Morgunblaðið - 02.06.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.06.1979, Blaðsíða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979 Kortið sýnir leiö Stern-blaöamannana frá Nairóbí til þorpsins Katosi sem merkt er meö krossi. fjóröa apríl, leggja Stiens og Bollinger af stað að morgni til Malaba, annarrar landamæra- borgar Kenya og Uganda. Við landamærin segja úganzkir her- menn þeim að snúa aftur — Idi Amin hefur gefið fyrirmæli um að sleppa engum útlendingum inn í landið. Um hádegisbilið freista tví- menningarnir gæfunnar í Búsía, hinni landamæraborginni, en aftur án árangurs. Klukkan 14.30 hringir Wolfgang Stiens til eiginkonu sinnar, í þetta skipti frá Bungoma, sjötíu kílómetra í austur frá Búsía. Hann skýrir henni frá ástandinu við landa- mærin og aðgöngutálmunum: „Einn vörðurinn sagði við okkur: Guð einn veit hvenær þetta tekur enda. Flóttamenn eru und- arlega fáir og engan hermann að sjá. Það var athyglisvert að ekki einu sinni þjóðfáni Úganda blakti lengur á tollvörzluhús- inu.“ Skömmu síðar rekast þeir félagar á tvo sænska starfsbræð- ur á „Bungoma Tourist“ hótel- inu. Það eru þeir Arne Lemberg frá „Expressen" og Carl Berg- man frá „Svenska Dagbladet". Um þá gegnir sama máli, þeir hafa árangurslaust reynt að komast inn í Úganda á löglegan hátt. Fyrir hádegi höfðu þeir komizt einn kílómetra akandi í átt til Kampala en þá verið stöðvaðir og vísað til baka. Þeir eru nú staðráðnir í að fara á bát yfir Viktoríuvatn. I augum Lembergs, sem er þrjátíu og þriggja ára að aldri og fyrrverandi fréttaritari í London og Hong Kong, er árangur Úgandaleiðangursins spurning um heiður og starfsvirðingu. „Þó engum takist þaö getur Arne það“ er viðkvæðið á ritstjórninni í Stokkhólmi, og Arne Lemberg er ákveðinn í að glata ekki orðheill þeirri er hann hefur aflað sér með dirfsku og smellni. Arne þarf ekki að eyða löngum tíma í að sannfæra starfsbróður sinn, Carl Bergman, sem sérhæf- ir sig í málefnum Afríku. Þessi stuttvaxni piparsveinn, þrjátíu og eins árs að aldri, er strax reiðubúinn. Þegar söguefni er annars vegar gildir einu hvort um er að ræða vikulanga jeppa- ferð í Sahara-eyðumörkinni eða þvæling með uppreisnarmönn- um i Eritreu — allt er lagt í sölurnar. „Ég hefði helzt viljað vera landkönnuður" segir hann við félagana frá Stern „en til þess hefði ég orðið að vera uppi á annarri öld.“ Fjórmenningarnir skjóta saman á fundi og ræða útlitið. Svíarnir þekkja aðstoðarmann upplýsingamálaráðherra Kenýa og heitir sá John Obora. Ákveðið hefur verið að hann komi þeim í kynni við bátsmann nokkurn sem hefur góð sambönd í Úganda. Þetta ræður úrslitum. Fréttamennirnir fjórir ákveða að fara saman á báti yfir Viktoríuvatn til Úganda og taka land í nánd við Kampala. Ef til vill ná liðsveitir Tanzaníu að komast á staðinn í millitíðinni. Ef ekki, geta þeir reynt að brjótast í gegn til þeirra annað hvort akandi eða á bátnum yfir Viktoríuvatn. Klukkan tíu að kvöldi tilkynnir Stiens konu sinni að þeim hafi bætzt lið- veizla Svíanna.___________ Kóngur kaffismyglara Fimmtudagur, 5ta apríl. Blaðamennirnir fjórir fara frá „Bungoma Tourist Hóteli" klukkan hálf átta á tveimur bifreiðum í átt til Kisumu. Þar bætist John Obora í hópinn. Hálfri klukkustund síðar koma þeir að húsi veiðimannsins Michael Okumus. Hann kveðst gjarnan vilja veita þeim lið en ber því við að bátur hans sé mótorlaus og bendir á staðinn á „herra Dawa“. Dawa þessi, sem býr með slíkri leynd að ekki einu sinni nánustu samstarfsmenn þekkja hann með nafni, er kon- ungur kaffismyglara á staðnum. Þrisvar í viku kemur starfsfólk hans með svikið kaffi frá Úganda til Kenya til þess að selja það þar sem gæðakaffi frá Kenya á þreföldu verði. Blaðamönnunum tekst fljót- lega að komast að samkomulagi við herra Dawa. Hann leigir þeim einn af bátum Okumus með fimmtíu hestafla vél og fær fjögur hundruð og tuttugu og fimm þúsund ísl. kr. fyrir vikið. Um ellefuleytið hefur Stiens enn samband við eiginkonu sína. Hann biður hana að leita aftur eftir leyfi hjá aðalstöðvum þjóð- frelsishreyfingarinnar í Dares- salam til þess að fá að fljúga til Úganda. Hann segir henni að verði því synjað muni þeir síð- degis þann sama dag leggja af stað í bátnum. Á hádegi hitta fjórmenning- arnir aftur smyglarakónginn Dawa að máli í íbúð hans á strönd Viktoríuvatns. Þeir ganga frá smáatriðum og Dawa fullvissar þá um að bifreið muni bíða þeirra við komuna til Úganda. Stuttu eftir hálf fimm hringir Rita Stiens samkvæmt áætlun í mann sinn á Nýja Kisumu hótelið. Þetta er síðasta samtal hjónanna. Frú Stiens skýrir manni sínum frá því að ekkert leyfi hafi fengizt frá UNLF til lendingar á einhverju frelsuðu svæðanna. Bátsferðin er eini kosturinn. Stiens segir konu sinni að förin muni taka um ellefu klukkustundir og að þeir muni koma að landi einhvers staðar á svæðinu milli Kampala og Jinua við þorp með heitinu Katosi. Hann biður hana að láta þýzka sendiráðið í Kampala vita svo og stjórnarskrifstofu Stern. Arne Lamberg hefur einnig ósk að koma á framfæri: Hann yrði þakklátur ef frú Stiens gæti hringt til „Expressen“ í Stokk- hólmi og gefið ritstjórum upp símanúmerið á Nýja Kisumu hótelinu. Ekki líður á löngu unz smygl- arakóngurinn er mættur ásamt Okumu bátsstjóra til að sækja blaðamennina. Eftir tuttugu minútna ökuferð koma þeir að bátalægi „Sameignarfélags Donga fiskimanna". Þar bíða þeirra tveir ungir blökkumenn í bát. Þeir hjálpa til við að stafla farangrinum í gráleitan bátinn, tíu metra langan og tveggja metra breiðan. Hver farþeganna hefur eina tösku og bakpoka meðferðis, Bollinger tvær myndavélar og Svíinn Lemberg eina. Einnig fylgja ábreiður, fistir, tveir fimm litra dunkar með sódavatni, tveir plastbrúsar með tuttugu lítrum af benzíni hvor — fyrir ökutækið sem bíður þeirra að sögn Dawas í Katosi — ennfremur útvarp og áttaviti. Blaðamennirnir klöngrast um borð. Fjórmenning- arnir hverfa_____________ Sól gengur til viðar um sex- leytið og báturinn lætur úr höfninni í Kisumu. Enn er stillt yfir Viktoríuvatni. Það ríkir góður andi, tónlist í útvarpinu og blaðamennirnir fjórir — svo greindi Okumu bátsmaðurinn frá síðar — syngja. En fáeinum klukkustundum síðar skellur á stormur. Hitabeltisþrumur drynja. Þar sem báturinn lekur verða svertingjarnir að hafa sig alla við að ausa með dósum. Föstudagur 6. apríl. Klukkan hálf ellefu setur Okumu blaða: mennina fjóra á land í Katosi. í stað ellefu stunda hefur það tekið garpana sextán klukku- stundir að komast á áfangastað. Ástæðan er sú að milli tvö og sex um nóttina urðu þeir að leita skjóls á smáey vegna óveðursins. Fiskimannaþorpið Katosi hefur aðeins um hundrað og fimmtíu íbúa. Jaðar þess liggur að fjörutíu hektara búgarði Bob Astles, majórs, fyrrverandi undirliðsforingja í brezka hern- um, sem náði í seinni tíð að verða einn nánasti ráðgjafi Idi Amins. Astles, sextíu og eins árs að aldri, hjálpaði við að koma á fót hinni alræmdu „Ríkisrann- sóknarstofu" og giftist fyrrver- andi menntamálaráðherra Úganda. Hann gengur undir viðurnefninu „slátrarinn" vegna grimmdar sinnar og er í öðru sæti á dauðalista fyrrverandi útlaga, á eftir Idi Amin. Stiens, Bollinger og Svíarnir eru samstundis umkringdir íbú- um í Katosi. Þeir hrópa „Muzungus, Muzungus" — Evrópumenn, Evrópumenn. Bíl- inn sem Dawa hafði lofað, er hvergi að sjá. Þess vegna fara þeir á stúfana i leit að fiski- manni sem flutt geti þá á vatn- inu til Entebbe. Meðan þeir skipta við fiskimennina leysir Okumu landfestar og snýr aftur til Kenya. Klukkuna vantar fimmtán mínútur í ellefu. Upp frá þessari stundu er enginn til frásagnar um það sem gerðist næst. Laugardagur, 7. apríl. Árásar- lið Tanzaníumanna hefur tekið sér stöðu skammt frá Kampala. Idi Amin hefur flutt aðalstöðvar sínar til borgarinnar Jinja í áttatíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni. Úganzkar her- sveitir slá eign sinni á allt sem fyrir verður á flóttanum, bifreið- ar, útvörp, fjármuni og umfram Elkomus K. N. Luyombya, sjónarvottur aö moröunum allt matvöru. íbúar Kampala streyma út á yfirgefna akrana og niður að hinu gjöfula Viktoríuvatni í fæðuleit. Um morguninn lætur yfir- maður Þróunaráætlunar Sam- einuðu þjóðanna fyrir Úganda, Þjóðverjann Gert Kallwas, aka sér til Kisoga, lítillar borgar um þrettán kílómetra norður af fiskiþorpinu Katosi. Lögregla á staðnum hafði hringt hinn sama morgunn og sagt honum frá því að Mercedes-bifreið hans, merkt Sameinuðu þjóðunum, hafi fund- izt en bifreiðinni hafði verið stolið tveim dögum áður. Við komuna til Kallwas klukk- an ellefu sér hann að lögreglu- stjórinn er í miklu uppnámi. Segir hann Kallwas frá því að fjórir evrópskir blaðamenn hafi verið skotnir á strönd Katosi daginn áður. Herinn hefur sent skilríki þeirra til Kampala. Meira veit lögregluforinginn ekki. Kallwas snýr aftur til Kampala. Þar lætur hann þýzka sendiráðið vita en eiginkona Stiens hafði þá þegar látið það vita um ferð fjórmenninganna. Grunur vaknar strax að um Bollinger og Stiens og hina sænsku félaga þeirra sé að ræða. Ráðherra reiðist__________________ Um kvöldið skýrir Kallwas fréttastjóra erlendra frétta hjá Londonblaðinu „Daily Express", John Allison, frá þeim orðrómi sem á kreiki er, en Allison er staddur í Kampala. Sunnudaginn 8. apríl flýgur Allison frá Kampala til Nairóbí. Þaöan hefur hann samband við blað sitt í London, en einnig „Svenska' Dagbladet", „Express- en“ og „Stern“ og lætur vita að hermt sé að fjórir blaðamenn hafi verið skotnir aðfaranótt laugardags og kunni að vera um starfsmenn áðurnefndra blaða að ræða. Hann bendir á að fregnin hafi ekki verið staðfest. Ritstjórn Stern gerir þegar í stað út fréttamenn til að ganga úr skugga um hvað hæft sé í fréttinni. Mánudaginn 9. apríl dregur þýzki sendiherrann í Kampala Dr. Walter Fröwiss, þá ályktun að fyrirliggjandi upplýsingar geti aðeins átt við Stern-frétta- ritarana Bollinger og Stiens. Eftir að hafa rætt við yfirvöld í Úganda símar hann til Bonn. „Mér tókst að hafa uppi á utan- ríkisráðherranum í síma á heim- ili hans. Ráðherrann reiddist greinilega fyrirspurn minni um örlög Stiens og Bollingers og sagði mér byrstur að fjórir vopnaðir hermenn hefðu komið yfir Viktoríuvatn. Þeir hefðu verið skotnir. Væri einkennilegt ef stjórn Sambandslýðveldisins ætlaði nú að taka upp hanskann fyrir hermenn sem stríddu gegn Úganda. Væri mér fyrir beztu að vera ekki að skipta mér af málinu ella myndi ég hljóta verra af.“ Stern-fréttaritarinn Carsten Moser og Klaus Imbeck, blaða- maður GEO, koma með fyrstu vél til Nairóbí. Þeir bíða eftir vegabréfsáritun til Úganda í fyrstu án árangurs. Nýir stjórnarherrar Þriðjudagur, 10. apríl. Úrslita- orrustan um Kampala er hafin. Hermenn sem óbreyttir borgar- ar flýja borgina unnvörpum. Um nóttina ná hersveitir Tanzaníu og Úganda-útlaga borginni á sitt vald. Á föstudaginn langa kemur hin nýja stjórn Úganda saman í Kampala undir forystu prófess- ors Yussuf Lules. Á nóni þánn dag lendir á Entebbe-flugvelli flugvél af gerðinni Boeing 707 frá „Air Tanzanía" með sjötíu blaðamenn innanborðs, hvaðanæva að úr heiminum. I hópi þeirra er Klaus Imbeck. Fyrir framan laskaða flugstöðv- arbygginguna er Fokker Friend- ship hins nýja forseta, við hlið- ina ónýt Boeing-þota Úganda-flugfélagsins. Búið er að fjarlægja myndina af Amin yfir innganginum. Blaðamennirnir eru fluttir til Kampala. Ekkert nýtt hefur frétzt um afdrif Stiens, Bollingers Lembergs og Bergmans. Sunnudagur, 14. apríl. Banda- ríski fréttamaðurinn Greg Dobbs frá ABC-sjónvarpsstöð- inni er við efnisöflun í Kampala að morgni er Úgandamaður, James Rogers Musoke að nafni, kemur að máli við hann. Hann segist hafa verið sjónarvottur að morðunum á blaðamönnunum og afhendir Dobbs mynd úr vega- bréfi Wolfgangs Stiens auk blaðamannaskírteinis Arne Lembergs. Síðdegis er ekið með blaða- mannahópinn að stórri sykur- verksmiðju í Kampala eftir vís- bendingu stjórnarinnar. Lule forseti vill sýna heimspressunni hvernig Idi Amin hamstraði á þessum stað gífurlegar mat- vælabirgðir einkum sykur, fyrir hermenn sína meðan hungur- sneyð ógnaði þjóðinni. Hermenn opna sykurbirgðaskemmuna og vörunni er útbýtt í sekkjum til fólksins sem þyrpist að. Úppi er fótur og fit. Hermennirnir skjóta upp í loftið til að reyna að stilla til friðar. Klaus Imbeck hrópar yfir fjöldann á ensku hvort einhver geti sagt frá því sem kom fyrir blaðamennina fjóra. Ungur maður í brún- köflóttri skyrtu gefur sig þá fram og kynnir sig sem Elkumus K.N. Luyombya, tuttugu og sjö ára gamlan og þar til fyrir stuttu aðstoðarmann í mennta- og byggðaþróunarráðuneytinu. Luyombya leysir frá skjóðunni í aðalstöðvum lögreglunnar eftir að hafa sýnt hermannsskilríki sín og eru Klaus Imbeck og sænski blaðamaðurinn Christer Golach viðstaddir. Vitnisburður hans byrjar með eftirfarandi setningu: „Síðastliðinn föstudag varð harmleikur í nágrenni okkar sem snart flesta íbúana að dýpstu hjartans rótum. „Hann átti vð föstudaginn 6. apríl Formálalausar sekúndur Þennan tiltekna dag hafði Elkumus Luyombya lagt af stað frá heimkynnum sínum í Lewetega klukkan niu að morgni og haldið til þorpsins Katosi í tíu kílómetra fjarlægð. Þangað sagðist hann hafa verið kominn klukkan tíu. Það var ætlun Luyombya að kaupa fisk í Katosi. Það var eini staðurinn í nágrenninu þar sem enn var hægt að kaupa matvöru af ein- hverju tagi. Vegna styrjaldar- ástandsins höföu þó verið lagðar á tímahömlur. Fiskimennirnir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.