Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 48
ASlN<;AS!MINN ER: 22480 2flor£imbT«fcit> AL'í;LYSIN(Í AS1MI\N ER: 22480 JWarfiiwfclflöil) LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 Farmannaverkfallið: „Þungt um rétta hreyfingu á málinu” — segir Torfi Hjartarson sáttasemjari SÁTTAFUNDUR í far- mannadeilunni stóð frá klukkan 16 fram undir klukkan 20 í gærkvöldi. „Menn svona talast við, en það virðist þungt um rétta Kaskótrygging bifreióa: Tryggiiiga- félöginfara fram á nær 70 prósent hækkun hreyfingu á málinu,“ sagði Torfi Hjartarson sátta- semjari, er Mbl. spurði hann um fundinn. Vinnuveitendasamband íslands setti í gærmorgun fram þá kröfu til undir- manna á farskipum, að samningar þeirra verði nú endurnýjaðir án hækkunar á heildarlaunakostnaði, en launahækkun náist með breytingum á reglum um áhafnastærð og ýmsum ein- földunum á samningunum. Boðuðu undirmenn í gær að þeir myndu leggja fram sínar kröfur á mánudags- morgun. Sjá: Aukaflugferðir um helgina vegna vöruflutn- inga bls. 2. / gær var komið á loftbrú milli Vestmannaeyja og Bellu á Rangárvöllum, til að flytja mjólk og mjólkurvörur til Eyja, en þar hafði þá verið mjólkurlaust á fjórða sólarhring vegna farmanna- deilunnar. Framan aí degi ígærgátu flugvélar Flugfélags íslands ekki flogið til Eyja vegna misvinda, en farnar voru tuttugu ferðir frá Hellu á tveimur litlum vélum frá Vængjum og Eyjaflugi. Hér er verið að afferma eina vélina ígær, og eins og sjá má er farmurinn mjólk og aftur mjólk. Sjá „Áhrifa farmannadeilunnar farið að gæta íEyjumu á blaðsíðum 24 og 25 íMorgunblaðinu ídag. Ljósm: Sigurgeir. NÝTT tímabil húftrygg- ingar bifreiða, þ.e. kaskó- tryggingar, hefst 1. maí n.k. Tryggingafélögin sendu tryggingaráðuneyt- inu hækkunarbeiðni s.l. miðvikudag og samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, fara þau fram á um 70%hækkun. Frumvarp um ríkiseinokun á sölu bruggefna: Ríkisstjórnin hyggst stöðva sölu á öl- og víngerðarefni Ráðuneytið mun væntanlega senda Tryggingaeftirlitinu erindi tryggingafélaganna til umsagnar einhvern næstu daga og þegar umsögn þess liggur fyrir mun ríkisstjórnin taka ákvörðun um það hve mikla hækkun þau heimiia. Eins og kunnugt er hófst nýtt tímabil ábyrgðartrygginga 1. marz s.l. Þá óskuðu tryggingafélögin eftir 79% hækkun en var heimiluð rúmlega 44% hækkun. RÍKISSTJÓRNIN lagði í gær fram í efri deild Alþingis frum- varp til laga um breytingu á áfengislöggjöfinni, sem veitir, ef samþykkt verður, ríkisstjórninni einkaleyfi á innflutningi til- búinna bruggunarefna, „hverju nafni sem nefnast, þar með taldir hvers konar lifandi gerlar.“ í samtali við Mbl. kvaðst Höskuld- ur Jónsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, fullviss um að varningur sambærilegur þeim, sem mest hefur verið notaður til I öl- og víngerðar í heimahúsum, verði ekki fluttur inn og boðinn til sölu á vegum Áfengis- og tóbakseinkasölu ríkisins. Ástæður þess, að frumvarpið er lagt fram og getið er í ítarlegri greinargerð með frumvarpinu eru m.a., „að tekjur ÁTVR af áfengis- sölu á sl. ári voru ca. 1,5 milljarði kr. lægri en gert var ráð fyrir að þær yrðu samkvæmt fjárlögum 1978. Þá eru tekjur ATVR af áfengissölu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs ca. 20% lægri en gert hafði verið ráð fyrir. Verði ekkert aðhafzt til að hamla gegn þessari þróun hefur það í för með sér að tekjur ÁTVR verða a.m.k. 3 milljörðum kr. lægri í ár en gert var ráð fyrir að þær yrðu sam- kvæmt fjárlögum," segir í greinar- gerðinni. Þá er í greinargerð með frum- varpinu skýrt frá „fræðilegri" athugun fjármálaráðuneytisins á því hve mikið áfengi mætti fram- leiða úr því magni sem stærsti innflytjandi slíkra efna flutti inn á árinu 1978. Ölgerðarverkfræðingi taldist til að úr þessu magni bruggunarefnis mætti framleiða 250.000 flöskur , 0,7 lítra, af brennivíni með 40% styrkleika miðað við rúmmál Sjá viðtal við innflytjanda á bls. 22. Hans G. Andersen 1 forseta- stólnum ÞEGAR langt var liðið á kvöld á fundi Hafréttarráðstefnunnar í gær, stóð Amerasinge, aðalforseti ráð- stefnunnar, upp og kvaddi Hans G. Andersen sendiherra til þess að stjórna ráðstefnunni. Forsetastörfin höfðu allan daginn verið mjög eril- söm og var Amerasinge greinilega orðinn þreyttur. Síðast þegar Morgunblaðið hafði spurnir af ráð- stefnustörfum í gærkveldi, var Hans enn í forsetastóli. H af r étt arr áóst ef nan: Réttindm utan 200mílna nú okkar aðalviðfangsefni • n • r 1 ¥T r ar W r -a-a • • ar segir Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður „NIÐURSTAÐA hafréttarfund- anna er sú að verulegur árang- ur hefur náðst og aðstaða ls- lands hefur styrkzt,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson al- þingismaður er Mbl. ræddi við hann 1 Genf 1 gærkvöldi. „Þau atriði, sem við höfum barizt fyrir hafa haldið velli og munu gera héðan af,“ sagði Hans G. Andersen formaöur íslenzku sendinefndarinnar í Genf. „Við vorum mjög ánægðir í morgun, þegar við fréttum að setningin í 77. grein, sem tak- markar réttindin á neðansjávar- hryggjum, myndi ekki vera í tillögum formanns annarrar nefndar. Það var svo staðfest, þegar tillögunum var útbýtt eftir hádegið," sagði Eyjólfur Konráð. „í stað setningarinnar er sett athugasemd um að málið þurfi að skoða betur. Réttindin á Reykjaneshrygg ættu því ekki að vera í hættu. Athyglisvert er einnig að for- maðurinn setur fjarlægðarmörk- in 350 sjómílur, það er að segja 150 mílur út frá efnahagslögsög- unni, þó að Rússar hefðu horfið frá þeim hugmyndum og miðað aftur réttindin við 300 mílur. Aðalviðfangsefni okkar á næstu mánuðum og ef til vill Eyjólfur Konráð Jónsson misserum verða réttindin utan 200 mílnanna. Þar er annars vegar um að ræða víðáttu land- grunnsins og reglur um hana, lögun þess og jarðfræði ásamt ákvörðunum um skiptingu milli landa, og hins vegar réttindi smáeyja eins og Jan Mayen og kletta eins og Rokksins. Áreiðanlegt er að við verðum nú að vera vel á verði. Nokkur árangur hefur þegar náðst en miklu meira er ógert," sagði Eyjólfur. Sjá: „Aðstaða íslands hef- ur styrkzt á Genfarfund- unum“. Samtal við Hans. G. Andersen sendiherra bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.