Morgunblaðið - 09.05.1979, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 09.05.1979, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979 27 Heimsókn í Þelamerk- urskóla „Það er skólaskemmtun í Þela- merkurskóla í kvöld, eigum við að skreppa?" Þetta var upphafið að því að við hjónin vorum á leið út í Þelamerkurskóla á skólaskemmt- un fimmtudaginn 5. apríl 1979. Þetta var ekki löng leið. Skólinn er um 14 km frá Akureyri og fyrr en varir erum við komin inn í anddyri skólans þar sem hópur af börnum tekur á móti okkur. Þarna er allt skipulega undirbú- ið, leiðbeiningar á öllum göngum með örvum sem vísuðu veginn þangað sem hvaðeina var. Við keyptum aðgöngumiða í anddyrinu og Skólablað Þ.M.S. með árshátiðardagskránni á bak- síðu. Því næst fikruðum við okkur eftir örvunum í átt til salarins þar sem skemmtunin átti að fara fram en það mun vera í íþróttasalnum. Þetta var æðistór salur með sæt- um fyrir hátt á annað hundrað manns. Athyglisvert skólablað Við vorum með þeim fyrstu og völdum okkur sæti þar sem okkur leist best á að vera og áður en varði var ég sokkinn niður í lestur á skólablaðinu. Eg varð dálítið hissa á þessu lesefni samanteknu af krökkum í grunnskóla. Þarna voru viðtöl við skólastjóra, odd- vita, hreppstjóra og skólanefndar- formann. Heimsóknir á skrifstofu fræðslustjóra, til skólameistara M.A. og skólastjóra Iðnskólans. Og í ljós kom að þessi viðtöl voru mjög vel unnin. Auk þess var ýmislegt annað efni til skemmtun- ar og fróðleiks, allt smekklegt og vel frá gengið. Ég fann strax að þetta þurti ég að skoða betur en nú vorum við komin á árshátið, salurinn orðinn þéttsetinn, og söngur skólakórsins var að hefjast undir stjórn frú Guðrúnar Jónsdóttur skólastjóra- frúar, sem einnig lék undir á píanó. Þetta var stúlknakór, vel æfður og fékk hann góðar undirtektir. Síðan kom hvert atriðið eftir annað: leikrit, upplestur, dans, allt mjög góð skemmtiatriði sem fengu ágætar undirtektir. Endahnútinn á skemmtiatriðin fyrir hlé rak svo barnahljómsveit. Þetta var mjög athyglisvert framlag til hátiðarinnar, þótt segja mætti að hún hefði stundum notið sín betur milli fjallanna í Oxnadalnum en þessum þrönga sal. Eftir hlé voru sýndir þættir úr Islandsklukkunni eftir Halldór Laxness og tengdi sögumaður þættina saman. Þá var upplestur, þjóðdansar og skólakórinn söng aftur, nú við undirleik þriggja skólakrakka, allt mjög góð skemmtiatriði. Síðasta atriðið var svo barna- dansar, í tilefni barnaársins, þar sem elstu krakkarnir sýndu barna- dansa klædd stuttpilsum og stutt- buxum. Ein stelpa lék undir á harmóniku og tvær sungu með. Að lokum var svo drukkið kaffi í matsal, framreitt af krökkunum. Mér var nú ljóst að hér í þessum skóla var unnið meira en ítroðslu- skylda. Ég lagði því leið mína í heimsókn til skólastjóra og bað um viðtal. Mig langaði að vita hvernig þetta væri gert. Viðtal Sunnudaginn 8. apríl kom ég í Þelamerkurskóla, Sæmundur Bjarnason og frú Guðrún Jóns- dóttir tóku á móti mér með sínu létta og glaðlega fasi. „Ég var að opna afmælisgjöfina frá frúnni," sagði Sæmundur um leið og hann heilsaði mér. Hvað ertu gamall? Ég er fæddur 1916 í Ögurnesi í N-ísafjarðarsýslu. Og Guðrún er á svipuðum aldri. Já, hún er fædd 2. febr. 1915 á Akureyri. Hvar hafðir þú kennt áður en þú komst hingað? Ég kenndi í tíu ár vestur við Djúp, byrjaði þar 18 ára, svo vorum við 17 ár í Hrísey áður en við komum hingað. Guðrún er líka kennaramenntuð. Já, við kynnt- umst í Kennaraskólanum. Mér virðist á því sem ég hef heyrt og séð hér að þið náið miklum árangri í ykkar starfi. Hvernig farið þið að því? Þetta þykir okkur nú gott að heyra, en hvað starfið snertir þá spilar margt þar inn í. Við innum af hendi okkar kennsluskyldu að sjálfsögðu, en svo skiptum við með okkur verkum utan kennslutíma og reynum að fá nemendurna til að nota frítímana í eitthvað gagnlegt. Við höfum hérna kennara, Halldór Sigurðsson, sem er ágætur skipu- leggjari og hann hefur unnið hér mjög gott starf. Svo er samvinna og samkomulag mjög gott. Reyklaus skóli Nemendurnir eru líka til fyrir- myndar. Til dæmis hafa allir bekkir sem veitt er viðurkenning sem reyk- lausum bekk hlotið þá viðurkenn- ingu hér og raunar er kennarastof- an einnig reyklaus. Ég er mjög hrifinn af Skólablað- inu ykkar. I ávarpinu er getið um Magna og Önnu Lilju sem lyftistöng. Mig langar til að hafa tal af þeim. Innan skamms er Magni kominn og ég spyr hann: „Er þetta blað verk ykkar kenn- aranna eða barnanna?" Ávarp Stúdentaráðs: „Óskum ekki eftir sam- rádi vid borgaralega kjaraskerdingarstjóm” í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, sendir S.H.Í. frá sér eftirfarandi ávarp: Fyrir réttu ári áttu jafnt verka- lýðshreyfing og námsmannahreyf- ing við sameiginlegan fjanda að etja — ríkisvaldið og fram- kvæmdastjórn þess. Síðan hafa gerst pólitísk jökulhlaup og margur óhreinn lítri til sjávar runnið. Þeir, sem hugðu, að á eftir þessu hlaupi yrði vatn tærara, hafa orðið fyrir vonbrigðum. Skólpvatn fyrrum íhaldsstjórnar varð að gruggugum samráðs- straumi. Námsmannahreyfingin óskar ekki eftir samráði við borgaralega kjaraskerðingarstjórn og væntir þess að viðbrögð verkalýðshreyf- ingarinnar verði svipuð. Stéttar- legt sjálfstæði er forsenda sterkr- ar verkalýðshreyfingar. Sé því hafnað er mjög hallað á hugsjónir hennar um þróun í átt til sósíalísks þjóðfélags. Þær hugsjónir hafa framsæknir náms- menn og gert að sínum. Því senda þeir baráttuöflun innan verka- lýðshreyfingarinnar samstöðu- kveðjur á 1. maí (fréttatilkynning). „Við höfum ekki skrifað einn einasta stafkrók í þetta blað, en að sjálfsögðu höfum við hvatt börnin eftir mætti og leiðbeint þeim um hvað færi vel og hverju ætti að sleppa. Upphafið var það, að kosin var ritnefnd í haust, einn úr hverri bekkjardeild, en það fór svo að það heltust allir úr lestinni nema 9. bekkjarfulltrúinn, svo við skipuð- um nýja ritnefnd úr 9. bekk og settum okkur það takmark að koma blaðinu út fyrir árshátið. Þetta tókst með töluverðri harð- fylgi en blaðið er fjölritað hér heima og gengið frá því að öllu leyti utan skólatíma. Blaðið var gefið út í 115 eintökum. Rétt er að getga þess að Áskell Þórisson blm. hjá Degi á Akureyri býr hér í skólanum og var hann okkur mikil hvatning m.a. tók hann myndirnar á forsíðu og af skólastjóra og gerði þær grafískar. Kennarar við Þelamerkurskóla eru auk skólastjórahjóna þessir: Hjónin Magni Hjálmarsson og Anna Lilja Sigurðardóttir, hjónin Sigurgeir Guðmundsson og Svava Þorsteinsdóttir, Halldór Sigurðs- son, Kristján Helgi Sveinsson, Rögnvaldur Ólafsson og Vilborg Aðalsteinsdóttir. Ráðskonan er Rósa Randvers- dóttir og aðstoðaði hún við veit- ingar á árshátíðinni. Víkingur Guðmundsson fréttaritari Bíllirm sem B* hinna vandlátu Eigum nú fyrirliggjandi FIAT 128 2ja og 4rs dyra á ótrúlega hagstæðu verði: 0000128 er framhjóladrifinn og hefur einstaka aksturseigin- leika í snjó og á slæmum vegum. annn 128 er sparneytinn. Eyðsla 7 l á 100 km annn 128 er vel búinn af nauðsynlegum aukahlutum, sem auka öryggiö og þægindin eins og t.d. ★ Bakkljós ★ Vel stoppuö og mjúk sæti ★ Færanlegt bak í framsætum ★ Kveikjari ★ Rafknúin rúöusprauta ★ Vatnshitamælir ★ Kortavasar í framhurðum ★ Læsanlegt bensín- lok ★ Teppalagðir og fleira sem vert er að kynna sér ★ Nýr og breyttur gírkassi ★ Stálstyrkt farþegarými ★ Öryggisstýri í 3 liðum. Bnaa 128 er bíll sem borgar sig. Gódir greidsluskilmálar Til afgreiðslu strax Komid og skodid. FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI DAVÍÐ SIGURÐSSON hf. SÍÐUMÚLA 35. SÍMI 85855

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.