Morgunblaðið - 19.05.1979, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1979
Flestir bestu stódhestar
landsins sýndir á „Degi
hestsins” á Melavellinum
Náttíari frá Ytra-Dalsgerði hefur mikið verið til umræðu
manna á meðal í vetur og sérstaklega þykir mönnum dómur á
afkvæmum hans stinga í stúf við gæði hestsins sjálfs. Náttfari
verður sýndur á Melavellinum en hér situr Albert Jónsson
hestinn.
EINS OG kunnugt er af fréttum
gengst Hagsmunafélag hrossa-
bænda fyrir sýningu og dómum
kynbótahesta dagana 18. —20.
maí. Sýningin fer fram í Reykja-
vík en er sótt af féiögum af öllu
suður- og austurlandi. Hápunkt-
ur sýningarinnar verður síðan
dagskrá sú á Melavellinum f
Reykjavfk, sem kölluð hefur
verið „Dagur hestsins“, og
verður á morgun sunnudag 20.
maf kl. 14.
Þorkell Bjarnason hrossarækt-
arráðunautur var af þessu tilefni
spurður um aðdraganda þess að
sýning og dómur stóðhesta er
valinn þessi tími frekar en um
mitt sumar eins og oftast hefur
tíðkast. Þorkell taldi að þó maí-
mánuður væri að þessu sinni eins
kaldur og erfiður bændum og
raun ber vitni, þá væri þetta bezti
og réttasti tíminn til sýningar á
stóðhestum. Þjálfun þeirra væri
hvað bezt á þessum tíma og betri
nýting fengist á þeim yfir sumar-
ið, ef sýningarundirbúningur
gripi ekki inn í.
Ráðgert er að 5 ungir stóðhest-
ar komi fram frá stóðhestastöð-
inni að Litla-Hrauni. Stöðin er
ætluð sem uppeldisstöð á ungum
hestum. Þjónusta stöðvarinnar er
mikið notuð og 37 folum í eigu
hennar hefur nær öllum verið
ráðstafað til leigu í sumar. Þor-
kell var spurður að því hvort ekki
orkaði tvímælis að lítt reyndir og
jafnvel ótamdir folar væru notað-
ir til kynbóta í svo ríkum mæli.
Þorkell kvað sjálfsagt öruggara
að bíða með þá til 4ra vetra aldurs
en einhver tamning væri komin í
þá og þar með gleggri upplýsingar
um stöðu þeirra sem einstaklinga.
Á fleira væri þó að líta. Þannig
væri það afar mikilvægt að stytta
sem mest kynslóðabilið og tiltölu-
lega lítil hætta væri á því að vel
ættaðir og vandlega valdir folar
reyndust lakari en þeir stóðhestar
sem hrossabændur notuðu ella
sjálfir úr eigin stóði. Þá fengist
líka fyrr reynsla á kynbótagildi
folanna ef þeim væri strax komið
út.
Hrossaræktarráðuanautur var
þá spurður álits, og sem flestir
hafa unnið til 1. verðlauna. Hest-
arnir eru taldir upp í stafrófsröð.
Andvari frá Sauðárkrók: Reistur
og myndarlegur hestur með nóg-
an vilja og fjölhæfan og góðan
gang.
Bylur frá Kolkuósi: Fallegur
hestur og glæsilegur töltari. Klár-
hestur með tölti.
Fáfnir frá Laugavatni: Afkvæmi
hans eru töluvert gangfalleg
hross. Mörg þeirra eru hálsgrönn
og falleg, reisuleg án glæsibrags.
Vilji allgóður. Lyftingagóð. Af-
kvæmin vekja meiri athygli
manns þegar komið er á bak þeim.
Glaður frá Reykjum: Stólpa hest-
ur, stór og myndarlegur, ekki
fínlegur. Viljagóður, fjölhæfur,
gangfallegur. Hefur ekki sýnt
umtalsvert skeið ennþá þó trúlega
megi vænta þess.
Hlynur frá Hvanneyri: Vilja- og
lundgóður. Mjög fríður og geðug-
ur. Gangur fjölhæfur og rúmur,
þó ekki teljist hann stólpagripur.
Hrafn frá Holtsmúla: í afkvæma-
úttekt s.I. ár reyndust afkvæmi
hans óvenju bráðger að reiðhesta-
hæfileikum og byggingu. Þau eru
reisuleg og stór, falleg og vekja
athygli í framgöngu. Afkvæmi
Hrafns eru með því bezta sem
Þorkell kvaðst hafa séð af svona
ungu.
Kolbakur frá Gufunesi: Hörku-
mikiil getuhestur sem einstakl-
ingur. Þorkell kvaðst ekki hafa
séð mikið af afkvæmum hans, en
þau virtust viðamikil og ekki
fínleg en reikna mætti með tölu-
verðu af getuhrossum.
Náttfari frá Y-Dalagerði: Alveg
einstakur hestur sem einstakling-
ur. í hjarta sínu kvaðst Þorkell
óska þess að hann brygðist ekki
sem kynbótahestur en því væri
ekki að naita að í afkvæmadómi
s.l. ár hefðu afkvæmi hans reynst
hestinum mikið síðri.
Rosi frá Nýjabæ: Gullfallegur,
stór og mjög glæsilegur töltari,
langstígur og fótaburður mjög
góður. Með alglæsilegustu töltur-
um sem hann hefði séð.
Skarði frá Skörðugili: Bráðfalleg-
ur hestur, glæsilegur og hágengur
töltari. Ekki nógu fíngerður og
gangur helst til grófur.
Sveipur frá Rauðsbakka: Úrvals-
ganghestur, fjölhæfur og rúmur.
Mjög álitlegur stóðhestur.
Sörli frá Sauðárkróki: Sörli hlaut
heiðursverðlaun á síðasta Lands-
móti og undirstrikaði þar ágæti
sitt sem kynbótahests. Afkvæmi
hans hafa góðan og léttan vilja og
góða lund. Þau eru auðtamin og
fljót til. Þau eru yfirleitt ganglag-
in og uppí það að vera snillingar.
Þau mættu vera með fínlegra
höfuð. Mörg þeirra eru ágætlega
myndarleg og reist og yfirleitt
með góðan fótaburð.
Þröstur frá Kirkjubæ: Fínlegur
og fríður og ganggóður. Vantar
meiri glæsibrag í frambyggingu.
Ágætlega viljugur. Flest jákvætt í
byggingu og kostum.
Þröstur frá Teigi: Myndarlegur
hestur, ágætlega góður reiðhest-
ur. Mjög fjölhæfur, viljagóður,
Hestar
Umsjón« Tryggvi
Gunnarsson
gangmikill og fallegur. Lyftir vel.
Lundgóður.
Þá munu koma fram nokkrir
ungir stóðhestar sem komið hafa
fyrir dóm áður, en eru nú dæmdir
öðru sinni, þá væntanlega full-
tamdir og búnir að taka út fullan
þroska. Þeirra á meðal er stóð-
hesturinn Örvar er sýndur var á
landsmóti s.l. sumar í flokki 4 V
stóðhesta. Þó ekki sé unnt að telja
5 vetra fola fullþroskaðan, þá er
hitt víst að foli þessi, tinnusvart-
ur, fjallhár og föngulegur, mun
eflaust vekja athygli fyrir mynd-
arskap og reiðhestakosti.
Eins og ráða má af yfirliti
þessu er hér um mikið hestaval að
ræða og má telja fullvíst að
hestamenn hafi um nóg að hugsa
og spjalla þegar þeir hafa litið
hópinn augum.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Teiknistofa
Teiknistofa óskar eftir starfskrafti, um er aö
ræöa almenn skrifstofustörf. Umsækjandi
veröur aö geta unnið sjálfstætt. Vinnutími frá
kl. 9—12. Tilboö sem greinir aldur og fyrri
störf sendist augld. Mbl. fyrir miðvikudaginn
23. maí merkt: „ T — 5862“.
Matsveinar —
matreiðslumenn
Vantar nú þegar eöa sem fyrst góöan
reglusaman matsvein á Hótel Höfn. Mikil
vinna. Hvort tveggja kemur til greina, vinna í
nokkra mán. eða framtíöarstarf. Uppl. gefur
Árni Stefánsson, símar 97-8215-eða 8240.
Vantar
innréttingasmiði
Mikil vinna.
Smíöastofan, Hjallahrauni 11, sími 52106.
Einkaritari
Stórt fyrirtæki í Reykjavík á sviöi utanríkis-
viöskipta óskar að ráöa nú þegar til starfa
einkaritara forstjóra. Umsækjendur þurfa aö
hafa góða menntun. Góð kunnátta í íslenzku,
ensku og einu Norðurlandamáli nauösynleg,
svo og vélritunarkunnátta. Starfsreynsla er
æskileg. Um er aö ræöa fullt starf, en þó
kemur hálfsdagsstarf til greina.
Eiginhandarumsóknir skulu sendar augl.deild
Mbl. merktar: „Einkaritari — 9970“ sem allra
fyrst, ásamt uppl. um menntun og fyrri störf.
Fariö verður með umsóknir sem trúnaðar-
mál. Góö launakjör.
Skipstjóri
og 1. vélstjóri
Óskum að ráöa skipstjóra og 1. vélstjóra á
skuttogara, sem veröur gerður út frá Suð-
vesturlandi.
Tilboö ásamt uppl. um starfsreynslu, sendist
Mbl. fyrir 26. maí 1979 merkt: „Skuttogari —
5941“
Frá Tónlistarskóla
Húsavíkur
3 kennara vantar aö skólanum í haust:
Strengjakennara, Blásarakennara og
píanókennara.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 41697
eöa 41560.
Kynningar-
og sölustarf
Sérverslun sem tekur til starfa í byrjun júní
n.k. óskar eftir aö ráöa starfskraft til
kynningar og sölu nýrrar tegundar heimilis-
tækja og áhalda. Starfið krefst snyrti-
mennsku, sjálfstrausts, frumkvæðis og að
viðkomandi eigi auðvelt meö aö tjá sig.
Æskilegur aldur 30—45 ára.
Góö laun fyrir hæfan starfskraft. Tilboö
merkt: „S — 5974“ sendist augld. Mbl. fyrir
mánudagskvöld n.k.
Skrifstofustarf
Starfskraftur óskast til starfa strax. Starfið
felur í sér aö annast vélritun, útskrift
reikninga, bókhald, frágang víxla, skjala-
vörslu og almenn skrifstofustörf tengd inn-
flutningi. Æskilegt er að umsækjandi hafi
haldgóöa reynslu á erlendum bréfaskriftum
og gott vald á enskri tungu. Æskilegur aldur
á umsækjanda er 22—30 ára. Verslunar-
skóla- eöa stúdentsmenntun áskilin eöa
hliðstæö menntun. Umsækjandi þarf aö vera
þægilegur r umgengni, sjálfstæöur og meö
töluverða starfsreynslu. Skólafólk kemur
ekki til greina. Upplýsingar um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Morgun-
blaðinu merkt: „S — 9965“.
Vinnuskóli
Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa um
mánaöamótin maí—júní n.k.
í skólann veröa teknir unglingar fæddir 1964
og 1965 og/eða voru nemendur í 7. og 8.
bekk grunnskóla Reykjavíkur skólaáriö
1978—1979.
Umsóknareyðublöö fást í Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar, Borgartúni 1 sími 18000
og skal umsóknum skilað þangaö eigi síöar
en 23. maí n.k.
Nemendum, sem síðar sækja um, er ekki
hægt að tryggja skólavist.
Vinnuskóli Reykjavíkur.