Morgunblaðið - 09.05.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.05.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979 Guðbjartur Gunnarsson: N ámsgagna- stofnun ríkisins i. Á Alþingi hefur enn verið lagt fram frumvarp til laga um Náms- gagnastofnun, en frumvarp þetta hefur nokkrum sinnum verið lagt fram áður í stjórnartíð fyrri ríkisstjórna, en horfið í skuggann fyrir öðrum viðfangsefnum. Frumvarp þetta er í nánu sam- hengi við þá umfangsmiklu endur- skoðun og endurskipulagningu fræðslu- og skólamála sem þessi áratugur mótast svo mjög af. Ber þar hæst grunnskólalögin og lög um skólakerfi frá 1974, og frum- varp um framhaldsskóla sem ligg- ur fyrir þessu þingi. Önnur grein grunnskólalaganna frá 1974 hljóð- ar svo: „Hlutverk grunnskólans er, í samvinnu við heimilin, að búa nemendur undir líf og starf í lýræðisþjóðfélagi, sem er í sífelldri þróun. Starfshættir skól- ans skulu því mótast af umburðar- lyndi, kristilegu siðgæði og lýð- ræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á mannlegum kjör- um og umhverfi á íslensku þjóð- félagi, sögu þess og sérkennum og skyldum einstaklingsins við sam- félagið. Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins. Grunnskólinn skal veita nem- endum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni og temja sér vinnubrögð, sem stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal því leggja grundvöll að sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra.“ í fyrstu grein frumvarps til laga um Námsgagnastofnun segir svo: „Hlutverk námsgagnastofnunar er að sjá grunnskólum fyrir sem bestum og fullkomnustum náms- og kennslugögnum. Uppeldis- og kennslufræðileg markmið náms- gagnastofnunar eru í samræmi við 2. grein laga nr. 63/1974 um grunnskóla." Önnur grein frumvarpsins er þannig: Námsgagnastofnun annast framleiðslu, útgáfu og miðlun hvers konar námsefnis og nýjung- um á því sviði og kynnir þær. Stofnunin skal hafa samstarf við þá aðila sem vinna að endur- skoðun námsefnis og nýjungum í skólastarfi á vegum menntamála- ráðuneytisins, við fræðsluskrif- stofur, svo og Kennaraháskóla íslands og aðrar stofnarir sem veita kennaramenntun." Skipulag fyrirhugaðra stofnun- ar er skilgreint í 6. gr. frumvarps- ins: 6. gr. Námsgagnastofnun skiptist í tvær aðaldeildir: framleiðsludeild og afgreiðslu- og söludeild. Að öðru leyti skal starfsskipting inn- an stofnunarinnar ákveðin í reglu- gerð, sbr. 11. gr. Verkefni deilda eru í megin- dráttum þessi: a) Framleiðsludeild framleiðir náms- og kennslugögn miðað við íslenskar þarfir og aðstæð- ur. Hún annast útgáfu náms- bóka, handbóka, kennsluleið- beininga og ítarbóka. Deildin gefur út íslenzkt nýsiefni og erlent í íslenskri aðlögun. Hún lætur gera fræðslumyndir eða er aðili að gerð þeirra svo og setja íslenskt tal eða texta við erlendar myndir. b) Afgreiðslu- og söludeild annast öflun og dreifingu náms- og kennslugagna. Hún vinnur að hagkvæmri notkun nýsitækja í skólum landsins og veitir leið- beiningar um notkun þeirra. Deildin hefur einnig með hönd- um kynningar- og fræðslu- starfsemi fyrir skóla um náms- gögn og kennslutækni í sam- starfi við það aðila sem taldir eru í 2. gr. Námsgagnastofnun er heimilt að hafa þau náms- og kennslugögn sem hún framleiðir til sölu á frjálsum markaði samkvæmt nán- ari ákvörðun námsgagnastjórn- ar.“ Óþarft er að þreyta lesendur með frekari eftirprentun frum- varpsins, en greinargerðin sem því fylgdi upphaflega er enn í fullu gildi. I núverandi mynd gerir frum- varpið ráð fyrir mun einfaldari yfirbyggingu stofnunarinnar en gert var í upphafi, en meginhlut- verkið er sem fyrr að samræma útgáfu kennsluefnis þar sem gaumgæft er í samhengi prentað mál, myndrænt efni af ýmsu tagi, svo og hljóðritað efni. Gert er ráð fyrir nánari tengslum og hnitmið- aðri samvinnu milli þeirra sem efnið semja og hanna og þeirra sem því dreifa og síðan nemend- anna sem það nota. I hinni upphaflegu greinargerð með frumvarpinu er skýrt frá aðdraganda þess, skipun nefndar árið 1972 til að endurskoða lög um Ríkisútgáfu námsbóka (nr. 51/1956) og Fræðslumyndasafns ríkisins (nr. 54/1961), þar sem hafa bæri í huga hvort ráðlegt þætti að sameina þessar stofnanir, þannig að þær yrðu sem „færastar um að veita skólum landsins sem fullkomnasta þjónustu og sjá fyrir kennslugögnum í samræmi við gildandi námsskrá og endurskoð- un námsefnis á hverjum tíma.“ Nefndin leitaði á sínum tíma til a.m.k. 18 samtaka og stofnana um umsagnir og tillögur „um hlut- verk, skipulag og störf tengdrar eða sameinaðrar ríkisstofnunar á sviði námsefnis og kennslutækja," og frumvarpið hefur verið til stöðugrar endurskoðunar bæði innan Alþingis og utan æ síðan. Virðist því óhætt að draga þá ályktun að frumvarp þetta hafi fengið rækilega umfjöllun færustu manna um árabil og því óþarft að ætla því mikinn umræðutíma nú, þegar það er lagt fram á Alþingi í sjötta sinn, enda ópólitískt mál með öllu og að flestra mati frekar til hagræðingar og sparnaðar en til aukins kostnaðar fyrir land og þjóð. Guðbjartur Gunnarsson II. Hvað sem líður stjórnarskiptum í landi og títtnefndum vanda í þjóðarbúskapnum reyna skólarnir stöðugt að rækja hlutverk sitt og skólayfirvöld að gera sitt besta á hverjum tíma til að svo megi verða. Þannig ákvað fræðsluráð Reykjavíkur árið 1976 að setja á laggirnar eigin námsgagnamið- stöð, enda fjölmennasta fræðslu- umdæmi landsins. Teknir voru tveir kennarar úr kennkennara- kvóta borgarinnar og undirritaður einnig skráður sem grunnskóla- kennari til að þjóna alfarið þessu hlutverki; nauðsynleg tæki keypt og sett upp í húsnæði Fræðslu- skrifstofu Reykjavíkur undir yfir- umsjón fræðslustjóra. Starfsemi þessari var gerð nokkur skil í blaðaviðtali í Morgunblaðinu í byrjun september sl. haust og skal ekki orðlengd frekar. Tilraun þessari hefur verið vel tekið að hálfu skóla borgarinnar, enda þótt fjölföldun efnis þeim til handa hafi verið í lágmarki af ýmsum ástæðum. Starfsemin hef- ur vakið athygli skólamanna utan Reykjavíkur og námsgagnamið- stöðin fengið heimsóknir skóla- stjóra og kennara víðsvegar að, auk nemenda úr framhaldsskól- um, Háskóla íslands og Kennara- háskólanum. Námsgagnamiðstöðin hefur unnið að gerð frummynda fyrir glærur, skyggnur og myndir í bækur til fjölföldunar í nánum og góðum tengslum við ýmsa námstjóra Skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins, sem hafa með höndum endurskoðun námsefnis. Námsgagnagerð af þessu tagi er ekki gróðavænlegt fyrirtæki á jafnlitlum markaði og hér er. Skólar þurfa stöðugt að vega og meta sín fjármál og gögn af þessu tagi hlutfallslega dýr miðað við t.d. prentað mál. Stjórn- endur Reykjavíkurborgar munu hafa gert sér þetta ljóst þegar á s.l. ári og að það brautryðjenda- starf sem hér var hafið ætti frekar heima undir verndarvæng ríkisins en höfuðborgarinnar einnar. Reykjavíkurborg rekur Námsgagnamiðstöðina því ekki lengur, en lánar tækin og húsnæð- ið um sinn. Ríkisútgáfa námsbóka greiðir fyrir um útvegun hráefnis og annast útgáfu og fjölföldun nýsiefnis þangað til öðruvísi verð- ur ákveðið. Þetta fyrirkomulag er aðeins bráðabirgðalausn sem kallar á skjótar aðgerðir til úrbóta, bæði hvað snertir starfskjör forstöðu- manns og nýsitækna og rekstrar- fyrirkomulag allt. En þess ber að geta sem vel er gert. Fyrrverandi fræðsluráð Reykjavíkur og fræðslustjóri eiga heiður skilinn fyrir að ríða á vaðið með þessa starfsemi og reyna þannig að bæta úr brýnni þörf fyrir sitt skólaumdæmi hvað snertir þennan þátt námsgagna- gerðar. Þarna var rausnarlega af stað farið og þarna eru í sjóði góð tæki og þjálfað starfslið, auk þess jákvæða siðferðislega stuðnings sem liggur í loftinu gagnvart þessari frumraun til að sérhanna myndefni fyrir íslenska skóla. Reykjavíkurborg hefur oft áður átt frumkvæði að ýmsum fram- faramálum en síðan afhent ríkinu þessar stofnanir þegar Ijóst var að hlutaðeigandi starfsemi ætti frek- ar að þjóna landinu öllu en höfuð- staðnum einum. Þetta er það sem er að gerast með Námsgagnamið- stöðina og verður að teljast eðlileg þróun, skoðuð í víðari samhengi. Til þess voru grunnskólalögin sett að reyna að búa svo í haginn að framkvæma mætti í sem ríkustum mæli þau boðorð sem skráð eru í annari greininni hér að framan. Námsgagnastofnun ríkisins er nauðsynlegur tengiliður í þessu efni, því að sameinaðar geta hlut- aðeigandi stofnanir best gegnt hlutverki sínu en sundraðar leysa þær ekki vandann nema að hluta og skapa þar með ný vandamál. Heildaryfirsýn er nauðsyn; fram- tíðaráætlanir og allsherjar sam- ræming óhjákvæmileg varðandi gerð og útgáfu námsefnis og gagna í sem fjölbreyttustu formi. Því ætti frumvarp til laga um námsgagnastofnun að hljóta verð- uga afgreiðslu þegar á yfirstand- andi Alþingi. Guðbjartur Gunnarsson. Lúðrasveit Stykkishólms 35 ára Frá Stykkishólmi LjÓHm. Mats Wlbr Lund. Stykkishólmi í maf. LÚÐRASVEIT St.vkkishólms minntist 35 ára starfsafmælis síns með veglegum tónleikum í Félags- heimili St.vkkishólms föstudags- kvöldið 20. apríl s.l. Var verkefna- skráin fjölbreytt. Á þessum hljóm- leikum mættu og léku með 5 lúðrasveitarmenn frá Reykjavík og var einn þeirra Sæbjörn Jónsson, stjórnandi Lúðrasveitarinnar Svans, en hann er gamali félagi Lúðrasveitar Stykkishólms. I Lúðrasveit Stykkishólms eru nú margir félagar ungir að árum og hefir hún endurnýjað sig mjög á seinustu árum. Stjórnandi hennar nú er Arne Björhei frá Noregi sem hér hefir verið skólastjóri Tónlist- arskólans í Stykkishólmi s.l. tvo vetur. Lék Arne með á trompet í brassbandi sem gestirnir voru með og þótti hinn mesti fengur að. Þessir hljómleikar stóðu yfir í um 2 stundir við mikinn fögnuð áheyr- enda. Á eftir minntust félagar Lúðrasveitarinnar afmælisins með samsæti þar sem Árni Helgason rifjaði upp gamla tíð bæði í gamni og alvöru og Sæbjörn Jónsson minntist sinna daga með Lúðra- sveitinni. Lúðrasveitin var stofnuð á sumardaginn fyrsta þjóðhátíðarár- ið 1944. Aðalhvatamenn að stofnun hennar voru Víkingur Jóhannsson og Árni Helgason og var gengist fyrir fjársöfnun í bænum til lúðra- kaupa. Voru undirtektir við fjár- beiðnum sérstaklega góðar og var hægt að koma sér upp góðum efnivið miðað við þær aðstæður sem þá voru fyrir hendi. Víkingur var svo fyrsti stjórnandi hennar og stjórnaði henni yfir 30 ár og oft við mikla erfiðleika og aðstæður. Húsnæði var þá ekkert fast en fengið að vera bæði í kaffistofum fyrirtækja og eins í barnaskólan- um, en það varð til þess að erfitt var að halda saman eignum félags- ins og félagar að geyma þær heima við erfiðar aðstæður. Fyrstu tónleikar voru svo í okt. sama ár. Þá var búið að æfa 7 félaga sem léku nokkur lög fyrir bæjarbúa. Víkingur varð að æfa hvern nýliða og alltaf bættust sveitinni starfskraftar. Var þetta því mikið starf sem unnið var allt eftir annan vinnutíma í fullu starfi. Lúðrasveitin hefir um árin leikið fyrir bæjarbúa við öll meiri háttar tækifæri. Farið tónleika- ferðir um Snæfellsnes og víða um land. Þá var Lúðrasveitin stofnaðili að Sambandi ísl. lúðrasveita og hefir sótt mörg mót sem haldin hafa verið á vegum sambandsins. Albert Klahn hljómsveitarstjóri varð á fyrstu árum lúðrasveitar- innar mikill velunnari hennar og stuðningsmáður og kom oft í heim- sókn og æfði félaga og stjórnaði. Honum á sveitin mikið upp að unna. Lúðrasveitarmenn sáu fljótt að þeir þyrftu að eiga samastað fyrir starfsemi sína og í sjálfboðavinnu komu þeir upp Hljómskálanum sem enn í dag þjónar því hlutverki að vera miðstöð hljómæfinga í Hólminum. Þar er Tónlistarskólinn til húsa og eins æfir Lúðrasveitin þar fyrir sína starfsemi. Á þessum 35 árum hefir Lúðrasveitin verið snar þáttur í skemmtanalífi bæj- arbúa og sett sinn svip á bæinn. Eins og áður sagði var Víkingur Jóhannsson stjórnandi Lúðrasveit- arinnar í 33 ár og var honum á afmælistónleikunum þökkuð óeig- ingjörn þjónusta þetta tímabil bæði af Lúðrasveitinni og oddvita staðarins Ellert Kristinssyni sem flutti afmælisóskir. Einnig flutti afmælisóskir Einar Karlsson form. Verkl.fél. Stykkishólms, en Verka- lýðsfélagið færði Lúðrasveitinni 100 þúsund kr. í afmælisgjöf. Formaður Lúðrasveitarinnar nú er Bjarni Lárentsínusson, en Árni Helgason var formaður hennar í 26 ár. I júnímánuði verður haldið á vegum lúðrasveitanna í landinu lúðrasveitarmót og mun Lúðrasveit Stykkishólms hafa allan veg og vanda af undirbúningi en mótið verður í hinu glæsilega félagsheim- ili staðarins. — Fróttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.