Morgunblaðið - 06.04.1979, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979
hjá Ögurvík hf. að togarinn
hefði haldið á veiðar að kvöldi
20. marz s.l. og mætti búast við
því að allur túrinn höfn í höfn
tæki 20 daga, sem væri mjög
glæsilegt. Uppistaðan í afla
Ögra var karfi, 170 tonn, og
blálanga, 120 tonn, en afgangur-
inn var ýsa, þorskur og ufsi.
Fiskinn fékk togarinn út af
Reykjanesi og er óvenjulegt að
svo mikið veiðist af blálöngu
eins og að þessu sinni.
Eldra metið átti Ögri einnig
er hann landaði í Þýzkalandi 1.
febrúar s.l. rúmum 299 tonnum
Metsala Ögra
— 92 miUjónir fyrir rúm 300 toim
TOGAIÍINN Ögri frá Reykja-
vík seldi rúmlega 301 tonn í
Bremerhaven í Vestur-býzka-
landi í gærmorgun og fékk
fyrir aflann 527.443.- mörk eða
rétt tæpar 92 milljónir króna.
Er þetta hæsta heildarverð,
sem íslenzkur togari hefur
fengið erlendis. Meðalverðið
var um 305 krónur kílóið.
Skipstjóri á Ögra er Brynjólfur
Ilalldórsson en Einar Jónsson
er 1. stýrimaður. Brynjólfur
var skipstjóri í túrnum en
Einar sigldi skipinu til Þýzka-
lands.
Mbl. fékk þær upplýsingar í
gær hjá Gísla Hermannssyni
og fékk fyrir rúm 484 þúsund
mörk. Einar Jónsson var skip-
stjóri í þeirri ferð. Metið þar
áður átti Vigri og var það sett
29. nóvember 1978. Þá landaði
togarinn 222,5 tonnum og fékk
fyrir aflann tæplega 481 þúsund
mörk. Skipstjóri í þeirri ferð var
Steingrímur Þorvaldsson.
Rannsókn flugslyssins á Sri Lanka:
Niðurstöður
í næstu viku?
FJÓRIR íslendingar á vegum
Flugmálastjórnar og Flugleiða
hafa dvalist á Sri Lanka nær 4 s.l.
vikur við rannsókn á flugslysinu
er DC-8 þotan íslenzka fórst þar
15. nóv. 8.1. Lýkur yfirheyrslum
og samanburðarkönnun á málinu
um helgina og eru íslendingarnir
væntanlegir heim í næstu viku.
í samtali við Jón Óttar Ólafsson
deildarstjóra í Flugdeild Flugleiða
í gær sagðist hann vonast til þess
að ástæðurnar fyrir flugslysinu
lægju ljósar fyrir að lokinni þess-
ari rannsókn, en hann kvað alla
þátttakendur í rannsókninni
bundna þagnareið þar til rann-
sókninni væri lokið undir stjórn
dómara frá Sri Lanka. Auk Jóns
Óttars eru á Sri Lanka þeir Skúli
Jón Sigurðarson deildarstjóri í
Loftferðaeftirliti, Skúli Steinþórs-
son flugstjóri hjá Loftleiðum og
Jóhannes Jónsson flugvirki.
Fyrsti Helgarpóst-
urinn kemur í dag
NÝTT BLAÐ hefur göngu sína f dag og ber það nafnið Helgarpósturinn.
Ritstjórar biaðsins eru þeir Björn Vignir Sigurpálsson og Árni
bórarinsson sem báðir hafa verið blaðamcnn við Morgunblaðið og Árni
einnig um skeið blaðamaður við Vfsi. Blaðið er ekki flokkspólitískt. en
tengt útgáf’* Alþýðublaðsins. Fyrsta tölublaðið verður 24 síður að stærð
og kennir ýmissa grasa í efnisvali.
Blaðamenn Helgarpóstsins gera
úttekt á fíkniefnaneyzlu hér á landi
og í því sambandi verður rætt við
neytendur, lækna og löggæzlu. Við-
tal er við Lúðvík Jósepsson alþingis-
mann og reynt að kynna manninn
bak Uð stjórnmálamanninn. Rætt
verður y:ö Magnús Eiríksson hljóm-
listarmann um nýja hljómplötu og í
þætti, sem ber nafnið „Yfirheyrsla"
situr Björn Guðmundsson, formaður
FIA, fyrir svörum.
Fjallað veröur um kvikmyndina
Súpermann, sem Háskólabíó sýnir á
næstunni. Berglind Ásgeirsdóttir
fulltrúi í utanríkisráðuneytinu ger-
ist blaðamaður í einn dag, borgar-
pósturinn fjallar um það sem er að
gerast í borginni, listapóstur um það
sem gerist í menningarlífinu, erlend
og innlend yfirsýn verður í blaðinu,
Hákarl skellir skoltum og gerir sér
mat úr þjóðmálunum í gamni og
alvöru. Innlent og erlent slúður
verður í blaðinu, auk ýmislegs ann-
ars efnis.
37 punda lax
ÞENNAN myndarlega lax
fékk Steinunn SF í net við
Hrollaugseyjar fyrir
skömmu. Reyndist hann
vera 37 pund að þyngd.
A myndinni er einnig
Heimir Þór Jensson fjög-
urra ára strákur, stór
eftir aldri. Myndina tók
faðir Heimis, Jens Mika-
elsson, fréttaritari Mbl. á
Hornafirði.
Islendingamir misstu af verð-
launasætum í Lone Pine
Kennarar deila við
fj ármálaráðuney ti
DEILA er risin upp milli kennara í
tveimur fjölbrautaskólum og fjár-
málaráðuneytisins um greiðslu fyr-
ir gerð stundaskráa og vegna þessa
hefur kennsla fallið niður í tveimur
skólum, Fjölbrautaskólanum á
Akranesi og Fjölbrautaskólanum í
Keflavík. í mótmælaskyni við van-
greidda aukavinnureikninga felldu
kennarar niður kennslu í tvo daga.
Kennarar þessir eru félagar í
Hinu íslenzka kennarafélagi, sem er
félag innan Bandalags háskóla-
manna. Formaður félagsins, Jón
Hnefill Aðalsteinsson, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
deilan snerist um reikninga fyrir
stundaskrárgerð í jólaleyfi. í fjöl-
brautaskólunum er skipt um
stundaskrár tvisvar á ári, milli
svokallaðra anna. Hefur stundaskrá
verið gerð í jólaleyfi og samkomulag
jm að hún verði greidd í yfirvinnu.
'Jú kom upp ágreiningur, sem m.a.
itafar af því að stundaskrárgerð
Iróst og skólasetning dróst í nokkra
laga vegna stundaskrárgerðarinn-
ir. Kennarar halda því fram að
)etta breyti engu, þar sem skólatím-
nn lengist að sama skapi að vori —
iðeins sé um hliðrun á öllu að ræða.
Þetta fellst ráðuneytið ekki á og
ikerðir reikningana allverulega, þar
æm það telur að kennarar skili
/innunni í vinnutíma.
Kennsla lá niðri í tvo daga, en
hófst aftur í fyrradag. Ymis önnur
mál tengjast þessu máli, sem ráðu-
neytið hefur dregið og kennarar
hafa orðið þreyttir á. Fengist hefur
leiðrétting á sumum þeirra atriða,
en enn sér ekki fyrir endann á
aðaldeilumálinu. Ekki lá fyrir í gær,
hvort kennsla fellur niður áfram í
þessum tveimur skólum, en Jón
Hnefill kvað það vera staðreynd, að
ekki væri farið að taka á málinu af
neinni alvöru, fyrr en allt væri
komið í hnút.
ÍSLENZKU skákmönnunum
gekk heldur illa í 9. og síðustu
umferð alþjóða skákmótsins í
Lone Pine í Kalíforníu. Þeir
Guðmundur Sigurjónsson og
Margeir Pétursson töpuðu sínum
skákum en Helgi Ólafsson gerði
jafntefli. Enginn af
þremenningunum náði í
verðlaunasæti en Margeir fékk
ein af fegurðarverðlaunum
mótsins fyrir vinningsskák sína
gegn stórmeistaranum Pachman.
I 9. umferðinni tefldi Helgi við
kanadíska stórmeistarann
Biyasas. Helgi hafði hvítt og fékk
fljótt hagstæðara tafl. Honum
sást hins vegar yfir leik, sem hefði
fært honum mjög góða stöðu og
samdi jafntefli. Guðmundur hafði
hvítt gegn ísraelsmanninum
Grúnfeld og fékk slæmt tafl út úr
byrjuninni. Hann lék af sér síðar í
skákinni og tapaði. Margeir hafði
svart gegn enska stórmeistaranum
Miles og átti Margeir allan tímann
í vök að verjast og varð að gefa
skákina í 30. leik.
Efstu menn mótsins urðu þeir
Liberzon. Hort, Gligoric og
Georghiu með 6‘/2 vinning af 9
mögulegum. Fékk hver þeirra í
verðlaun 8.875 dollara eða sem
næst 2,9 milljónir íslenzkra króna.
Kortsnoj, sem margir spáðu sigri,
hlaut 5‘/2 vinning og Larsen, sem
einnig var talinn líklegur sigur-
vegari hlaut 6 vinninga.
Guðmundur Sigurjónsson átti
góða möguleika á verðlaunasæti
en missti af því þegar hann tapaði
síðustu skákinni. Þeir Guðmundur
og Helgi hlutu 5 vinninga en
Margeir 4 vinninga.
Seyðisfjörður:
Heildarloðnuaflinn
yfir 71 þús. lestir
SeyflisHrði, 4. aprii. barst til Seyðisfjarðar var
HEILDARAFLI loðnu sem 71.400 tonn.
Rúta í vandræðum
vegna snjóflóða...
Siglufirði, 5. aprfl.
FLUGVÉL frá Vængjum, sem
átti að lenda hér í Siglufirði í
morgun, varð á snúa frá vegna
skafbyls og lenda á Sauðárkróki.
Klukkan 11 í morgun lagði rúta
af stað þaðan áleiðis til
Siglufjarðar með farþegana og
voru mæður með kornabörn í þeim
hópi. Nokkru eftir hádegi, þegar
rútan var að komast að Skriðun-
um stöðvaðist hún vegna
snjóflóða, sem fallið höfðu á
veginn. Gat rútan bakkað til baka
að neyðarskýli og þaðan var komið
boðum um aðstoð til Siglufjarðar.
Snjóblásari lagði nú af stað til
aðstoðar en þegar hann átti eftir
skamma leið að rútunni kom hann
að snjóskriðu, sem hann komst
ekki í gegnum.
Hvorki var talstöð í rútunni né
blásaranum og voru góð ráð dýr.
Sæmundur Arelíusson forstjóri
Þormóðs Ramma hf. sem var í
samfloti með rútunni á jeppa
sínum lagði nú af stað fótgang-
andi til Siglufjarðar í hinu versta
veðri. Kom hann skilaboðum um
að ýtur þyrftu að fara til aðstoðar
og skömmu síðar lögðu tvær ýtur
af stað. Ruddu þær rútunni leið og
öðrum bílum, sem í samfloti voru,
og komu bílarnir í bæinn rétt fyrir
klukkan níu i kvöld.
Samgöngumálin hjá okkur eru í
mesta ólestri. Ófært sjóleiðina,
illfært landleiðina og aðeins flug-
fært með höppum og glöppum. m.j.
Hjá Síldarbræðslu ríkisins var
landað 46.700 tonnum og hjá ís-
birninum 24.700 tonnum. Síðast
var landað hér loðnu hinn 21. marz
síðastliðinn. Var það Súlan EA
með 445 tonn af loðnu. Úr þeim
afla fengust 33,5 tonn af hrognum.
Þess má geta að samkvæmt upp-
lýsingum verksmiðjustjóra SR á
Seyðisfirði, Þórðar Jónssonar,
voru 45 tonn af afla Súlunnar eldri
veiði og nýttist því ekki til hrogna-
vinnslu.
Samkvæmt sömu heimildum var
skiptaloðnuverðmæti 3.190.000 og
hrognaverðmæti 7,8 milljónir. Á
Seyðisfirði voru fryst 245 tonn af
loðnu og 140 tonn af hrognum.
Einnig má geta þess að trúlega
hefði orðið mun meiri loðnu- og
hrognafrysting hér eystra ef veiði-
bönnin hefðu ekki verið sett á
suðaustanlands. Sveinn