Morgunblaðið - 09.05.1979, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.05.1979, Qupperneq 1
40 SÍÐUR 103. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. (Ljósm. Kristinn) Jeremy Thorpe, fyrrum leiðtoKÍ Frjálslynda flokksins í Bret- iandi, (*K Marion kona hans á leið inn í Old Bailey dómhúsið í London, en þar hófust réttarhöldin yfir Thorpe i gær. Thorpe og aðrir sakborninxar f máiinu lýstu sig allir saklausa þegar við upphaf réttarhaldanna. Valið var í kviðdóm í gær, en yfir- heyrslum frestað. Fyrstu skrefin á sundlaugarbakkanum. Soroti. Cicanda. 8. maf. AP. Reuter. FUNDIST hefur nýleg fjöldagröf mcð líkum 200 manna, kvenna og barna í borginni Soroti í Uganda, en I þar fóru hermenn Idi Amíns fyrrum forseta um á flótta fyrir nokkru. Fréttamönn- um var sýnd gröfin í dag og I er henni lýst sem hryllilegu minnismerki um ógnarstjórn Amíns. í gröfinni voru m.a. lík þriggja ára barna. íbúar í Soroti sögðu fréttamönnum í dag, að hermenn Amíns ha.fi fyllst hefndaræði, þegar ljóst varð, að skammt væri að bíða þess að hann yrði hrakinn frá völdum, og látið bræði sína bitna á mönnum og mál- leysingjum. Hafi ógnaröld- inni í borginni ekki linnt fyrr en síðustu hermenn hinnar föllnu stjórnar yfirgáfu borgina sl. fimmtudag. Staðfest er að hermenn Amíns hafi skotið af handa- hófi á hópa óbreyttra borgara í farþegalest, sem neydd var til að stöðvast í Soroti, og hafi um 50 farþegar beðið bana, en fjölmargir særzt. Ottast er að álíka fréttir af glæpum hermanna Amíns muni berast frá ýmsum héruðum í norðurhluta Úganda, en þangað hafa herir Tanzaníumanna og hinnar nýju stjórnar í Kampala ekki enn náð. Thatcher tekin til starfa London 8. maí Reuter — AP MARGARET Thatcher forsætis- ráðherra Bretlands hélt sinn fyrsta ríkisstjórnarfund í dag í bústað sínum að Downing-stræti 10. Gerði Thatcher ráðherrum sínum, 22 að tölu, þar grein fyrir því sem hún vænti af hverjum og einum og hverju stjórnin hygðist stefna að. Engin yfirlýsing var gefin út að fundinum loknum, en talið er að athyglin hafi fyrst og fremst beinzt að stefnu stjórnar- innar í efnahagsmálum og gagn- vart verkalýðsfélögunum. Brezhnev veitir syni sínum orðu Moskvu. 8. maí. AP. BREZHNEV forseti Sovét- ríkjanna og leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins veitti f dag syni sfnum, Yuri L. Brezhnev, orðu Októberbylt- ingarinnar fyrir vel unnin störf. Brezhnev hinn yngri, sem er 45 ára að aldri, er nú fyrsti aðstoðarviðskiptaráðherra, en hafði áður gegnt ýmsum störfum í utanríkisviðskipta- ráðuneytinu og m.a. verið viðskiptafuiltrúi í Stokk- hólmi. Októberbyltingarorð- an er næstæðsta heiðurs- merki í Sovétríkjunum á eftir Lenínorðunni og hlaut Brezhnev yngri hana fyrir þátt sinn í uppbyggingu gas- linda í Kazakhstan í Mið-Asíu. Morðsamsæri gegn Carter? Los AniteloH. 8. maí. AP. Reuter. MAÐUR nokkur hefur verið handtekinn í Los Angeles og ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin um að ráða Carter Bandaríkjaforseta af dögum. Hefur maðurinn játað að hafa tekið þátt í samsæri um að myrða forsetann á útifundi í borginni og hafi hann sjálfur átt að skjóta úr byssu sinni upp í loftið til að dreifa at- hyglinni frá því, þegar skotið væri á forsetann. Sjá nánar á bls. 19. Eyðum bækistöðvum Palestínuskæruliða — segir Begin forsætisráðherra ísraels Beirut, JerÚKalem. 8. maí. AP. Reuter. ÞOTUR ísraelshers gerðu tvisvar í dag loftárásir á stöövar PalestínuskæruiiÓa f S-Lfbanon þriðja daginn f röð. Árásir þessar komu f kjölfar yfirlýsingar Begins forsætisráðherra ísraels um að ioftárásum yrði haldið áfram þar til bækistöðvar skæru- liða hafi verið upprættar. Stjórn Líbanons hafnaði í gær boði Begins um friðarsamninga, en Chamoun, fyrrverandi forseti Libanons og einn helzti leiðtogi kristinna hægri manna í landinu, gagnrýndi þá ákvörðun í dag og kvað hann tilboð ísraelsmanna hafa haft vissar jákvæðar hliðar. Yassir Arafat, leiðtogi Palestínuskæruliða, hótaði ísraelsmönnum í dag auknum hermdaraðgerðum og sagði skæruliða ekki mundu hætta baráttu sinni fyrr en þeir hefðu náð Jerúsalem á sitt vald. Bandaríkjastjórn lagði í dag að ísraelsmönnum að hætta loftárás- um sínum í S-Líbanon og sagði árásirnar gera illt ástand í land- inu verra. 200 lík fínnastj einni fjöldagröf í Úganda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.