Morgunblaðið - 19.05.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.05.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ1979 33 fer afgreiðsla hennar fram í kjall- ara Pósthússins í miðbænum. En hvers konar fornaldarfyrirkomu- lag og þjónustuleysi við viðskipta- vinina er það að allir símnotendur í bænum — um 38 þúsund talsins — skuli þurfa að steðja á einn stað til að sækja þetta bráðnauðsyn- lega ritverk? Margir þurfa að fara um langan veg og margir eru gamlir eða lasburða, nema hvort tveggja sé. Eg heyri fyrir mér röksemda- færslu ráðamanna þeirrar opin- beru stofnunar, sem í hlut á. Það er verið að spara. Vafasamt er að þetta ráðslag hafi nokkurn sparn- að í för með sér, eða hvað skyldu ferðalög alls þessa fólks eftir símaskránni kosta, að ekki sé talað um vinnutapið. Auðvitað kemur sá ferðakostnaður ekki á útgjaldalið Pósts og síma, en sendingarkostnaði mætti að skað- lausu bæta á afnotagjaldið. Pósti og síma skal bent á það að Póstur og sími bjóða upp á sérstaka þjónustu á sérstökum kjörum í sambandi við dreifingu á prentuðu máli, og er burðargjald allmiklu lægra en þegar um venjulegan póst er að ræða.“ • „Ég spyr að leikslokum“ Ég ætla að vona að það þyki ekki hótfyndni hjá mér þótt mér finnist að fjölmiðlar gefi manni aldrei nógu greinargóðar upplýs- ingar um hagi þeirra Afríkuþjóða sem eftir langa nýlendustjórn fengu loks frelsi en urðu svo sósíalismanum að bráð. Ég vil ekki spyrja að vopnaviðskiptum heldur að leikslokum og hvað fékkst að lokum upp úr krafsinu. Ég sá í blaði í fyrra efnahags- lýsingu frá Mozamibque og var hún ófögur. Aðalútflutningur landsins væri hnetur. Bændur seldu kaupmönnum þessar hnetur en þeir seidu þær síðan óunnar eða unnar út úr landi. Hneturnar voru mikilvægar fyrir bændur í skiptum fyrir matvörur sem þeir framleiddu ekki sjálfir, auk þess fengu þeir olíu og klæðnað. Kaup- mennirnir máttu auðvitað ekki þrífast þar frekar en annars stað- ar þar sem sósíalisminn ræður. Allt var „sósíalíserað" og gáfaður sósialisti, Caravalho, gerður að landbúnaðarráðherra. Þá skipti snögglega um. Árið 1973, síðasta stjórnarár Portúgala, var fram- leiðslan 216 þúsund smálestir, 1976 var hún 95 þúsund tonn og 1977 aðeins 45 þúsund smálestir. Þá var ráðuneytið kallað hungur- málaráðuneytið. Caravalho var rekinn og sami háttur hafður á og á dögum Stalíns, að frá því að vera gáfaðasti og besti landbúnaðar- ráðherra heims þá var hann nídd- ur og borinn öllum vömmum og skömmum, en ekkert jókst fram- leiðslan. Þetta er dæmigert fyrir sósíalismann hvar sem er í heim- inum. • „Hver á að framleiða?“ Hvar á að taka peninga til launahækkunar hér til handa þingmönnum og öðrum hátekju- mönnum ef fiskframleiðslan dregst saman hjá okkur íslending- um. Rússland var kallað korn- forðabúr Evrópu í minni landa- fræði og þá voru engin nýmóðis landbúnaðarverkfæri til. En núna er alltaf matvælaskortur í sjálfu kornforðabúrinu og það eina sem Rússar senda til Afríku sem mest vantar matinn, eru vopn og morð- sveitir Castros. Ætlar heimurinn að horfa að- gerðalaus á að Afríka verði kommúnismanum að bráð og skortur, harðrétti og alls kyns kúgun eigi að taka við af nýlendu- veldunum sem voru hrein himna- sending fyrir þá innfæddu miðað við kommúnismann sem búinn er að sýna sig í Austur-Evrópu. Hver á að framleiða matinn fyrir mann- skapinn þegar sósíalisminn er orðinn allsráðndi, því hann er eins og hesturinn hans Atla Húnakon- ungs, það grær ekki gras í sporum hans. Húsmóðir. Þessir hringdu . . . • Eiga bíl- stjórarnir að hjálpa? Kona í Laugaráshverf- inu hringdi: „Hjá mer er í vist sænsk stúlka og þarf hún að komast í miðbæinn á hverjum degi með barn í lítilli kerru. Notar hún strætisvagninn nr. 5 til að komast i bæinn. En það er alveg sama hversu erfiðlega henni gengur að koma kerrunni inn í strætisvagn- inn, bílstjórinn hjálpar henni aldrei. Þeir sem helst hlaupa til og SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu i Buenos Áires í fyrra kom þessi staða upp í skák stórmeistaranna Dzindzindhashvilis, ísrael, og Browne. Bandaríkjunum, sem hafði svart og átti leik. 23 . . . Bcl! (Vegna riddara- skákarinnar á e2 er þessi biskup friðhelgur) 24. Db3 (Eina vörnin Dxb3, 25. axb3 — Bxa3, 26. Rxg4 - Rc2+, 27. Khl - Rd4, 28. Re5 — Rxb3, 29. Rc6 — a5 og svartur vann endataflið án erfiðleika. hjálpa henni er eldra fólk, hið yngra situr bara og horfir á. Dag nokkurn ætlaði vinkona hennar með henni í bæinn og var hún einnig með barn með sér en í nokkuð stærri kerru. Var henni því neitað um far í þessum vagni nr. 5. Gekk hún þá að biðstöð fyrir vagn nr. 4 og fékk far með honum niður í bæinn. Bílstjórar á leið nr. 4 hafa einnig oft reynst hjálplegir við sænsku stúlkuna. Nú veit ég ekki hvort það er í verkahring bílstjóranna að hjálpa henni inn i vagninn með kerruna en alla vega er hún óvön því að enginn hjálpi henni þar sem það er skylda strætisvagnabílstjóra í Svíþjóð að rétta hjálparhönd í þannig tilfellum." HÖGNI HREKKVÍSI "HMnfálMTffl KvARm'l/jjO&dd” I kajmar ínnréttingar hf. SKEIFUNNI8, SÍMI82645 Kvartmílu keppni Kvartmíluklúbburinn mun halda kvartmílukeppni laugardaginn 26. maí kl. 2 e.h. Væntanlegir keppendur mæti meö eöa án bíla dagana 19. og 20. maí á brautina til æfingar og skráningar kl. 2—4 e.h. Vinsamlega athugiö aö skyldutrygging af keppnisbifreiöum veröa aö vera greiddar. Keppnistrygging veröur innheimt á keppnis- degi. Nánari upplýsingar veittar í síma 52445 fimmtudag og föstudag kl. 8—9 e.h. Stjórn Kvartmíluklúbbsins. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.