Morgunblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 39 Valskonur í vígamóð • Stefán Gunnarsson átti í gærkvöldi einn sinn besta leik á vetrinum og á meðfylgjandi mynd Kristjáns ljósmyndara hefur Stefán rifið sig í gegn um vörn Fram og skorar eitt af 3 mörkum sínum. Valsmenn ætla sér að halda titlinum ÞEGAR uppi var staðið, voru Framarar ekki hindrun á vegi Valsmanna í úrslitaleik við Víkinga. Framarar voru sterkir í fyrri hálfleik og mættu til leiks ákveðnir í því að klekkja á Val, enda skammt síðan að Valur sló Fram út úr bikarkeppninni með eins marka mun. Þar fyrir utan er orðið langt síðan Fram vann leik og var því kominn tími til að gera eitthvað af viti. En dýrðin stóð aðeins rétt fram í siðari hálfleik, er staðan var 11 — 11 og þá sigu Valsmenn rólega (í orðs- ins fyllstu merkingu) fram úr og unnu öruggan sigur. Þrátt fyrir 5 marka sigur, 23—18, hafði maður þó yfirleitt á tilfinningunni, að Valsmenn hefðu ekki annað fram yfir Framara en líkamsburðina. Staðan í hálfleik var 11 — 10 fyrir Val. Jafnræði var framan af, þannig hafði Fram yfir 4—3 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður og nokkru síðar náði Fram tveggja marka forystu, 6—4 og 8—6. Vals- menn náðu þá góðum spetti og komust yfir 11—9, en Framarar skoruðu síðasta markið í hálf- leiknum. Það er síðan skemmst frá því að segja, að Valsmenn sigu örugglega fram úr í síðari hálfleik og var sigur þeirra þá aldrei í hættu. Ef litið er á liðin, var mark- UBK—Þór í kvöld EINN leikur fer fram í 1. deild kvenna i kvöld og er Það viöureign Breiöabliks og Þórs, sem fram fer í ípróttahúsinu í Ásgarði klukkan 22.00. Leikur Þessi sker úr um paö hvort Þessara liöa eöa bnöi bjarga sér fró falli, en fallbaráttan er enn ekki útkljáö eins og sagt var í blaðinu á Þriöjudaginn. Víkingur á enn eftir aö leika gegn Breiðabliki og tapi UBK Þeim leik og Þórsleikn- um, fellur UBK, en annaöhvort Víkingur eöa Þór leikur síðan auka- leik gegn næstefsta liöi 2. deildar. varslan í sérflokki, Óli Ben. hjá val varði allan leikinn mjög vel, alls 15 skot í leiknum, en enn meiri athygli vakti þó Sigurður Þórarinsson hjá Fram, sem varði 14 skot fram í miðjan síðari hálfleik, en fór þá út af. Gissur kom þá í hans stað og stóð sig vel. Auk markvarðanna var Björn Eiríksson sprækastur hjá Fram, sérlega háll á línunni, fiskaði víti grimmt og skoraði mikið. Theodór reif sig upp í síðari hálfleik og skoraði þá falleg mörk. Valsliðið var jafnt, þó með Ólaf Ben. sem bestan mann. Það er einn aðal- styrkleiki þessa liðs hve jafnir leikmenn liðsins eru. Flestir leik- manna liðsins létu nokkuð til sín taka í leiknum og enginn bar af. Jón Hermannsson og Árni Tómasson sáu um dómgæsluna og voru þeir rétt þokkalegir, ekki meira. í STUTTU MÁLI: islandsmótiö 1. deild Valur-Fram 23—18 (11—10) Mörk Vals: Jón Pétur 6, Jón Karls- son 4 (2 víti), Þorbjörn G., Þorbjörn J„ Steindór og Stefán 3 hver, Gísli Gunnarsson 1 mark, Mörk Fram: Atli, Björn og Theodór 4 hver, Gústaf 3, Viöar 2 og Pétur 1 mark. Víti í vaskinn: Oli Ben. varói frá Gústaf, Gissur verói frá Jóni K. og Björn Eiríksson vippaói yfir bæði Ólaf Ben. og Þverslána í senn. Brottrekstrar: Björn Björnsson Val, Jón Pétur Val og Birgir Jóhannesson Fram í 2 mínútur hver. -gg. SEM heild lék kvennalið Fram frekar eins og falllið en meistari, er liðið mætti Val í 1. deild kvenna í gærkvöldi. Með því að sigra Fram mátti takast hjá Val að tryggja sér annað sætið í mótinu og þar sem Framarar höfðu, að Guðríði Guðjónsdóttur undanskilinni, engan áhuga á leiknum, tókst það örugglega, Leikdagar ákveönir — Víkingar óhressir MÓTANEFND HSÍ setti í fyrra- kvöld á leikdaga undanúrslita- leikjanna í handknattleik og setti Þá leik Vals og Víkings á 25. apríl næstkomandi, leik FH og ÍR á 27. apríl og sjálfan úrslitaleikinn á 29. apríl. Víkingar vildu ekki una pví að Þurfa aó bíöa með leik sinn allar götur til 25. Þessa mánaöar og báru fram mótmæli. Voru rök Víkinga meðal annars í Því fólgin aó Þeim Þótti slæmt aö slíta mótió í sundur á Þennan hátt. Vildu Víkingar fá aö leika leik Þennan á sunnudaginn. HSÍ fjallaði um kröfu Víkinga í gær- kvöldi og ákvaó Þá aó breyta ekki ákvöróun mótanefndar um leikdaga. — 99- Valur vann 14—10 eftir að hafa haft yfir 7—4 í hálfleik. En leikurinn var slakur af beggja hálfu, mikið um mistök á báða bóga, ótímabær skot og sendingar út í bláinn. En Valsarar voru þó greinilega ákveðnari og ætluðu sér að ná ákveðnu marki. Fram hefur þegar náð sínu. Eini leikmaðurinn sem nokkuð kvað að hjá Fram, var Guðríður Guðjóns- dóttir, sem skoraði 7 af 10 mörkum liðsins. Hjá Val var markvörður- inn, Jóhanna, langbest, en Björg, Erna og Sigrún gerðu allar góða hluti. MÖRK VALS: Erna 4, Harpa 3, Björg 3, Sigrún 2, Elín og Ágústa 1 hvor. MÖRK FRAM: Guðríður 7, Oddný 2 og Helga 1 mark. — gg. Fram vann FRAM vann Fylki 2—1 í Reykja- víkurmótinu í knattspyrnu á Mela- vellinum í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Fram og var það ólánsamur varnarmaður Fylk- is sem þá sendi knöttinn í eigið net. í síðari hálfleik tókst Baldri Óskarssyni að jafna fyrir Fylki, en sigurmark Fram var skorað á síðustu mínútum leiksins. Einkunnagjöfin VALUR: Ólafur Benediktsson 3, Brynjar Kvaran 1, Þorbjörn G. 2, Þorbjörn J. 2, Jón K. 2, Jón Pétur 3, Steindór 3, Stefán Gunnarsson 3, Gísli Gunnarsson 2, Karl Jónsson 1, Bjarni Guómundsson 2, Björn Björnsson 1. FRAM: Sigurður Þórarinsson 3, Gissur Ágústsson 2, Pétur Jóh. 2, Atli Hilmarsson 2, Gústaf Björnsson 2, Björn Eiríksson 3, Vióar Birgisson 2, Theodór Guöfinnsson 2, Hjörtur Þorgilsson 2, Jóhann Kristinsson 1. Unglingamót HjáTBR FIMMTUDAGINN 19. apríl verður haldið opið unglingamót í badminton, Sumardagsmót T.B.R., og verður eingöngu keppt í einliðaleik. Þátttökugjöld verða í tveimur yngstu flokkunum kr. 1000, en í flokkum drengja og telpna kr. 1500, og í flokkum pilta og stúlkna kr. 2000. Hnokkar-tátur (f. 1967 og síðar) Sveinar-meyjar (f. 1965 og 1966) Drengir-telpur (f. 1963 og 1964) Piltar-stúlkur (f. 1961 og 1962) Mótið hefst stundvíslega kl. 13.30 e.h. Þátttökutilkynningum skal skilað Unglingaráði T.B.R. fyrir mánudaginn 16. apríl. Unglingaráð T.B.R. íslandsmótið í borðtennis ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í borðtennis fer fram dagana 12. og 14. apríl næstkomandi og fer það fram í Laugardalshöilinni. Keppni hefst klukkan 10.00 báða dagana. Fyrri keppnisdaginn verður keppt í tvíliðaleik, unglingaflokk- um og í flokki öldunga, en síðari keppnisdaginn verður keppt í opnu flokkunum. Þátttöku ber að tilkynna í síma 39656 íyrir 7. aprfl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.