Morgunblaðið - 23.05.1979, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
115. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tvísýnt í Kanada
Skoðanakannanir sem gerðar voru skömmu áður en kjörstaðir í
Kanada lokuðu í nótt bentu til þess að Frjálslyndi flokkurinn,
flokkur Trudeaus forsætisráðherra og íhaldsflokkurinn kæmu mjög
jafnir út úr þingkosningunum. Fréttaskýrendum þótti líklegt að
Trudeau mundi leita eftir samstarfi við Nýja jafnaðarmannaflokk-
inn til að treysta áframhaldandi völd flokks síns. Meðfylgjandi
myndir voru teknar er Joe Clark leiðtogi íhaldsfiokksins og Trudeau
greiddu atkvæði í gær. Símamyndir - AP.
Er felustaður
Amins fundinn?
Nairobí. Trípolí. Khartoum. Kinshasa. 22. maí. Reuter. AP.
DANÍEL Waltener. er stjórnar sórstökum flokki sérþjálfaðra manna
er hafa það hlutverk að leita uppi Idi Amin fyrrum forseta Uganda.
sagði í dag að flokkurinn hefði fundið dvalarstað Amins. sveitabæ á
heimaslóðum Amins í Norðvestur-Uganda. Um 500 vel vopnum húnir
hermenn ga'ta þar öryggis Amins.
Waltener sagði, að rödd Amins
hefði heyrst í hlustunartæki sem
skotið hefði verið að býlinu í
gærkvöldi. Einnig hefði sézt til
hans þar sem hann skokkaði sér
til heilsubótar og jafnframt hefði
hann sézt hefja sig til flugs á
flugvél af svæðinu síðustu daga.
Waltener sagði að takmark flokks
síns, er stæði saman m.a. af
Vestur-Þjóðverjum, Svisslending-
um, Bandaríkjamönnum og Israel-
um, væri að „ræna“ Amin ef
mögulegt væri. Beðið væri afstöðu
stjórnar Uganda til áætlana um
aðgerðir við býlið áður en látið
yrði til skarar skríða.
Muhammar Gaddafi Líbýu-leið-
togi skýrði frá því í dag, að Amin
væri nú í norðvesturhluta Uganda
að sögn Walterers.
við að undirbúa gagnaðgerðir gegn
herjum hinna nýju vaidhafa. Yrði
í því sambandi efnt til skæruliða-
hernaðar. Neitaði Gaddafi að hafa
sent hermenn og vopn til Uganda
til stuðnings baráttu Amins.
Gaddafi upplýsti að Amin hefði
nýlega heimsótt Líbýu og önnur
vinveitt ríki.
Jaafar Nimeiri forseti Súdan
sagði í dag, að múhameðstrúar-
menn t Uganda ættu yfir höfði sér
dauðarefsingu. Hefðu um 100.000
Ugandabúar af þessum ástæðum
flúið til Súdan að undanförnu. Þá
skýrðu embættismenn í Zaire frá
því í dag, að giskað væri á að þar í
landi væru um 50.000 flóttamenn
fra Uganda og að margir þeirra
væru holdsveikir.
Er morðingi
Moros fundinn?
I.issahon. 22. maí. AP. Routor.
MAÐUR sem segist hafa myrt
Aldo Moro, fyrrverandi leið-
toga kristilegra demókrata á
Ítalíu, hefur gefið sig fram við
lögreglu í Portúgal. Maðurinn,
sem er frá Brazilíu og heitir
Amilton Yon Cunha, sagðist
vera meðlimur í Rauðu her-
deildunum, en hafa flúið til
Spánar eftir morðið á Moro i
fyrra. Interpol leggur ekki
trúnað á frásögn mannsins,
sem hún telur vera „frama-
gosa“.
Norðmenn
veita
Tyrkjum
peningalán
Ankara. 22. maí. AP.
NORÐMENN munu veita Tyrkj-
um efnahagsaðstoð upp á 30
milljónir norskra króna, um
2.100 milljónir íslenzkra. sam-
kvæmt sáttmála er embættis-
menn landanna undirrituðu í
dag. Samkvæmt samkomulag-
inu munu Norðmenn einnig
veita Tyrkjum allt að 300
milljón norskra króna lán til
fjárfestingar í orkumálum.
skógrækt og ferðamálum. Einn-
ig hafa Norðmenn gefið fyrir-
heit um framlag í sameiginlega
efnahagsaðstoð OECD-ríkja við
Tyrkland.
Að því er haft er eftir embætt-
ismönnum munu Tyrkir einkum
nota norsku efnahagsaðstoðina
til olíukaupa.
Bandaríkjaþing samþykkti í
kvöld að auka verulega hernað-
araðstoð við Tyrki.
V-Þýzkaland:
Kona í kjöri
í fyrsta sinn
Bonn. 22. mal. AP.
VESTUR-ÞÝZKI Jaínaðar-
mannaflokkurinn útnendi í dag
Annemarie Renger, varaforseta
neðri málstofu þingsins, sem
frambjóðanda flokksins er sam-
bandsþingið kýs forseta á morg-
un, miðvikudag. Kona hefur aldr-
ei áður verið í framboði við
forsetakosningar í Vestur-Þýzka-
landi.
Sérfræðingum bar saman um,
að frú Renger hefði litla sem enga
möguleika á að bera sigurorð af
Karli Carstens, frambjóðanda
Kristilegra demókrata, er nýtur
stuðning a.m.k. 531 þingmanns af
1,026.
„Reiðhjól eyðir ekki eldsneyti, bara aukakílóum.“ sögðu áhugamen um hjólreiðar, sem fylktu liði í gær
til þess m.a. að vekja athygli á nytsemi hjólhestsins. Sjá nánar á bls. 13. Ljósm. RAX.
Breytingar
á kosninga-
lögum í Kína
PpkinK. 22. maí. Rputor.
BLAD alþýðunnar. málgagn kín-
verska kommúnistaflokksins.
hvatti í dag til þess að gerðar
yrðu meiri háttar hreytingar á
kosningaliigum í Kina. hreyt-
ingar er fælu í sér aukin áhrif
kjósenda.
Blaðið sagði að kosningar í
landinu hefðu hingað til verið
formsatriði. Efna þyrfti til leyni-
legra kosninga þar sem kjósendur
hefðu möguleika á að vélja og
hafna frambjóðendum. Frambjóð-
endur skyldu verða fleiri en sætu
á þingi. Einnig skyldi breytt að-
ferðum varðandi val stjórnanda
verksmiðja og framleiðslueininga
í þá veru að þátttakendur í valinu
fengju aukin áhrif. Blaðið sagði
fulla ástæðu til að endurskoða
gildandi reglur þar sem
menningarstig landsmanna hefði
hækkað upp á síðkastið.
Giftist Viktoría þjóni sínum
á laun og ól honum barn?
London. 22. maí. AP.
VIKTORÍA Bretadrottning hefur að öllum lfkindum gifzt
uppáhaldsþjóni sfnum. skozkum skógarverði að nafni John
Brown. og alið honum son. að því er skozkur safnvörður skýrði
frá f dag. Safnvörðurinn, Michael MacDonald, sagði að það væri
niðurstaða 10 ára umfangsmikilla rannsókna, að drottningin,
sem fræg var fyrir mikla siðavendni og John Brown hefðu verið
elskendur eftir lát Alberts prins, eiginmanns Viktoríu.
MacDonald sagði, að þagað hefði
verið yfir giftingunni, sem farið
hefði fram í Skotlandi, og öll gögn
um Brown við brezku hirðina verið
eyðilögð á valdatíma Játvarðs
konungs sjöunda, sonar Viktoríu
og Alberts. Sagðist MacDonald
hafa komist yfir segulbandsupp-
töku þar sem prestur nokkur segist
hafa stjórnað athöfninni leynilegu.
Upptakan var gerð er presturinn lá
á banasæng.
Einnig hafði hann komist yfir
skjöl þar sem sagt væri frá því
þegar þjónustustúlka við hirðina
sá Brown koma út úr herbergi
drottningar í Buckinghamhöll
klukkan fjögur að morgni. Afhenti
þjónustustúlkan þá þegar uppsagn-
arbeiðni sína, en Viktoría neitaði
að samþykkja hana á þéirri for-
sendu, að ekkert ósiðsamlegt hefði
gerzt í herbergi hennar. Brown
hafði herbergi við hlið herbergis
drottningar í Buckinghamhöll.
Þá hefðu komið ,‘ram.ný sönnun-
argögn þess efnis, að Brown og
Viktoría hefðu eignast erfingja,
sem komið hefði verið fyrir í París
þar sem hann bjó sem einsetumað-
ur til 90 ára aldurs. Sonurinn
heimsótti nokkrum sinnum Bal-
moral-kastala, drottningarsetrið í
Skotlandi þar sem Viktoría fyrst
hitti Brown árið 1852.
Talsmaður brezku hirðarinnar
lýsti því yfir í dag, að Viktoría
hefði aldrei gifzt Brown né alið
honum son. Kvað hann engin gögn
því til sönnunar vera að finna í
skjalasafni krúnunnar. Lafði
Longford, sagnfræðingur, er reit
sögu Viktoríu, lýsti því einnig yfir í
dag, að fullyrðingar MacDonalds
hefðu við engin rök að styðjast.
MacDonalds hikaði engu að síð-
ur við að fullyrða að Viktoría hefði
alls ekki lifað því ekkjulifi sem
búið væri að innræta þjóðinni.
Hann sagði að Albert prins hefði
verið órómantískur Tevtóni og að
Viktoría hefði orðið drottning
snemma og hefði varla átt þess
kost að njóta æsku sinnar og
unglingsára. Hún hefði haft þörf
fyrir það og því snúið sér að Brown
eftir andlát Alberts árið 1861, en
þá var Viktoría 42 ára. „Viktoría
var ekki sú svartklædda bolla sem
allir halda að hún hafi verið,“
sagði MacDonald.
Brown var se.x árum yngri en
Viktoría og tíu árum yngri en
Albert. Lézt Brown árið 1883, en
Viktoría árið 1901.
Siðavendni Viktoríu hafði mikil
áhrif á heila kynslóð Breta og þeir
gjarna kallaðir „viktoríanskir“
sem þykja siðavandir úr hófi fram.