Morgunblaðið - 02.06.1979, Page 19
1
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1979
51
LjÓ8m. Mbl. Kristján.
Siglunes hefur
sumarstarfsemina
SUMARSTARF siglingaklúbbs-
ins Sigluness hóíst íyrir nokkru.
Starfið verður með svipuðu sniði
og áður, klúbburinn er öllum
opinn og hann mun halda nám-
skeið fyrir byrjendur og þá sem
lengra eru komnir.
Klúbburinn á rúmlega 40 báta
og geta 70—80 unglingar verið á
siglingu í einu. Siglunes hefur
starfað síðan 1962 og er klúbbur-
inn rekinn af Æskulýðsráði
Reykjavíkur. Höfuðstöðvar hans
eru í Nauthólsvík eins og undan-
farin sumur. Meðfylgjandi mynd
var tekin við upphaf sumarstarfs-
ins og sýnir meðlimi stjórnar
Æskulýðsráðs á siglingu. Fremst
má þekkja Sjöfn Sigurbjörnsdótt-
ur formann ráðsins og Hinrik
Bjarnason framkvæmdastjóra.
Fyrirlestur um dreifingu
fr jókorna í andrúmslofti
Samtök gegn astma- og ofnæmi
gangast fyrir almennum fyrir-
lestri laugardaginn 2. júní kl. 15
að Norðurbrún 1. Flytur hann dr.
Sturla Friðriksson og fjallar um
rannsóknir á dreifingu frjókorna
f andrúmsloftinu.
Að sögn Hjartar Péturssonar
formanns Samtakanna gegn
astma og ofnæmi geta ákveðin
frjókorn í andrúmslofti haft slæm
áhrif á ýmsa astma- og ofnæmis-
sjúklinga og kvað hann t.d. á
Norðurlöndum vera fylgst með
dreifingu frjókorna og iðulega
varað við því í veðurfréttum ef
þau kunna að valda þessu fólki
óþægindum.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐLNU
Jónas Guð-
mundsson
í Norræna
húsinu
Það sem við Jónas Guðmunds-
son erum nýlega búnir að sýna
þjóðverjum, hvernig eigi að
stunda myndlist og þar með láta
þá góðu menn vita, að hér úti í
miðju Atlantshafi séu ekki ein-
göngu sauðkind og þorskur, þyk-
ir mér vart sómandi að vera að
skrifa um svo náinn kollega. En
þannig hefur til æxlast að ég er
tilneyddur að vekja áhuga á
sýningu Jónasar, sem nú stendur
í Norræna húsinu, vegna brott-
hlaups Braga míns Ásgeirssonar
af landinu, svo snögglega að ekki
varð fyrir ráðið. Þessar línur
verða því nokkurs konar ábend-
ing til lesenda og kveðja til
kollega og vinar, en ekki veruleg
úttekt á verkum þessa Leonards
okkar á tuttugustu öld.
Að venju eru það vatnslita-
myndirnar, sem hafa yfirhönd-
ina á sýningu Jónasar. En hann
hefur þróað með sér sérstæða
tækni, sem er persónulegri en
margan grunar. Svo er þessi
tækni orðin honum náin, að
þegar hann gerir olíumálverk,
verður hennar vart. Vonandi á
þetta eftir að breytast, því að
sannast mála útheimtir olían
aðra og fastari tækni, þar sem
léttleiki vatnslitarins og iínuspil
á ekki heima. Ég er ekki í
neinum vafa um, að Jónas er
mér sammála um þetta atriði, og
ef hann leggur olíuna fyrir sig á
næstunni á hann eftir að sjá, að
ég hef rétt fyrir mér.
Greenpeace.
Myndlist
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
Tæpar sextíu myndir eru á
sýningu Jónasar og af þeim er
meirihlutinn vatnslitamyndir,
sem áður segir. Þar hefur hann
þá leikni og þá tilfinningu fyrir
fyrirmyndunum, að hann má vel
við una. Bátar Jónasar eru til
sjós, en ekki aðeins bátar. Þeir
sitja á vatninu með þunga sínum
og liggja í fjöru í sárum, aðrir
halda á mið og svo mætti lengi
telja. Þá má ekki sleppa fast-
eignunum. Þarna eru gömlu hús-
in með sálinni, en ekkert Breið-
holt. Við hérna í Vesturbænum
þekkjum þessi hús, og það er viss
hljómlist í þessum húsum. Þar
ómar mannlífið í allri sinni megt
og gerir okkur aftur að mennsk-
um verum, eftir skarkala bíla og
hækkandi bensínverð. Þannig
getur listin oft bætt okkur
horfna menningu eða kveikt í
okkur minningar, sem hafa verið
í hillum heila okkar. Svona
rómantískur getur maður orðið
við að sjá verk Jónasar, ef stillt
er á rétta bylgjulengd.
Eins og stendur eru hvorki
meira né minna en fimm sýning-
ar á myndlist í gangi hér í borg.
Geri aðrir betur í ekki meiru
fjölmenni. Þær eru auðvitaí
mjög mismunandi og sín úr
hverri áttinni, ef svo mætti að
orði kveða. Einmitt þetta gerir
tilveruna litríka, og gerir manni
kleift að ferðast um ótroðnar
slóðir. Málverkið er aðeins eitt
af mörgu, sem Jónas Guðmunds-
son stundar. Hann á meira að
segja í orðaskaki við Kirkjubóls-
bóndann, og auðvitað eru báðir
bjórlausir. Það hefði verið for-
vitnilegt, ef sterkur bjór hefði
verið á boðstólum í þessu landi
og kapparnir barist í fornum
hetjuanda. En þetta er nú útúr-
dúr, en á að sýna, í hve mörg
horn Jónas Guðmundsson hefur
að líta. Samt hefur hann haft
tíma til að fylla Norræna húsið
með myndverkum sínum, og ef
ég veit rétt, er enn meir á
prjónunum hjá honum á næst-
unni. Svona eiga sýslumenn að
vera! Ællt á útopnuðu, eins og
sagt var á gufuskipunum forð-
um. Aðeins ein spurning að
lokum: Hvenær sefur þú, meist-
ari Jónas?
Valtýr Pétursson.
GRUI 22" NDI 621 G 12
Áðurkr.599.600. Núúkr.485.100.
Vildarkjör Nesco
_ . _ ® w V v A. * v
% Útborgun: Mánaðargr.:
20% kr. 97.000 2 X kr. 194.000
30% kr. 146.000 3 X kr. 113.000
40% kr. 194.000 4 X kr. 73.000
50% kr. 243.000 5 X kr. 49.000
60% kr. 291.000 Frjálst innan árs
100% kr. 461.000 (5% staðgr.afsl.)
| VEXTIR OG KOSTNAÐUR EKKIINNIFALIÐ.
• Línumyndlampi. („Black-slripe inline").
• Einingaverk.
• AFC og AGC (sjá 4613).
• Kalt kerfi. (Aukin cnding).
• Framvísandi hátalari. (Betri liljómburður).
• Tónstillir fyrir bassa og diskant.
• Valhnotukassi. Stærð 67X5047.
Öll GRIJNDIG tæki eru búin sömu grund-
vallareiginleikum. Yfirburðarmyndgæði,
traust bygging og mikil ending eru þeirra
cinkenni. Nokkur munur er hins vegar á
aukabúnaði þeirra.
Við öll GRUNDIG tæki má tengja mynd-
segulband og hvers konar leiktæki.
Lcekkun kr.114.500.