Morgunblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 Fylgjendur Bhuttos sæta færi Rawalpindi, Pakialan, 4. april. AP. ZULFIKAR Ali Bhutto, maöur- inn, sem setti sterkastan svip á stjórnmál í Pakistan mestan hluta líðandi áratugar, var hengdur og grafinn aö morgni miðvikudags undir leyndarhulu og ströngum öryggisveröi. Frá- sagnir af smáatriöum og aö- draganda aftökunnar virðast á reiki. Þó ber heimildum saman um tvennt. Bhutto brenndi handskrifaóa erföaskrá sína nokkrum stundum áður en hann kvaddi og sýndi vörðum mótpróa, er Þeir sóttu hann í klefann fyrir dagrenningu. Bhutto var fimmtíu og eins árs aö aldri. Lögfræöingar hans lýstu honum sem harögeröum bjartsýnismanni og höföu full- vissað hann um aö honum yrði þyrmt eða dómurinn á einhvern hátt mildaöur. Kemur þetta fram í dagblaöinu „Rödd tímans", sem er sjálfstætt en hliðhollt stjórnvöldum. En þegar Bhutto spurði fyrirsjáanleg örlög sín segir blaöið hann hafa brotnaö niður og „hann grét í sífellu". Forsætisráöherrann fyrrver- andi reit erföaskrá sína að kveldi þriöjudags en brenndi hana síðan fjórum klukkustund- um fyrir líflátiö segir í stjórnar- blaðinu „Pakistan Times“. Fimm mínútum fyrir tvö aö staðartíma skipaöi yfirmaöur Rawalpindi-fangelsisins Bhutto aö koma út úr kiefa sínum. Bhutto neitaöi segir „Rödd tím- ans“. Vöröurinn greip undir handlegg hans, en Bhutto færö- ist undan. Þá var hann bundinn á börur. Hann baröist ennþá í böndunum. Sama blað heldur áfram og segir að Bhutto hafi síðan verið fluttur á börunum til gálgans, þar hafi hann veriö leystur og hann studdur upp á pallinn. A eftir fara lýsingar úr öörum blöðum: Fanganum var leyft aö vera í sínum eigin fötum, heföbundn- um pakistönskum búningi í staö svartra fangaklæða, sem reglur fangelsisins gera ráð fyrir. Hann var í léttum inniskóm og hendur hans bundnar fyrir aftan bak. á leiö til réttarhaldanna sem leiddu til dauöadóms yfir Bhutto (annar frá vinstri) honum. Á aftökupallinum beið hans dómarinn, er staöfesti aö hér væri um réttan sökudólg aö ræöa, yfirvörðurinn las dauöa- dóminn upphátt og síðan tók bööullinn viö. Fætur voru bundnir og hengingarólin féll um hálsinn. Bhutto kvartaöi yfir óþægindum og losað var ögn um snöruna. Yfirvöröurinn gaf merki, hlerinn datt úr gólfinu, ólin strekktist og höfuö Bhuttos slöngvaöist út á hliö. Hinn fallni leiötogi Pakistana hékk í gálg- anum í þrjátíu og fimm mínútur unz dómari og læknir úrskurö- uöu hann látinn. Aö sögn stjórn- arinnar liðu fimm mínútur frá því aö Bhutto var kallaöur út úr klefa sínum þar til dóminum haföi verið fullnægt. í mismunandi frásögnum af aftökunni er hvergi getið um aö gríma hafi verið sett á höfuð fórnarlambsins. í „Pakistan Times“ segir aö Bhutto hafi hvorki farið meö bæn né viðhaft önnur orö áöur en yfirvörðurinn gaf merki. Síöustu kvöldstund lífs síns segir að Bhutto hafi látiö sér nægja bolla af kaffi. Hann var órakaöur þar sem reglur fang- elsisins banna dauöaföngum aö hafa í fórum sínum raktól, ef vera kynni aö þeir reyndu að fremja sjálfsmorö. Föggur Bhuttos og bækur voru færöar konu hans og dótt- ur, þar sem þær sitja í varðhaldi í 20 km fjarlægð. Herma blöö að þær hafi brostið í grát og reytt hár sitt, er þær fréttu um heng- inguna. Þaö kom einnig fram aö „Hanrt barðist ennþá í böndunum” Hermenn skotnir á Norður-Irlandi BelfaHt. 5. aprfl. AP. TVEIR breskir hermenn voru skotnir til bana í skotbardaga fyrir utan eina herstöðina í Belfast í dag að því er fréttir þaðan herma. Lögreglan segir að árásar- mennirnir hafi komið sér fyrir í rakarastofu um 25 metrum frá Veður víða um heim Akureyri 0 úrkoma Amsterdam 7 skýjaó AÞena 21 heiöskírt Barcelona 15 léttskýjaó Berlín 8 rigning Brussel 4 skýjað Chicago 4 skýjaó Frankfurt 10 rigning Genf 8 snjókoma Helsinki 2 skýjað Jerúsalem 21 heióskírt Jóhannesarb. 24 heiðskírt Kaupmannah. 10 skýjaó Lissabon 14 rigning London 7 léttskýjaó Los Angeles 27 heiðskírt Madríd 12 léttskýjaó Malaga 20 skýjaó Mallorca 15 léttskýjað Miami 26 skýjaó Moskva 4 léttskýjað New York 8 skýjaö Ósló 4 skýjað París 7 skýjaó Rio Oe Janeiro 37 skýjaó Rómaborg 15 skýjaó Stokkhólmur 6 skýjaó Tel Aviv 22 heióskírt Tókýó 11 skýjað Vancouver 11 heióskírt Vínarborg 9 skýjað innkeyrslunni í herstöðina og hafið skothríð þegar herflutn- ingabíll ók í hlað. Eftir fall hermannanna tveggja var haldið uppi skothríð á rakarastofuna en tilræðis- mennirnir komust undan. Fjórir hermenn hafa því verið felldir á Norður-írlandi frá ára- mótum og 293 frá lokum ársins 1969. Skæruliða beðið griða JóhannesarborK, New York, 5. aprfl. AP. BEIÐNIR víðs vegar að úr heim- inum bárust Pieter W. Botha forsætisráðher.ra Suður-Afríku í dag, þess efnis að hann þyrmdi lifi Soiomons Mahlangu sem dæmdur hefur verið til dauða fyrir að myrða tvo hvíta borgara og verður tekinn af Iífi á morgun. Meðal þeirra sem fóru fram á að lífi Mahlangus yrði þyrmt var Jimmy Carter Bandaríkjaforseti. Botha sagði í svari sínu til Carters að hann gæti með engu móti breytt lögum landsins og að Mahlangu hefði ótvírætt gerst brotlegur við þau. Vegna málsins hafa Afríkuríkin hjá Sameinuðu þjóðunum farið fram á skyndifund í öryggisráðinu. Ekki er búist viö að væntanlegar samþykktir öryggisráðsins hafi neitt að segja og Mahlangu verði hengdur á morgun. Kurt Waldheim aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur þegar sent Botha beiðni um að þyrma lífi hins dæmda. Brak flugvélarinnar sem fórst rétt utan við Quebec í síðustu viku og með henni 11 farþegar af 24. Þetta gerdist 6. apríl 1975 — Bandarískir sendiráðs- starfsmenn fluttir frá Phnom Penh. 1973 — Koraturk kosinn for- seti Tyrklands. 1972 — Egyptar slíta stjórn- málasambandi við Jórdaníu. 1964 — Vopnahlé á Kýpur. 1955 — Sir Anthony Eden verður forsætisráðherra Breta. 1945 — Stórsigur Bandaríkja- manna á Japönum við Kyushu. 1941 — Þjóðverjar setja Grikkjum og Júgóslövum úr- slitako3ti. 1917 — Bandaríkjamenn segja Þjóðverjum stríð á hendur. 1909 Robert E. Peary kemur á Norðurpólinn. 1897 — Soldáninn á Zanzibar leggur niður þrælahald. 1862 — Orrustan um Shiloh hefst. 1823 — Frakkar sækja yfir Bidossoafljót og stríð við Spán- verja hefst. 1812 — Bretar taka Badajoz á Spáni. 1793 — Almannaöryggisnefnd stofnsett í Frakklandi undir stjérn Dantons. 1777 — Franskir sjálfboðaliðar Lafayettes koma til Norður-Ameríku. 1712 — Þrælauppreisn í New York. Aímæli. Gustave Moreau, franskur listmálari (1826—1898) — Anthony Fokker, þýzkur flugvélasmiður (1890—1939) — Oscar Strauss, austurrískt tón- skáld (1870-1954) - Harry Houdini, ungverskættaður töframaður (1874—1936) — André Previn, bandarískur tón- listarmaður (1929— ). Andlát. Sókrates, heimspeking- ur, 399 f. Kr. — Ríkharður Ljónshjarta 1199 — Raphael, listmálari 1520 — Albrecht Dörer, listmálari, 1528 — Igor Stravinsky, tónskáld, 1971. Innlent. Vígður Klængur biskup Þorsteinsson 1152 — Sættir Hamborgara og konungs um íslandsverzlun 1551 — Magnús Stephensen hlýtur doktorsnafn- bót 1819 — d. Sigurður Péturs- son sýslumaður 1827 — Níu bátar farast á Faxaflóa 1830. Orð dagsins: Það þarf alls kon- ar fólk til að gera heiminn að því sem hann er — Douglas Jerrold, enskur leikritahöfundur (1803-1857).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.