Morgunblaðið - 02.06.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.06.1979, Blaðsíða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979 Myndir Kristján Einarsson Texti Hreinn Loftsson. Rætt við bændur í V-Húnavatnssýslu um „t>ad gengur fljótt á fódur- birgdirnar” urn Björnsson hafði verið skrifstofumaður í 17 ár í Reykjavík áður en hann gerðist kúabúndi á Gauksmýri fyrir um þremur árum og ekki komið nálægt búskap síðan hann var í sveit sem smástrákur. „Kúnum verður ekki sleppt fyrr en í lok júní” —segir Orn Biörnsson á Gauksmýri „Ástandið er nú ákaflega bágborið hérna víða og ekkert virðist bóla á sumrinu ennþá“, sagði Örn Björnsson á Gauks- mýri. En Örn er með um hundr- að kýr í fjósi, þar af fimmtíu mjólkandi. Hann hóf búskap á Gauksmýri ásamt sambýlis- konu sinni Þórdísi Vilhelms- dóttur, íyrir aðeins þremur árum, en áður hafði hann starf- að á skrifstofunni hjá Sam- vinnutryggingum og Líf- tryggingafélaginu Andvöku f 17 ár. „Það var vitaskuld mjög erfitt að rífa sig af mölinni“, sagði Örn; „en ég sé alls ekki eftir því og er staðráðinn í að halda þessu áfram.“ Örn sagði að veturinn hefði verið óvenju harður meö miklum snjóalögum. Maí hafi verið mjög kaldur og aðeins hafi verið forstlaust á nóttunni síðustu þrjár nætur. Hann sagði að allar líkur bentu til þess að ekki yrði unnt að sleppa kúnum út fyrr en í fyrsta lagi í kringum 20. júní eða um mánðaðamótin júní—júlí. Fyrsta árið hans á Gauksmýri var þeim sleppt úr húsi 23. maí, árið þar á eftir var þeim sleppt 28. maí og 16. júní í fyrra. „Maður vonar að heybirgðirnar endist því þetta er nú gjafafrekasti árstíminn þeg- ar kýrnar eru að bera eða nýbornar“, sagði Örn. „Annars verð ég nú að segja það að forysta bænda hefur brugðist bændum. Tökum bara sem dæmi samanburð á sam- tökum bænda og verkalýðsfélagi. Ég var á fundi með 200 bændum um daginn og það var nokkurs konar hallelúja samkoma um það að skerða ætti kjör bænda um 20—25%, en ætli viðbrögðin yrðu ekki einhver önnur er slíkt yrði lagt til í einhverju verka- lýðsfélagi? Svo er talað um að bændur séu lægst launaðasta stéttin, og það eru þeir miðað við vinnutímann, en samt á að lækka kaup þeirra og það er raunar þegar búið að gera! Mér finnst að bændaforystan hafi ekki staöið sig í stykkinu og vandi bænda er að miklu leyti forystunni að kenna“, sagði Örn. Hann sagði hluta offramleiðsluvandans stafa af því að markaðsrannsóknum fyrir landbúnaðarvörur hafi ekki verið sinnt nægilega. Sem dæmi tók hann það að mjólkurbúið á Hvammstanga hafi ekki undan við að framleiða sinn vinsæla ost, en hvergi annars staðar sé unnt að framleiða slíkan ost vegna þess að tæki til fram- leiðslu hans séu ekki til annars staðar. Annað slíkt dæmi væri 45% rjóminn sem nýkominn er á markað. Hann hefði átt að vera kominn á markað miklu fyrr. „Allt sannar þetta", sagði Orn; „að markaðsmöguleikarnir fyrir framleiðslu landbúnaðarins hafa ekki verið rannsakaðir nógsam- lega, það á að framleiða það sem er vinsælt". „Með eindæmum hvemig ráðist hef- ur verið á eina stétt að undanförnu” — segir Jóhannes Levý í Hrísarkoti „Það gengur fljótt á fóður- birgðirnar og sumir bændur hér um slóðir eru orðnir heylausir enda eru allar skepn- ur á gjöf úti og inni“, sagði Jóhannes Levy, fyrrverandi bóndi í Hrísakoti. Jóhannes er hættur bústörfum fyrir nokkru, en sonur hans Agnar hefur tekið við. Jóhannes er oddviti Þverárhrepps og hefur verið samfleytt undanfarin 32 ár og sagðist hafa nóg að sýsla við þau störf sín. Hann sagði að nýlega hafi verið keyptir þrír bílar af heyi úr Eyjafirðinum með leyfi Sigurðar Sigurðssonar, dýra- læknis á Keldum. Jóhannes sagði að bændur væru nú ýmsu vanir og sjálfsagt myndu þeir þrauka af heim harðindi. „En þetta hlýtur að vera ákaf- lega erfitt fyrir þá sem eru að hefja búskap. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það eigi að aðstoða unga og efnalitla menn, því að það eru nú einu sinni þeir sem koma til með að erfa landið. En það er alveg auðsætt að þetta er allt orðið svo dýrt að fáir fást til þess að hefja búskap. Það er alla vega ekki hægt að standa í byggingarframkvæmdum eins og skattar og annar kostnaður er orðinn ofboðslegur", sagði Jóhannes. Hann sagðist ekki skilja þá stefnu að fækka ætti í sveitun- um og að við offramleiðslu ætti að bregðast með öðrum hætti en nú er gert. „Það þarf að byggja upp iðnað og halda lífinu í sveitunum því hvað annað ætti það fólk að taka sér fyrir hendur sem flytst þaðan? Hvaða þýðingu hefði það fyrir þjóðina ef landbúnaður leggðist niður, Jóhannes Levý, fyrrverandi bóndi í Hrfsakoti, en hann hefur verið oddviti Þverár- hrepps samfleytt f 32 ár, Agnar sonur hans hcfur nú tekið við búi f Hrfsarkoti. yrði um kaupstaðina sem iifa á sveitunum? Mér finnst þetta alveg fáránleg stefna og það er með fádæmum hvernig ráðist hefur verið á eina stétt að undanförnu. Ætli þeir séu ekki ánægðir með þetta ástand sem segja að fækka þurfi bændum?", sagði Jóhannes. „Þér sýnist annars þetta þjóðfélag allt vera að fara á hausinn, alla vega er ríkisstjórn- in með eindæmum undarleg. Ég skil satt að segja ekkert í honum Ólafi Jóhannessyni að vera að draga þessa kommúnista á eftir sér. Það getur ekki leitt til velfarnaðar, þeir svíkja allt sem þeir lofa“, sagði Jóhannes levý að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.