Morgunblaðið - 01.05.1979, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 1979
73
fclk í
fréttum
+ ForsætisráÖherraefni brezkra íhaldsmanna, frú Margaret Thatcher, er hér í
kosningaleiðangri í borg einni eigi langt frá Oxford. Þar eru framleidd
hjartarannsóknatæki. I mötuneyti þessarar verksmiðju hafði Thatcher haldið
kosningaræðu. Að henni lokinni var frúin tengd við slíkt rannsóknatæki og fékk
að vita að hjartað væri ígóðu lagi. Á fimmtudaginn kemur verða kosningarnar í
Bretlandi.
+ „Hjólandi sendiherrar“ kallar
þeir sig þessir norsku hjólreiða-
kappar, en þeir eru í hanttíerð á
tveggja manna reiðhjóli sínu. Er
annar þeirra blindur. Félagarnir
heita Marit Voster og Tore Naer-
land, en hann er sá sem situr á
aftara sætinu og er blindur. Myndin
er tekin af þeim er þeir komu til
Tokyo. — Urðu það þeim mikii
vonbrigði að þar f landi töldu
umferðaryfirvöldin þetta tveggja
manna reiðhjól hættulegt f umferð-
inni og fengu þeir ekki að hjóla á
því þar. beir félagar ætla að þræða
sömu leið og Jules Verne er hann
fór hina sögufrægu hnattferð sfna
— „Umhverfis jörðina á 80 dögum“.
— Fyrirsjáanlegt væri, að um
Japan yrðu þeir að fara í bíl. —
Þegar þeir Marit og Tore komu til
Tokyo höfðu þeir farið yfir Indland,
sem þeir sögðu að verið hefði
erfiðasti kafli leiðarinnar vegna
óskaplegra hita, — allt að 50 stig
hafði hann náð og þeir að því
komnir að gefast upp. Þessi hnatt-
ferð þeirra á reiðhjólinu hófst f
London 1. marz síðastl. Þeir munu
nú vera á þjóðvegum Bandaríkj-
anna, en þaðan liggur leiðin aftur
til Bretlands og ætla þeir að vera
komnir til hafnarborgarinnar
Southampton á þjóðhátíðardegi
Norðmanna 17. maf og hjóla þaðan
lokasprettinn, 110 km leið, til
London.
+ Sem kunnugt er at tréttum kusu Chicagobúar konu í.sæti
borgarstjóra tyrir nokkru. — Var það jatntramt i tyrsta skipti
sem kona er borgarstjóri þessarar bandarísku stórborgar.
Borgarstjórinn, Jane Byrne, er mikill kvenskörungur. Hefur
lengi verið að rótast í stjórnmáium í heimaborg sinni, — sem
telur um 3 milljónir íbúa. En hún tór svo að geía borgarstjóra-
embættinu gaum á árinu 1977. Við prófkjör hafði hún sópað til
sín fylginu og í borgarstjórnarkosningunum á dögunum var hún
kosin með rnjög miklum meirihluta. — Jane Byrne borgarstjóri
er 44 ára, tvígift, — missti fyrirri eiginmanninn í flugslysi fyrir
um 20 árum.
Bílaviðgerðamenn
Höfum fyrirliggjandi hin vinsælu réttinga-
tjakkasett 4 og 10 tonna frá Hein-Werner.
Braffðteffundir: —
Sukkulaði, karamellu,
jarðarberja og sítrónu.
vanillu,
fÍNÍÐl
OTNAR
Sniðnir eftir yðar þörfum
7 hæðir (frá 20—99 cm). 1
Allar lengdir.
Margra ára reynsla hér á landi.
Henta bæði hitaveitu og olíukyndingu.
Sænskt gæðastál.
Stenst allar kröfur íslensks staðals.
Hagstætt verð.
Efnissala og fullunnir ofnar