Morgunblaðið - 19.05.1979, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.05.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1979 23 - *r yífc&sf* ■ komað i tisM - viö værum alveg viðbúnir því eins og öllum breytingum og nýjungum. krommenie gólfdúkur vísar veginn: - einstæð hönnun - níðsterkur - hagstætt verö - og leikur að halda honum hreinum. Lítið inn hjá okkur og skoðiö úrvalið. liiurinn Síðumúla 15 sími 3 30 70 sitjum í minnihluta bæjarstjórnar. Og það athyglisverða er, að í ljós kom bein hræðsla við almenna umræðu um jafnsjálfsagt mál. Fram voru komnar tvær tillögur um sama efni, en í grundvallaratr- iðum gerólíkar. Önnur var sett fram til stuðnings einkahags- munum fjárfestingarmanna, en hin sett fram af félagshyKgjufólki til stuðnintís aukins velferðarsamfé- lajís. Þennan t;rundvallarmismun þorðu meirihlutamenn t?reinilet;a ekki að ræða. Eins og fram kemur í frávísunar- tillögu meirihluta bæjarstjórnar, þá er hér á ferðinni alveg nýr skilningur á vandamálum aldraðra. Þau eru fyrst og fremst fólgin í því að trygtíja fjárfestingarhagsmuni aldraðra. og þá sjálfsagt einkum eignamanna, en eins og segir í Guðrún K. Þorbergsdóttir bæjarfulltrúi: tillögu meirihlutans, þá á bæjarfé- lagið að sjá um að „eldra fólki verði gert mögulegt að tryggja fjármuni sína í fasteignum ...“ Það má þvi segja að hér ráði kapitalískt steinsteypusjónarmið algjörlega ferðinni. Meirihlutamenn í bæjarstjórn Seltjarnarness hafa ekki gert grein fyrir því, hvernig tryggja beri hag þeirra sem ekki eru nægilega fjár- sterkir til að kaupa sér íbúð. Meðan ekki er tryggður jafn réttur allra, ríkra sem þeirra efnaminni til búsetu í íbúðum fyrir aldraða, þá búa íbúar Seltjarnarne'ss ekki í velferðarsamfélagi. Vilji íbúanna? Draumabærinn Seltjarnarnes er því miður ekki annað en draumsýn nokkurra talsmanna bæjarins. Það er sorglegt að þurfa að viðurkenna það, og við upprifjun á ummmælum þeirra minnist maí.ir stundum ævintýris H.C. Andersen um „Nýju fötin keisarans“. Það er auðvelt að hafa útsvörin lág og veita afslátt af fasteignagjöldum, þegar bæjarfé- lagið heldur að sér höndum í málefnum aldraðra og treystir á eignamenn til að leysa þann vanda fyrir sjálfan sig og hinir efnaminni verða útundan. Þegar komið er í veg fyrir byggingu dagheimila og skóla- dagheimila fyrir börn og treyst á að þeir sem þurfi á slíkri þjónustu að halda flytji brott, þegar ráðist er í framkvæmdir í heilsugæslumálum í krafti þess, að ríkið borgi megin- hluta kostnaðarins. Nýjustu atburðir í bæjarstjórn Seltjarnarness vekja hins vegar upp spurningar um það, hvort íbúar Seltjarnarness vilja eiga það að mestu undir fjárfestingaspeku- lasjónum eignamanna, hvort aldr- aðir geti búið þar til æviloka. Fjárfestingarhagsmunir eóa velferóarþjónusta? Myndlist í Hlégarði ÁHUGAFÓLK um myndlist hef- ur að undanförnu haldið sýningu í Hlégarði í Mosfellssveit. Sýnendur eru 14, en verkin alls 47, nær allt olíumyndir, og hafa nokkrar þeirra þegar selzt. Kvenfélag Lágafellssóknar gekkst fyrir tveimur námskeiðum á s.l. vetri og var sýningin opnuð í tilefni af aðalfundi félagsins 14. maí. Kennarar voru þeir Guðmundur Karl og Gunnlaugur Stefán Gíslason listmálarar. Er þetta annar veturinn, sem kven- félagið heldur slík námskeið. Sýningin verður opin í dag, laugardag, kl. 6—8, en henni lýkur á sunnudag. Verður hún þá opin frá kl. 1—10 e.h. „1) Að bæjarfélagið veiti aðstöðu til að einstaklingarnir geti hjálpað sér sjálfir og 2) að hjálpa þeim einstaklingum, sem af ýmsum óvið- ráðanlegum og félagslegum ástæðum geta ekki af eigin ramm- leik búið að hag sínum á efri árum.“ Það er hart til þess að hugsa, að það flokkist undir getuleysi og þjóðfé- lagslegt afbrigði hafi maður ekki náð að fjárfesta í ýmsum stærðar- gráðum af húsnæði til að geta tryggt sér viðunandi lífsviðurværi áður en ævin er öll. Tillaga þessi brýtur svo gersamlega í bág við hugmyndir þær sem félagshyggju- fólk gerir sér um slíkar fram- kvæmdir, að minnihluti bæjar- stjórnar lagði fram eftirfarandi tillögu: „Bæjárstjórn beiti sér fyrir og annist byggingu og rekstur á íbúð- um aldraðra svo fljótt sem auðið er. Við byggingu húsnæðisins skuli tryggt að þar verði aðstaða til að veita íbúum þess alhliða þjónustu og nauðsynlega umönnun. Við Ákveðnar hugmyndir eru ríkj- andi um það í hverju velferðarsam- félag eigi að vera fólgið. I velferðar- samfélagi er veikum séð fyrir lækn- ishjálp og hjúkrun. í velferðarsam- félagi er leitast við að sjá þeim foreldrum fyrir dagvistun barna sinna sem á henni þurfa nauðsyn- lega að halda. Þar er sinnt jafnt ungum sem gömlum, ríkum sem fátækum. Þar er félagslegri hjálp og þjónustu beint á eins víðtækan hátt og auðið er. Það bæjarfélag er ekki velferðarsamfélag þar sem það er undir fjárhag einsaklingsins komið, hvernig búið er að honum í eliinni, hvernig hlúð er að honum í veikindum eða í örkuml, eða hvern- ig búið er að yngstu kynslóðinni. Hvað eftir annað á undanförnum mánuðum hafa frásagnir af hinu einstæða bæjarfélagi, Seltjanar- nesi, verið lestrarefni í dagblöðun- um. Talsmenn Sjálfstæðismeiri- hlutans hafa hvað eftir annað komið fram á sjónarsviðið og látið hafa eftir sér frásagnir af dásemd- um bæjarins og hinum lágu skött- um sem lagðir eru á íbúana. Að þeirra dómi er Seltjarnarnes draumabær, sem skortir ekkert nema áfengisútsölu. Þar er vel- megunin svo mikil að ekki er nýtt til fulls heimild til 11% útsvars- álags og meiri afsláttur er veittur af fasteignagjöldum en í flestöllum öðrum sveitarfélögum landsins. Félagslejí þjónusta í lágmarírí Bæjarstjórnarmeirihlutinn á Sel- tjarnarnesi virðist heldur ekki hafa áhyggjur af félagslegri þjónustu. Hún er í algjöru lágmarki. Meiri- hlutamenn stinga höfðinu í sandinn og leyna staðreyndunum í hugarór- unum um dásemdirnar. Þeir minn- ast ekkert á það, að á Seltjarnar- nesi er ekkert dagheimili fyrir börn, ekkert skóladagheimili, eng- inn einasti leikvöllur á norðurhluta Nessins, leikskólinn býr við hrör- legan húsakost, lágmarksþjónusta er veitt fyrir aldraða, svo ekki sé minnst á dagvistun fyrir þann aldurshóp. Aldraðir Seltirningar vistast nú einkum á Hrafnistu og Grund. Einnig má nefna að brunavarnir sækja Seltirningar til Reykjavíkur, svo og strætisvagnasamgöngur og heilsugæsluþjónustu, þótt úrbóta á því sviði sé von, en þá er það líka ríkið sem borgar brúsann að lang- mestu leyti. Stundum hvarflar það að manni, að sjálfstæðismeirihlutanum á Sel- tjarnarnesi sé engan veginn ljóst, hverjar séu félagslegar þarfir íbú- anna og hvers vegna það sé skylda forvígismanna bæjarfélagsins að sjá íbúunum fyrir víðtækri félags- legri þjónustu. Það er sorglegt til þess að vita að sumir forvígismann- anna virðast skoða það sem hreins- un á „óþurftarlýð" þegar íbúarnir flytja burt vegna skorts á félags- legri þjónustu. Félagshyggjufólk á Seltjarnar- nesi hefur lengi haft það á stefnu- skrá sinni að ráða bót á málefnum aldraðra. Fyrir mér hefur það alltaf verið sjálfsagt mál, að yrði ráðist í það verkefni að reisa húsnæði fyrir aldraða, þá yrði það mál bæjarfé- lagsins sjálfs. Það hefði frumkvæði og getu til að sjá um framkvæmd slíks verkefnis. íbúðir fyrir aldraða Á undanförnum þrem fundum bæjarstjórnar Seltjarnarness hafa íbúðabyggingar fyrir aldraða verið á dagskrá og kemur það skýrt fram að bæjarstjórnarmeirihlutinn ætl- ar nú enn einu sinni að skjóta sér undan skyldum sínum. Hann ætlar ekki að standa að slíkum fram- kvæmdum. Hann ætlar að kasta af sér ábyrgðinni og leita til einstakl- inga og þá væntanlega þeirra efna- meiri, því hverjir aðrir eiga það umframfé sem nauðsynlegt er til að taka þátt í byggingu húsnæðis sameignarfyrirtækisins sem nú að að leysa vanda íbúðabygginga aldr- aðra? Á bæjarstjórnarfundi fyrir nokkru síðan var flutt tillaga sjálf- stæðismeirihlutans um byggingu íbúða fyrir aldraða. Þar sýnir meirihluti bæjarstjórnar vissulega sína réttu hlið. Tillagan er svo- hljóðandi: „Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir að taka þátt í sameign- arfélagi um byggingu og rekstur íbúða fyrir aldraða, ef af verður. Bæjarstjórn samþykkir að kjósa nú þegar 3ja manna nefnd til þess að gera tillögur um stofnsamning fyrir sameignarfélagið eða finna annað rekstrarform ef hentugra þætti. Framlag bæjarsjóðs til félagsins yrði m.a. lóð og gatnagerðargjöld auk beinna fjárframlaga." Tillagan gerir ekki kröfur til þess að bæjarfélagið tryggi framkvæmd verksins, heldur skuli leitað hóf- anna hjá efnuðum bæjarbúum til að mynda sameignarfélag þar sem þeir gætu lagt í fé sitt og þannig fjárfest í íbúðum. Bærinn ætlar re.vndar að leggja fram lóð og gefa eftir gatnagerðargjöld og þá sjálf- sagt til að létt yrði örlítið á útgjöldum eignamannanna í fast- eignasöfnun þeirra. í greinargerð kemur fram, að bæjarféiagið má aðeins eiga allt að helmingi eignar- innar og að megintilgangurinn með stofnun sameignarfélagsins sé tví- þættur: rekstur húsnæðisins skuli tryggt að allir bæjarbúar án tillits til efna- hags, hafi jafnan rétt til búsetu í húsnæðinu." Fjárfcstingar- hagsmunir í stað velferðarþjónustu Þegar kom að umræðu um tillögu minnihluta bæjarstjórnar á fundi sl. miðvikudag sýndi meirihluti bæjarstjórnar þá fáheyrðu ósvífni að vilja ekki einu sinni ræða tillög- una og lagði strax fram undarlega frávísunartillögu: „Tillaga D-list- ans gerir ráð fyrir mikið víðtækari uppbyggingu og því að eldra fólki verði gert mögulegt að tryggja fjármuni sína í fasteignum. Sel- tjarnarnesbær mun að sjálfsögðu tryggja rétt þeirra sem ekki hafa bolmagn til þátttöku. Samkvæmt framansögðu leggjum við til að tillögunni verði vísað frá.“ Viðhorf sjálfstæðismeirihluta bæjarstjórnar Seltjarnarness, til félagslegrar þjónustu hafa löngum verið ljós, eins og áður hefur komið fram. En jafnfáheyrð vinnubrögð og hér birtust vöktu þó engu að síður furðu mína og okkar sem Málef ni aldraðra á Seltjarnarnesi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.