Morgunblaðið - 23.05.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ1979
13
HjólreiAamenn á leiA niAur LauKaveg LJ**1"- KriHtján.
Hjólreidamenn
fylkja liði:______
Reiðhjól
eyðir ekki
eldsneyti
— bara aukakílóum
HjólreiAamenn söfnuðust í
gær saman viA skátabúAina í
Reykjavík og hjóluAu fylktu HAi
niAur LauKaveKÍnn. Fyrir þess-
um aðKerðum stóð FélaK áhuKa-
manna um hjólreiðar ok ætlun-
in með þessu var m.a. sú að
vekja athyKli á nytsemi
hjólhestsins.
Mbl. hitti að máli Þór Vigfús-
son, einn stjórnarmanna félags-
ins, og innti hann eftir því hver
tilgangurinn með aðgerðum
þessum væri.
— Tilgangurinn með þessu er
fyrst og fremst sá að vekja
athygli á nytsemi reiðhjólsins
sem samgöngutækis.
Aðstöðu hjólreiðamanna kvað
Þór þokkalega, þó skorti sér-
staka stíga ætlaða hjóireiða-
fólki. Aðspurður um öryggi hjól-
reiðamanna sagði Þór það vera
lítið, þótt margir ökumenn
tækju tillit til fólks á hjólum,
væru alltaf einhverjir innan um
sem ækju gáleysislega og stofn-
uðu hjólreiðamönnum í hættu.
Þór sagði ætlunina vera þá að
hjóla upp Mikiubrautina, norður
Þór Vigfússon
Lönguhlíð og niður Laugaveginn
og vonaðist hann eftir mikilli
þátttöku í aðgerðunum.
í þann mund bar þar að Helga
Skúla Kjartansson, annan
Helgi Skúli Kjartansson
stjórnarmann félagsins, og var
hann spurður að því hver væri
tilgangur félagsins og þessara
aðgerða.
— Félagið berst fyrir bættum
umferðarháttum og vill með
þessum aðgerðum benda á
hversu gagnlegt og heppilegt
samgöngutæki hjólið er, auk
þess að vera nytsamt tæki til
heilsuræktar. Hjólið er ekki dýrt
í rekstri, eyðir ekki miklu elds-
neyti og þá helst aukakílóunum
sem öllum er hvort eð er í nöp
við.
Helgi sagði tillitssemi öku-
manna við hjólreiðamenn vera
töluverða, en hann var sammála
Þór um það, að einstaka öku-
menn væru viðsjárverðir í þeim
efnum. Skipulag borgarinnar
taldi hann í áttina, hvað tillit til
hjólreiða snerti, en þó væri enn
töluvert í land með, að það væri
eins og best yrði á kosið.
Margir tóku þátt
í mótmælunum
FÍB telur þó vedur og vinda hafa
dregið verulega úr þátttökunni
TÖLUVERÐ þátttaka var í mótmælaaðjíorðum þeim
sem FÍB haíði hoðað til í Ka*r. þó töldu forsvarsmenn
FÍB að aðjjerðirnar hefðu ekki tekist sem skyldi ok
kenndu um slæmu veðri.
Það var samdóma álit þeirra Tómasar Sveinssonar og Sveins
Oddgeirssonar, frammámanna í FÍB, að mótmælaaðgerðirnar hefðu
ekki tekist eins vel og vonir stóðu til. Orsök þessa töldu þeir afar
óhagstætt veður, rok og kulda. Töldu þeir að umferðin hefði verið
áberandi minni fyrir hádegið, en hefði aukist eftir því sem á daginn leið
og veðrið versnaði. Aberandi fannst þeim hve margar konur sáust undir
stýri í borginni og töldu þá skýringu líklega, að eiginmenn hefðu ljáð
konum sínum bílana, en farið sjálfir í strætisvögnum til vinnu. Einnig
fannst þeirn athyglisvert hve margir farþegar virtust vera í sumum
bílum og fannst þeim ekki ólíklegt að menn hefðu tckið sig saman um að
fara á sem fæstum bílum til vinnustaðar.
Mbl. hafði samband við lögregluna og inriti hana eftir því hvort
umferðin hefði verið með minna móti í gær.
Lögreglan taldi að umferðin hefði verið mun minni í morgun en
endranær. Hins vegar jókst hún eftir þvi sem á daginn leið en var þó
mun minni á aðalumferðartímanum en venja er. Tii marks er um þetta,
sagði lögreglan, að mun færri árekstrar hefðu orðið í gær en endranær
og sem dæmi má nefna, að enginn árekstur varð fyrir hádegi í borginni.
Hjá Strætisvögnum Reykjavíkur var þær fréttir að fá, að ekki hefði
farþegum með vögnunum fjölgað mikið. Helst var nokkur aukning
snemma í morgun og þurftu þeir aðeins að bæta við tveimur til þremur
vögnum en þeir voru tilbúnir til að taka á móti mun fleiri en sáu ástæðu
til að notafæra sér þessa þjónustu.
Tek strætó í dag
Á BIÐSTÖÐ Strætisvagna
Reykjavfkur við Illemm kom
Mbl. að máli við AAalbjörn
Gunnarsson sem beið þar eítir
strætisvagni. Var hann spurður
að því hvort hann hefði skilið
bflinn eftir heima í tilefni mót-
mælaaðgerða FÍB.
— Já, ég hef ekki notað bílinn
í dag en ferðast þess í stað með
strætisvagni. Ég er fyllilega
sammála FÍB í þessu máli og tel
bensínverð óheyrilga hátt og
sýni stuðning minn með þessu
móti.
Aðalbjörn taldi sig ekki hafa
orðið varan við mjög mikla
þátttöku í mótmælunum en hélt
þó að umferð hefði verið eitt-
hvað minni en endranær.
Aðspurður um hvort hann
ætlaði að ferðast með strætis-
AAaibjörn Gunnarsson.
vögnum hér eftir, sagði hann það
ekki vera, hann notaði bílinn hér
eftir sem hingað til.
28 ára reynsla Radíóbúöarinnar á
öldum Ijósvakans tryggir yöur beztu
vöruna og þjónustan er í sérflokki.
Þessi reynsla skapar mikiö öryggi fyrir
viöskiptavini Radíóbúöarinnar,
en öryggi er þaö sem íslendingar
þarfnast í hinni miklu veröbólgu.
LeitiÖ þess vegna ráöa hjá okkur um
val hljómflutningstækja og litasjónvarpa
Versliðisérverslun með C~~Z )
UTASJÓNVÖRPog HLJÓMTÆKI SL£*C£CC?, 29800
\ BUÐIN Skipholti19