Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979
47
IR-ingar # úrslit
sigruðu FH19-18
ÍR-INGAR sigruðu FH 19—18 í undanúrslitum bikarkeppni HSI í
gærkvöldi í Laugardalshöliinni, og tryggðu sér þar með rétt til að
leika í úrslitunum á móti Víkingi á sunnudagskvöld. Er þetta í fyrsta
skipti sem lið ÍR nær svona langt í keppninni.
Allmikil spenna var í síðari hálfleik liðanna í gær, og þegar sjö
mínútur voru eftir af leiknum var staðan jöfn 16—6, og hafði það
verið jafnt á öllum tölum í hálfleiknum. Janusi tekst að ná forystunni
fyrir FH 17—16, og Guðjón Marteinsson jafnar fyrir ÍR með laglegu
marki. Nú var ailt að suðupunkti og ailt gat gerst. Þegar rétt rúm ein
mínúta er eftir fær Guðmundur Árni gott marktækifæri, en lætur Jens
verja hjá sér. Var þetta afdrifaríkt, því að í næstu sókn fá ÍR-ingar
vítakast, og aðeins mínúta til leiksloka. Sigurður Svavarsson skoraði
örugglega og færði ÍR forystu.
í næstu sókn var mikið fum á
FH og Janus gloprar boltanum í
hendur ÍR-inga og þeir ná skyndi-
sókn sem Brynjólfur skorar úr og
gerir út um leikinn. Á síðustu
sekúndunum minnkar Janus svo
muninn niður í eitt mark.
Ekki er hægt að segja að leikur-
inn hafi verið vel leikinn, mikið
var um mistök á báða bóga, og á
stundum jaðraði við kæruleysi
leikmanna. Sérstaklega var fyrri
hálfleikurinn lélegur. Varnarleik-
ur og markvarsla liðanna slök,
lagaðist það þó er líða tók á síðari
hálfleikinn.
Lið IR barðist vel í leiknum,
sérstaklega á lokakaflanum, Jens
varði nokkuð vel, og gerði þetta
útslagið í leiknum, sem var afar
jafn. Bestu menn í liðinu voru Jens
markvörður, og þeir Brynjólfur og
Guðjón Marteinsson. Þá er hægt
að hrósa Sigurði Gíslasyni og
Bjarna Bessasyni fyrir góða bar-
áttu í vörninni.
í liði FH kemur alls ekkert út úr
yngri mönnum liðsins og er alveg
með ólíkindum hversu ragir þeir
eru og framtakslausir í leik sínum.
Geir og Janus voru bestir og þeir
einu sem sýndu einhvern frísk-
leika hjá FH, enda skoruðu þeir 12
af 18 mörkum liðsins. Þá var
varnarleikur liðsins afar fálm-
kenndur, sérstaklega í fyrri hálf-
leiknum, og var Birgir Finnboga-
son sem lék í marki FH ekki
öfundsverður af hlutverki sínu,
enda gekk honum illa að ná til
boltans.
Mörk ÍR: Guðjón Marteinsson 5,
Brynjólfur Markússon 4, Sigurður
Svavarsson 3, Bjarni Bessason 3,
Guðmundur Þórðarson 1, Bjarni
Hákonarson 1, Ársæll Hafsteins-
son 1, Hafliði Halldórsson 1.
Mörk FH: Janus Guðlaugsson 7,
Geir Hallsteinsson 5, Guðmundur
Magnússon 2, Sæmundur Stefáns-
son 1, Kristján Arason 1, Viðar
Símonarson 2.
- þr.
Stórt gat hetur opnast í vörn ÍR-inga og Janus Guðlaugsson notar sér smuguna vel, stekkur í gegn og
skorar eitt sjö marka sinna í leiknum í gærkvöldi. Jens Einarsson markvörður ÍR er við öllu búinn,
naínarnir Sigurður Gíslason til hægri og Svavarsson til vinstri fylgjast með.
Bikarúrslitin á morgun
Tekst Víking að
verja titilinn?
Á MORGUN sunnudag kl. 20.30 fer fram úrslitaleikur-
inn í bikarkeppni HSI í handknattleik. Verður þetta í 6.
skipti sem keppt er í bikarkeppni HSÍ. Bikar sá er
Breiðholt HF gaf á sínum tíma er nú kominn í eugu FH,
en þeir hafa sigrað oftast í keppninni. Nú er í fyrsta sinn
keppt um nýjan og glæsilegan bikar og verðlaunagripi
sem Frjálst Framtak og íþróttablaðið hefur gefið.
Lokin á bikarkeppninni eru svo gott sem lok handknattleiksver-
tíðarinnar, því aðeins á eftir að leika úrslitaleikina í yngri flokknum.
Má búast við því að sannkölluð bikarstemmning komi til með að ríkja í
höllinni á sunnudagskvöldið. ÍR-ingar hafa nú í fyrsta skipti tryggt
sér rétt til þess að leika til úrslita, og ekki er að efa að þeir munu
leggja sig alla fram til að leggja núverandi meistara Víkings af veili
og tryggja sér rétt til þátttöku í Evrópukeppninni.
Má búast við mikilli hörkuviðureign milli liðanna.
- Þr.
Mótmæli
Leikmcnn og þjálfari M.fl.
Í.B.K. í handknattleik kvenna,
mótmæla harðlega þeirri sví-
virðilegu framkomu móta-
nefndar H.S.Í. að ætlast til
þess, að við leikum 4 úrslita-
leiki á 5 dögum, þ.e. 24., 26.,
27. og 28. apríl. Þessi mótmæli
sýnum við í verki með því að
mæta ekki til leiks 27. og 28.
aprfl. Jafnframt skorum við á
mótanefnd H.S.Í. að endur-
skoða afstöðu sína og ákveða
ieikdaga úrslitaleikjanna við
Víking á sanngjarnan hátt svo
að við fáum tíma til þess að
jafna okkur eftir hina erfiðu
leiki sem fram fóru 24. og 26.
aprfl s.l. Ef það verður ekki
gert og Víkingi dæmdur sigur-
inn þá lítum við svo á, að
mótanefnd H.S.Í. hafi fært
Víkingi sigurinn á silfurfati
og mismunað þannig liðunum
gróflega. Við krefjumst þess
ennfremur að mál þetta verði
tekið fyrir hjá mótanefnd
H.S.Í. þegar í kvöld og að við
verðum upplýst um niðurstöð-
ur fundarins þegar að honum
loknum.
Opiðbréftil
Mótanefndar BLÍ
VIÐ UNDIRRITAÐIR ókrýndir íslandsmeistarar í blaki karla
1979, U.M. Laugdælir, lýsum yfir undrun okkar á hegðun ykkar
gagnvart okkur, þar sem við erum ekki enn búnir að fá
verðiaunin afhent og fáum engin svör hvenær. Liðinn er tæpur
mánuður frá sigri okkar og er þetta of langt gengið án þess að
hreyfa við þessu máli. Á þessum tíma hefur farið fram
verðlaunaafhending fyrir bikarkeppni og þar fór ekki á milli
mála hverjir urðu sigurvegarar, því þar var mótanefnd ekki
sofandi, til ábendingar fyritþá sem misstu af því skulu þeir fletta
blöðunum frá því í síðustu viku. Vlð Laugdælir bendum
mótanefnd á að aðsetur okkar er á Laugarvatni og geta þeir sent
okkur verðlaunin í pósti ef önnur leið er ekki möguleg. Áð lokum
viljum við segja að við teljum það kappsmál Blaksambandsins að
standa vel að öllum mótum, og með þessum skrifum erum við að
vekja athygli á þessum vinnubrögðum því þá er hægt að komast
hjá þeim.
Með virðingu, Blakdeild Laugdæla!
Grindavík í 1. deild
GRINDAVÍK varð meistari í 2. deild kvenna í handbolta með því
að sigra ÍBK í síðari leik liðanna sem fram fór í fyrrakvöld. Lið
þessi urðu jöfn að stigum í efsta sæti deildarinnar og urðu því að
leika aukaleiki um sigurinn í deíldinni. Fyrri leik liðanna lauk
með jafntefli, 8—8, en í fyrrakvöld bættu Grindavíkurstúlkurnar
um betur og unnu 8—5.
Grindavfk tekur því sæti Breiðabliks í 1. deild, en Keflavíkur-
dömurnar heyja um þessar mundir mikið maraþon, því að í
gærkvöldi léku þær fyrri leik sinn við Víking og í dag leika þær
síðan síðari leik sinn við Víking. Víkingur varð í næst neðsta sæti
1. deildar, en Keflavík í næst efsta sæti 2. deildar og er venjan að
þau lið leiki tvo aukaleiki um 1. deildar-sætið.
Fram í úrslit
í bikarnum
ÞAÐ VERÐA Fram og KR sem leika til úrslita í bikarkeppni HSÍ
í kvennaflokki. Fyrir skömmu vann KR Hauka 12—11 í
undanúrslitum og í fyrrakvöld tryggðu íslandsmeistararnir
Fram sér sæti í úrslitunum með öruggum sigri yfir FH. Skoraði
Fram 13 mörk, en FH svaraði níu sinnum fyrir sig. Úrslitaleikur
Fram og KR hefst á sunnudaginn klukkan 19.00.
Reykjavíkurmótið:
Tveir leikir
TVEIR LEIKIR fara fram í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu um
helgina. Á laugardaginn leika klukkan 14.00 Fram og Þróttur og
á sunnudaginn leika á sama tíma lið KR og Fylkis. Báðir leikirnir'
fara fram á Melavellinum.
Staðan í mótinu er sú, að Valur er með nokkuð örugga stöðu og
leikir þessir skipta helst máli í sambandi við hvaða lið verða næst
Valsmönnum í mótinu.
Markið var
ekki mark!
EIGI ALLS fyrir löngu voru Arnór Guðjohnsen og félagar hans
hjá belgfska liðinu Lokeren slegnir út úr bikarkeppninni þar í
landi. Tapaði Lokeren á heimavelli fyrir Beerschot 0—1.
Á sínum tíma mótmæltu leikmenn Lokeren markinu við dómara
leiksins, töldu knöttinn ekki hafa farið inn fyrir marklínuna.
Dómarinn tók ekkert slíkt í mál og lét markið standa. Daginn
eftir sannaðist á sjónvarpsmynd, að knötturinn fór í rauninni
aldrei yfir lfnuna. En það var ekkert gert í máiinu, það þýðir
ekkert að deila við dómarann.
Feyenoord endur-
ræður þjálfara
FEYENOORD, félagið sem Pétur Pétursson leikur með í
Hollandi, hefur endurnýjað samning sinn við hinn tékkneska
þjálfara liðsins, Vaclaw Jezek.
Jezek gerði tékkneska landsliðið að Evrópumeisturum árið 1976
og hann hefur gert góða hluti með lið.Feyenoords í vetur, þannig
er félagið í öðru sæti í hollensku deiidarkeppninni. Hinn nýi
samningur Jezeks nær til júní 1981.