Morgunblaðið - 06.04.1979, Side 33
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979
33
+ ÞAÐ mun vera fastur liður í námi Stýrimannaskólanema að þeir fara í æfingaferðir
með varðskipunum. Þessi mynd var tekin fyrir skömmu að lokinni einni slíkri
æfingaför með varðskipinu Tý. Eru nemendur hér ásamt nokkrum yfirmönnum
varðskipsins, og kennara sínum, Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni. Myndin er tekin við
bryggju varðskipanna hér í Reykjavíkurhöfn. (Ljósm. Friðrik Olgeirsson).
+ MAÐURINN með köttinn í
fanginu er dýraeftirlitsmaður
frá félagsskap þeim í Bretlandi
sem berst gegn illri meðferð á
dýrum. Kötturinn hafði klifrað
upp í hátt tré og virtist ekki
þora niður aftur. Var hann
búinn að vera uppi í trénu í þrjá
sólarhringa er félagsskapurinn
lét þetta mál til sín taka. Hófust
þá allumfangsmiklar björgunar-
ráðstafanir. Leitað var til
slökkviliðsins, þaulæfðir menn í
að klífa tré komu og fenginn var
kranabíll. Allar þessar ráðstaf-
anir báru ekki tilætlaðan árang-
ur. Þeir sem klífa ætluðu upp
eftir hinum 25 m háa trjábol
urðu frá að snúa er þeir voru
komnir efst upp. Kranabíllinn
kom bómunni ekki að vegna
trjákrónunnar (og hann kolfest-
ist!!) og brunaverðirnir sem
notuðu háþrýstidælubíla urðu
frá að hverfa. Múgur og marg-
menni fylgdist með þessum að-
gerðum öllum, m.a. blaðamenn
og ljósmyndarar. — Þegar menn
höfðu gefizt upp við þann tækja-
útbúnað sem kominn var á
staðinn, gerði kisa sér lítið fyrir
skammt frá, en það heitir í
Buckinghamskíri, þar sem þetta
gerðist. Hinar árangurslausu
björgunaraðferðir kostuðu um
200.000 krónur.
og klifraði hægt og rólega niður
úr trénu, Dýraeftirlitsmaðurinn
Guy Harrison tók á móti kisu,
sem er reyndar högni og heitir
Charlie. Hann á heima þarna
+ NÍTJÁN ára dóttir
Frakklandsforseta, Jacinte
Giscard d’Estaing, sem er
yngst dætra forsetahjón-
anna, er hér á blaðamanna-
fundi í París fyrir nokkru.
Þar kynnti hún fyrir
heimspressunni kærastann
sinn, Philippe Guibut, sem
er 28 ára að aldri, arkitekt
að menntun. Forsetadóttir-
in stundar nám í dýralækn-
ingum við stofnun eina í
T-Bleian
er frá Mölnlycke
Með T-bleiunni notist T-buxur, þar sem bleiurn-
ar eru með plastundirlagi.
T-buxur eru taubuxur, sem veita lofti í gegnum
sig, sem plastbuxur gera ekki.
Vellíðan barnsins eykst.
Ferrriinoarföt