Morgunblaðið - 19.05.1979, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1979
Öruggur
FH-sigur
Reynir
Tvö falleK mörk skoruð af
þeim t>óri Jónssyni og Janusi
Guðlaugssyni færðu FH sijfur
yfir Reyni. Sandjcerði, á heima-
velli þeirra sfðarnefndu í 2.
deildinni f Kærkvöldi. TveKKja
marka sijjur FH-inga var sann-
Kjarn. þeir voru sterkari allan
tfmann. Voru þeir fljótari á
boltann ojf léku mun betur
saman.
í fyrri hálfleiknum höfðu
FH-ingar nokkra yfirburði og
sóttu nokkuð stíft. Þórir Jóns-
son, fyrrum þjálfari FH, skoraði
fyrsta markið með þrumskoti á
22. mínútu. Var þetta eina mark
hálfleiksins. Strax á 2. mínútu
síðari hálfleiks skoraði svo
Janus Guðlaugsson stórgott
mark með hjólhestaspyrnu rétt
innan vítateigsins. Var þetta
sérlega vel gert hjá Janusi og
hans annað mark í deildinni í ár.
Reynismenn áttu ekki mörg
tækifæri í leiknum en þó skall
hurð nærri hælum hjá
FH-markinu á 12. mínútu fyrri
hálfleiks, er Pétur Sveinsson átti
þrumuskot sem Ólafur mark-
vörður rétt varði í horn.
Skömmu síðar átti Þórður
Marelsson skot af löngu færi
sem rétt sleikti stöngina.
Reynis-menn léku öllu betur í
síðari hálfleiknum og jafnaðist
þá leikurinn nokkuð. jj/þr
Janus Guðlaugsson sem hér sést
reyndar skora f handknattleik
skoraði glæsilegt mark móti
Reyni með hjólhestaspyrnu.
Forest í
öðru sæti
Nottingham Forest sigraði
WBA 1—0 í ensku deildar-
keppninni f gærkvöldi, og tókst
þar með að ná 60 stigum f
deildinni og öðru sæti á eftir
Liverpool. West Bromwich féll
hins vegar niður í þriðja sæti.
Það var milljón punda
maðurinn Trevor Francis sem
skoraði eina mark leiksins að-
eins 8 mfnútum fyrir leikslok,
af um sex metra færi eftir að
bjargað hafði verið á lfnu skoti
frá Tony Woodcock. Leikmenn
Forest fengu 1000 pund í auka-
þóknun fyrir að ná 60 stigum.
Liverpool hlaut 68 stig. Næsta
stórvcrkefni Forest er úrslita-
leikurinn í Evrópukeppni
meistaraliða f Miinchen 30. maf
á móti Malmö FF.
Knattspyrnan um helgina
ÞAÐ verður frekar róleg knattspyrnuhelgi sem framundan er
aðeins þrír leikir fara fram í íslandsmótinu og allir í 2. deild. Öll 1.
deildar liðin eiga frf vegna landsleiksins við Sviss á þriðjudag.
Landsliðsmennirnir héldu utan f morgun, og eru væntanlegir heim
á miðvikudag. mun þá strax hefjast undirbúningur fyrir
landsleikinn við Vestur-Þjóðverja sem fram fer á Laugardalsvellin-
um þann 26. maf.
LEIKIR IIELGARINNAR:
Laugardagur: 19. maf.
2. deild: Akureyrarvöllur kl. 14.00 Þór — Austri
2. deild: Melavöllur kl. 14.00 Fylkir — Þróttur
Sunnudagur: 20. maí Kópavogsvöllur kl. 14.00 UBK — ÍBÍ
Veðjað á Hafnfirðinga í
harðri keppni Zdeildar
AÐ LOKINNI fyrstu umferð-
inni f 1. deildinni f knattspyrnu
eru það tvö félög, sem sérstaka
ástæðu hafa til að gleðjast.
Fram og KA, en bæði þessi lið
unnu sannfærandi 3—1 sigra,
Fram á Vfkingi, KA á Haukun-
um. í raun hafa Framarar þó
enn rfkari ástæðu til að vera
ánægðir, þeirra lið er mun
betra en það var t.d. f fyrra og
líklegt til afreka f sumar. Ekki
nóg með það, heldur „gegnum-
bláir“ Framarar í lykilhlut-
verkum hjá KA, Jóhannes Atla-
son þjálfari liðsins og Elmar
Geirsson fyrirliði KA-manna.
KR-ingar voru mjög sprækir í
norðannepjunni á móti Val á
þriðjudaginn og verðskulduðu
annað stigið og að sögn þeirra,
sem sáu, átti lið Keflvíkinga sízt
minna í leiknum við bikarmeist-
ara Akraness. Vissulega voru lið
Vals og ÍA sigurstranglegri í
þessum leikjum, en það er ekki
sanngjarnt gagnvart þessum
ungu liðum að segja að „mölin
hafi náð öðru stiginu", eins og
iesa hefur mátt á milli línanna í
viðtölum við talsmenn Vals og
Akraness. ÍBK og einkum þó KR
eiga eftir að gera góða hluti í
sumar, ef það þá kemur einhvern
tímann.
Þrátt fyrir góðan vílja tókst
ekki að koma á öllum leikjum,
sem ákveðnir voru um síðustu
helgi. Vestmanneyingar komust
ekki til meginlandsins til leiks
við Þrótt og einnig varð að fresta
tveimur leikjum í 2. deildinni. í
þessum þætti var í dag ætlunin
að fjalla lítillega um liðin í 2.
deildinni og þó svo að öll liðin
hafi ekki enn fengið að spreyta
sig í deildinni verður það gert
eigi að síður. Kunningsskapur
frá fyrra sumri verður að bæta
upp það sem ekki hefur verið
hægt að skoða í vor.
FH ÆTTI AÐ SIGRA
ÖRUGGLEGA í 2. DEILD
Undirritaður spáir því að FH
sigri í 2. deildinni í ár, ekki
kannski með miklum yfir-
burðum eins og KR í fyrra, en
örugglega eigi að síður. Góður
leikur þeirra á móti Fylki rennir
stoðum undir þá skoðun. Reynd-
ar væri annað óeðlilegt en FH
næði að komast upp í 1. deild á
ný. Liðið féll mjög slysalega
niður í 2. deild síðastliðið haust.
Nokkrir leikmenn hafa yfirgefið
herbúðir FH, en aðrir menn
komið í staðinn og liðið er alls
ekkert veikara en það var í
fyrra.
Ég hef trú á að Breiðablik
fylgi FH-ingum upp í 1. deild, en
hæpið jafntefli gegn Selfyssing-
um krefst þó sérstakrar um-
hugsunar áður en nokkuð er
fullyrt um þetta atriði. Jú,
Blikarnir fara upp í 1. deild að
nýju. Þeir hafa misst mikið,
Einar og Hinrik, syni Þórhalls
Einar'ssonar fyrrum Framara,
yfir í KA og Víking og tveir af
yngri mönnum félagsins hafa
haldið í Víking upp á Akranes.
Blikarnir hafa þó öðrum liðum
frekar átt sterka yngri flokka á
undanförnum árum og það ætti
því ekki að vera erfitt að fylla í
skörðin þó að Blikarnir hafi
misat talsverða reynslu með
þeirrt bræðrum.
Undirritaður hefur tröllatrú á
Fylkisliðinu og Árbæingarnir
eiga eftir að standa sig vel í
sumar, þó að þeir hafi tapað
fyrir FH í Kaplakrika í sínum
fyrsta leik í deildinni í ár. Fylkir
nær sennilega þriðja sætinu í
deildinni í ár, en þá verða þeir
líka að breyta hugsunarhætti
sínum frá því sem var í fyrra, en
þá bjargaði Fylkir sér með
herkjum út úr vandræðum í lok
mótsins.
Það er spá mín að þessi þrjú
lið verði í efstu sætum deildar-
innar í haust, en erfitt er að spá
um hver röð annarra liða verður.
Ekki kæmi á óvart þó að Selfoss,
Þór, Þróttur, Austri, Reynir og
ísafjörður yrðu í baráttu í miðri
deildinni og eitt þessara liða félli
niður í 3. deild. Magni á eftir að
fá nokkur stig í 2. deildinni, en
tæplega nógu mörg til að halda
sér uppi.
Strákarnir frá þessum litla
stað við utanverðan Eyjafjörð
komust öllum á óvart upp í 2.
deildina og hafa svo sannarlega
baráttuna og viljann til að vera
þar áfram, en hæpið er að það
dugi þeim. Þó gæti heimavöllur
þeirra orðið liðinu drjúgur,
heldur tætingslegur grasvöllur,
sem varla verður kominn í gagn-
ið fyrr en eftir hálfan annan
mánuð.
Selfyssingar komu upp með
Magna í fyrra og sigruðu
reyndar í 3. deildinni og þeir
halda sæti sínu örugglega, enda
lentu þeir í 3. deild fyrir ein-
hvern misskilning. Isafjörður og
Þór voru í toppbaráttunni í
fyrra, en slökuðu á klónni undir
lokin og máttu sætta sig við að
sjá Haukana fljúga upp í 1. deild
með sigri í síðustu umferð. Þetta
sumar verður enginn dans á
rósum hjá þessum liðum, sem
misst hafa mikið af mönnum og
lítið fengið í staðinn.
Austfjarðaliðin Þróttur og
Austri hafa sömuleiðis misst
mikið af mannskap, en ættu
bæði að sleppa frá sumrinu án
áfalla. Reyni hefur gengið illa í
vorleikjunum og e.t.v. verða þeir
í erfiðleikum með að halda sæti
sínu. Undirritaður þekkir þó
ekki nægilega vel til liðsins til að
dæma um styrk þess á þessu
sumri.
- áij.
Stórsigur Selfoss
gegn Magna
Seifoss
Magni
SELFOSS sigraði Magna frá
Grenivík með sex mörkum gegn
engu í leik liðanna í 2. deild f
knattspyrnu í gærkvöldi á Sel-
fossi. Lið Selfoss hafði allmikla
yfirburði f leiknum og lék vel,
jafnt í vörn sem sókn. Þrátt
fyrir að liðsmenn Magna sýndu
góða baráttu f leiknum og lékju
oft meira af kappi en forsjá
tókst þeim ekki að skapa sér
mikið af hættulegum sóknum f
leiknum. Þeir Sumarliði Guð-
bjartsson og Heimir Bergsson
voru hins vegar á skotskónum
og skoruðu þrjú mörg hvor
fyrir Selfoss.
Það var strax á 13. mínútu
leiksins sem Sumarliði skoraði
fyrsta mark leiksins og rétt
tveimur mínútum síðar hafði
Heimir bætt öðru við. Þannig
var staðan í leikhléi. Þrátt fyrir
að Selfyssingar lékju á móti smá
golu í síðari hálfleik tókst þeim
að skapa sér hvert marktæki-
færið á fætur öðru og skoraði
Heimir á 58. mínútu, Sumarliði
bætti fjórða markinu við úr
vítaspyrnu, eftir að Einar mark-
vörður Magna hafði brotið illa á
honum innan vítateigsins. Sum-
arliði var svo aftur á ferðinni á
77. mínútu og skoraði með góðu
skoti. Heimir rak svo endahnút-
inn á markaskorunina og inn-
siglaði stórsigur Selfoss.
kp/þr.
(slandsmútlð 2. delld
Metin hríðféllu
fyrir Liverpool
LIVERPOOL hélt sínu striki og sló öll met sem innan seilingar
voru. Með sigri yfir Leeds á Elland Road í fyrrakvöld, fékk
Liverpool fleiri stig samanlagt í deildarkeppninni heldur en
nokkurt annað lið hefur önglað saman á jafnlöngum tfma.
Liverpool hlaut þvf 68 stig, einu stigi meira heldur en Leeds hlaut
fyrir 10 árum síðan.
Og ekki nóg með það, heldur fékk Liverpool á sig færri mörk
heldur en nokkuð annað á undan því eða alls heil 16 mörk, sem er
undraverður árangur í 42 leikjum. Met. Auk þess lék Liverpool
þann leik, að skora að meðaltali 2 mörk f leik, sem einnig er
framúrskarandi árangur.
Þessum stefnumörkum náði Liverpool eins og fyrr segir með því að
sigra Leeds á Elland Road í síðasta leik liðanna í deildarkeppninni í
vor. Sigurinn var bæði stór og ótrúlega auðveldur. Dave Johnson
skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og í síðari hálfleik bætti Jimmy Case
öðru marki við.
Tveir aðrir úrslitaleikir fóru fram í ensku knattspyrnunni í
fyrrakvöld. Millwall féll endanlega niður í 3. deild ásamt Sheffield
Utd. og Blackburn, Charlton slapp því með skrekkinn. Jafntefli
Millwall á heimavelli gegn Wrexham dæmdi liðið niður, en
Lundúnaliðið varð ekki aðeins að vinna þann leik, heldur einnig
síðsta leik sinn, báða samtals með 9 marka mun. Þá vann
Shrewsbury 3. deilar titilinn með því að sigra Exeter á heimavelli
4—1. Upp í 2. deild fara ásamt Shrewsbury, Swansea og Watford.
Elmar Geirsson fyrirliði KA og tannlæknir á Akureyri bauð ólaf
Jóhannesson velkominn í 1. deildina fyrir leikinn á móti KA á
Akureyri á laugardag. Um leið og Elmar afhenti Haukunum
fallegan blómvönd sagðist hann vona að Haukunum gengi vel í 1.
deild — að leikjunum við KA undanskildum.
ÁGÚST
INGI
JONSSON:
Á EFTIR
B0LTANUM