Morgunblaðið - 02.06.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
35
máttu ekki sigla út fyrr en
klukkan sjö að morgni og ætlast
var til að þeir snéru aftur á
hádegi. Luyombya beið ásamt
öðru fólki á ströndinni og sá er
blágrár trébátur lagði upp.
Hann heyrði fólkið hrópa
„Evrópumenn, Evrópumenn" en
ákvað að koma sjálfur hvergi
nærri vegna ótta.
Drengur úr hópnum hljóp til
að ræða við gestina. Báturinn
lagði þegar frá bryggju aftur.
Evrópumennirnir töluðu við
strandeftirlitsmanninn, herra
Kyojja. Eftir orðaslitrum þeim
að dæma er drengurinn náði úr
samtalinu ræddu þeir um mögu-
leika á að komast með bíl frá
Katosi til Entebbe. En á þessum
tíma var ekki öðrum farartækj-
um til að dreifa en nokkrum
ryðbeyglum sem ekki hefðu enzt
ferðalagið, Reyndu fjór-
menningarnir því næst að leigja
sér bát til Entebbe. En fiski-
mennirnir höfðu allir ímugust á
að fara þangað." íbúar Katosi
höfðu heyrt að Entebbe væri
þegar í höndum Tanzaníuhers og
vissu ekki hvernig þar yrði tekið
á móti þeim.
Um tvöleytið komu blaða-
mennirnir inn í eina „veitinga-
hús“ staðarins, leirkofa, þar sem
máltíðin, soðnir bananar
(Matoki) með fiski, kostaði fimm
hundruð til þúsund krónur
íslenzkar. Varla höfðu þeir setið
í fimm mínútur á veitingastaðn-
um, að sögn vitnisins, er grænn
Landrover-jeppi frá úganzka
hernum staðnæmdist fyrir
framan. Á samri stund var
staðurinn umkringdur hermönn-
um, sem komið höfðu á dráttar-
vél með tengivagni. Með
Landróvernum segir Loyombyas
að hefðu komið fjórir Libýu-
■ menn og tveir Afríkumenn í
herklæðum. Við hlið ökumanns-
ins sat annar blökkumaður í
nokkurs konar lögreglubúningi.
Nafn hans var Tindye Bwa.
Hann var náinn trúnaðarmaður
Bob Astles.
Luyombya segir: „Evrópu-
mennirnir komu með alíar sínar
föggur út úr veitingahúsinu og
námu staðar við innganginn.
Tindye Bwa steig út úr bifreið-
inni, gekk til þeirra og bað þá að
sýna sér vegabréfin. Strandeftir-
litsmaðurinn Kyojja var einnig
kominn á vettvang. Fjór-
menningarnir framvísuðu
skilríkjum sínum og reyndu að
tala við Tindye Bwa. En einmitt
á þessu augnabliki orgaði
einhver af palli Landróversins:
„Skjótið þá“. Tindye Bwa snéri
sér við og reyndi að koma í veg
fyrir skipunina með uppréttri
hendi. En hermennirnir skeyttu
engu og létu til skarar skríða."
I fyrstu kúlnahrinunni úr
sovéskum hríðskotabyssum af
gerðinni Kalaschnikow féllu
Wofgang Stiens og annar Svíinn.
Hinn reyndi að lyfta höndum á
loft. Bollinger hafði tekizt að
hlaupa um það bil tíu metra.
Hann var drepinn í annarri
hrinunni ásamt Svíanum. Hún
stóð yfir í aðeins nokkrar
sekúndur. Að sögn Luyombya
létust allir fjórir samstundis.
Að verki loknu stukku her-
mennirnir út úr Landróvernum
og gengu ásamt Tindye Bwa að
líkunum. Þeir hirtu af þeim úrin,
myndavélar og pinklana. „Það
síðasta sem ég sá“ sagði sjónar-
votturinn Elkomus Luyombya"
var þegar þeir báru burt með sér
farangurinn".
Luyombya flúði heim aftur
eftir morðin. Að beiðni Klaus
Imbeck fór hann aftur til Katosi
daginn eftir að hann skýrði frá
atburðum. (Hin nýja ríkisstjórn
hafði neitað félaga úr leitaríeið-
angri Stern að fara á aftökustað-
inn“ sökum hins óljósa ástands i
nágrenninu".) íbúarnir í Katosi
höfðu, að sögn hans, grafið
fórnarlömbin á laugardagsnótt
hvern út af fyrir sig og vafið
líkin stórum bananablöðum.
Síðan var hrúgað upp
moldarhaug yfir grafirnar.
Olían á þrotum á D júpavogi
Djúpavogi 31. maí 1979.
I DAG er hlýjasti dagurinn á vorinu,
hitamælirinn hjá mér sýnir 10 stiga
hita. Fram að 23. maí komst hita-
stigið sjaldan yfir frostmark á
daginn og frost var yfirleitt 3—6 stig
á hverri nóttu. Síðan 23. maí hefur
verið að mestu frostlaust á nóttunni
og hitinn á daginn þetta 5—7 stig.
Gróður er lítill og flestir bændur
með fénað á gjöf. Nokkrir munu þó
vera byrjaðir að sleppa einlembdum
ám enda sums staðar lítið hey.
Sauðburður stendur yfir og gengur
yfirleitt sæmilega enda hefur verið
stillt veður og úrkomulítið þrátt
fyrir kuldann. Vinnuálag er mikið á
bændum og er vakað nótt og dag
eftir því sem kraftar leyfa. Ekki
bætir úr skák að olía er á þrotum
vegna verkfallsins og er ekki nota-
legt fyrir svefnlitla menn að koma
inn til hvíldar í köld hús.
Fiskafli er fremur lítill þessa
dagana, humar höfum við ekki feng-
ið enn. Illugi og Jón Guðmundsson
lönduðu í gær og fyrradag samtals
30 tonnum sem fengust í fiskitroll.
Skólafólkið er að koma heim þessa
dagana og mun vera einhver vinna
handa því og vonandi verður það
áfram ef ekki siglir allt í strand
vegna olíuleysis.
Tvær frænkur héðan af Djúpavogi
eru í hópi þess unga fólks sem er að
ljúka prófum í framhaldsskólum.
Eru það Sigrún Svavarsdóttir, fyrsta
kona á Islandi sem lýkur stýri-
mannanámi, óg Svandís Sverrisdótt-
ir sem er fyrst kvenna til að ljúka
námi í húsasmíði. Þessar ungu
dugnaðarkonur eru dótturdætur
Gústavs Gíslasonar síðasta ábúanda
í Papey. — Ingimar.
Gæðin eru mikilvæg fyrir augað.
Fórnið ekki gæðiim, fyrir lægra verð
Það getur verið dýrkeypt,
því vönduð vara er til langframa.
Versliðisérverslun meó
UTASJÓNVÖRP og HUÓMTÆKI
29800
BUÐIN Skipholti19