Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 10
J 0 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 JMikiU og vaxandi áhugi á stórum kórverkum ” ÁRSTÍÐIRNAR eftir Joseph Haydn fluttar á „Tónlistardögum 1979“ á Akureyri og í Háteigskirkju í Reykjavík. Passíukórinn á Akureyri hefur í vetur æft óratoríuna Árstíðirnar eftir Joseph Haydn undir stjórn Roars Kvam, kennara við Tónlist- arskólann á Akureyri. Tónverkið verðu flutt í íþróttaskemmunni á Akureyri sunnudaginn 29. apríl kl. 16.00, og verða þeir tónleikar hinir síðustu þriggja, sem haldnir verða á þeirri tónlistarhátíð, sem nefnd er „Tónlistardagur 1979“ og er hin þriðja í röðinni. Þessi hátíð verður eins og hinar fyrri, haldin fyrir atbeina og með samvinnu Passíu- kórsins og Tónlistarfélags Akur- eyrar. Einsöngvarar verða Ólöf Kol- brún Harðardóttir sópran, Jón Þorsteinsson tenór og Halldór Vilhelmsson bassi. Hljóðfæraleik annast félagar í Sinfóníuhljóm- sveit íslands og nokkrir úr hljóm- sveit Tónlistarskólans á Akureyri. Ákveðið er, að Passíukórinn flytji Árstíðirnar einnig í Reykja- vík, og verða þeir tónleikar í Háteigskirkju þriðjudaginn 1. maí kl. 17.00. Einsöngvarar og hljóð- færaleikarar verða hinir sömu og á Akureyri. Passíukórinn Passíukórinn á Akureyri var stofnaður árið 1972 að frumkvæði Roars Kvam, sem hefir stjórnað honum síðan. Kórinn setti sér í upphafi að flytja meiri háttar kórverk, gömul og ný, og hefir dyggilega staðið við það fyrirheit. Auk þess hefir hann flutt styttri verk og sálmalög. Meðal kórverka, sem kórinn hefir flutt, má nefna Jóhannesar- passiu eftir Scarlatti, Gloríu og Magnificat eftir Vivaldi, Te Deum eftir Charpentier, Sálm 112 og Messías eftir Handel, Missa Brevis og Requim eftir Mozart og Kan- tötu nr. 21 eftir Bach. Þar að auki má nefna, að kórinn flutti nútíma- verkið NU eftir norska tónskáldið Milveden á Norrænum tónlistar- dögum í Reykjavík 1976 með að- stoð Sinfóníuhljómsveitar Islands. Kammersveit félaga í Sinfóníu- hljómsveit ísland, hljómsveit Tón- listarskólans í Reykjavík og hljómsveit Tónlistarskólans á Akureyri hafa leikið með kórnum, og meðal einsöngvara með kórnum má nefna Lilju Hallgrímsdóttur, Guðrúnu Kristjánsdóttur, Jón Hlöðver Áskelsson, Þuríði Bald- ursdóttur, Sigurð Demetz Franz- son, Guri Egge og þá einsöngvara, sem nú koma fram með kórnum við flutning Árstíðanna. í kórnum voru í fyrstu 20 félag- ar, en eru nú um 60. Kórinn hefir haldið meiri háttar tónleika á hverju vori, en einnig komið fram á jóla- og áramótatónleikum á Akureyri. Hann hefir farið söng- ferðir til Dalvíkur og Siglufjarðar og um Þingeyjarsýslur, og eins og fyrr sagði tekið þátt í Norrænum tónlistardögum í Reykjavík 1976. Hann hefir æft í sal Tónlistarskól- ans á Akureyri, en þau húsakynni eru nú orðin of þröng. Þegar nær dregur tónleikum hefir kórinn fengið að æfa í Akureyrarkirkju. Það er í mikið ráðist af kór utan Reykjavíkur að takast á hendur flutning tónverks á borð við Árs- tíðarnar nú og Messías eftir Hánd- el í fyrra, því að einsöngvara í svo erfið hlutverk og flest hljóðfæra- leikara verður að sækja til höfuð- borgarinnar og leita þar til at- vinnumanna. Þessi atriði og einnig húsnæðisvandinn vegna flutnings verkanna á tónleikunum sjálfum hafa verið leyst með góðri sam- vinnu við Tónlistarfélag Akureyr- ar, en það og kórinn hafa í samein- ingu gengist fyrir tónlistarhátíð á Akureyri, nú þriðja árið í röð. Sameiginleg framkvæmdanefnd hefir annast undirbúning hátíðar- innar nú, en hana skipa Sverrir Páll Erlendsson, Lilja Hallgríms- dóttir, Stefán Bergþórsson og Böðvar Guðmundsson, en fram- kvæmdastjóri er Jóhann G. Möll- er. Árshátíðirnar Óratorían Árstíðirnar eftir Haydn er að sögn kórfélaga erfið- asta verkefnið, sem Passíukórinn hefur tekist á við, en um leið eitthvert hið skemmtilegasta og áheyrilegasta. Textinn verður sunginn á þýsku, en Magnús Krist- insson menntaskólakennari hefur gert lauslega þýðingu hans á íslensku. og er hún birt í efnisskrá tónieikanna. Joseph Haydn kynntist óra- toríuforminu fyrst að marki í Lundúnum um og eftir 1790, þegar hann komst í kynni við óratoríur Hándels. Hann átti góða samvinnu við Gottfried von Swieten barón, sem samdi textana, t.d. við Sköpunina 1798. Árstíðirnar urðu svo til á næstu þremur árum, og er þar vikið frá viðtekinni hefð að óratoríur fjölluðu um biblíulegt efni. Textinn er að stofni umritun á Ijóðabálkinum The seasons eftir skoska skáldið James Thomson, en — segir Roar Kvam, stjómandi passíu- kórsins á Akureyri mörgu er þó breytt og verk ann- arra skálda felld inn í eftir þörf- um. Árstíðirnar lýsa mannlífi og náttúrufari í sveitum Austurríkis allan ársins hring, og hafa hljóm- sveit, kór og einsöngvarar hvert sitt hlutverk í túlkun efnisins. Verkið var frumflutt í Vínarborg 24. apríl 1801 og hlaut afbragðs viðtökur þegar í upphafi. Það hefir einnig notið óskoraðra vinsælda síðan. Stjórnandinn, Roar Kvam Roar Kvam, stjórnandi og stofn-. andi Passíukórsins, er norskur að þjóðerni og stundaði nám við Tónlistarskólann í Ósló, nam þar kór- og hljómsveitarstjórn hjá Öivin Fjeldstad og lagði einnig stund á trompetleik og meðferð ásláttarhljóðfæra. Hann fluttist til íslands 1971, gerðist kennari við Tónlistarskólann á Akureyri og stjórnandi Lúðrasveitar Akur- eyrar. Hann stofnaði Passíukórinn ári síðar og hefur stjórnað honum Passiukórinn á Akureyri: Hann var stofnaður fyrir sjö árum. síðan. Hann er kvæntur Gígju Kjartansdóttur orgelleikara frá Mógili á Svalbarðsströnd. — Er áhugi á flutningi stórra kórverka vaxandi hér um slóðir, Roar? — Já, greinilega, bæði hjá söng- fólki og áheyrendum. Þegar ég byrjaði með kórinn, voru í honum 20 manns, en nú eru kórfélagar um 60 talsins. Þegar við héldum tón- leika fyrsta vorið, 1972, voru áheyrendur tæplega 150, en í fyrra voru þeir um 800, svo að almenn- ingur hér á Akureyri og í nágrenn- inu kann sannarlega að meta tónlist af þessu tagi nú orðið. — Er jafn-auðvelt að fá söng- fólk í allar raddir? — Ónei, mér hefir gengið ágæt- lega að fá kvenfólk í kórinn, en öllu færri karlmenn hlutfallslega hafa boðist. En mest er um vert, að kórinn er skipaður mjög góðu og hæfileikamiklu söngfólki, fólki sem hefur geysilegan áhuga á því, sem verið er að fást við, og mikla gleði af starfinu. Með því móti verður vinnan auðveldari og þann- ig er hægt að komast langt og ná miklum árangri. — Hvernig hefir æfingunum verið hagað? — Við höfum æft tvisvar í viku í allan vetur, en nú eftir páska hafa verið þrjár æfingar í viku. Framan af vetri voru eingöngu raddæfingar og raddkennsla, en samæfingar byrjuðu eftir áramót- in. — Lesa kórfélagar yfirleitt nótur? — Já, langflestir lesa nótur eða geta haft stuðning af nótum, annars væri þetta ekki vinnandi verk. Þess má geta, að" mikill hluti söngfólksins er úr nemendahóp Tónlistarskólans á Akureyri og meira að segja úr kennarahópnum líka ásamt skólastjóranum, þó að kórinn sé alls ekki nemendakór eða skólakór skólans, heldur telst áhugamannakór. Kórfélagar eru margir mjög ungir að árum, þann- ig að ég gæti trúað, að meðalaldur- inn sé innan við 30 ár. — Þið eruð ekkert smeyk við að ráðast í erfið verk? — Vissulega er í mikið ráðist stundum, en þegar starfsgleðin og áhuginn er eins og hér hjá okkur, eru flestir vegir færir. Að vísu er ekki annað fært en að fá atvinnu- menn og þrautþjálfað fólk í ein- söngshlutverkin og í hljómsveit- ina, því að verkefni þeirra eru afar erfið í þessu viðfangsefni okkar. En ég veit, að allt fer vel, því að allir eru samtaka um að vinna að því að fremsta megni, að vel takist til og við getum í sameiningu skilað góðum listrænum flutningi og listrænum árangri. — Er ekki ætlunin að bjóða fleirum að heyra en Norðlending- um? — Jú, við ætlum suður til Reykjavíkur eftir helgina og flytja Árstíðirnar í Háteigskirkju þriðjudaginn 1. maí kl. 17.00. Eg vona, að Reykvíkingar og ná- grannar þeirra kunni að meta þetta starf okkar og hlusti á okkur. Um leið og við þökkum Roar Kvam samtalið, langar mig að ljóstra því upp, sem stjórnarmenn sögðu mér í hljóði, að áhugi og gleði stjórnandans, Roars Kvam, væri ekki minni en hins almenna kórfélaga, sem kæmi m.a. fram í því, að öll þessi ár, sem liðin eru frá stofnun Passíukórsins, hefði Roar ekki tekið eyrisvirði í laun fyrir allt sitt erfiði og þá gífurlegu vinnu, sern hann hefir lagt fram kórnum og viðfangsefnum hans til framdráttar. Slík munu ekki mörg dæmi nú á dögum. Stjórn Passíukórsins skipa: Ás- björg Ingólfsdóttir, formaður, Þuríður Baldursdóttir, Rósa Gunnarsdóttir, Snæbjörg Jóns- dóttir og Svana Þorgeirsdóttir. Sv.P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.