Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 20
Jóhann Hjálmarsson skrifar um veröld sem var og er: Vín eins og vatn var. Þar gerðist allt einu sinni, en nú er líkt og borgin hafi fyrst og fremst það hlutverk að varðveita hið liðna. Veitingahúsin eru enn eins og Zweig lýsti þeim. Inni er kyrrlátt andrúmsloft þar sem hver og einn les sitt blað við sitt borð. Bjórinn er góður hvort sem hann heitir Gold Fassl eða Gösser. Hann er sterkari en annar bjór sem ég hef kynnst. Vínglasið er líka hluti af daglegu lífi Vínarbú- ans. En umfram allt er það mikill og ljúffengur matur sem einkenn- ir borgina. Fólkið er snyrtilegt og vel klætt, er alltaf að borða og dreypa á einhverju, það er kurt- eist og elskulegt að minnsta kosti meðan það er ekki áreitt. Bókabúðirnar í Vín eru heimur út af fyrir sig. Það er ljóst að Austurríkismenn vanda sig í bókagerð. Bækur virðast til um allt milli himins og jarðar. Aber- andi eru listaverkabækur með gamalli og nýrri list. Austurrísk myndlist hefur lengi þótt eftir- tektarverð, sækir næringu í júg- endstíl og austurlenska skrautlist samanber kunnasta myndlistar- mann Austurríkismanna nú: Hundertwasser. Hann hefur vinnustofu í Vín á efstu hæð MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 gamals húss við eina fjölförnustu götuna. Þekktasta nútímaskáld Austurríkis er Artmann, tilrauna- maður í formi. Leikritaskáldið Peter Handke er Austurríkismað- ur. Af rithöfundum hafa Austur- ríkismenn átt marga bestu full- trúa þýskumælandi þjóða: Zweig, Trakl, Rilke, Werfel, Musil og ekki síst Paul Celan. Mætti ekki líka nefna Signiund Freud. Kosningarnar 6. maí settu svip á borgina. Það er enginn vandi að velja: Der österreichische Weg — das ist auch der Weg Bruno Kreiskys. Viðhafnarmiklar byggingar og minnismerki eru hvarvetna í Vín. Þær minna á forna frægð eða skjóta ferðamanninum skelk í bringu eftir atvikum: Hvaðan kemur allur þessi auður? í glæsi- legri byggingu Listsögulega safns- ins má finna sumt af því sem hæst ber í listasögunni. Hér er mikið úrval verka Rembrandts. Meðal verka hans er myndin af Páli postula þar sem Páll sést sitja hugsi við skriftir. Sjálfsmyndir eftir Rembrandt eru margar og einnig myndin sem hann málaði af móður sinni: konu sem virðist hafa lifað tímana tvenna. I þessari mynd er hið innra raunsæi lista- mannsins lýðum ljóst, hún segir meira en ljósmynd eða mörg orð. Undirritaður hefur alltaf hrifist mikið af hollenskri myndlist. Það var mér því gleðiefni að rekast á litla mynd eftir H. Averkamp (1585—1663). Myndin heitir Vetr- arlandslag og sýnir fólk á ís, eins af þessum sviðsmyndum, þeir sem fjærst eru staddir eru næstum því huldir móðu, líða út úr myndinni eins og svipir. Hér er líka mynd Vermeers van Delft (1632—1675) sem nefnist Allegorie der Malerei, sýnir málarann að störfum. Af þessari mynd hefur Salvador Dalí lært margt. Napóleonsmynd J.L. Davids (1748—1825) er í safninu og hér er salur helgaður Rubens, kannski komast hinar feitlögnu konur hans aftur í tísku? Meðal annarra málara sem eiga myndir í safninu eru Tizian, Tintoretto, Velazquez og Frans Hals. Þetta eru málarar af ýmsu þjóðerni, en minnisstæð- astar eru myndir Hollendinganna fullar af lífsgleði og þeirri við- leitni að lýsa heimi hversdagslífs- ins. Það var bjart í Vín fyrstu dagana, en svo fór að rigna. Við létum það ekkert á okkur fá eins og Margrét Danadrottning sem var hin hressasta þegar hún skoð- aði Stefánsdóm að sögn Die Presse. (8.4. 1979). Sænski gagnrýnandinn Leif Zern sem skrifar fyrir Dagens Nyheter sagði við mig að þing leikgagnrýnenda í Vín hefði fyrst og fremst þann tilgang að auka tengsl Austur-Evrópuþjóða við Vesturlönd. Um það atriði að flest það sem sýnt væri í leikhúsum Vínarborgar væri gamalt eða gamalkunnugt komst Zern svo að orði að í fáum borgum væri eitthvað að gerast í leiklist. Vín væri engin undantekning að því leyti. Svo kvöddum við veröld sem var og er. Ég hafði hlakkað til að stíga upp í flugvél Austurríska flugfé- lagsins í Kaupmannahöfn. Vinir minn Þorvarður Helgason hafði sagt mér frá þessari flugvél. Hún er ljósblá með dökkrauðum dregl- um, sagði Þorvarður, það eru sætar flugfreyjur um borð, þú lætur fara vel um þig, færð þeir eitt bjórglas og kaupir Mozartkug- el, svo ertu komin til Vínar. Þessa hamingjusömu leið hins gamla Vínarfara fór ég þó ekki. Við Sverrir Hólmarsson voru sviptir þessari gleði með verkfalli flugmanna. I staðinn urðum við að fara til Luxemborgar, þaðan til Frankfurt og frá Frankfurt til Vínar. Austurrískri flugvél höfn- uðum við ekki í. En ég sá þær á flugvellinum í Vín þegar við vor- um að fara heim. Þær voru í hvítum og rauðum litum, fánalitir á stéli, Austrian með rauðu. Á flugvellinum var líka vél frá Alitalia sem minnti á grænt salat og fékk mig til að minnast góðra daga á Ítalíu. Á árunum 1965—70 birtust í þessu blaði Vínarbréf eftir Þor- varð Helgason. Þau voru uppnefnd Vínarbrauð. Fáir vita meira um Vínarborg en Þorvarður, enda fór ég vel nestaður af fróðleik frá honum. Á rúmri viku er reyndar ekki hægt að sjá allt. Ég sá ekki Tuttugustu aldar safnið með nú- tímalist, ég fór ekki í neinar hallir til að drekka kokkteil og ég sá ekki minnismerkið um sigur rauða f i sem Frá Vín jjflP Glaöir Austurríkismenn ætla aö kjósa Kreisky hersins. Ekki kom ég heldur að leiði Mozarts. Aftur á móti sá ég styttu af hijnum í Borgargarðin- um, viðkvæmnislegan snilling á að líta, á fótstallinum brotin hljóð- færi og nótnablöð í hrúgu. Cosí fan tutte hlustaði ég á í Stastsop- er. Ég veit að Franz Kafka bjó eitt sinn í Dorotheer gasse. Þar var ég í dýrðlegri veislu austurríska Móður- mynd Rembrandts gagnrýnendasambandsins sem ætlaði aldrei að taka enda. Þing- störf, leikhús og veislur var það sem Austurríkismenn buðu þátt- takendum á sjötta þingi leiklistar- gagnrýnenda upp á. Það var meira en nóg. Góð heilsa var nauðsynleg. I augum margra okkar er Vín fyrst og fremst borg Stefáns Zweig, sú borg gleði og mannúðar sem við lásum um í Veröld sem Skólakór Garðabæjar Skólakór Garðabæjar var stofnaður 1976 og hefur því aðeins starfað í þrjú ár. Þannig er tónlistarsaga okkar Islend- inga stutt slegin sérstaklega að því er varðar tónlistaruppeldi í skólum. Með örfáum undantekn- ingum verður varla sagt, að starfað hafi boðlegur barnakór hér á landi, fyrr en á síðustu árum og þá aðeins undir hand- leiðslu manna, sem með ótrú- legri elju og fórnfýsi tókst að ná marktækum árangri. Nú er söngur barnakóra orðinn fastur liður í skólastarfinu og víða einn blómlegasti menningarþáttur þess. Skólayfirvöld viðurkenna uppeldislegt og menningarlegt gildi þessarar starfsemi og er von til þess hlúð verði að henni í framtíðinni. Það er mikilvægt að til þessara starfa veljist vel menntaðir og áhugasamir tón- listarmenn samhliða því, sem rækt er lögð við almenna kennslu í tónmennt. Á síðari árum hafa komið upp söngflokk- ar sem vakið hafa athygli fyrir vandaðan flutning erfiðra við- fangsefna og er Skólakór Garða- bæjar eitt glæsilegasta dæmið um þá nýsköpum tónmenntar, sem stendur yfir í landinu. Guð- finna Dóra Ólafsdóttir stjórn- andi kórsins á að baki mikið starf við skipulagningu tón- menntar í landinu, hefur tekið virkan þátt í almennu kórstarfi og oft komið fram sem einsöngv- ari. Það má segja að reynsla hennar og kunnátta í söng hafi blómstrað í þeim árangri, sem hún hefur náð með þjálfun Skólakórs Garðabæjar og kom glögglega fram á glæsilegum tónleikum kórsins s.l. sunnudag í Bústaðakirkju. Efnisskrá tón- leikanna var mjög fjölbreytt, allt frá almennum sönglögum eins og t.d. Sveinninn rjóða rósu sá, til nútímalegra verka eftir Hugo Diesler. Kórinn flutti öll þessi ólíku verk frábærlega vel, tandurhreint og með mikilli sönggleði. Hljómurinn í kórnum er mjög fallegur og mátti greina, bæði hjá einsöngvurum og í öllum röddum kórsins, einstakl- inga sem eru þegar orðnir Tönllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON nokkrir kunnáttumenn í söng- mennt. Jafnframt sem kórnum er óskað góðrar ferðar til Norð- urlanda er Garðbæingum óskað til hamingju með sínn glæsilega kór.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.