Morgunblaðið - 28.04.1979, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDAGUR 28. APRÍL 1979
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979
25
Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmír Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og afgreiösia Aöalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480.
Brjóstvörn gegn
alrædishyggju
jálfstæðisflokkurinn
verður 50 ára á þessu ári.
Hann var stofnaður við
samruna tveggja flokka, sem
fyrir vóru, íhaldsflokksins og
Frjálslynda flokksins. Þessi
tvíþætti uppruni skapaði
honum þegar þá breidd í
þjóðlífinu, sem spannaði
fylgjendur úr öllum starfs-
greinum þjóðarbúsins.
Sá grunnur, sem sjálf-
stæðisstefnan hvílir á, er
fullveldi þjóðarinnar út á við
og frjálsræði þegnanna inn á
við — til skoðana, tjáningar
og athafna, innan laga-
ramma lýðveldisins. Flokkur-
inn mótaði sér í öndverðu
alhliða, þjóðlega umbóta-
stefnu, sem tók mið af frjálsu
markaðskerfi, með hagsmuni
allra stétta fyrir augum.
Sjálfstæðisflokkurinn er því
flokkur stéttasamstarfs, sem
hlýtur að marka stefnu í
öllum málaflokkum með
heildarhagsmuni í huga.
Hann höfðar fyrst og fremst
til þess, að við erum, þrátt
fyrir mismunandi störf og
búsetu, ein þjóð, sem á mun
meira sameiginlegt í arfleifð,
samtíð og framtíð en hitt, er
á milli ber.
Þessi upphaflega stefnu-
mótun Sjálfstæðisflokksins,
sem fólst í kjörorðunum stétt
með stétt, er enn grunntónn-
inn í stefnu hans og starfi.
Þar af leiðir að flokkurinn er,
nú sem fyrr, sterkasta
sameiningarafl þjóðarinnar;
sá vettvangur, sem fólk úr
öllum byggðarlögum og
starfsstéttum mætist á til að
samræma sjónarmið og
markmið — á grundvelli
frjálshyggju, valddreifingar
og réttar hverrar manneskju
til að ráða eigin lífsmynztri.
Andstæðingar Sjálfstæðis-
flokksins, sem gjarnan höfða
til hagsmunaárekstra í þjóð-
félaginu, hafa löngum litið
þetta sameiningarhlutverk
öfundarauga. Þeir reyna því,
hvenær sem tækifæri gefst,
að gera úlfalda úr mýflugu
varðandi ágreining í Sjálf-
stæðisflokknum. Að sjálf-
sögðu hafa sjálfstæðismenn
skiptar skoðanir í ýmsum
málum. Þeir telja fátt eðli-
legra en það, að skoðanir í
svo fjölmennum flokki falli
ekki í einn farveg í öllum
málum. Slíkt getur einfald-
lega ekki gerzt í samtökum,
sem virða rétt einstaklings-
ins ti! sjálfstæðrar skoðana-
myndunar. Hins vegar eru
sjálfstæðismenn sammála
um grundvallaratriði stefnu
sinnar, sem bundið hafa þá
flokksböndum, og standa fast
á þeim.
Sjálfstæðisflokkurinn er
brjóstvörn borgaralegs þjóð-
skipulags hér á landi. Hann
vill þróa það til enn meira
frjálsræðis, réttlætis og
öryggis í þágu þjóðfélags-
þegnanna. Samhliða þeirri
viðleitni verðum við að gera
okkur grein fyrir því, að
minnihluti þjóða og mann-
kyns býr við lýðræði, þing-
ræði og þegnréttindi, eins og
við skiljum þau hugtök. Þjóð-
skipulag lýðræðis á í vök að
verjast í viðsjárverðum heimi
vegna útþenslu alræðis-
hyggjunnar. Vesturlönd hafa
fundið sig knúin til samstöðu
um varnaröryggi sitt, full-
veldi og þjóðfélagsgerð. Inn-
an þjóðfélags okkar stafar
hættan frá stjórnmálaöflum,
sem afnema vilja núverandi
þjóðskipulag og hverfa að
þeirri þjóðfélagsgerð, sem
þjóðir sósíalismans hafa búið
við í A-Evrópu og víðar.
Grundvallaratriðin eru enn
sem fyrr að tryggja öryggi
þjóðarinnar út á við og
frjálsræði og þegnréttindi
einstaklinganna inn á við.
Það var og er kjarni sjálf-
stæðisstefnunnar.
„Þjóðviljinn" gerir því
skóna í fyrradag, að „miklir
úfar séu innan Sjálfstæðis-
flokksins vegna landsfund-
ar ...“. Það hlakkar í mál-
gagni alræðishyggjunnar á
Islandi vegna dagdrauma
þess um átök á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins. Engu
skal hér spáð um framvindu
mála þar. En sjálfstæðis-
menn hafa hingað til kunnað
að standa saman þegar á
hólminn er komið, þrátt fyrir
eðlilegan skoðanaágreining
um einstök mál. Svo mun enn
fara, enda eru kommúnistar
sízt til þess fallnir að leggja
línur um landsfundarmál
Sjálfstæðisflokksins. Þvert á
móti ættu „veðurspár" þeirra
að þjappa sjálfstæðis-
mönnum betur og fastar
saman um flokk sinn og
forystu.
Það hefwr verið gæfa
frjálshyggjufólks á íslandi að
standa saman í einum,
stórum, samstilltum og
sterkum stjórnmálaflokki.
Þeirri gæfu sinni, þeim styrk
sínum og áhrifamætti mun
það ekki kasta frá sér á þeim
landsfundi, sem haldinn
verður á 50 ára afmæli Sjálf-
stæðisflokksins. Sjálfstæðis-
fólki er ljóst, að beina ber
baráttuþreki að gagnstæðum
stjórnmálaöflum, sem nú
hafa sameinast í vinstri
srjórn, bæði í höfuðstað og
þjóðfélagi, með þeim afleið-
ingum, sem ærið verk verður
við að kljást.
Leiðir sjálfstæðisstefn-
unnar og Morgunblaðsins
hafa legið saman. Blaðið
árnar Sjálfstæðisflokknum
allra heilla á hálfrar aldar
afmælinu. Frjálshyggjan er
framtíðarvon íslenzku
þjóðarinnar, brjóstvörn gegn
alræðishyggju.
eiga ekki að bila
— segir Reynir Más-
son verslunarstjóri
hjá Tanganum
„VERKFALLIÐ kemur mjög illa
við okkur, við fáum engar vörur,
og það er farið að skorta ýmislegt,
svo sem kjöt og karöflur," sagði
Reynir Másson verslunarstjóri
hjá Verslun Gunnars Ólafssonar
og Co. eða Tanganum eins og sagt
er í Eyjum.
„Við fáum nú í dag mjólk eftir
þriggja daga hlé. Ef svona heldur
áfram verðum við bara að láta
okkur nægja fisk og hrísgrjón,"
sagði Reynir ennfremur.
„Við birgðum okkur ekki upp
fyrir verkfallið, enda áttum við
aldrei von á að svoila færi, þetta
hefur aldrei gerst áður. Herjólfur
er okkar brú, og við héldum að
brúin gæti ekki bilað. Það hefur
svo einnig gert illt verra, að bæði
SÍS og Sláturfélagið voru ákaf-
lega illa í stakk búin að taka
þessu verkfalli, og þar voru ekki
til neinar umframvörur er verk-
fallið skall á.
Þá hefur það einnig bæst við að
ekki hefur verið flogið síðustu
daga, en raunar er erfitt að flytja
vörur með flugi þó gefi, því flugið
hingað er svo stopult að ekki er á
það að treysta að það takist að
fljúga þegar það stendur til, og
vörurnar þola illa geymslu. Þá er
það líka það mikla dýrara að
flytja þær hingað með flugi, að
verðið yrði þrefalt eða fjórfalt
hærra en nú er.
Við viljum bara fá Herjólf-í
gang aftur, hann er eins og ég
sagði okkar lífæð, og okkur hefur
verið lofað að hann yrði í gangi."
— Hvernig tekur fólk þessum
vöruskorti, er það ergilegt yfir
ástandinu?
„Nei, ekki er það nú áberandi
enn sem komið er, fólk reynir að
taka þessu með jafnaðargeði, en
þó hefur þetta komið sér illa fyrir
fólk, til dæmis fjölskyldur með
ungabörn sem ekki fá mjólk.
Enda eru nú biðraðir við mjólkur-
söluna eftir að hún kom í dag, og
allir ætla að drekka sig blindfulla
af mjólk í dag,“ sagði Reynir að
lokum.
Mjólk kom til Eyja í gær, eftir þriggja daga mjólkurleysi, og mynduðust strax biðraðir í verslunum, eins og þessi mynd ber með sér.
Viðtöl:
Anders Hansen
Myndir:
Sigurgeir Jónasson
„Þjónar engum tilgangi og
er málstað gfirmanna á far-
skipum ekki til framdráttar,,
— segir Georg Hermannsson kaupfélagsstjóri
og stjórnarformaður Herjólfs
Reynir Másson verslunarstjóri
„ÞAÐ má segja að við búum nú við
það ástand núna, að okkar þjóð-
vegur er lokaður, og þetta er ef til
vill ekki ósvipað því að Keflavíkur-
vegurinn væri grafinn í sundur og
fólki sagt að það sé verkfall, eins
og hér er gert,“ sagði Georg
Hermannsson stjórnarformaður
Herjólfs og kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Vestmannaeyja.
„Við höfum aldrei áður verið
beittir slíkri hörku í vinnudeilum,"
sagði Georg ennfremur, „sérstaða
okkar hér hefur alltaf verið viður-
kennd, og heimilað hefur verið að
flytja farþega og mjólkurafurðir,
jafnvel matvöru. Þetta er ekki
leyft nú, og sjáum við ekki að það
99
Eins og ef veginum til Reykja-
víkur vœri lokað við Eltíðaámar
— segir Jóna Andrésdóttir um stöðvun Herjólfs
„ÞVÍ er fljótsvarað, þetta verkfall
hefur komið mjög illa við mig, og
svo er raunar um alla hér í
Vestmannaeyjum held ég,“ sagði
Jóna Andrésdóttir húsmóðir er
blaðamaður ræddi við hana í gær
um áhrif farmannaverkfallsins.
„Það á að ferma hérna hjá okkur
nú um helgina, og það vantar
rjóma, og það vantar mjólk til
veislunnar," sagði Jóna ennfrem-
ur. „Kartöflur hafa verið skammt-
aðar og kjöt skortir orðið í versl-
unum, því auk þess sem Herjólfur
Jóna ásamt dóttur sinni, Andreu Ingu Sigurðardóttur, en hún á að
termast um helgina. Líklega mun eitthvað skorta í veisluna vegna
farmannaverkfallsins, auk þess sem ættingjar eiga erfitt með að
komast til Eyja.
hefur stöðvast hefur flug fallið
niður vegna veðurs. Að vísu er
ætlunin að reyna flug hingað frá
Reykjavík síðar í dag, en aftur er
spáð versnandi veðri og þoku,
þannig að búast má við að það
lokist aftur.
Þá ætluðu gestir að koma hing-
að til okkar frá Reykjavík, en
flugvélin sem þau voru í gat ekki
lent í morgun, þannig að snúa varð
henni aftur til Reykjavíkur. Eg
hafði beðið fólkið að taka með sér
rjóma, en hann fór sem sagt sömu
leið til baka aftur!
Þessi stöðvun Herjólfs kemur
s'ér því afar illa fyrir okkur, það
má segja að skipið sé okkar vegur,
okkar tenging við umheiminn,
enda er flug hingað stopult. Þetta
er í rauninni alveg sambærilegt
við það að veginum til Reykjavíkur
væri lokað við Elliðaárnar, svo
mikilvægt er skipið. Ég er sjálf úr
Reykjavík, svo ég tel mig alveg
geta fullyrt að þessi samlíking er
ekki úr vegi.
Núna stendur yfir tími ferm-
inga, og margt fólk ætlaði að koma
ofan af landi þess vegna, enda
tvístruðust fjölskyldur mjög í gos-
inu, en nú er óvist hvernig það fer
ef ekki verður flogið," sagði Jóna
að lokum.
þjóni neinum tilgangi eða sé mál-
stað yfirmanna á kaupskipum til
framdráttar að loka okkur svona
af.
Þetta er því bagalegra nú, þar
sem erfitt hefur verið með flug, en
þetta hefur að vísu verið leyst að
nokkru leyti með því að flogið
hefur verið með mjólk og mjólkur-
afurðir frá Hellu á Rangárvöllum
á tveimur litlum vélum frá Vængj-
um og Eyjaflugi. Hefur varningn-
um verið ekið til Hellu frá Reykja-
vík, og verða farnar tuttugu ferðir
með um það bil tuttugu tonn af
vörum í dag. Þetta flug er farið að
frumkvæði bæjarins.
I þessum erfiðleikum hefur það
svo bæst við, að kjöt hefur ekki
verið flutt hingað að norðan og
austan að undanförnu, eins og þó
er venjan, vegna hafíss, en von-
andi stendur það þó til bóta. En
kjötlaust verður hér að öllum
líkindum um eða eftir helgi nema
úr rætist. Hér fæst ekkert græn-
meti, ávextir eru á þrotum, eggja-
og smjörlíkislaust, sykur á þrot-
um, lítil olía er til, en ég veit ekki
um bensín. Þannig mætti lengi
telja, áhrifanna fer að gæta æ
víðar eftir því sem líður á.“
„Þessi harka gagnvart okkur Eyjamönnum þjónar engum tilgangi í
þessari kjaradeilu, “ segir Georg Hermannsson kaupfélagsstjóri; en
hér er hann ásamt Garðari Arasyni verslunarstjóra að kanna
vörubirgðirnar.
Verkfall farmanna er þegar tekið að hafa áhrif, þó ekki sé langt um
liðið frá þvíþað hófst, svo væntanlega mun það láta enn frekar til sín
taka þegar frá Ifður. Vestmannaeyingar eiga mikið undir þvíkomið að
siglingar Herjólfs séu tryggar, enda er ferjan helsta samgönguæðin á
milli lands og Eyja. Flug hefur löngum verið stopult til Vestmanna-
eyja, og má til dæmis benda á, að frá áramótum hefur flug fallið niður
meira en fjörutíu daga.
Þá er þess einnig að gæta, að þrátt fyrir að unnt sé að flytja vörur
með flugvélum þegar fært er, þá er það mun kostnaðarsamara, þannig
að vöruverð yrði mun hærra ef samgöngur yrðu með þeim hætti.
Fermingar standa nú yfir í Eyjum eins og víðar á landinu, og er því
Selma Guðjónsdóttir yfirhjúkrunarkona og Helga Jóhannesdóttir
hjúkrunarkona.
Starfsfólk tepptí
landi og mjólkur-
skortur í eldhúsi,,
— segir Selma Guðjónsdóttir yfirhjúkrunar-
kona á Sjúkrahúsinu
„VERKFALLIÐ hefur nú ekki
haft nein áhrif á okkur ennþá, en
ef þetta verður langt stopp mun
það fara að segja til sín í skorti á
lyfjum og hjúkrunarvörum og
öðru slíku,“ sagði Selma Guð-
jónsdóttir yfirhjúkrunarkona á
Sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Selma sagði einnig að verkfallið
hefði komið niður á störfum í
eldhúsi, til dæmis vantaði þar
mjólk og aðrar vörur, en þó væri
til talsvert af birgðum, þannig að
ekki ætti að skapast neitt neyðar-
ástand næstu daga allavega.
Þá sagði hún einnig að fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahússins,
sjúkrahússlæknirinn og einn
læknaritaranna hefðu verið á
fundi í landi, og hefðu þau ekki
komist aftur vegna þess að Herj-
ólfur gengi ekki, alltaf mætti
treysta á hann þó að flugferðir
væru strjálar eins og oft vildi
verða.
„Herjólfur er okk-
ar brú og brgr
víða bagalegt fyrir húsmæður að fá ekki mjólk og rjóma til baksturs
og matargerðar, þá er farið að skorta bæði kjöt og kartöflur og þannig
má lengi telja.
Áhrifa farmannadeilunnar er því þegar tekið að gæta, og það
mannsbarn er varla til í Vestmannaeyjum sem ekki veit af verkfallinu
með einum eða öðrum hætti, þó að langt sé frá því að hægt sé að tala
um neyðarástand, enn sem komið er að minnsta kosti.
En til þess að kanna þessi mál nánar fóru blaðamaður og
Ijósmyndari Morgunblaðsins á stúfana og ræddu við nokkra
Eyjaskeggja, og spurðust fyrir um hvernig verkfallið kæmi við fólk.
- AH.