Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRIL 1979 33 Pottasleikir ! Hæ, krakkar! Hér byrjar nýr þáttur, sem verður öðru hverju á dagskrá hjá okkur á næstunni. Við vitum, að mörg ykkar hafa gaman af því að búa til ýmiss konar mat sjálf. Og hvers vegna ekki að reyna upp á eigin spýtur með leyfi þeirra eldri? Á næstunni eykst enn fjölbreytni grænmetis í verslunum — og hver veit nema hinir fullorðnu hafi áhuga á því að spreyta sig á hollu og góðu fæði! Bestu kveðjur frá Pottasleiki og öllum hinum! Flest grænmeti getum við borðað hrátt, og þannig finnst börnum það best. En við verðum að gæta þess vel, að C-vítamínið og steinefnin fari ekki til spillis. Nokkrar reglur, sem þú þarft að muna: 1. Best er að nota áhöld úr stáli. 2. Búðu hrásalatið til rétt áður en þú ætlar að borða það. 3. Þurfi hrásalat að standa svolítið, verður þú að leggja eitthvað yfir það. 4. Láttu aldrei flysjað grænmeti liggja í vatni. Vatnið dregur til sín steinefni og B- og C-vítamín. Hrásalat 1 1 stór gulrót, 1 epli, 1 lítill kálbiti, 1 lítill selleríbiti. Hrásalat 2 2 stórar gulrætur, safi úr 1/2 sítrónu, 1—2 tsk. púðursykur. Aðferð: 1. Athugaðu reglurnar um meðferð grænmetis, sem fylgja hér með. 2. Þvoðu og flysjaðu grænmetið. 3. Rífðu grænmetið á rifjárni, í grænmetiskvörn eða brytjaðu það smátt. 4. Blandaðu öllum tegundum saman í skál. Þetta eru aðeins 2 tillögur um hrásalat. Þú getur fundið margar uppskriftir af hrásalati í matreiðsiubókum eða búið þær til sjálfur. Hvaða grænmetistegundir þú notar í salatið fer eftir því, hvað er fáanlegt og smekk og ímyndunarafli sjálfs þíns. Hrásalat er hægt að nota sem sjálfstæðan rétt eða með öðrum mat til morgunverðar miðdegisverðar kvöldverðar Þar að auki eru ýmsar tegundir grænmetis og hrásalöt ágætar sem álegg. Kennarinn í skólanum. Teikning: Gunnlaugur Guðlaugsson, 11 ára Langholtsskóla. Afmælissýning í Gallerí Suðurgötu 7 SÝNING á verkum aðstandenda Gallerís Suðurgötu 7 opnar n.k. laugardag kl. 14 í galleríinu. Til- efnið er að nú eru liðin tvö ár frá því að fyrsta sýningin var opnuð í galleríinu en það var samsýning aðstandenda sem opnaði 30. apríl 1977. Á þessum tveimur starfsár- um Suðurgötunnar hafa verið haldnar um 40 myndlistarsýning- ar í galleríinu auk þess sem það hefur staðið fyrir öðrum listvið- burðum á sviði tónlistar og leik- listar. Galleríið hefur auk þess gefið út tímaritið „Svart á hvítu“ er fjallar um hinar ýmsu listgrein- ar eins og kvikmyndir, myndlist, tónlist, leiklist og þar birtast einnig frumsamdar og þýddar skáldsögur eftir helstu skáld lands vors og veraldar. Afmælissýningin verður opin frá kl. 16—22 virka daga og 14—22 um helgar. Sýningunni lýkur sunnudaginn 13. maí. Loðnubátum bannaðar þorsknetaveiðar frá 1. maí til 15. júlí ALLAR þorskfisknetaveiðar um- hverfis landið eru bannaðar frá 13. maí til 20. maí næstkomandi, að undanskildu því að bátum á svæðinu frá Raufarhöfn að Gerpi er heimil veiði þessa daga. Yfir- byggðum loðnuskipum, sem stunduðu loðnuveiðar á vetrar- vertíðinni, eru bannaðar allar veiðar í þorskfisknet frá 1. maí tii 15. júh' næstkomandi. Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Sjávarútvegsráðuneytinu: I samræmi við þá ákvörðun ráðuneytisins, sem getið hefur verið í fréttum, að stöðva yfir- standandi netavertíð 1. maí n.k., hefur í dag verið gefin út reglu- gerð um stöðvun veiða þann dag í þorskfisknet fyrir Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt reglu- gerðinni eru frá og með 1. maí n.k. afturkölluð öll þorskfisknetaveiði- leyfi báta sem á vertíðinni hafa stundað netaveiðar á svæði, sem að austan takmarkast af línu réttvísandi austur frá Eystrahorni og að norðan af línu réttvísandi norður frá Horni. Bátar sem netaveiðar hafa stundað fyrir Norður- og Austur- landi á þessum vertíðartíma, geta haldið veiðum áfram á þessu svæði til 13. maí en frá og með þeim degi eru allar þorskfiskanetaveiðar umhverfis landið bannaðar til og með 20. maí n.k. Veiðibann þetta gildir þó ekki fyrir báta sem gerðir eru út á NA-landi á svæðinu frá Raufarhöfn að Gerpi, enda hafa bátar á þessu svæði ekki getað stundað veiðar í lengri tíma vegna hafíss. Þá er ákveðið í reglugerðinni að yfirbyggðum loðnuskipum, sem loðnuveiðar hafa stundað á þessu ári séu bannaðar allar veiðar í þorskfisknet frá 1. maí til 15. júlí n.k. Eins og kunnugt er hefur áður verið ákveðið að banna allar neta- veiðar á tímabilinu frá 15. júlí til 15. ágúst n.k.“ Sex skip á kol- munnaveidar SEX skip. sem stundað haía bræðslufiskveiðar, hafa fengið leyfi til kolmunnaveiða við Fær- eyjar. Halda þrjú skipanna vænt- anlega á miðin um helgina, en kolmunnaveiðarnar við Færeyjar standa út maímánuð. Skipin sem ætla á kolmunna við Færeyjar eru Bjarni Ólafsson og Víkingur frá Akranesi, Eldhorg. Hafnar- firði, Grindvíkingur, Grindavík, Huginn. Vestmannaeyjum. og Jón Kjartansson frá Eskifirði. Bjarni, Eldborgin og Jón Kjart- ansson verða væntanlega fyrst skipanna á miðin. Bjarna Ólafs- syni og Grindvíkingi hefur verið breytt í svartolíuskip síðan á loðnuvertíðinni í vetur, en Grind- víkingur er nú í ársskoðun hjá framleiðendum ytra og fer beint á kolmunnaveiðarnar að því loknu. Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: 28. apríl 1979 Innlausnarverö Seðlabankans Kaupgengi m.v. 1 érs Yfir- pr. kr. 100.-: tímabii frð: gengi 1968 1. flokkur 3.233.44 25/1 '79 2.855.21 13.2% 1968 2. flokkur 3.040.16 25/2 '79 2.700.42 12.6% 1969 2. flokkur 2.260.29 20/2 '79 2.006.26 12.7% 1970 1. flokkur 2.075.34 15/9 '78 1.509.83 37.5% 1970 2. flokkur 1.501.08 5/2 '79 1.331.38 12.7% 1971 1. flokkur 1.407.24 15/9 '78 1.032.28 36.3% 1972 1. flokkur 1.226.58 25/1 '79 1.087.25 12.8% 1972 2. flokkur 1.049.75 15/9 '78 770.03 36.3% 1973 1. flokkur A 795.81 15/9 '78 586.70 35 6% 1973 2. flokkur 732.86 25/1 '79 650.72 12 6% 1974 1. flokkur 508.10 1975 1. flokkur 413.79 1975 2. flokkur 315.79 1976 1. flokkur 300.07 1976 2. flokkur 243.71 1977 1. flokkur 226.33 1977 2. flokkur 189.61 1978 1. flokkur 154.50 1978 2. flokkur 121.96 VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100.- 1 ár Nafnvextir: 26% 78—79 2 ár Nafnvextir: 26% 69—70 3 ár Nafnvextir: 26% 63—64 *) Miðað er við auðseljanlega fasteign. Nýtt útboð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs: 1979 1. flokkur 100.00 + dagvextir. piÓRPcrrincARPiuKi bumDf». VERÐBRÉFAMARKAÐUR LÆKJARGÖTU 12 R. (lönaðarbankahúsinu). Sími 2 05 80. Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.