Morgunblaðið - 09.05.1979, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.05.1979, Blaðsíða 40
AUGLVsINÍÍASIMINN EK: 22480 AUíiLÝSINGASÍMINN ER: 22480 MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1979 SAUÐBURÐUR Ljósm. Mbl. RAX. UMRÆÐUR eru nú hafnar innan Alþýðubandalagsins um setningu bráðabirgðalaga strax eða skömmu eftir þinglausnir, sem talið er að verði 23. maí. Hugmyndir um efni bráðabirgðalaganna er að hækka grunnlaun launþega, annarra en opinberra starfsmanna, sem fá 3% áfangahækkun nú, einnig um sömu prósentu, setja á vísitöluþak og framkvæma „uppskurð á launum flugmanna“, eins og tíðindamaður Mbl. komst að orði. Þá er einnig í ráði að setja á algjöra verðstöðvun í einhvern tíma. Þessar hugmyn^ir voru ræddar á sameiginlegum fundi fram- kvæmdastjórnar og stjórnar verkalýðsmálaráðs Alþýðubanda- lagsins í gær. Þar kom fram að hugmyndir manna eru um vísi- töluþak það hátt, að laun miðlungstekjumanna lendi undir þakinu, þ.e.a.s., að þakið verði einhvers staðar á bilinu 350 til 400 þúsund króna mánaðarlaun. Er miðað við að þakið verði við tvöföld verkamannalaun. Þá lýstu verkalýðsforingjar Alþýðubanda- lagsins þungum áhyggjum vegna gífurlegra verðhækkana á vöru og þjónustu, sem dyndu yfir og lýstu nauðsyn þess að sett yrði á mjög ströng löggjöf um verðstöðvun, sem stæði til takmarkaðs tíma. Loks var rætt um „uppskurð" á launum flugmanna" og jafnframt að þau 3%, sem lögin ættu að færa Semja mjólkurbúin við mj ólkurfræðinga? Gæti leitt til úrsagnar MS og Flóabúsins úr VSÍ STERKAR líkur benda til að stjórnir mjólkurbúa um landið vilji ganga til samninga við mjólkurfræðinga, sem lagt hafa fram ákveðnar kröfur og boðað verkfall 14. maí. Fulltrúar bænda, sem sitja í stjórnum fyrirtækjanna, vilja semja og segjast ekki tilbúnir að helia niður mjólk. Hins vegar eru Mjólkursamsalan f Reykjavfk og Mjólkurbú Flóamanna innan Vinnuveitendasam- bands íslands. sem ekki treystir sér til þess að ganga til samninga og skerist þar f odda, getur svo farið að þessi tvö fyrirtæki segi sig úr VSÍ. Samkvæmt heimildum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær, mun Vinnumálasamband samvinnufélaganna óformlega styðja þessar kröfur um samninga við mjólkurfræðinga, þar sem Vinnumálasambandinu hefur ávallt verið það þyrnir i augum að þessi tvö stóru fyrir- tæki, Mjólkursamsalan og Flóa- búið, séu aðilar að VSÍ. Einnig mun fjölmennur hópur innan Mjólkurfræðingafélagsins telja það til vansa að þessi fyrirtæki séu innan VSI. Ástæðan fyrir því að Mjólkur- samsalan er í Vinnuveitenda- sambandinu eru samningar, sem gerðir voru fyrir mörgum árum. Heimildarmaður blaðsins kvað þennan samning hafa verið einn þáttinn í því að skapa þann frið, sem verið hefði um hana á undanförnum árum. Hann kvað þetta mál í raun vera pólitískt, það fyndu mjólkurfræðingar og því væru þeir svo harðir sem raun bæri vitni í þessari deilu. launþegum landsins, undanþægju flugmenn, þannig að laun þeirra hækkuðu ekki um 3%. Þessar hugmyndir munu enn ekki hafa verið viðraðar við sam- starfsflokka Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn, Alþýðuflokk og Fram- sóknarflokk, en tíðindamaður Mbl. taldi ekki erfitt að fá þá flokka inn á þessar hugmyndir, þar sem þeir hefðu yfirleitt viljað ganga lengra í kaupmáttarskerðingu en Alþýðu- bandalagið. í dag mun fyrirhugað að halda fund í Verkalýðsmálaráði Aiþýðu- bandalagsins. Útgerð meðalbif- reiðar kostar 2,2 milljónir SAMKVÆMT útreikningum, sem Félag íslenzkra bifreiðaeigenda hefur gert, er reksturskostnaður meðalbifreiðar, t.d. Cortinu 1600, 2.2 milljónir króna á ári. í þessu dæmi er reiknað með 16 þúsund kílómetra keyrsla á árinu og benzfnkostnaður er samkvæmt því liðlega 400 þúsund. Afskriftir nema 776 þúsund krónum og vextir 440 þúsundum. Ef sams konar dæmi er sett upp með bifreið af gerðinni Range Rover og reiknað með 25 þúsund kílómetra ársakstri verður rekst- urskostnaðurinn 4.7 milljónir króna. FÍB hefur reiknað út að hver ekinn kílómetri á Cortinunni kosti 137.43 kr. með vöxtum og afskriftum, en á Ranger Rover kostar kílómetrinn 189.50 kr. Sjá blaðsíðu 20: „Ef þú ekur hringveginn...“ Hugmyndir innan Alþýðubandalags um bráðabirgðalög: 3 % kauphækkun, vísi- töluþak og verðstöðvun „Prinsess- an á baun- inni” stytt ÁKVEÐIÐ hefur vcrið að stytta sýninguna á söngleiknum „Prinsessan á bauninni“, sem frumsýndur var í Þjóðleik- húsinu s.I. laugardagskvöld. Sýningin hefur fengið fremur neikvæða dóma hjá gagn- rýnendum ug þeir m.a. talið hana of langdregna. Sýningin er tæpir þrír klukkutímar og samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér. mun ætlunin að stytta hana um a.m.k. hálfa klukkustund. „Jú, það er rétt, við höfum hug á því að stytta sýninguna og munum halda fund um málið á miðvikudaginn," sagði Þórhallur Sigurðsson aðstoðarleikstjóri þegar Mbl. ræddi við hann í gær. „Leikstjórinn, Danya Krupska, lagði óhemju mikla vinnu í verk- ið, bætti t.d. inn í það nokkrum dansatriðum enda mikill dans- höfundur. Það má því segja að verkið sé að hluta hennar sköp- un. Á frumsýningunni fundum við inn á það að fólki þótti sýningin of löng og því ætlum við að stytta hana eitthvað til þess að hún gangi betur og fjörið haldist." Gódur afli í maí þrátt fyrir bann Grlndavfk AFLI báta, sem leggja upp hér í Grindavík, hefur verið mjög góð- ur það sem af er þessum mánuði, en bátarnir byrjuðu á trolli 2. maí vegna netaveiðibannsins. 13 bátar komu að landi í gær- kvöldi með 216 tonn. Þar af var Ólafur GK 33 með rúmlega 21 tonn og fengu Einar Dagbjartsson og hans menn megnið af aflanum í einu togi, mestmegnis ýsa. Erling- ur RE hefur á þessum sex dögum komið með að landi 105 tonn, þorsk og ýsu, en hinir bátarnir hafa að mestu verið með ýsu, enda róa þeir grynnra. — Guðfinnur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.