Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 Ásgeir, Standard | Jóhannes, Celtic U Pétur, Feyenoord Verða atvinnumennirnir allir með í Sviss ? NÚ FER að líða að því að knattspyrnan byrji fyrir alvöru. Reykjavíkurmótið, Meistarakeppnin og svo Litla og Stóra bikarkeppn- in hafa lengst af verið álitin nokkurs konar upphitunar- og æfingamót fyrir sjáift íslandsmótið. Ekki þurfum við lengi að bíða eftir því að fá að sjá landsliðið spreyta sig því að 26. maí verður leikinn vináttulandsjeikur við Vestnr-bjóðverja á Laugardalsvellinum. Fyrsti landsleikur íslands verður hins vegar í Sviss 22. maí, og er leikur sá liður í Evrópukeppni landsliðs. Verður mjög fróðlegt að sjá hvernig landsliðsnefnd stillir upp í fyrsta landsleik sumarsins. Margir ala með sér þá von í brjósti að í sumar komum við til með að eiga mjög sterkt lið, takist að ná saman þeim leikmönnum sem eru atvinnumenn erlendis. Aldrei fyrr hafa jafn margir dval- ið hjá fraegum liðum og staðið sig jafn vel. Til þess að grennslast fyrir um málið var rætt við for- mann landsliðsnefndar KSÍ, Helga Daníelsson. — Landsliðsnefnd hefur sett sig í samband við alla þá leikmenn, sem leika með erlendum félags- liðum, og innt þá eftir því hvort þeir sæju sér fært að leika þessa þrjá fyrstu landsleiki, verði þeir valdir í liðið. Við fengum mjög jákvætt svar hjá allflestum, þann- ig að við erum bjartsýnir á að geta stillt upp okkar sterkasta liði á móti Sviss 22. maí og aftur hér heima 9. júní. Öðru máli gegnir um leikinn á móti Vestur-Þjóðverjum 26. maí, því að þá verða leikir hjá sumum þeirra félagsliða sem hafa erlenda leikmenn í sínum röðum. — Við höfum fylgst vel með þeim leikmönnum, sem leika er- lendis, og haldið uppi fyrirspurn- um um getu þeirra. Okkur þykir ekki ástæða til að fara út til að sjá þá leika, þetta eru leikmenn, sem við þekkjum vel og við munum velja í landsliðið samkvæmt okkar bestu samvisku, sagði Helgi. Meðal þeirra sem landsliðs- nefndin hefur rætt við og þykja koma sterklega til greina í lands- liðið eru atvinnumennirnir í Belgíu, Ásgeir Sigurvinsson, Arn- ór Guðjohnsen, Karl Þórðarson og Þorsteinn Bjarnason. Pétur Pét- ursson í Hollandi, Jóhannes Eð- valdsson í Skotlandi og Teitur Þórðarson, Jón Pétursson og Árni Stefánsson í Svíþjóð. Eins og sjá má á þessari upp- talningu, ætti að vera hægt að velja sterkt lið þegar í hópinn bætast svo margir stórgóðir knatt- spyrnumenn hér heima, og má nefna Guðmund Þorbjörnsson, Martein Geirsson, Atla Eðvalds- son, Inga Björn Albertsson, Árna Sveinsson, Þorstein Ólafsson markvörð í Keflavík, Janus Guðlaugsson og Matthías Hall- grímsson. Youri landsliðsþjálfari þarf ekki að kvarta yfir að nægur efniviður sé fyrir hendi, nú er bara að stilla strengina svo að útkoman verði góð. — þr. • Meðfylgjandi mynd tók Kristján Einarsson af íslenska landsliðinu í lyftingum, sem keppir á Norðurlandamótinu í Danmörku um helgina. Á myndina vantar þó fáeina. Landsliðið skipa eftirtaldir lyftingamenn: Þorvaldur B. Þorvaldsson, Kári Elísson. Freyr Aðalsteinsson, Guðgeir Jónsson, Birgir Borgþórsson, Kristján Falsson, Guðmundur Sigurðsson, Árni Þór Helgason, Gústaf Agnarsson og Ágúst Kárason. Boðhlaup í Borgarfirði Ungmennafélag Stafholts- tungna í Borgarfirði efnir til mikils boðhlaups um félagssvæði sitt 1. maí næstkomandi. Hlaupa- vegalengdin er um 130 kílómetrar og er áætlaJ að hlauparar verði um 200. Hlaupið mun hefjast að Varma- landi klukkan 6 um morguninn og verður hlaupið um Norðurárdal, Þverárhlíð og Hvítársíðu. Reiknað er með að hlaupið taki uin 10,5 klukkustundir. Búist er við því að allmargir landeigendur muni sjálfir hlaupa í landareignum sín- um en að öðru leyti ekki reiknað með vissum vegalengdum á mann, heldur frekar hvað hver treystir sér til. Kraftajötnar í Danmörku íslenska landsliðið í lyftingum hefur í dag keppni í Norðurlanda- mótinu í lyftingum sem fram fer þessa helgi í Ringsted í Danmörku. í dag verður keppt í flokkunum 52—75 kílógrömm, en á morgun fer fram keppni í þyngri flokkunum, 82,5—110 kg og þar yfir. 10 íslenskir lyftingamenn eru meðal keppenda. Þorvaldur B. Rögnvaldsson, KR, keppir í léttasta flokkinum, 60 kílógrömmum. í 67 kg flokkinum keppir Kári Elísson, ÍBA, og sveitungi Kára, Freyr Aðalsteinsson, keppir í 75 kg flokkinum. Guðgeir Jónsson, KR, keppir í 82 kg flokkinum. í næstu tveimur flokkunum, 90 og 100 kg flokknum, eru tveir keppendur í hvorum, þeir Birgir Þór Borgþórsson, KR, og Kristján Falsson, ÍBA, og í 100 kg flokkinum keppa Guðmundur Sigurðsson, Ármanni, og Árni Þór Helgason, KR. í 110 kg flokkinum keppir Gústaf Agnarsson, KR, og loks í yfirþungavigtinni keppir Ágúst Kárason, KR. íslenskir lyftingamenn hafa sýnt umtalsverðar framfarir að undanförnu og reikna má með viðunandi árangri. Reykjavíkurmót fatlaðra FYRSTA Reykjavíkurmót í íþróttum fatlaðra verður haldið um fyrstu helgina í maí. , Laugardaginn 5. maí verður keppt í sundi í sundlaug Árbæjarskóla. Keppt verður í tveimur flokkum kvenna, yngri en 40 ára og eldri, svo og í karlaflokki. Sunnudaginn 6. maí verður keppt í Laugardalshöllinni í þessum greinum: Lyftingum í tveimur þyngdarflokkum, undir 67,5 kg og yfir. Borðtennis í tveimur flokkum, karla og kvenna. Boccia í tveimur flokkum, bæði í sitjandi og standandi stöðu, svo °g þriggja manna sveitakeppni. Þátttaka er heimil öllum félagsmönnum innan íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík og þarf að tilkynna þátttöku fyrir 1. maí til Iþróttafélags fatlaðra, Hátúni 12, eða til Í.B.R., PO B 864.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.