Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 Samkór Kópavogs syngur í Borgamesi og Snæfellsnesi * Samkór Kópavogs heldur tónleika í félagsheimilinu í Borgarnesi laugardaginn 28. apríl kl. 15.00 og í Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi sama dag kl. 21.30. Á efnisskránni eru erlend lög og innlend, þar á meðal syrpa af lögum eftir Sigfús Halldórsson. Stjórnandi kórsins er Kristín Jóhannesdóttir og undirleik annast Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir. Halldór Guðmunds- son formaður SlA FYRSTI aðalfundur Samhands íslenskra auglýsingastofa, SÍA, var haldinn nýlega en nú er um það bil ár síðan samhandið var stofnað. Af einstökum verkefnum á fyrsta starfsári ber helst að nefna fjölmiðlakönnun þá er Hag- vangur framkvæmdi fyrir sam- bandið. Fjölmiðlakönnunin var fyrsta meiriháttar tilraunin til að kanna fjölmiðlanotkun lands- manna og gefur reynslan af þessari fyrstu tilraun ástæðu til þess að ætla að slík könnun verði framkvæmd reglulega í framtíð- inni. Lög sambands íslenskra auglýs- ingastofa og þýðing á siðareglum alþjóða verslunarráðsins, sem auglýsingastofur innan SIA starfa eftir, hafa verið send til fjöl- margra opinberra aðila, félaga- samtaka og fyrirtækja til kynn- ingar á sambandinu. Á aðalfundi sambandsins var kjörin ný stjórn og skipa hana eftirtaldir: Halldór Guðmundsson, formaður, Bjarni Grímsson, ritari og Páll Vígkon- arson, gjaldkeri. Vormót og vorkaupstefna hestamanna á Suðurlandi Anna Concetta opnaði á sumardaginn fyrsta sýningu á 10 klippimyndum í matstofunni „Á næstu grösum". Sýningin verður opin til laugardagsins 5. maí alla virka daga frá 11—22. Anna er fædd og uppalin í Bandaríkjunum en er nú búsett hér. Móðir hennar er íslensk en faðir hennar Itali. Þetta er önnur sýning Önnu hér á landi en hún sýndi fyrir tæpum tveimur árum á Mokka. Ilestamannafélög á Suður- landi ásamt Rangæingadeild Hagsmunafélags hrossabænda og Kaupfélagi Rangæinga hafa ákveðið að hafa sameiginlega vormót þar sem tamdir stóð- hestar sem ekki eru í ættbók verða dæmdir og Vorkaup- stefnu þar sem tamdir hestar frá félögum aðildarfélaga verða prófaðir, sýndi*- og boðnir til sölu eftir tilboðum. Dagskrá mótsins verður sem hér segir: Föstudag 4. maí kl. 14: Stóð- hestar forskoðaðir, söluhestar mældir og prófaðir. Laugardag 5. maí: Fyrir hádegi verður forskoðun stóðhesta og sölu- hrossa haldið áfram ef þörf krefur, en kl. 13—14 verða stóð- hestar sýndir og kynntir, kl. 14—16 söluhross sýnd og kynnt, kl. 16—17 dómar á stóðhestum birtir og verðlaun afhent, kl. 17—18 söluhross sýnd og kynnt í flokkum og hópreið og kl. 18 opnuð tilboð. Mótið fer fram á félagssvæði hestamannafélagsins Geysis á Hellu. Stóðhestar verða geymdir í hesthúsi félagsins en söluhross í stóru húsi sem Kaupfélagið Þór hefur leigt aðildarfélögum. Árbók 1979 ■ ^ FERÐAFÉLAG ÍSLANDS árbókinni nafnaskrá félagslíf og reikningar félgsins. Þá kemur fram í bókinni að næstu verkefni í bókaút- gáfu Ferðafélagsins eru Lýsing á leiðum umhverfis Langjökul, sem dr. Haraldur Matthíasson ritar, Ódáða- hraun eftir Guðmund Gunnarsson, einnig mun dr. Guðmundur Sigvaldason rita í þá bók um jarð- fræði Ódáðahrauns. Ennfremur er í vinnslu bók um íslenzka steina, sem Sveinn Jakobsson jarðfr. tekur sam- an fyrir Ferðafélagið. Árbókin er prentuð í ísafoldar- prentsmiðju, litmyndirnar eru prentaðar í Offsetmyndum sf., lit- greindar í Myndamótum hf. Svört/hvítu myndirnar eru unnar í Litrófi. Yfirlitskort af svæðinu er unnið af Landmælingum íslands, þá hefur Gunnar Hjaltason teiknað svipmynd yfir inngangskaflann og einnig mynd á baksíðu bókarinnar. Ritstjóri Árbókarinnar er Páll Jóns- son, bókavörður, og hefur hann séð um útgáfu hennar í áraraðir. Árbækurnar eru einhver sú bezta íslandslýsing, sem völ er á, og ættu að vera til á hverju íslenzku menn- ingarheimili. (Frá FÍ) Klippimyndir sýndar „Á nœstu grösum” Sunnlenzkir gæðingar. Framkvæmdastjóri mótsins er Magnús Finnbogason á Lágafelli en formaður dómnefndar er dæmir stóðhestana verður Þor- kell Bjarnason hrossaræktar- ráðunautur og formaður dóm- nefndar er metur söluhross, mælir, flokkar og gengur úr skugga um að hrossin séu galla- laus verður Sigurður Haralds- son, Kirkjubæ. Ákveðið hefur verið að taka aðeins tamin hross á mótið og sömuleiðis að flokka söluhross eftir tveimur flokkum með eftirfarandi verðmiðunum: Einhæf hross og lítið tamin kr. 250—400 þúsund og góðir reið- hestar kr. 400—700 þúsund. Árbók Ferðafélagsins um Öræfasveitina Árbók Ferðafélags íslands fyrir 1979 er komin út. Þetta er 52. Árbók Ferðafélagsins og er hún um Öræfa- sveitina, og er rituð af Sigurði Björnssyni á Kvískerjum. Efninu er skipt í fjóra kafla: 1. Inngang, 2. Lífríki Öræfa, 3. Söguágrip og 4. Litast um í Öræfum. Árbókin er 164 bls. að stærð, 23 litmyndir prýða bókina auk fjölda svart/hvítra mynda. Árbókin er prentuð á vand- aðan pappír að venju. Auk þess eru í Kaffisala Kvennadeild Borgfirðingafé- lagsins er 15 ára um þessar mund- ir. Sú nýbreytni verður nú á starfsemi félagsins að hin árlega kaffisla og skyndihappdrætti verð- ur 1. maí n.k. í Domus Medica við Egilsgötu kl. 14—18. Pétur Eggerz sendiherra í Austurríki Hinn 20. april sl. afhenti Pétur Eggerz sendiherra dr. Rudolf Kirchschalaeger forseta Austur- ríkis trúnaðarbréf sitt sem sendi- herra íslands í Austurríki með aðsetur í Bonn, Vestur-Þýzka- landi. „20 nemendur verdi i bekk” Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi ályktun frá foreldra- ráði Foreldra- og kennarafélagi Laugarnesskóla: „Fundur í foreldraráði Laugar- nesskóla beinir því til fræðsluyfir- valda, að stefnt verði markvisst að því á næstu fimm árum, að nem- endafjöldi í bekkjum í grunnskól- um miðist við 20 nemendur í hverjum bekk“. Skipaður kjaradóm- ur verzlun- arinnar Skipaður hefur verið kjaradóm- ur verzlunarinnar, en honum er ætlað að fjalla um launalið samn- inga verzlunarmanna, sem skv. samningum frá 10. apríl sl. var vísað í kjaradóm, en samkomulag hafði tekist um nýja skipan launa- flokka. Kjaradóminn skipa 3 menn tilnefndir af yfirborgardómara: Hrafn Bragason borgardómari, er verður formaður dómsins, Sigríður Vilhjálmsdóttir þjóðfélagsfræð- ingur og Torfi Ásgeirsson hag- fræðingur. Samtök verzlunar- manna skipuðu Magnús L. Sveins- son og Björn Þórhallsson og vinnuveitendur skipuðu Einar Árnason og Skúla Pálmason. Kjaradómnum er ætlað að hafa lokið störfum fyrir 15. maí n.k. Tímarit Gigtarfélags íslands komið Blaðinu hefur borist tímarit Gigtarfélags íslands. Meðal ann- ars efnis í tímaritinu eru lög félagsins, fréttir af starfsemi þess og grein um Gigtsjúkdómafélag íslenskra lækna. Tímaritið fæst á skrifstofu félagsins, Hátúni 10, en þar er opið alla mánudaga frá kl. 2-4 e.h. Aðalfundur Gigtarfélagsins var haldinn 7. apríl s.l. og var Guðjón Hólm Sigvaldason endurkjörinn formaður félagsins en aðrir í stjórn eru Kári Sigurbergsson, Sigurður H. Ólafsson, Jón Árna- son og Guðrún Helgadóttir. MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRÆTI • SÍMAR: 17152-17355

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.