Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 Aðalfundur Mjólkursamsölunnar í Reykjavik: Mirmkuð mjólkur- og undanrennu- sala, en aukin skyr- og rjómasala Á aðalfundi Mjólkursamsöl- unnar í Reykjavík sem nýlega var haldinn kom m.a. fram að bráð- lega er að vænta ákvörðunar um hvort fyrirtækið hættir þátttöku í Vinnuveitendasambandinu, en það hefur verið til umræðu um tíma. Gunnar Guðbjartsson vara- formaður Mjólkursamsölunnar gerði grein fyrir störfum stjórn- arinnar og kvað hann m.a. nauð- synlegt að breytt yrði reglum um útborgun haustuppbótar á mjólk. Það væri brýnt hagsmunamál fyrir framleiðendur því of miklar sveiflur væru nú í framleiðslunni, allt frá 3,3 milljónum lítra í febrúar í 7 milljónir lítra í júlí. Þyrfti því að hækka verð á haust- mjólk, en lækka að sama skapi verð á sumarmjólk. Guðlaugur Björgvinsson framkvæmdastjóri Mjólkursamsölunnar gerði síðan grein fyrir rekstri og reikningum Mjólkursamsölunnar og kom eftirfarandi fram í ræðu hans: Innvegin mjólk í þau fjögur mjólkurbú sem er á svæði Mjólkursamsölunnar var 61,3 milljón lítra á síðastliðnu ári og er það 4,8% aukning frá fyrra ári. Hjá Mjólkurbúi Flóamanna var tekið á móti 42 millj. ltr. Mjókur- stöðin í Reykjavík fékk 5,3 millj. itr. Mjólkursamlagið í Búðardal tók á móti 3,1 millj. ltr. og mjólkursamlagið í Borgarnesi fékk 10,7 millj. ltr. Samtals voru seldir 32,1 millj. ltr. af nýmjólk eða 52% af innveg- inni mjólk. Það var samdráttur um 1,4%. Samdráttur varð einnig í sölu á undanrennu. Veruleg aukn- ing var í sölu á jógurt eða um 21%, söluaukning varð í skyri um 5,5% og sala í rjóma var 8,4% meiri árið 1978 en árið á undan. Mjólkur- framleiðendur á svæði Mjólkur- samsölunnar voru 1273 í árslok 1978, þeim hafði fækkað um 22 frá fyrra ári. Nokkrar nýjar afurðir komu á markaðinn á síðastliðnu ári, þar má nefna melónu- og kaffijógurt. Brotið var blað í sögu mjólkur- iðnaðarins þegar hafin var sala á Floridana appelsínusafa á árinu. En mjög góð sala var í þessum vörum á árinu, og salan á appel- sínusafanum skilaði umtals- verðum hagnaði. í árslok voru 232 starfsmenn hjá Mjólkursamsölunni, þeim hafði fjölgað um 7 |p árinu. Rekstur brauð og ísgerðar gekk mjög vel og er þetta eitt besta árið síðan hafinn var rekstur á þessum tveim deildum M.S. Fjárfesting var með minna móti, en aðalfjárfestingin var endurnýjun á átöppunarvél. Rekstrarkostnaður Mjólkursam- sölunnar lækkaði hlutfallslega miðað við undangengin ár, því hann reyndist vera 6,5% af sölu, en árið 1977 var hann 8,5% af sölu. Niðurstöðutala rekstrarreikn- ings M.S. á árinu var 7322 milljón- ir kr. Fyrningar voru rúmar 29 milljónir kr. og um 40 milljón': .r. voru lagðar í bygpingusjóð. Seldar voru mjólkurvörur fyrir 7109 millj. kr. Gundvallarverð mjólkur fyrir svæði Mjólkursamsölunnar var kr. 135.20 á hvern lítra, en út- borgunarverð aftur á móti kr. 135.48. Frá aðalfundi Mjólkursamsölunnar í Reykjavík Bátasýning Snarfara hefst á sunnudaginn Félag sportbátaeigenda, Snar- fari, gengst fyrir bátasýningu í Sýningahöllinni við Bíldshöfða dagana 28. apríl til 6. maí og verður hún opin daglega kl. 14—22. Á sýningunni verða sportbátar, fiskibátar, trillur, seglbátar, vatnabátar, gúmmí- bátar og loftpúðabátar. Þá verða sýndir keppnisbátar í væntan- legu sjóralli í júlí í sumar, flest siglingatæki fyrir þessar báta- stærðir, öryggistæki, talstöðvar og hlífðarfatnaður. Þá verður einnig tízkusýning og hver að- göngumiði gildir sem happ- drættismiði. Hátíðisdagur gamalla V erzlunarskólanema Ilátíðisdagur gamalla Verzlun- arskólanema verður að venju mánudaginn 30. aprfl. Um ára- tugaskeið var þessi dagur skóla- slitadagur Verzlunarskólans og eldri nemendur hafa ævinlega haldið þennan dag sérstaklega hátiðlegan. Nemendasamband skólans gengst að venju fyrir hófi að Hótel Sögu. Hófið hefst kl. 19.30 á mánudaginn. Tímamót eru hjá skólanum í ár, er dr. Jón Gíslason skólastjóri, brautskráir sinn síðasta nemenda- hóp eftir aldarfjórðungs starf sem skólastjóri. I afmælishófi Nem- endasambandsins nú eru þrír skólastjórar Verziunarskólans meðal boðsgesta, Vilhjálmur Þ. Gíslason, dr. Jón og nýráðinn skólastjóri Þorvarður Elíasson. Aðgöngumiðar að hátíðinni verða afhentir á skrifstofu Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur við Hagamel á föstudaginn og mánu- dag. Fulltrúar Verzlunarskólaár- gangs sem útskrifast eftir nokkra daga verða einnig á hófinu. Formaður Nemendasambands- ins er Kristinn Hallsson óperu- söngvari og mun hann stjórna afmælishófinu. AUGLÝSINGASÍHINN F.R: . 22480 JW»r0unt)lot>it> R:@ „Kynnist borginni” — Fjölskylduferð um Reykjavík LÍF og land efnir til fjölskyldu- ferðar um Reykjavík, sunnudag- inn 29. aprfl undir heitinu „Kynn- ist borginni*4. Leiðsögumcnn með hópnum verða þeir Hörður Ágústsson listmálari og Páll Líndal, fyrrverandi borgarlög- maður. Ferðin hefst kl. 10 að morgni á Kjarvalsstöðum þar sem leiðsögu- menn skýra ferðaáætlunina. Því næst verður ekið um höfuðborg- arsvæðið undir leiðsögn Harðar Ágústssonar. í hádeginu verður snæddur hádegisverður í Norræna húsinu og að því loknu gengið um elsta borgarhlutann. Páll Líndal verður leiðsögumaður í þessum hluta ferðarinnar sem lokið verður kl. 4 e.h. í leit að lífi eftir 3. heimstyrjöldina — Ný kvikmynd í NÝJA BÍÓ í Reykjavík hefur hafið sýningar á kvikmyndinni „Á heljarslóð“ (Damnation alley), sem gerð er eftir sögu Roger Zelazny. Kvikmyndahandritið er eftir Allan Sharp og Lukas Heller en leikstjóri er Jack Smight. Framleiðendur eru Jerome M. Zeitmann og Pual Maslansky en tónlist eftir Jerry Goldsmith. Myndin gerist í þriðju heims- styrjöldinni sem hefst óvænt með því að langdrægum flugskeytum Nýja bíói með kjarnorkusprengjum er skotið á helstu borgir Bandaríkjanna og öllu kviku þar eytt. Á flugvelli nokkrum lifa fáir menn þessar sprengingar af og þeir hætta sér loks upp á yfirborðið úr geisla- heldum fylgsnum eftir 2 ár. Þá hefja þeir leit að fleirum sem á lífi kunna að vera. Með aðalhlutverk í myndinni fara Jan-Michael Vincent, George Peppard, Dominique Sanda, Paul Winfield, Jackie Earle Haley, Kip Niven og Mark L. Taylor. URVALSVÖRUR PLANTERS PEANUT BUTTER HNETUSMJÖR OG HNETUOLÍA. peanutsj P ilniondsj ^ peanuts HNETUR — KRYDDAÐAR OG ÞURRSTEIKTAR ÁN OLÍU. mkhdnuts PIANTERSIPUNTERS i s”"X'í! ' jPE AN UTS HNETUR — STEIKTAR A VENJULEGAN HÁTT.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.