Morgunblaðið - 09.05.1979, Side 29

Morgunblaðið - 09.05.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979 29 r Attræður: Bæring Elísson Vissulega brestur mikið á, að ég geti leyst það verk af hendi eins vel og ég kysi að senda góðum samferðarmanni og vini árnaðar- óskir á merkum tímamótum. Bændahöfðingjanum Bæring Elís- syni á Borg í Stykkishólmi, fyrr- um sat hann Bjarnarhöfn í Helga- fellssveit, er í blóð borin íslenzk bændamenning af ómenguðustu tegund. Bæring er maður gjörvi- legur sýnum, fremur dulur í skapi, stilltur vel og mjög einbeittur en allra manna réttsýnastur. Hið íslenzkasta í íslenzkri þjóð- arsál geymir Bæring í háttum sínum og máli, gestrisnina, trú- ræknina, drengskapinn, duginn. Bæring kvæntist 1926 Arþóru Friðriksdóttur frá Rauðhálsi í Mýrdal, sonardóttur Vigfúsar óð- alsbónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal Þórarinssonar. Áróra er sannnefndur kven- skörungur í sinni stétt, nálega fyrir flestra hluta sakir og fyrir- mynd mikillar húsfreyju. I Bjarn- arhöfn varð aðalstarfsvettvangur beztu ára þeirra, og við þann bæ eru þau hjón jafnan kennd vestra. Þar bjuggu þau stórbúi, þar sem jafnan var rekinn jöfnum höndum landbúnaður og sótt sjávargagn. Af hinu fallega bæjarstæði í Bjarnarhöfn brosir við augum hinn breiðfirzki fjallahringur, vafinn öllum hinum margbrotnu töfrum, sem skiptast eftir árstíð- um og tímum sólarhringsins. Uti fyrir Bjarnarhöfn eru eyjar og hólmar með æðarvarpi og kofnatekjur og margar gefa af sér mikið af töðugæfu heyi. Hrogn- kelsaveiði að vori rétt við land Á heimili þeirra hjóna í Bjarn- arhöfn og nú á þeirra fagra og snyrtilega heimili á Borg í Stykk- ishólmi, eru gestakomur tíðar enda hjónin samhent um að taka vel á móti gestum sínum, húsfr- eyjan veitir vel en húsbóndinn nýtur ánægjunnar af að tala við gestina. Ýmis opinber störf hafa hlaðist á Bæring sem hann hefur rækt af ötulleik og vöndugheitum. Bæring hefur ákveðnar skoðan- ir í stjórnmálum og fylgir Sjálf- stæðisflokknum, hefur sérstakar mætur á dr. Gunnari Thoroddsen. Bæring sat „landsfundinn" sem nú er nýlokið. Ég óska vini mínum Bæring og frændkonu minni Árþóru allrar blessunar á þessum tímamótum. Helgi Vigfússon. okkar. En hann var þar ekki á sama máli. Hæverska hans gat ekki sagt annað. En koma tímar og koma ráð. Margir eru vinir Bærings og meðan hann bjó í Bjarnarhöfn þá fannst mér svo mikill ljómi í kringum þann bú- skap en það sem vakti mesta athygli hve margir áttu þar skjól og hve nágrannarnir nutu góðs af hans góða hjartalagi. Við Bæring mætumst oft. Við sama borð höf- um við lengi setið í Lionsklúbbn- um okkar og látið þá mörg orð á milli fara og öllu tekur hann með sama ljúfa geðinu og jafnvel þótt ekki sé allt fágað. Enn í dag heldur hann sínu striki. Hann þekkir ekki nema fullan vinnudag og þau eru ekki fá kvöldin þegar hann kemur heim eftir meira en 8 stunda vinnu. Hann á hamingjusamt og gott heimili. Það metur hann að verð- leikum. Frú Árþóra hefir líka allt það til að bera sem gefur góðu lífi gildi. Börnin þeirra hafa ekki farið varhluta af innleggi góðs heimilis. En sem sagt. Bæring á 80 ára feril að baki þótt ótrúlegt sé. Hamingjan haldi enn lengi í hönd hans og gefi honum og hans fólki góða daga. Þökk fyrir hlýjuna, Bæring minn, sem alla daga streymir frá þér og góður guð fylgi þér alla tíma. Þinn vinur Árni Helgason Vinur minn Bæring á 80 ára afmæli í dag, þótt ótrúlegt sé þegar maður hittir hann á förnum vegi og þegar þess er gætt hversu afar starfsöm og átakasöm æfi hans hefir verið. Ég ætlaði á þessum tímamótum að minnast þessa á verðugri hátt í blaðinu EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU Heildaraflinn í Þorlákshöfn tæp 18 þúsund tonn l>orlákshi)fn 7. maí. í LOK ágætrar vetrarvertíðar er heildarafli á land kominn hér þessi: 17.960 tonn, þar af er togara- fiskur 1630 tonn. Að sjálfsögðu er mest í það varið að þessi fiskur er alveg sérstaklcga gott hráefni, þar sem gæftir voru mjög góðar. Jón á Ilofi var aflahæstur eins og fram hefur komið áður í blaðinu með 1120 tonn. Skipstjóri er Jón Björgvinsson, Þorlákshöfn. Menn eru nú að huga að bátum sínum eins og venjulega í vertíð- arlok. Þrír bátar eru þó byrjaðir á spærlingsveiðum og einn á línu. Ekki eru menn ánægðir með verðið á spærlingnum né heldur það að aðeins 5% af öðrum fiski má vera í aflanum og telja menn að það hlutfall hljóti alltaf að verða meira. Menn eru sem sagt ekki ráðnir í því hvað þeir gera. þó má gera ráð fyrir að einhverjir bátar fari á humarveiðar eftir 20. maí. Togarinn Þorlákur kom inn á laugardag með 120 tonn úr 6 daga veiðiferð. Hér er því mikið að gera í frystihúsinu og einnig í salt- fiskverkunarstöðvunum. Það er mikið verk óunnið. Þó má geta þess, að það er uggur í öllum hugsandi mönnum vegna þeirrar óvissu, sem ríkir um útflutning þessara miklu verðmæta vegna verkfalls farmanna. SUMARVERD á skidum a _ 'S’ ® ® Sportval ■» W * • Y» <&' j» á ÆL*** , ® ■» « * * • $ ■* « w *•& * LAUGAVEGI 116 - SIMAR 14390 & 26690 Stórkostleg fjolskylda KENWOOD heimilistæki bjóóa upp á ótrúlega fjölbreytni í framleióslu, sem öll hefur þaó sameiginlegt, aó þar fara saman fullkomin gæói, fallegt útlit og mjög hagkvæmt veró. Hrærivélar Blenderar Rafhlöðu þeytarar ciaaveiar Kæliskápar Gufugleypar Frystiskápar Kaffivélar Strauvélar Frystikistur Þurrkarar HEKLA he LAUGAVEG1170-172 — SÍMAR 21240-11687 — RaknhoiAur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.