Morgunblaðið - 09.05.1979, Page 20

Morgunblaðið - 09.05.1979, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjórí Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjðrn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aóalstræti 6, sími 10100. Aóalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 3000.00 kr. 6 mánuði innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakið. Launþegar treysta ekki ríkisstjóminni Opinberir starfsmenn kolfelldu samkomulag ríkis- stjórnarinnar og meirihluta stjórnar BSRB. Alls voru um 70% gildra atkvæða á móti samkomulaginu og var andstaðan mest í Reykjavík. Þetta er miklu meiri munur en flestum datt í hug fyrirfram og sýnir ljóslega, að launþegar eru búnir að fá sig fullsadda á ríkisstjórn- inni. Þessi úrslit verða heldur ekki túlkuð öðru vísi en sem mikið vantraust á forystu BSRB, sérstaklega þó á þá Kristján Thorlacius og Harald Steinþórsson. Fyrir ári voru báðir þessir menn í fylkingarbrjósti þeirra, sem ósveigjanlegastirvoruí kröfugerðtil þeirrar ríkisstjórnar, sem þá sat. En bæði nú og í tíð síðustu vinstri stjórnar hafa þeir verið mjög eftirgefanlegir og raunar ótrúlega fúsir til að láta hlut opinberra starfsmanna eftir liggja. Þegar ríkisstjórnin var mynduð, var kjarninn í stefnu hennar sá, að ekki skyldi koma til grunnkaupshækkana á þessu ári. Svo virðist sem meirihluti verkalýðshreyfingar- innar væri reiðubúinn til þess að standa á bak við þessa stefnumótun þá, þrátt fyrir þá staðreynd, að nýi borgarstjórnarmeirihlutinn hefði ákveðið að lyfta launa- þakinu af. Ríkisstarfsmenn komu síðan í kjölfarið. Og loks var flugmannadeilan leyst með atbeina ríkisstjórnar- innar á þeim grundvelli, að launaþakið skyldi hverfa sem þýddi allt að 270 þús. kr. hækkun mánaðarlauna. Eftir það skall verkfall farmanna á, sem engar horfur eru á að leysist í bráð, verkbann hefur verið sett á undirmenn á farskipum og verkfall mjólkurfræðinga yfirvofandi. Engin von var til þess, að hinir lægst launuðu myndu una þessari þróun mála þegjandi, eftir að kjör þeirra höfðu verið skert með margvíslegum hætti á þriggja mánaða fresti, en launamismunur farið vaxandi á ný. Þannig segir í ályktun aðalfundar Iðju, félags verk- smiðjufólks í Reykjavík, að það sé „gjörsamlega óvið- unandi að láglaunafélögin í verkalýðshreyfingunni haldi að sér höndum á sama tíma og hátekjuhópum í þjóðfélaginu helzt það uppi að rífa sig úr tengslum við hið almenna launakerfi í landinu og knýja fram stórfelldar kauphækkanir sér til handa. Við þá þversögn verður ekki unað, að hinir fjölmennu láglaunahópar séu krafðir um að sýna stjórnvöldum umburðarlyndi í nafni baráttunnar gegn verðbólgunni á sama tíma og hátekjuhóparnir fara sínu fram án tillíts til heildarhagsmuna. Láglaunafólkið getur ekki og mun ekki sætta sig við að sitja eftir á botninum rétt einu sinni enn.“ Þegar efnahagslög ríkisstjórnarinnar voru til af- greiðslu á Alþingi fyrir páskana var því á loft haldið, að öllum væri frjálst að semja um nýjar grunnkaups- hækkanir þrátt fyrir þessi lög. Það var líka í samræmi við það frumkvæði, sem ríkisstjórnin hafði átt að lausn flugmannadeilunnar. En eftir að farmannaverkfallið skall á, fór að bera á því, að einstakir ráðherrar teldu einsýnt, að sú deila yrði ekki leyst án íhlutunar ríkisvaldsins. Og enn kveður við sama tón eftir atkvæða- greiðslu opinberra starfsmanna. Þannig verða ummæli Steingríms Hermannssonar naumast skilin öðru vísi en svo, að hann telji nauðsynlegt að ríkisvaldið taki launamálið úr höndum aðila vinnumarkaðsins en kaup og kjör verði ákveðin einhliða með lagasetningu á Alþingi eða bráðabirgðalögum. Þessi niðurstaða gengur að sjálfsögðu þvert á þá reynslu, sem orðin er af tilraunum þessarar ríkisstjórnar og þeirrar síðustu til þess að hafa áhrif á kjaramálin með lögum og allar nýjar tilraunir í þá átt eru dæmdar til að mistakast. Eins og nú er komið getur engum blandast hugur um, að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar er í rúst. Hún gerði sér í upphafi vonir um að sameina launþegahreyfinguna á bak við sig, en nú liggur fyrir, að hún hefur fyrirgert öllu trausti hjá hinum almenna launamanni, hvað sem um einstaka verkalýðsforingja er að segja. Þetta sýnir atkvæðagreiðslan í BSRB framar öðru. Ef þú ekur hringinn á Cortinu kostar það þig 206 þús. krónur MARGIR HYGGJA eflaust á hringferð í kringum landið á bifreið sinni á þessu sumri og margur er ef að líkum lætur þegar langt kominn með að undirbúa slfka ferð. En hvað skyldi hún kosta? Morgunblaðið leitaði í gær til Félags fslenzkra bifreiðaeigenda og grennslaðist fyrir um hvort slíkir hlutir hefðu verið reiknaðir út eftir sfðustu hækkanir á benzfni og tryggingaiðgjöldum. Sveinn Oddgeirsson varð fyrir svörum og sagði hann, að ef farið væri f kringum landið á Cortinu mætti reikna með að útgjöld vegna bifreiðarinnar yrðu 164.910 kr. með afskriftum og ef vöxtum væri bætt við yrði kostnaðurinn 206.145 krónur. Ef hringurinn er ekinn á Range Rover kostar ferðin 284.250 kr. með afskriftum og vöxtum. Margir breðga sér bæjarleið á sunnudögum og þá er gjarnan ekið frá Reykjavík til Selfoss og sama leið til baka. Sú ferð sagði Sveinn að kostaði 12.753 krónur á Cortinu ef sömu forsendur eru lagðar til grundvallar, en 17.687 á Range Rover. FIB hefur nýlega gert útreikn- inga um aðætlaðan reksturs- kostnað bifreiða af gerðunum Cortina 1 2D og Range Rover. Inn í þetta dæmi hafa verið teknar hækkanir á benzíni og iðgjöldum ábyrgðartrygginga, en iðgjöld af kaskótryggingum hafa enn ekki verið ákveðin. A Cortinu lítur dæmið út sem hér segir: Afskriftir 776.250 kr. Benzín 409.600 kr. Smurning 33.000 kr Hjólbarðar 47.250 kr Varahlutir 125.000 kr Viðgerðir 170.000 kr. Ábyrgðartrygging 81.125 kr Kaskótrygging 70.750 kr Bifreiðaskattur 6.100 kr Útvarpsgjald 0 kr. Ýmislegt 40.000 kr. SAMTALS 1.759.075 kr Vextir 439.769 kr SAMTALS 2.198.844 kr Reiknað er með 13V6% af- skriftum af 2.6 milljónum. Með- alakstri, sem er 16 þúsund kíló- metrar á ári. Smurningu og olíuskiptingu 8 sinnum á ári og undir liðnum hjólbarðar 2Vi dekk á ári. Til viðmiðunar vara- hlutaliðnum var gengið út frá varahlutakaupum í rekstri bif- reiða á 7 'fa ári, en er varlega áætlað að mati FÍB. Gengið var út frá 50 klukkustundum á ári að meðaltali í viðgerðir. Trygging- ariðgjald miðast við 30% á ári, en ekki er tekið tillit til sjálfs- ábyrgðar kr. 24.000. Kaskótrygg- ing er reiknuð með 20% afslætti og 34.000 króna sjálfsábyrgð. Undir liðnum ýmislegt er reikn- að með að einhverjir aukahlutir séu keyptir í bílinn á árinu. I áætlun um reksturskostnað á Range Rover er að flestu leyti reiknað út frá sömu forsendum. Þó er reiknað með að meðalakst- ur sé 25 þúsund kílómetrar á ári og smurningu og olíuskiptingu 10 sinnum á ári. Dæmið með stærri bílinn lítur þannig út: Afskriftir 1.687.500 kr Benzín 1.344.000 kr Smurning 65.480 kr. Hjólbarðar 91.750 kr. Varahlutir 150.000 kr. yiðgerðir 180.000 kr. Ábyrgðartrygging 117.288 kr. Kaskótrygging 129.600 kr. Bifreiðaskattur Ýmislegt Samtals Vextir Samtals 6.100 40.000 3.811.718 925.930 4.737.648 Hver kílómetri á Cortinunni kostár samkvæmt þessu 137.43 kr. en á Range Rover 189.50. 56.3% af benzínverðinu fara í skatta Þá hefur Morgunblaðinu borizt frétt frá Félagi íslenzkra bifreiðaeigeigenda þar sem FIB bendir á að skattheimta ríkisins af bifreiðum og rekstrarvörum þeirra sé bæði orðin óheyrilega mikil og óeðlileg. Þá er bent á að benzínverð hér á landi sé orðið hið hæsta af öllum löndum næst okkur. I fréttinni segir svo um ástæður fyrir hækkun benzínr verðs úr 205 krónum í 256 krónur: „Verð á benzínlítra var í dag hækkað úr 205 krónum upp í 256 krónur. Hækkun þessi var talin af tveim ástæðum: 1. Hækkun á benzíni frá hendi hins rússneska seljanda um 51% eða 26 krónur pr lítra. Innkaupsverð hvers lítra er þannig 77 krónur eins og er. 2. Hækkun íslenzkra ríkisins umfram samþykkt fjárlög Al- þingis fyrir árið 1979, um 23 kr./ lítra þrátt fyrir yfir- lýsingar ráðherra um, að hækkanir á olíuvörum ætti ekki að vera skattstofn íslenzka ríkisins. Félag íslenzkra Bifreiðaeig- enda hefur margbent á, að skatt- heimta ríkisins af bifreiðum og rekstrarvörum þeirra sé bæði orðin óheyrilega mikil og óeðli- leg, og bent er á, að benzínverð hér á landi er orðið hið hæsta af öllum löndum næstum okkur. Bent er á, að innkaupsverð er svo hátt, að það er í heildsölu til Islendinga hærra en af smásölu- dælu í Bandaríkjunum, en þar kostar lítrinn 66 krónur. Það er því full ástæða að endurskoða frá grunni innkaupasamninga þá, sem í gildi eru með ofan- greint í huga. Sundurliðun verðlags á benzini er eftirfarandi: síðasta hækkun núverandi verð verð Innkaupsverð (CIF) 51 26 77 Innlendir skattar 121 23 144 Annar innlendur kostn. 33 2 35 205 51 256 Bandaríkjaflug Flugleiða: Vilja fá að lenda á vestnrströndinni BANDARÍSKA utanríkisráðu- neytið hefur nú til athugunar óskir frá fslenzkum stjórnvöldum um að rýmkuð verði flugréttindi Flugleiða á Atlantshafsleiðum og fjöigað lendingarstöðum f Banda- rfkjunum og þá fyrst og fremst á vesturströndinni, t.d. Los Angeles og San Francisco. Benedikt Gröndal utanríkisráð- herra tjáði Mbl. að Flugleiðin. hefðu snúið sér til samgönguráðu- neytis með þessar óskir en það sneri sér síðan til utanríkisráðu- neytisins. Hans G. Andersen sendiherra Islands í Bandaríkjun- um fór nýlega á fund í utanríkis- ráðuneytið í Washington og lagði óskirnar fram formlega. Sem fyrr segir felst tvennt í óskum Flugleiða. í fyrsta lagi óska Flugleiðir eftir þvi að hluti af Atlantshafsfluginu milli Evrópu og Bandaríkjanna verði án milli- lendingar á Islandi eins og er og í öðru lagi óska Flugleiðir eftir því að fá að lenda á fleiri stöðum í Bandaríkjunum og þá einkum á vesturströndinni. Munu Flugleiðir aðallega hafa í huga Los Angeles og San Francisco samkvæmt því sem Mbl. hefur fregnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.