Morgunblaðið - 09.05.1979, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979
33
fclk í
fréttum
+ Einn frægasti skemmtikrafturinn í Bandaríkjunum, Johnny Carson, hefur skýrt frá því, að hann
muni draga sig i hlé næsta haust. Sjónvarpsþættir hans „Skemmtun á síðkvöldi“, hafa verið á
skjánum þar vestra í 17 ár samfleytt. Hér er Johnny Carson í þremur gervum sem hann hefur komið
fram í á skemmtunum sínum. Carson er talinn tekjuhæsti sjónvarps-skemmtikraftur í
Bandarikjunum. Eitthvað mun hafa kastast í kekki milli hans og ráðamanna við NBC-sjónvarps-
stöðina. Mun það vera ein helzta ástæðan fyrir því að Carson vill hætta í haust eftir 17 ára starf, með
allt upp í 47 vikulegar sýningar á ári.
+ Forsetabróðirinn Billy Carter á við áíengissýki að
stríða og hefur hann verið á hæli drykkjumanna í
Kaliforníuríki. Á myndinni er Billy kominn í
heimsókn til bróður síns í Hvíta húsinu, eftir að
hann var brautskráður af hælinu.
+ Þessi blaðaúrklippa
barst blaðinu. Segir
þar, að myndin sé af
íslenzkri hárgreiðslu-
dömu, Guðfinnu Gísla-
dóttur að nafni, sem
hafi sigrað í hár-
greiðslukeppni sem
haldin var í borginni
Plymouth á Bretlandi. í
texta með myndinni seg-
ir, að Guðfinna hafi far-
ið til Bretlands til að
læra ensku, en hún
kunnað svo vel við sig
að hún hafi ákveðið að
ílendast þar í landi og
nema hárgreiðslu. Ekki
er getið um heimilis-
fang Guðfinnu hér á
landi.
Rauði kross íslands:
Lokaátak
Júgóslavíu-
söfnunarinnar
A vogum hjálparsjóðs Rauóa
kross Islands or nú í gangi
fjársöfnun til aó hlúa aó þoim.
som oiga um sárt að binda vogna
jaróskjálftanna í Júgóslavíu.
Lokaátak söfnunarinnar for
fram þossa dagana. því fyrirhug-
að or að honni ljúki 12. maí n.k.
Sama dag og hjálparbeiðni
barst Rauða krossinum voru send-
ar 2 millj. kr. til hjálparstarfsins
og hafin fjársöfnun. Það verkefni
sem Rauði krossinn hefur með
höndum í Júgóslavíu er fyrst og
fremst á sviði félags- og heilbrigð-
ismála. Mikið verk er óunnið við
uppbyggingu á jarðskjálftasvæð-
unum, þó neyðarstigið sé nú yfir-
staðið.
„Náttúruhamfarirnar í Júgó-
slavíu eru áþekkar því sem gerst
gætu hér á landi,“ segir í frétta-
tilkynningu frá R.K.I. Þar segir
einnig: „Við höfum lent í örðug-
leikum vegna náttúruhamfara og
þá mátt reiða okkur á aðstoð
annarra. Er þess vænst að
landsmenn bregðist við af rausn
og leggi sitt af mörkum til aðstoð-
ar þessu málefni."
Tekið er við framlögum á gíró-
Þossi mynd gofur hugmynd um
afloiðingar náttúruhamfaranna i
Júgóslavíu.
reikningi 90.000 í öllum pósthús-
um og peningastofnunum, auk
þess sem deildir félagsins taka við
framlögum.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 80., 82. og 84. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1978 á Holtagerði 80,
þinglýstri eign Steinars Steinssonar, fer
fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 15. maí
1979 kl. 11:00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
1/2 lítri köld mjólk
1 RÖYAL búðingspakki.
Hrœrið saman.
Tilbúið eftir 5 mínútur.
Súkkulaði karamellu
vanillu járðarberja
sítrónu.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480