Morgunblaðið - 28.04.1979, Síða 21

Morgunblaðið - 28.04.1979, Síða 21
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 21 BLðM VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. (203) Sumarblóm Skjaldflétta Á köldu vori er hætt við að ýmsir séu heldur síðbún- ir með sáningu sumar- blóma. Þættinum barst fyr- ir nokkru pistill um sumar- blóm frá Sigurlaugu í Hraunkoti, en hún hefur fyrri verið okkur innan- handar með leiðbeiningar um ræktun þeirra. Verður sagt frá tveim tegundum sem líklegt er að enn sé nægur tími til að sá fyrir á þessu vori: „Fjölmörgum sumar- blómum þarf að sá inni til þess að lengja blómgunar- tíma þeirra og vaxtartíma. Sé sáð til þeirra um það bil 4—6 vikum áður en þeim skal plantað út, eru þau á allan hátt öruggari og viss- ari með blómskraut. Skjaldfléttur — Nasturdium, Tropaéolum Af þeim eru mörg af- brigði og þær eru yfirleitt ágæt sumarblóm. í ræktun eru bæði hávaxin — og þá klifrandi afbrigði — og svo lágvaxin. Skjaldfléttur má nota úti og einnig inni sem pottablóm. Þær eru blóm- sælar og bera gul, rauð eða tvílit (gul/rauð) blóm. Stundum eru þær hálffyllt- ar. Lágvöxnu afbrigðin sóma sér vel í beði en þau hávöxnu þurfa að fá net eða annað til að klifra í. Einnig má setja klifur-skjaldflétt- ur í hengipotta eða hafa þær í smákössum á svölum og láta þær hanga út yfir svalagrindurnar. Á sumum afbrigðunum eru blöðin einnig skrautleg t.d. er af- brigðið Alaska, sem er lág- vaxið, með græn- og hvít- flekkótt blöð. Annað ágætt lágvaxið afbrigði er„Whirlybird“, það er stórblóma og ber blómin á stuttum stilkum vel upp fyrir blaðskrúðið. „Jewel“ er hálf ofkrýnt og „Fiery Festival“ er hárautt og ilm- andi. Skjaldfléttur hafa fleira sér til ágætis en að vera falleg sumarblóm, t.d. forðast kálflugan það svo má nota það í salat, bæði blöð og blóm. Ef blómin eru klippt fínt niður yfir salat- skálina er það bæði puntu- legt og gefur saltainu gott kryddbragð. RegnboÖi — Dimorphoteca Regnboðinn er suður-afr- ískur að uppruna en tekur því mjög vel að lifa og blómstra í íslenskri mold. Þetta er körfublóm í fjöl- breyttum litum, oftast gul- leitum en einnig eru til hvít og laxableik afbrigði. Körf- urnar eru einstæðar á nokk- uð löngum stilkum. Regn- boðinn er þægur í ræktun en ekki ætti að setja hann í mjög rakan jarðveg, það á ekki við hann. Hann lokar körfum sínum í regni. Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræðingur: Á að gera dragnótina að flokkspólitísku bitbeini? Margt hefir dragnótinni verið fundið til foráttu á undanförnum árum, en fram að þessu hefi ég ekki orðið þess var, að hún hafi verið notuð í* flokkspólitískum áróðri og vona að svo verði heldur ekki framvegis. Útaf þessu bregð- ur þó í grein eftir Pétur Gaut Kristjánsson í Morgunblaðinu 21. þ.m. Pólitískar árásir hans á Alþýðuflokkinn og þingmenn hans koma mér ekki við og verður þeim þess vegna ekki svarað hér. Hins vegar víkur hann að málefnum, sem snerta starf mitt, og mun ég leitast við að fara um þau nokkr- um orðum, ef það mætti verða mönnum til skilningsauka. Undanfarin ár hefir Hafrann- sóknastofnunin gert tilranunir með dragnótaveiðar í Faxaflóa og á Hafnaleir og höfum við Guóni Þorsteinsson,' fiskifræðingur, ann- ast þær og hefir þar ekki verið um neitt yfirskin að ræða, þó að Pétur Gautur virðist halda það. Hafrannsóknastofnunin hefir oft þurft að taka skip eða báta á leigu til fiskirannsókna. Hefir þá ýmist verið greidd ákveðin leiga á dag eða skipið fengið aflann og þá jafnan einnig tryggingu fyrir lá- marksafla. Ólafur Björnsson, útgerðarmað- ur í Keflavík, lánaði okkur bát til fullra umráða til áðurnefndra dragnótarannsókna. Fékk hann aflann í sinni hlut án nokkurrar tryggingar, ef lítið veiddist, og heyrir slíkt til undantekninga, að svo vel semjist. Þess ber að geta, að rannsóknir tefja veiðarnar oft mikið, svo að afli verður rýr, miðað við venjulegar fiskveiðar. Frá báti Ólafs fór t.d. fram köfun og ljósmyndun neðansjávar. Ólaf- ur hefir einnig á ýmsan hátt greitt götu okkar í sambandi við þessar rannsóknir og sparað Hafrann- sóknastofnuninni þar með útgjöld. Tel ég, að hann eigi fremur þakkir en skammir skildar fyrir það, enda þykja rannsóknir okkar fiskifræð- inganna jafnan nógu dýrar þegar sótt er um fjárveitingar til þeirra. Á einum stað í grein sinni segir Pétur Gautur þar sem hann talar um dragnótaleyfi í Faxaflóa. „Vit- að mál er að leyfishafar munu ekki aðallega drepa skarkola, jafnvel ekki ýsu, heldur þorsk." Þessi fullyrðing getur ekki staðist þar sem nú er um að ræða dragnót Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræð- ingur. með 170 mm möskva. í slíkt veiðarfæri fæst ekki nema lítið af bolfiski og hann aðeins stór. Það er rétt hjá Pétri Gaut, að miið hefir verið deilt. um dragnót- ina hérlendis að undanförnu, en við Guðni Þorsteinsson höfum birt það mikið af óhlutdrægnum niður- stöðum um hana, að menn ættu nú að geta gert sér grein fyrir því, hve mergt er óraunsætt í þeim deilum. Vil ég einkum benda á grein mína Skarkolaveiðar og dragnót og greinar, sem ég vitna þar til og eu eftir Guðna Þorsteinsson. Grein mín birtist í 12. tbl. Ægis 1978. Pétri Gaut „skilst" að veiða megi það, sem óhætt er úr skar- kolastofninum, utan Faxaflóa, en það hefir ekki tekist á undanförn- um árum. Hins vegar veit ég að bestu skarkolamið við landið eru í Faxaflóa og ég sé enga ástæðu til að nýta þau ekki þar sem dráp á smáþorski og smáýsu er útilokað með því veiðarfæri, sem mælt er með að nota. Hafa má þann möguleika í huga, að samþykktur verði hafréttar- sáttmáli, þar sem öðrum þjóðum verði heimilað að veiða vannýtta fiskstofna innan fiskveiðilögsbgu strandríkis. Væntanlega myndi ýmsum hérlendis sárna, ef Bretar færu að veiða hér skarkola að nýju. Vona ég að okkur takist að nýta skarkolastofninn svo, að til þess þurfi ekki að koma. Aöalsteinn Sigurðsson fiskifræðingur. Þórunn Benjamínsdóttir úr Hafnarfirði kom nýlega á skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunnar með 1,8 milljónir króna, sem hún hafði safnað hjá fjölda einstaklinga í Hafnarfirði. Heimsótti Þórunn einnig fólk á vinnustöðum í Hafnarfirði og lét árangurinn ekki á sér standa, því eins og áður sagði, lagði allt þetta fólk 1,8 milljónir króna af mörkum í söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar og Lions-hreyfingarinnar til sundlaugar Sjálfsbjargar. Á myndinni sést er Benedikt Jasonarson, fulltrúi hjá Hjálparstofnun kirkjunnar, veitir peningunum viðtöku úr hendi Þórunnar. BílaÞvottur, bón, ryksugun Bifreiðareigendur vitiö þiö aö hjá okkur tekur aöeins 15—20 mínútur, aö fá bílinn þveginn, bónaöan, og ryksugaöann? Hægt er aö fá bílinn eingöngu handþveginn. Komiö reglulega, ekki þarf aö panta tíma, þar sem viö erum meö færibandakerfi. Ódýr og góö þjónusta. Bón og þvottastöðin h.f., Sigtúni 3, sími 14820.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.