Morgunblaðið - 25.04.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1979
5
Hafnfirðing-
ar vilja ekki
dragnót
í Flóann
FRUMVARPI því, sem liggur
fyrir Alþingi um opnun
Faxaflóa fyrir dragnótaveið-
um, var mótmælt á fundi í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar í
gær. Allir bæjarfulltrúarnir
11 greiddu atkvæði með til-
lögu bæjarráðs um áfram-
haldandi bann við dragnót í
Flóanum.
Sýning frétta-
ljósmyndara
framlengd
VEGNA óvenju mikillar aðsóknar
hefur verið ákveðið að framlengja
ljósmyndasýningu Samtaka
fréttaljósmyndara í Norræna
húsinu til n.k. sunnudagskvölds,
29. apríl. Sýningin mun eins og
áður vera opin frá kl. 16—22 virka
daga og 14—22 um helgina.
Myndirnar eru allar til sölu.
Aukafulltrúafundur Stéttarsambands bænda:
Setur nýja reglugerð
um framleiðsluráð
AUKAFULLTRÚAFUNDUR
Stéttarsambands bænda hefst kl.
10 í dag í Bændahöllinni f Reykja-
vík. Sitja fundinn 46 kjörnir
fulltrúar auk stjórnar Státtar-
sambandsins. Aðalmál fundarins
er setning nýrrar reglugerðar í
kjölfar nýrra laga um
framleiðslráð.
Að sögn starfsmanna Stéttar-
sambands bænda er gert ráð fyrir
að fundurinn standi í dag og á
morgun, en þá verða nefndarstörf
fyrir hádegi og fundinum fram-
haldið eftir hádegi. Er leitast við
að leggja fram tillögur að reglu-
gerð á grundvelli laganna, en þau
kveða m.a. á um breytingar á
framleiðsluráði verðjöfnunargjald
og að dregið verði úr framleiðslu.
Stefnt er að því að tillögurnar
hljóti samþykki á fundi þessum og
að reglugerðin geti þá tekið gildi.
Húsavík:
„Fiðlarinn” slær öll
fyrri aðsóknarmet
Húsavik 24. aprfl
LEIKFÉLAG Húsavíkur
hefur nú sýnt sjónleikinn
„Fiðlarann á þakinu" 15
sinnum við sérlega góða
aðsókn og undirtektir.
Ákveðnar eru 6 sýningar í
viðbót á þessu vori og er
þegar uppselt á þær allar.
Þar sem hér er um áhuga-
leikara að ræða eru leikar-
arnir bundnir við ýmis
störf, vorannir, skólapróf og
fleira svo ekki verður mögu-
legt að hafa fleiri sýningar
á þessu vori. En jafnframt
hefur verið ákveðið að taka
upp sýningar á leikritinu
næsta haust, en það hefur
ekki áður gerzt hér á
Húsavík enda slær aðsóknin
að þessari sýningu öll fyrri
met.
— Fréttaritari.
Söngfélag Skaftfellinga í Reykjavík:
Sungið í Vík og
Kirkjubæjarklaustri
Söngfélag Skaftfellinga í Reykjavík.
SÖNGFÉLAG Skaftfellinga í
Reykjavík efnir til söngferðar
austur í Vestur-Skaftafellssýsl-
ur laugardaginn 28. apríl næst-
komandi. Sungið verður í Leik-
skálum í Vík kl. 14 og í Kirkju-
hvoli á Kirkjubæjarklaustri kl.
21 sama dag. Söngstjóri kórsins
er Þorvaldur Björnsson, undir-
leikari Agnes Löve og raddþjálf-
ari Einar Sturluson. Á efnis-
skránni eru lög eftir erlenda og
innlenda höfunda, þar á meðal
fjóra Skaftfellinga. Þetta er
fjórða söngför félagsins til
heimahaga. Fyrst söng kórinn
ásamt heimakórum á þjóðhátíð
Vestur-Skaftfellinga á Kleifum
17. júní 1974, aftur á sama ári
við brúarvígslu á Skeiðarár-
sandi.
í maí 1977 fór Söngfélagið til
Hafnar í Hornafirði í boði
karlakórsins Jökuls og söng í
Sindrabæ. Á heimleiðinni söng
kórinn í Leikskálum í Vík.
Hvar er
Bjössi?
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið
beðið um að birta eftirfarandi:
„Hefur nokkur séð þennan
ársgamla bröndótta kött, sem
gegnir nafninu Bjössi? Hann
hvarf úr fóstri frá Vallhólma í
austurbæ Kópavogs í vikunni.
Hann var merktur. Finnandi
hringi vinsamlega í síma 41869
eða 42883. Há fundarlaun.