Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 Tímaskylda grunn- skólanema stytt „í ÞEIRRI regiugerð, sem nú er í prentun og á að gilda næsta skólaár, er tímaskylda nemenda í 4„ 5. og 6. bekk grunnskólans minnkuð um einn tíma á viku og hámarkstímafjöldi nemenda í 9. bekk er minnkaður um tvo tíma, í 35,“ sagði Hörður Lárusson, deildarstjóri skólarannsókna- deildar menntamálaráðuneytis- ins, í samtali við Mbl. í gær. Rafmagn á ofn járn- blendiverk- smiðjunnar RAFSTRAUMI var veitt í fyrsta sinn á fyrri bræðsiuofn járnblendiverksmiðjunnar að Grundartanga f gær og var kveikt á ofninum klukkan 21:15. Fyrstu 10—12 dagarnir fara i að þurrka ofninn og hita og bökun rafskauta, en að því loknu getur framleiðsla á kís- iljárni hafizt. Á því skólaári, sem nú er að ljúka var tímaskylda nemenda í 7. og 8. bekk stytt úr 37 í 35 tíma á viku og tímaskylda nemenda í 9. bekk sett á bilið 31 til 37 tíma. Nú er hámarkstímafjöldi nemenda í 9. bekk styttur í 35 tíma og tíma- skylda nemenda í 4. bekk bundin við 29 tíma, nemenda í 5. bekk bundin við 32 tíma og nemenda í 6. bekk bundin við 34 tíma og er þetta einum tíma færra en í reglugerð yfirstandandi skólaárs. Hörður Lárusson sagði þessa styttingu tilkomna vegna aðgerða til að draga úr kennslukostnaði og svo hefði, þegar grunnskólalögin voru samþykkt 1974, verið miðað við 6 daga starfsviku, en nú væri starfsvikan 5 dagar og hefði það verið almennt álit að tímafjöldinn væri of mikill fyrir þá vinnuviku. Mbl. spurði hvort þessar aðgerðir hefðu áhrif á laun kenn- ara en Hörður sagðist ekki telja að svo yrði, enda væri ekki um það að ræða að minnka kennslumagnið. Efta-ráðið: Aukaflugferðir um helgina vegna vöruflutninga MIKIL aukning hefur orðið í vöruflutningum í innanlands- fluginu vegna farmannaverk- fallsins, sem bætist ofan á erfiðleika á landflutningum vegna þungatakmarkana á vegum, en þeirra vegna er nú ekki tekið á móti vörum í bíla frá Eyjafirði, austur um og suður að Höfn í Hornafirði. Þessi mynd var tekin í gær í vöruafgreiðslu Flugfélags ís- lands og sagði Sverrir Jónsson yfirmaður afgreiðslunnar í samtali við Mbl. í gær að um helgina yrði að grfpa til auka- ferða vegna vöruflutninganna. Pétur Esrason hjá fragtdeild Flugleiða sagði að eftirspurn- in eftir vöruflutningum loft- leiðis til landsins væri að aukast og að margir innflytj- endur, sem ekki hefðu skipt við Flugleiðir, væru nú farnir að hafa samband við félagið um flutning á vörum erlendis frá. ísnefndin boðaði komu sína og ísinn fór Raufarhfifn. 27. aprfl. ÍSNEFNDIN hafði boðað komu sína hingað í dag, en kom ekki. Hins vegar lagði ísinn strax á flótta og kom Hekla hér inn í morgun og bátar hafa komið í höfn í dag. Heklan landaði hér m.a. vörum til Þórshafnar og á að flytja þær þangað á bílum í nótt og einnig fisk, sem Þórshafnarbáturinn Litlafell landaði hér í dag, en ísinn lokaði Þórshafnarhöfn aftur. Fréttaritari. Gleymdist ad safna skýrslum um stuðningsaðgerðir við iðnað í GÆR lauk fundi ráðgjafanefnd- ar EFTA. Fundinn sóttu af ís- lands hálfu Davið Sch. Thor- steinsson, fulltrúi F.Í.I., Guð- mundur H. Garðarsson, fulltrúi A.S.Í., Haukur Björnsson, full- trúi F.Í.I., Hjalti Geir Kristjáns- son, fulltrúi V.Í., Jón H. Bergs, fulltrúi V.S.Í. og Tómas Karlsson sem áheyrnarfulltrúi. Á fundinum var lögð fram skýrsla efnahags- og félagsmála- nefndar EFTA um opinberar styrktar- og stuðningsaðgerðir við iðnað. Að tillögu íslands í október 1977 var nefnd þessari falið að rann- saka þessi mál. Skarpar umræður urðu um skýrsluna, sem þótti ganga of skammt og vera of yfirborðskennd og að auki væri engin tilraun gerð til að meta áhrif styrktar- og stuðningsað- gerða á fríverzlun og þann skaða, sem þær gætu valdið iðnaði ann- arra ríkja. í ræðu formanns nefndarinnar kom fram, að í skýrslunni væru aðeins nefndar þær styrktar- og Davíð Sch. Thorsteinsson stuðningsaðgerðir, sem hvert ríki hefði sjálft skýrt frá af fúsum og frjálsum vilja. Hann sagði það skoðun sína að öll ríkin, að íslandi einu undanskildu, hefðu ekki skýrt frá öllum þeim opinberu styrktar- og stuðningsaðgerðum sem við- gengjust. Af íslands hálfu var í þessu sambandi sem dæmi bent á, að skýrsla Svíþjóðar til nefndar- innar væri rúmlega ein blaðsíða, enda þótt fyrir lægi sænsk bók um opinberar styrktar- og stuðnings- aðgerðir í Svíþjóð, sem væri 108 blaðsíður og efnisyfirlitið eitt væri 7 blaðsíður. Skýrslu nefndarinnar var vísað til EFTA-ráðsins, sem mun taka ákvörðun um hvað skuli gert frek- ar í málinu. Fulltrúar íslands bentu á, að EFTA-ráðið hefði ákveðið hinn 3. júlí 1968 að: 1) Öll aðildarríkin skyldu senda skýrslu árlega um allar opinberar styrktar- og stuðningsaðgerðir og breytingar á þeim. 2) Starfsmenn EFTA skyldu safna þessum upplýsingum saman og krefja aðildarríkin um skýrslur, a.m.k. einu sinni á ári eða oftar, ef þörf þætti á. Báru fulltrúar Islands fram fyrirspurn um, hvernig þessi ákvörðun EFTA-ráðsins hefði ver- ið framkvæmd og hvar þessar skýrslur væri að finna. í svari Aðstaða Islands hefur enn styrkzt á Genfarfundunum segir Hans G. Andersen sendiherra GENFARFUNDUM Hafréttar- ráðstefnunnar átti að ljúka í gærkvöldi. Mbi. spurði Hans G. Ándersen hvað væri fréttnæm- ast við stöðu mála þá. Hann sagði: „AUt kapp var lagt á það á þessum fundum að ljúka endurskoðun á samningsupp- kastinu. Lengi vel leit út fyrir að þetta mundi ekki takast vegna þess að grundvallar- ágreiningur væri enn fyrir hendi varðandi alþjóðahafs- botnssvæðið utan lögsögu ríkj- anna, en á siðustu stundu náð- ist talsverður árangur í þessum efnum og má reyndar taka undir þau orð aðalfulltrúa Bandaríkjanna, Elliot Richard- son, að hér hafi verið um mesta árangur að ræða í sögu ráð- stefnunnar á svo stuttum tíma. Þessar tillögur fara nú inn í hinn endurskoðaða texta. Jafnframt því sem unnið var að lausn þessara mála, var haldið áfram umræðum um önn- ur ágreiningsefni og niðurstöður af þeim umræðum fara þá líka inn í nýja textann.“ — Hefur okkar aðstaða nokk- uð versnað við nýja textann? „Nei. Hún hefur þvert á móti styrkzt enn, vegna þess að þau atriði, sem við höfum barizt fyrir hafa haldið velli og koma til með að gera það héðan af. Hitt verður þó að taka fram, að nú stendur til að halda áfram umræðum um þennan endur- skoðaða texta á fundi í New York frá 16. júlí til 23. ágúst. Eftir reynslunni að dæma má búast við því að margir haldi uppi sínu gamla þrasi og ef til vill getur þar komið til atkvæða- greiðslna." — Hvað með neðansjávar- hryggina og upphaflega tillögu Rússa um að undanskilja rétt- indi á þeim? „í endurskoðaða textanum er ekkert um þetta. Setningin var felld niður, en tekið er fram að þetta mál þurfi að athuga sér- staklega. Rétt er að taka fram að sendinefnd Sovétríkjanna sýndi mikinn velvilja í viðræð- um við okkur um þessi atriði og hefur lofað samvinnu um það að hagsmunir Islands verði ekki fyrir borð bornir í þessum efn- um.“ — Hver er þá niðurstaðan? „Þegar á allt er litið er niður- staðan sú að okkar málum innan efnahagslögsögunnar sé vel borgið. En rétt er að taka fram að enn hefur ekki náðst niðurstaða um ytri mörk landgrunnsins og um- ræður halda áfram um það efni í New York. í endurskoðaða upp- kastinu er gert ráð fyrir því, að ytri mörkin verði miðuð við 350 sjómílur, en þó eru á því ýmsir flóknir fyrirvarar og frávik, auk þess sem reglur um skiptingu svæða milli landa koma inn í þá mynd.“ — Hver er okkar aðstaða í þessu efni? „Formaður annarrar nefndar- innar lagði áherzlu á það í skýrslu sinni í dag og raunar forsetinn einnig, að þessi mál þyrfti að athuga nánar og verða þau í sviðsljósinu á New York fundinum. Það er því ljóst að vel verður að standa á verðinum á lokasprettinum. Það gildir ekki einungis um þessi mál, heldur einnig margt fleira, því allt hangir þetta saman, þegar unn- ið er að heildarlausn og hver togar í sinn potta," sagði Hans G. Andersen að lokum. framkvæmdastjóra EFTA, hr. Charles Muller, kom fram, að þessari ákvörðun EFTA-ráðsins hefði aldrei verið framfylgt og að engar skýrslur væru til. Aðspurð- ur sagðist Muller engar skýringar hafa aðrar en þær, að svo virtist sem samþykktin hefði gleymzt, enda þótt þessi samþykkt væri birt í kynningarriti EFTA sem dreift er til almennings í aðildarríkjun- um. Þó að ótrúlegt sé, virtist sem þessi fyrirspurn Islands kæmi flatt upp á flesta, jafnvel þá sem bezt áttu að vita. Reiknað er með, að eftir þessar umræður gleymist fyrrnefnd sam- þykkt EFTA-ráðsins ekki í bráð og að loks verði farið að framkvæma hana. Aðalfundur Skák- sambands íslands: Bragi Hall- dórsson býð- ur sig fram gegn Einari BRAGI Halldórsson skákmaður hefur ákveðið að bjóða sig fram til forsetaembættis Skáksambands ís- lands á móti Einari S. Einarssyni á aðalfundi S.Í., sem haldinn verður í veitingahúsinu Glæsibæ f dag. Einar S. Einarsson forseti S.í. tilkynnti fyrir nokkru að hann myndi gefa kost á sér áfram í forsetaembættið Varð fyrir lyftara ÞAÐ slys varð í Straumsvík um eitt-leytið í gærkvöldi að maður varð fyrir lyftara á svæði fyrir utan steypuskálann. Maðurinn var fluttur á slysadeildina og kom í ljós að hann hafði slasast talsvert á fótum. © INNLENT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.