. kl. 15.00 í Félagsheimili sjálfstæöismanna aö Seljabraut 54. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á landsfund. 2. Formaöur Sjálfstæöisflokksins Geir Hallgrímsson, spjallar viö fundargesti um stjórnmálaástandiö. Stjórnir hverfafélaga Bakka & Stekkja — Fella & Hóla — Skóga & Stekkja. Borgarnes Almennur fundur veröur haldinn í Sjálfstæöiskvennafélagi Borgar- fjaröar, miðvikudaginn 11. apríl kl. 8.30 í fundarsal flokksins Borgarbraut 4. Dagskrá: 1. Umræður um landsfund. 2. Önnur mál. Áríöandi aö konur mæti. Stjórnin. Þór FUS Breiðholti minnir félaga sína á fundinn n.k. laugardag 7. apríl kl. 15.30 í Félags- heimilinu aö Seljabraut 54. Á fundinn kemur: Geir Hallgrímsson, formaöur Sjálfstæöisflokksins. Mætiö öll Þór FUS Brelöholti. Hveragerði og nærsveitir Sjálfstæöisfélagiö Ingólfur heldur ttórbingó í Hótel Hverageröi föstudaginn 6. apríl kl. 21 (9 e.h.). Glæsilegir vinningar m.a. sólarlandaferö (til Florida). Vinsamlega mætiö stundvíslega. Nefndin. Seltjarnarnes Fundur veröur haldinn í Sjálfstæöisfélagi Seltjarnarness þriöjudaginn 10. apríl kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Dagskrá: Kosning fulltrúa á landsfund. Stjórnin. Strandasýsla Aöalfundir Sjálfstæöisfélags Strandasýslu, Sjáifstæöiskvennafélags Strandasýslu og fulltrúaráös Sjálfstæöisfélaganna í Strandasýslu veröa haldnir í kvenfélagshúsinu á Hólmavík, fimmtudaginn 12. apríl kl. 3 e.h. Fundarefni: 1. Venjuleg aóalfundarstörf. 2. Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæöisflokksins. Stjórnin félaganna. Félag sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri Spilakvöld Spiluö veröur félagsvist mánudaginn 9. apríl í Valhöll, háaleitisbraut 1. Byrjaö veröur aö spila kl. 20.30. Stjórnin. Sigríður Þórðardótt- ir ísafirði — Minning í dag, 6. apríl, verður til moldar borin frá ísafjarðarkirkju vinkona okkar, Sigríður Þórðardóttir. Hún lést á Sjúkrahúsi ísafjarðar 28. marz s.l. Það væri ekki að vilja hennar að einhver af kunningjunum færi að rifja upp æviskeið hennar, síst þá hlið, sem að vinum og vandamönn- um sneri. Öll þau spor, snúninga, umhyggju og góðvild, vildi hún ábyggilega ekki að væri minnst á. Ekki er hægt að verða við þeirri ósk, án þess að fram komi góðvild hennar og hjálpsemi við allt og alla. Ekki bara vini og kunningja, heldur líka við dýr og þá sem bágt áttu. Og í erfiðleikum var hún ávallt reiðubúin að rétta hjálpar- hönd, var þá sama hvort var nótt eða dagur. Viðkvæðið var alltaf það sama, það er velkomið, hvern- ig sem ástatt var hjá henni. Þannig var Sigga. Sigga var af þeirri kynslóð, sem lítið þekkti til lífsins á unglingsár- unum annað en að vinna og vinna, oftar svöng en södd. Sigga var fædd í byrjun fyrra stríðs, 30. sept. 1914, í Hafnarstræti 17 (síðar Sveinabakarí). Foreldrar hennar voru völundurinn Þórður Þórðar- son, vélvirkjam., og Kristín Sæm- undsdóttir. Eignuðust þau 4 dæt- ur, Margréti, Guðrúnu, Sigríði og Þórhildi. Er Sigga var 4 ára missir hún móður sína, og skilja þá leiðir systranna og föður. Sigga fer til Ytri-Hjarðardals í Önundarfirði, til móðurfrænda síns, Kristjáns Jóhannessonar, og dvelst hjá hon- um og konu hans, Maríu Stein- dórsdóttur, til 16 ára aldurs. A' því stóra og umsvifamikla heimili þurfti hún eins og títt var með unglinga að vinna og vinna mikið, en á því heimili mun ávallt hafa verið nóg að borða og aðbún- aður góður. Sextán ára yfirgefur hún Hjarðardal um stundarsakir, en alla tíð hélt hún vináttu við það fólk, sem hún hafði alist upp með. Hún ræðst í vist, eins og þá var títt með ungar stúlkur, til Óskars læknis og konu hans á Flateyri. Á erfiðu árunum 1930—40 starfaði hún sem slík og vann alla almenna vinnu, sem hægt var að fá, oft í kaupavinnu, í allskonar fiskvinnu, við sauma, við þjónustustörf, svo sem á Sjúkrahúsinu og Elliheimil- inu. Veturinn 1940—41 er hún starfandi á Elliheimilinu á Isa- firði. Er þá ekki kona einsömul, en barnsfaðir hennar, Kristján Kristjánsson, ferst með M/S Pét- ursey, er lagði af stað til Englands 10. marz 1941 og talið var að skotin hefði verið niður. Dóttir þeirra, Kristjana Kristjánsdóttir, fæddist 6. sept. 1941. Afmœlis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Það má nærri geta, að það hefur verið erfiður róður fyrir einstæða móður á þessum árum, með ný- fædda dóttur, að bjarga sér og henni. En bæði var, að það fór að aukast með atvinnu og Sigga afburða dugleg svo að hún gat ávallt haft dóttur sína hjá sér. Hvar sem hún var að vinna þetta árið eða hitt og hvort hún var í kaupavinnu, matráðskona í mötu- neyti, eða í einhverri annarri vinnu. Matráðskona lét henni af- burðavel að vera, enda lofuð fyrir mjög góðan mat og hirðusemi. Ung að árum fór Kristjana dóttir hennar að læra hjúkrun og lauk því námi og hefur ávallt síðan starfað sem hjúkrunarkona. Sigga eignaðist tvö ömmubörn, Birgi og Brimrúnu. Árið 1956 byrjaði Sigga að halda heimili með eiginmanni sínum, Ólafi H. Ólafssyni, bíl- stjóra. Þau giftu sig 19. júní 1961. Okkur vinum hennar er kunnugt um, að síðan hefur Siggu liðið mjög vel, enda þau hjónin mjög samhent og bæði hafa þau keppst við að gera heimili sitt fallegt og hlýlegt, fyrst að Smiðjugötu 8, og síðan Tangagötu 10, ísafirði. Nú er leiðir skilja viljum við hjónin þakka fyrir margra ára vináttu og hjálp við okkur og börn okkar, með vissu um góða heim- komu til hans sem öllu ræður. Við vottum innilega samúð okk- ar Kristjönu, dóttur hennar, ömmubörnunum Birgi og Brim- rúnu, eiginmanni hennar, Ólafi H. Ólafssyni, og hálfbræðrum henn- ar, sem henni þótti svo innilega vænt um, Sigurjóni, Birgi og Jens Þórðarsonum og öllum vinum og vandamönnum. Friðrik Bjarnason og fjölskylda. Merk j asöludagur Ljósmæðrafélags Reykjavíkur Á KVENNADAGINN, 19. júní 1942, komu saman 7 konur og stofnuðu Ljósmæðrafélag Reykja- víkur. Þð hefur ævinlega verið fámennt félag að vonum, en leyst af hendi merkilega mikið starf ekki aðeins í þá átt að gera ljósmæður hæfari fyrir sitt ábyrgðarmikla starf, heldur hafa þær einnig veitt öðrum líknarmál- um fjárstuðning svo ríflegan að undrun vekur um svo fámenn samtök kvenna. Félagið hefur ávallt verið fátækt því að þar hefur þeirri góðu reglu verið fylgt að veita til líknarmála jafnan öllu aflafé og notið bæði aldnir og ungir, sem bágstaddir voru. Fjárins hafa þessar fáu konur aflað með sjálfboðastarfi og fórn- arlund, en einkum með árlegri merkjasölu 2. sunnudag í apríl. Sá dagur er á morgun, pálma- sunnudag. Góðir Reykvíkingar, kaupið merkin, þegar þau verða boðin. Flestöll stöndum við í þakkarskuld við konuna, sem greiddi okkur leið inn í ljós þessa heims og veitti okkur mildum ljósmóður-höndum hina fyrstu líkn. Og konunum í Ljósmæðrafélagi Reykjavíkur er vel trúandi fyrir þeim litla skerfi, sem nú er beðið um. Jón Auðuns Ljósmæðramerkin verða afhent í Iþróttahöllinni í Laugardal og hjá frú Önnu Kristjánsd., Silfur- túni, Garðabæ, laugardag og sunnudag. Basar hjá Líknarfélagi Kirkju Jesú Krists af sídari daga heilögum LÍKNARFÉLAG Kirkju Jesú Krists af síðari daga heilögum (Mormónakirkjunnar) heldur basar á Skólavörðustíg 16, laugar- daginn 7. apríl, kl. 2. e.h. Á boðstólum verða heimabakað- ar kökur ásamt nokkru af heima- unnum munum. Verði er mjög stillt í hóf, segir í tilkynningu frá félaginu. Á sama stað og tíma má einnig fræðast um kirkjuna í máli og myndum. Allir eru velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.